Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991
„Er þetta hin nýja Evrópa”
Króatar í biðröð eftir vatni. Myndin var tekin í borginni Dubrovnik
en um hana hefur júgóslavneski sambandsherinn setið frá því í byrj-
un októbermánaðar.
eftirHrafn Jökulsson
LITLI hundurinn skalf og nötr-
aði. Hann hljóp fram og aftur;
tiplaði yfir glerbrot, múrsteina
og sprengjuflísar. Um nóttina
hafði öflug sprengja lent á bíl-
skúr við venjulegt hús við venju-
lega götu í borginni Osijek í
Króatíu. Sprengjan sprakk í
fimm metra fjarlægð frá hunda-
kofa sem stóð við aðaldyrnar;
múrsteinsveggur í bílskúrnum
sundraðist, rúður í húsinu
sprungu, bíllinn í innkeyrslunni
var ónýtur - en örlögin höfðu
hagað því svo til að litli hunda-
kofinn var óskemmdur. En íbúi
hundakofans - Triggy, 12 ára
gömul tík - fékk taugaáfall. Og
nú hljóp þessi litli, ólánlegi hund-
ur, áreiðanlega bastarður aftur
í ættir, fram og aftur. Ég kallaði
á Triggy og strauk hendi eftir
snögghærðum búknum, fann
skjálftann sem hafði heltekið lík-
amann.
í húsinu bjó kona milli fertugs
og fimmtugs. Henni hafði tekist
að skýla sér bak við vegg þegar
glerflísar þeyttust inn í húsið.
Ég hafði stoppað við þetta hús
af tilviljun. Ég og samferðamaður
minn, ljósmyndari frá Nýja-Sjá-
landi, vorum að spyrja til vegar.
Þetta var morguninn eftir
sprengjuregnið, tvö samstæð hús í
götunni höfðu orðið fyrir eldflaug-
um. Það gekk kraftaverki næst að
íbúar þessara húsa slyppu ómeiddir
- lifandi. Konan sýndi mér vegginn
sem hún hafði skýlt sér bak við.
Hún hafði ekki tíma til að forða
sér ofan í kjallarann. Rúður
sprungu á báða vegu við hana. Hún
var ótrúlega róleg og yfirveguð og
ég hafði orð á því við hana. Hún
brosti: „Ég er í Þjóðvarðliði Króa-
tíu og var heima í stuttu fríi. Ég
hef verið í fremstu víglínu og er
orðin því vön að sprengjur falli allt
í kringum mig. Fyrst var það
hræðileg lífsreynsla, en þetta venst,
þetta venst.”
Þetta var hins vegar fyrsta
reynsla Triggy af sprengjuregni;
ég veit ekki hvort þessi litli hundur
getur vanist því. Kannski geta allir
vanist öllu.
í næsta húsi bjó lögreglumaður.
Daginn áður höfðu foreldrar hans
komið í heimsókn frá Zagreb.
„Svona voru þau boðin velkom-
in,” sagði hann og sýndi mér svefn-
herbergið þeirra. Eldflaug hafði
brotið sér leið gegnum 25 senti-
metra þykkan útvegginn. Glerbrot
og sprengjuflísar á stærð við rýt-
inga höfðu skorist djúpt ofan í rúm-
dýnuna. Tveimur mínútum áður
hafði manninum tekist að bjarga
foreldrum sínum ofan í kjallara.
Móðir hans var gömul kona, lot-
in í herðum. Tárin runnu niður
kinnarnar, fundu sér farveg í djúp-
um hrukkum. „Ég var heppin,”
sagði hún og tók utan um son sinn.
„Hann bjargaði lífi okkar. Hvað er
eiginlega að gerast í landinu okk-
ar?”
Þessa nótt hafði ég gist á hóteli
við aðaltorgið í Osijek. Mér varð
ekki svefnsamt, hlustaði á drunur
í sprengjum sem var varpað á borg-
ina, fann jörðina nötra og hljóð-
bylgjur sem voru eins og óstöðv-
andi öldur. Þessum sprengjum var
ekki varpað á hernaðarlega mikil-
væga staði, eins og það heitir á
tæknimáli: þeim var varpað í
blindni á íbúðahverfí venjulegs,
óvopnaðs fólks.
