Morgunblaðið - 21.11.1991, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
21
irtæki. Yfirleitt er það nú svo að
útgefendur borga eða leggja út í
kostnað vegna útgáfa sinna. Ég hef
ekki áður heyrt um að listamennirn-
ir þurfi að borga með sér til að fá
samning. Sinfóníuhljómsveitinni láð-
ist algerlega að leita til íslenskra
útgefenda um útgáfu verka sinna.
Er það ekki fullkomlega óeðlilegt að
ekki séu kannaðir möguleikar á sam-
starfi við íslenska útgefendur áður
en hlaupið er til og borgað með sér
til útlends útgáfufyrirtækis? Ég full-
yrði að íslenskir útgefendur gætu
náð sama árangri að öllu leyti með
útgáfu á verkum í flutningi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands og hið útlenda
fyrirtæki.
Steinar hf., fyrirtæki mitt, hefur
nú undirritað útgáfusamninga vegna
útgáfu á verkum fjögurra hljóm-
sveita á erlendri grund. Hef ég í
samvinnu við tónlistarflytjendurna
lagt fram mikla og ólaunaða vinnu
til þess að ná þessum samningum
auk þess sem fyrirtækið hefur lagt
út í verulegan kostnað vegna þessa.
Er núverandi ríkisstjórn tilbúin til
þess að láta okkur njóta jafnréttis á
þessu sviði á við áðurnefnt fordæmi
með Sinfóníuhljómsveit íslands?
Þó oft svíði undan því óréttlæti
sem gætir í viðhorfum ráðamanna
til hinna ýmsu tegunda tónlistar, er
það lítið borið saman við þá mismun-
un sem á sér stað milli tónlistarinnar
í heild og annarra listgreina. Ljót-
asta dæmið í þessu sambandi tengist
þeirri staðreynd að íslensk tónlist,
ein allra listgreina, ber virðisauka-
skatt. A fundi Sambands tónlistar-
Steinar Berg ísleifsson
„Þó oft svíði undan því
óréttlæti sem gætir í við-
horfum ráðamanna til
hinna ýmsu tegunda tón-
listar, er það lítið borið
saman við þá mismunun
sem á sér stað milli tón-
listarinnar í heild og
annarra listgreina.”
framleiðenda með einum ráðherra
ríkisstjórnarinnar nýverið, kallaði
ráðherrann þetta svívirðu og hafði
algerlega rétt fyrir sér. En hvernig
skyldi standa á því að þessi svívirða
var samþykkt af Alþingi íslendinga
af þessum sama ráðherra og öðrum
fylgismönnum síðustu stjórnar, þeg-
ar virðisaukaskattslögin fóru í gegn-
um þingið? Þegar fyrir lá að afnema
ætti virðisaukaskattinn af bókum
kom fram tillaga um að hann skyldi
einnig felldur af hljómplötum. Sú til-
laga var felld.
Samt var það svo, að eftir að tón-
listarframleiðendur höfðu vakið sér-
staka athygli þingmanna á þessu
óréttlæti, náðist þverpólitísk sam-
staða um að fella niður virðisauka-
skatt af íslenskum hljómplötum.
Þetta mál strandaði á elleftu stundu
þegar einn maður, Ólafur Þrándur
Þórðarson, eyðilagði þennan mögu-
leika með því að bæta flotgöllum við
undanþáguna. Auðvitað eru flotgall-
ar og önnur öryggistæki sjómanna
allra góðra gjalda verð. Það var hins
vegar lúalegt af Ólafi Þrándi að nota
þá til að hindra framgang þess að
öllu listafólki væri gert jafnt undir
höfði og að allar listgreinar væru
undanþegnar virðisaukaskatti, þar á
meðal tónlistin eins og full samstaða
var um í þinginu. Ölafur Þrándur
Þórðarson vissi mætavel að engin
samstaða var um að opna fyrir und-
anþágur á öðrum flokki, s.s. öryggis-
búnaði, þó að sjálfsögðu megi færa
gild rök fyrir því að búnaður sem
bjargað getur mannslífum eigi rétt
á slíkum undanþágum á sama hátt
og verk sem auðga mannlífið.
