Morgunblaðið - 21.11.1991, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
11
Draugafætur
Bókmenntir
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Páll Pálsson: Á hjólum. Skáld-
saga 194 bls. Forlagið 1991.
Þetta voru draugafætur ídrauga-
leikfimi, þeir sem ég horfði á í rúm-
inu högguðust ekki, þeir voru
steindauðir.
Samt rann bióð enn um æðarnar
og ég fann . . . (35).
Eigandi draugafótanna er Jón
Sigurðsson 'liðlega tvítugur maður
sem verður fyrir því óláni að hrapa
ofan í kjallaratröppur á fyllerí, og
afieiðingin; fætur sem ekki hagg-
ast.
Fatlaðir einstaklingar hafa hing-
að til ekki leikið aðalhlutverk í ís-
lenskum skáldsögum né miklar
vangaveltur verið um líf hins fatl-
aða. Umræðan í þjóðfélaginu hefur
heldur ekki verið mikil en þó verið
vaxandi síðustu árin. Viðtöl við ein-
staklinga sem hafa lent í alvarleg-
um slysum og fatlast hafa birst af
og til. Samt sem áður staðreynd
að þjóðfélagið er lítt hannað fyrir
þá sem ekki eru fullfrískir á tveim-
ur jafnfljótum.
Páll Pálsson hefur ekki sent frá
sér skáldsögu í tæpan áratug en
skrifaði talsvert í blöð, meðal ann-
ars viðtöl. Utangarðsunglingar voru
viðfangsefni tveggja fyrri bóka
hans: Hallærisplanið (1982) og Beð-
ið eftir strætó (1983). Söguþráður-
inn er tiltölulega einfaldur; fyllerí
er áberandi í fyrri bókinni og dóp
í þeirri seinni, vesen í báðum en
undirtónninn er gagnrýni á þjóðfé-
lagið sem ýtir unglingum með vand-
amál til hliðar. Að mörgu leyti
sverja þessar bækur sig til nýraun-
sæisins svokallaða sem einkenndist
ekki síst af því að skrifa átti á ein-
földu tungumáli fjöldans um vanda-
mál dagsins. Gallinn var bara sá
að skáldskapargildið vildi víkja og
frásögnin vaTrð flöt.
Á hjólum er beint framhald af
fyrri bókum Páls, áfram er til um-
fjöllunar fólk sem er hálf utangarðs
í þjóðfélaginu en frásagnartækni
höfundar er til muna fyllri en í fyrr-
greindum bókum.
Það er Jón sjálfur, aðalpersónan,
sem skrifar söguna og frásögnin
er bundin við hann eingöngu og
lesandinn fær litla innsýn inn í huga
annarra persóna. Hann hefur frá-
sögn sína 27 dögum eftir slysið en
byrjar strax að lýsa aðdragandan-
um að hinum örlagaríka atburði og
frásögnin er hæg og nákvæm,
spennan er mögnuð upp þar til ris-
inu er náð; slysinu. Þá fylgir á eft-
ir • frásögn af sjúkrahúsvistinni.
Fyrst gjörgæslan þar sem hann var
með óráð í 27 daga, þá bæklunar-
deildin og loks endurhæfingardeild-
in þar sem mottóið er „Enginn er
búinn þótt hann brotni”. Þegar
þessu er lokið er bókin hálfnuð og
við tekur líf utan spítalans, líf í
hjólastól. Jón á erfitt með að sætta
sig við þann förunaut og sveiflast
frá bjartsýni um að geta stigið í
fæturna á ný, til svartnættis.
Allan tímann sem Jón er á spítal-
anum fer sögumaður tiltölulega
hratt yfír sögu og frásögnin er oft
nánast hlutlaus. Þrátt fyrir þetta
mikla áfall skynjar lesandinn aldrei
sársaukann almennilega — jafnvel
þunglyndið sem hellist yfír hann
verður óraunverulegt. Þessi fjar-
lægð og hlutleysi veldur því að frá-
sögnin líkist skýrslu yfír líkams-
ástand sjúklings en tilfinningalífið
verður utangátta. Það er eins og
einhver utanaðkomandi skrifi sög-
una en ekki persónan sjálf. Texti
bókarinnar er einfaldur, skýr og
fræðandi og ber mikinn keim af
texta blaðamanns, þar sem markm-
iðið er að upplýsa lesandann með
einföldum og ljósum texta. Þegar
Jón er niðurbrotinn, sár eða reiður
útskýrir hann um leið hegðun sína
og atferli svo ekkert fari nú á miili
mála og lesandinn skilji hvað er að
gerast. Auðvitað er það hann sem
segir söguna og hans vitund því
ráðandi en það verður eitthvað svo
lítið eftir fyrir lesandann að ráða
í. Ogsvo vareinmitt eitt afþvísem
Páll Pálsson
fór hrikaiega í pirrurnar á mér á
þessum tíma: fólk var sífellt að
gefa mér einhver helvítis ráð [. ■.]
Einsog éggæti ekki neitti Vissulega
var þetta gert af góðum hug og
vissulega þurfti fóik tíma, alveg
einsog ég sjálfur, til að venjast því
að ég væri ekki lengur sjúklingur
þótt ég sæti áfram í hjólastól. Ég
hugsaði bara ekki út íþað þá. (105)
Sagan er hins vegar býsna ná-
kvæm í lýsingum á öllu sjúkdóms-
ferlinu og aðstæðum fatlaðra sem
og þeirri staðreynd að þjóðfélagið
er annað í augum þess sem ferðast
um í hjólastól en þess sem hefur
fullan mátt. Höfundur hefur kynnt
sér aðstæður fatlaðra af nákvæmni
og áreiðanlega opnar þessi bók
augu þeirra sem ekki til þekkja
hvað smæstu mál geta orðið stór
og bjargarleysið algjört ef hreyfí-
geta manns er skert.