Ummerki stríðsins eru alls stað-
ar í Osijek. Ljósmyndarinn benti á
hús í kringum okkur sem höfðu
orðið fyrir eldflaugum: „Sjáðu, þær
koma úr öllum áttum. Serbarnir
hafa næstum því umkringt borg-
ina.”
Við hittum ungan mann, Tom-
islav, sem sýndi okkur borgina.
Tomislav er í hópi þeirra þúsunda
sem eru á biðlistum eftir að kom-
ast í Þjóðvarðliðið. Króatar gætu
mannað 800.000 manna her en
þeir hafa ekki vopn nema fyrir
brot af þeim fjölda.
„Það er skrýtið að sjá borgina
sína verða sprengjum að bráð,”
sagði Tomislav. „Hér var ég alinn
upp, héðan á ég næstum allar mín-
ar minningar. Þama lék ég mér í
boltaleik þegar ég var strákur, um
þessa götu leiddi ég fyrstu kær-
ustuna mína þegar ég var ungling-
ur, þarna er skólinn minn. Og nú
er sprengjum varpað á borgina
mína, það er verið að sprengja
burtu minningar mínar.”
Af íbúum Króatíu eru um það
bil 12% af serbnesku bergi brotnir.
Belgrad-stjórnin hefur rekið stríðið
undir því yfirskini að hún sé að
vemda Serbana í Króatíu.
„Nú eru skólabræður mínir ýmist
í króatíska eða serbneska hernum,”
sagði Tomislav. „Áður vorum við
vinir, það voru engin vandamál, en
nú beijumst við upp á líf og dauða.
Þetta er allt svo skrýtið, svo fárán-
legt.”
Tomislav var beiskur út í um-
heiminn, eins og flestir Króatar
sem ég talaði við: „Ef Evrópuband-
alagið væri einhvers virði, þá hefði
það stöðvað stríðið hérna fyrir
löngu. En EB lætur Serbana teyma
sig á asnaeyrunum. Hugsjónin um
sameinaða Evrópu er vissulega fal-
leg; en ef ekki er hægt að stöðva
þetta stríð - hvers virði er EB þá?
Hvað ætlar EB að gera næst þegar
stríð brýst út í Evrópu? Staðreynd-
in er sú að stærstu löndin þora
ekki að gera neitt af því þau hafa
minnihluta innan sinna vébanda
sem krefjast sjálfstæðis. England
hefur Norður-írland, Frakkar hafa
Korsíku, Spánveijar hafa Baskana.
Þessi lönd þora ekki að gera neitt
sem getur kynnt undir frelsiskröf-
um þessara þjóða. Þetta stríð hefur
sýnt okkur að við eigum ekki marga
vini; við höfum ekki olíuauðlindir
eins og Kúvæt - það hentar engum
að hjálpa Króötum.”
Tilveran er stundum kynleg og
furðulegt hvað fólk leggur á sig til
þess að reyna að lifa eðlilegu lífi í
trássi við blákaldan veruleikann:
Osijek virtist að mestu yfirgefin,
það var neglt fyrir glugga, sand-
pokar voru hvarvetna - og mitt í
þessari auðn gengum við Ný-Sjá-
lendingurinn fram á Upplýs-
ingamiðstöð ferðamanna í Osijek.
Já, Upplýsingamiðstöð ferðamanna
var enn þá opin. í hálfrökkvuðu
herbergi sátu tvær konur, á veggj-
um voru auglýsingar um skoðunar-
ferðir: Vukovar, Vinkovci - tvær
hersetnar borgir í rústum. Meðan
félagi minn keypti kort af borginni
spurði ég aðra konuna: „Koma
margir ferðamenn til Osijek núna?”
Hún hugsaði sig aðeins um: „Nei,
alls engir. Hingað kemur enginn
lengur.” Svo hélt hún áfram að
ráða krossgátu.
Það var léttara andrúmsloft í
fréttamannamiðstöðinni. Ungur og
glaðbeittur starfsmaður, Igor,
sýndi mér frétt í króatísku blaði.
Þar stóð að utanríkisráðherra ís-
lands hefði gefið út yfirlýsingu í
þinginu um að ekki kæmi til mála
að breyta landamærum innan Júgó-
slavíu.