Virðisaukaskattur af íslenskri
tónlist á þó ekki eingöngu við um
sölu á íslenskum hljómplötum. Einn-
ig er um þá staðreynd að ræða að
hljómleikar íslensks tónlistarfólks
eru skattlagðir ef þeir eru skilgreind-
ir af yfirvöldum sem dansleikir. Hér
er á ferðinni mál sem fengið hefur
mikla umfjöllun í fjölmiðlum vegna
Stuðmanna og Rokkhátíðarinnar í
Húnaveri. Það verður að teljast ákaf-
lega undarlegt að fjármálaráðuneytið
skuli senda frá sér stríðsyfirlýsingu
á hendur aðstandenda Rokkhátíðar-
innar í Húnaveri á sama tíma og
þungarokkstónleikar erlendra hljóm-
sveita í Kaplakrika njóta fullrar und-
anþágu. Endalaust má teygja skil-
greiningar á því hvað teljast hljóm-
leikar og hvað dansleikir, en það sem
skiptir þó höfuðmáli er að flutningur
íslenskrar tónlistar á að vera undan-
þeginn virðisaukaskatti á sama hátt
og leiksýningar og sýningar á ís-
lenskum kvikmyndum eru það.
Nú er AJþingi komið saman á
nýjan leik. I tímaþrönginni á ioka-
dögum síðasta þings var aðeins einn
Þrándur í götu þess að nefnd sví-
virða yrði leiðrétt og því mætti ætla
að þrátt fyrir mörg aðkallandi mál
sýni þingmenn íslensku tónlistarfólki
og almenningi þá virðingu að jafna
samkeppnisaðstöðu íslenskrar tón-
listar á við aðrar listgreinar. Á síð-
asta ári töpuðu útgefendur, höfundar
og flytjendur íslenskrar tónlistar tug-
um milljóna vegna stjórnvaldsað-
gerða sem mismunuðu gróflega sam-
bærilegum samkeppnisgreinum og
listgreinum. Það má ekki viðgangast
að óréttlætinu sé viðhaldið með að-
gerðarleysi. Hvað með þingmennina,
sem svo drengilega reyndu að vinna
málið á síðustu dögum þingsins sl.
vor? sumir hvetjir eru orðnir ráðherr-
ar, en þýðir það að menn verði um
leið að tapa hugsjónum sínum og
hugmyndum sem þeir börðust fyrir
meðan þeir voru óbreyttir þingmenn?
Voru þeir ekki kosnir til að fylgja
sannfæringu sinni? í stefnuskrám
allra stjórnmálaflokkanna, sem sæti
eiga á Alþingi, er skýrt kveðið á um
að þeir muni beijast á móti þeirri
mismununum sem álagning virðis-
aukaskatts á íslenska tónlist er. Samt
eru þetta sömu stjórnmálaflokkarnir
og komu þessari mismunum á og er
það brot á stjórnarskránni, þar sem
skýrt er tekið fram að ekki megi
mismuna samkeppnisgreinum með
stjórnvaldaðgerðum. Er það kannski
satt sem einn ráðherrann sagði, að
menn hefðu orðið fegnir þegar Ólaf-
ur Þrándur tæklaði íslenska tónlist
með flotgöllunum? „Þetta er nefni-
lega of gott mál til þess að það sé
hægt að vera á móti því,” sagði hann.
Það er kannski svona sem lýðræðið
virkar í reynd á hinu háa Alþingi.
Hæstvirtu þingmenn, þið þekkið
málið en gerið ykkur kannski ekki
grein fyrir skaðanum sem þið valdið
íslenskri tónlist, íslensku tónlistar-
fólki, útgefendum og íslensku þjóð-
inni. Er ekki kominn tími til að tengja
og klára málið þannig að ekki líði
önnur jól þar sem íslensk tónlist sit-
ur ekki við sama borð og aðrar list-
og menningargreinar? Það væri hrein
og bein svívirða eins og þið vitið.
Höfundur er formadur Sambands
hljómplötuframleidenda.
Mikið úrval af austurlenskri
gjafavöru úr messing, á ótrúlegu
verði. Blómavasar, kertastjakar,
skrautmunir.
Jolaböm á öllum aldri flykkjast í
þennan skemmtilega ævintýraheim
jólanna.
Margir gera ser dagamun og útbúa eigin
skreytingar í tilefni eins skemmtilegasta tíma
ársins. Eigum allt efni til aðventuskreytinga og
fjölbreyttar tilbúnar aðventuskreytingar.
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070