Oðru hvoru er frásögnin' brotin
upp með stuttum textabrotum sem
hafa yfir sér draumkenndan blæ
og eru afmarkaðir með skáletruðum
texta. í þeim fær örvæntingfn mál.
Sjálf aðalfrásögnin er einnig rofin
þrisvar-fjórum sinnum með upp-
broti í stíl og þá um leið verður
angistin áþreifanleg: en ég er ekki
sofandi, ég er vakandi, glaðvakandi
og þetta er enginn draumur, þetta
er staðreynd, ég get ekki gengið,
en það er bara núna, ég get ekki
gengið núna, en ég skal geta það,
ég skal komast á fætur, ég skal
geta gengið... (143) I þessum
köflum hverfur þessi fjarlægi sögu-
mannstónn og núið verður ríkjandi
og útskýringar látnar lönd og leið.
Saga Jóns á sér áreiðanlega
margar hliðstæður í þjóðfélaginu
og öll ytri umgjörð hennar hefur
yfír sér sannverðugan blæ en það
er eins og vanti tilfinningar og líf.
Það helgast ekki síst af því að per-
sónusköpun er grunn, flestar per-
sónurnar eru dregnar fáum dráttUm
þannig að þær eru fremur týpur
en persónur af holdi og blóði. Það
á oftar en ekki við Jón líka. Bestu
kaflar bókarinnar eru þegar tilfínn-
ingarnar fá að skila sér út í textann
og þurri blaðamannstónninn lætur
undan.
Nokkur dæmi
Þú gerir alltaf góð kaup hjá Ellingsen.
Notfærðu þér vikutilboð á ýmsum gagnlegum vörum.
Nylon mittisjakki, tegund )ack.
Góður jakki með hettu í kraga.
Stórir vasar. Litur blár.
Tiivalinn bflstjórajakki. Verð
kr. 4.980-
Sterkar og traustar
verkfæratöskur úr málmi. Góð
hlrsia fyrir þá sem gera kröfur
um stóra og sterka tösku sem
þolir hnjask og ilia meðferð.
Tvær stærðir á tiiboðsverði kr.
1.996-og 2.595-
Hitamælar sem mæla
veturinn. Hver vill ekki
fylgjast með hita-stiginu
utandyra á þessum árstíma.
Tilboðsverð frá kr. 265-
Vatteraðar þykkar vinnu-
skyrtur, köflóttar úr baðmuil.
Grimmsterkar og þægilegar.
Verð kr. 3.200-
Loðfóðruðu barnastígvélin
frá Nokia þykja góð í okkar
veðráttu á þessum árstíma.
Litur biár og rauður. Stærðir
21-27. Verð kr. 2.621-
Vandað verkfærasett í tösku
með 84 atriðum. Hentugt
fyrir athafnamanninn eða til
iðnaðar. Allt á vísum stað.
Einstakt tilboðsverð kr.
6.960-
Enn eru til nokkrar
ullarpeysur úr síðustu
sendingu frá Le Lauret í
Frakklandi. Frábært verð frá
kr. 2.978- tll 3.978-. Næsta
sending á leiðinni.
Nærfötin frá Fínuil úr 100%
angóruull á börn og
fullorðna. Dæmi: dömubuxur
kr. 2.825-, stuttermabolir kr.
2.160-, barnabuxur í st. 2 kr.
1.195-, bolur kr. 1.660-
Verkfæratöskur, léttar og
meðfæriiegar úr sterku
plastefni. Verð frá kr. 721-
VdAUUI ÍIIII rVUIUcl|clKKI.
Tískujakkinn í vetur. Köflótt
fóður og viðfest hetta. Litur
dökkgrænt. Einstakt verð kr.
6.900 - og 7.900-.
Dyramottur og dreglar í úrvali.
Dæmi: Gúmmímottur 60x80 sm.
tilboðsverð kr. 2.145-, kókos-
mottur 40x68 sm. tiiboðsverð
kr. 863-, skipadregili með
tökkum undlr, 1 mtr. breiður,
tllboðsverð pr.m. 1.420-
SENDUM UM ALLT LAND
Hollenskur kuldagalli með
loðfóðri. Endurskinsborðar
og laus hetta. Einnig til með
regnheldu efni á öxlum og f.
neðan hné. Verð frá kr. 9.393-
Polyfilla og önnur viðgerðarefni
ásamt málningu og málningar-
verkfærum í úrvaii. Dæmi: 1/2
kg. Polyfilla inni kr. 96-, 2kg. inni
kr. 347-, tilbúið í túpu 330 gr. kr.
175-. Öll málningarverkfæri á
vikutilboði.
Snjóskófla og strákústur í
setti á einstöku tilboðsverði.
Ótrúlegt tilboðsverð kr.
1.989- fyrir bæði áhöldin.
Gæða vara sem endist lengi.
Snjóýta og sterk skófla í setti
á einstöku tilboðsverði.
Ótrúlegt tilboðsverð kr.
3.290- fyrir bæði áhöldin.
Snjóýta með léttri snjóskóflu
tillboðsverð 3.792-
Opið laugardag frá 9 til 14.
Grandagarði 2, Rvík, sími 28855, grænt númer 99-6288.