„Svo er þess krafist að öllum
hernaði verði hætt,” sagði Igor.
„Sko til. Það voru líka myndir af
utanríkisráðherranum þínum í sjón-
varpinu í gær. Er hann ekki með
skegg? Mikið væri gaman ef ísland
yrði fyrst til þess að_ viðurkenna
Króatíu. Veistu hvað! Ég á vinkonu
á Islandi. Viltu skila til hennar
kveðju frá mér?” Og nú reif Igor
minnisbók upp úr vasa sínum: „Lát-
um okkur sjá, hún heitir Bryndís
Emilsdóttir, Laugarásvegi 16.”
Þessari kveðju er hér með komið
á framfæri.
Þegar ég og vinur minn frá
Nýja-Sjálandi ókum burt frá Osij-
ek, gegnum bleika akra og brunnin
þorp, gat hann ekki orða bundist:
Þetta er viðurstyggilegt stríð.
Þeir drepa alla sem þeir geta, börn-
in líka. í Osijek lenti sprengikúla
úr skriðdreka á stúlkubarni: smaug
gegnum glugga á íbúðarhúsi og
sundraðist á líkama stúlkunnar.
Og þetta er látið viðgangast af
hinum vestræna heimi undir lok
20. aldar. Er þetta hin nýja Evr-
ópa?” Honum var orðið heitt í hamsi
en það var eins og hann væri að
tala við sjálfan sig.
„Maðurinn trúir á yfirburði sína
en um leið vita allir að það er
hægt að slökkva allt líf á jörðinni.
Ætli menn hugsi nokkurn tíma út
í það að mannkynið getur dáið út,
sprengt sig í tætlur - en það verð-
ur samt líf á jörðinni. Líf án hinnar
miskunnarlausu mannskepnu.”
Ég gæti best trúað því að
hundinum Triggy fyndist þetta
prýðileg hugmynd.
------»-■».»-----
Vísnatón-
leikar í Nor-
ræna húsinu
VÍSNAPARIÐ Jens og Dorthe
halda öðru sinni vísnatónleika í
Norræna húsinu föstudaginn 22.
nóvember kl. 20.30.
Jens og Dorthe koma frá Dan-
mörku og hafa þau sungið saman
í nokkur ár í Danmörku og víðar á
Norðurlöndum. Á efnisskránni eru
norrænar vísur af ýmsu tagi og þau
leggja áherslu á að ná góðu sam-
bandi við áheyrendur með léttum
og skemmtilegum flutningi.
Dorthe hefur að baki tónlistar-
menntun og leikur jöfnum höndum
á gítar, píanó, harmonikku og
strengjahljóðfæri og útsetur tónlist-
ina við vísurnar. Jens leikur á gítar
og flautu.
Þau hafa komið fram í sjónvarpi
og útvarpi og gefnar hafa verið úr
snældur með söng þeirra.
Aðgangur er ókeypis að tónleik-
unum.
LÍF OG FJÖR
I BORGARKRINGLUNNI
ALLA FÖSTUDAGA OG LAUGARDAGA
Ingi Gunnar Jóhannsson, trúbador,
og Jónas Þórír, píanisti, leika og syngja.
Vörukynningar.
Getraunaleikur Demantahússins í fullum gangi.
Handunnin skrautkerti unnin á staðnum.
Simpsonljölskyldan á ferðinni.
Blöðrur og leikföng í tilefhi
af opnun Tómstundahússins.
Jólasveinar ganga um gólf og taka lagið.
Skóburstun.
Nýjar teiknimyndir með íslensku tali.
Sýnikennsla í notkun Swix skiðaáburðar og um-
hirðu svigskiða frá kl.13.00-15.00 á laugardag.
Aímælisbarn dagsins leyst út
með gjöfúm á laugardag.
Allar jólagjafir á einum stað.
OPIÐ FÖSTUDAG FRÁ 10-19
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 10-16
IRNARNUNA
FULL BÍIÐ AF VÖRUM
Síðasti móttökudagur jólapantana
er 22. nóvember
íwm&
PÓNTUNARLISTARNIR
Hólshrauni 2, Hafnarfirði, sími 52866
ARGOS-listinn ókeypis
(Frcttatilkynning)