Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 12
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
Margt er líkt með
mönnum og bílum
Bókmenntir
Ingi Bogi Bogason
Stefán Steinsson: Ástarljóð bíl-
anna. Norðan niður 1991.
Þetta virðist dálítið mikil bók
þegar á henni er tekið, 118 blaðsíð-
ur, prentuð á grófan pappír. En
hér eins og oft áður er töluvert
misvægi milli inntaks og umgjörð-
ar. Höfundurinn segist á einum
stað hafa „ljóðskriftarfíkn á efsta
stigi”. Það er úf af fyrir sig gott.
Hitt er verra ef fíknin leiðir til
þess að fleira er látið flakka en
beinlínis markvert getur talist.
Viðfangsefni ljóðanna eru harla
margbreytileg sem sést m.a. af
heiti bókarhlutanna: 1. Myndir á
kvöldi til næsta dags, 2. Frásagnir
frá morgni til kvölds, 3. Hugsað
mál, 4. Um ástir bíia, 5. Allra átta
veður og 6. Reykjavík — Aþena. í
4. og 6. hluta hefur höfundur einna
mest að segja, hér er kveikja ljóð-
anna með frumlegasta móti.
Sé spurt um markmið bókarinn-
ar virðist það fyrst og fremst vera
að skemmta, að hífa upp hýru-
hána. Bestu ljóðin ná einmitt því
að kalla fram alveg fyrirvaralaus-
an hlátur. Og það er ekki svo lítils
virði.
Sjónarhorn höfundar getur
sums staðar verið frumlegt, alveg
í anda óvenjulegra viðfangsefna.
Þeir eru t.d. ekki margir sem yrkja
um bíla, eða láta fjórhjólatæki
mynda uppistöðu í Ijóðmálinu. Eitt
ljóðið heitir Mér tekst ekki að sclja
mig.
Ég var lítill, blár Fólksvagen, sem snáfaði
burt af bílasölunni síðdegis gráan,
slabbsaman nóvemberdaginn. Engin leit
við mér á mínum mjóum fótum. A vetuma
er svo lítil söluvon - kannski
bætir vorið úr. Ég held að þessa dagana
vilji þær bara stóra jeppa
í leistarbrókum með uppháa svarta skúa.
Tja — margt er líkt með mönn-
um og bílum. Annað verður ekki
sagt. Þetta litla ljóð er dæmigert
fyrir margt í þessari bók, mann-
eskjan tekur flestu létt og lítur
misfarir sínar gegnum pollíönnu-
gleraugun. Höfundurinn er naskur
Stefán Steinsson
á fyndnar samlíkingar en orðalag
virðist yfirleitt lítt unnið: Of mörg
orð um augljósa, hversdagslega
hluti.
Undantekning frá slíku eru fá-
ein bundin kvæði. í þeim tekst
höfundi að þétta textann en áfram
má deila um inntakið. Ég nefni sem
dæmi ljóðið um bóndann Steinólf
i Fagradal sem í undirtitli er sagt
vera þrennrímuð fimmskeytla:
Búdapest er bestra mest,
býður gestum nesti flest.
Hafi prestur hest á sest,
hef ég sést í vesturlest;
heyrði gnest og festabrest.
--------------------
I FRIÐRÍKUR opnar málverka-
sýningu Úr hinu óræða djúpi í
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna laugardaginn 16. nóvember.
Friðríkur er íslendingur í aðra ætt-
ina og Bandaríkjamaður í hina og
er um þessar mundir búsettur á
íslandi. Hann hefur áður sýnt í
Menningarstofnun Bandaríkjanna,
árið 1987 og hefur auk þess haldið
einkasýningar í Kaupmannahöfn,
Hamborg og Reykjavík. Sýningin
stendur til 1. desember og er opin
alla virka daga frá kl. 11.30-17.45
og um helgar frá kl. 14.00-17.00.
Nafn: Helga Guðrún Hallgrímsdóttir
Starf: Hjúkrunarfræðingur
Aldur: 28
Heimili: Hús 1, Vífilsstöðum
Bifreið: Fiat Uno 1988
Ahugamál: Kvikmyndir, leikhús og líkamsrækt
Mitt álit: JÞab er nauðsynlegt að eiga varasjóð og ná
sem bestri ávöxtun. Mér hefur reynst vel að kaupa
Kjarabréf í hverjum mánuði fyrir ákveðna upphæð á
greiðslukorti. Það er þægilegt fyrirkomulag, sjóðurinn
vex stöðugt ogþannig næ ég líka hámarksávöxtun.“
Q2>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESFINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI 7,101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRIN6LUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚST0RGI3,600 AKUREYRI S. (96) 11100
--- --- . IJT---J l:il'l )r-i -li-rrlrf f ■ 1 Teirrnii.od t.[: ur.fnfnii ;uim
’i.iil ilíni.bmtíi.r" tiutiniiutibÚBn v.msfcmv/Al mublijWinuímu rnuíiu
JOLAUOS
Eigum fyrirliggjandi hin eftirspurðu sænsku
aðventuljós og Ijósastjaka fró KONST SMIDE.
Verð fró 2.450 - Sendum í póstkröfu.
RAMMA
GERÐIN
JI4JiÍíÁÍ-t i innoJ^
uriinnuw fw'.úmun
aiuujHniii
TTÍT^
HAFNARSTRÆTI 19, SÍMI 17910, KRINGLUNNI SÍMI, 689960
; 7s,aibíiibiijmuíi6fn ants inoH
■mtHffi!