Morgunblaðið - 21.11.1991, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
Félagsmiðstöðin Fjörgyn:
Kynnig á tillögum að
umferð um Fannafold
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Golfheimur opnaður í Skeifunni
Vetraraðstaða fyrir kylfinga
hefur verið opnuð í Skeifunni 8.
Þar geta kylfíngar komið og sleg-
ið, púttað, leikið í golfhermi, reynt
sig í glompum eða æft innáskotin.
Jóhann Valgarðsson og Sævar
Egilsson sem eiga og reka staðinn
sem kailast Golfheimur og er til
húsa í Skeifunni 8. Gólfflötur
húsnæðisins er 850 fermetrar en
alls hafa kylfíngar rúmlega 1.000
fermetra til umráða. í húsnæðinu
eru átta afmörkuð svæði, svoköll-
uð búr, til að æfa sveifluna og slá
í net, 18 holu púttvöllur, sem sést
á myndinni, og auk þess æfínga-
svæði þar sem menn geta slegið
upphafshögg, æft innáskotin og
högg úr glompum. Einnig er golf-
hermir sem menn hafa aðgang
að og veitingasala. Golfheimur er
opinn alla daga vikunnar frá
klukkan 8 að morgni og fram til
klukkan 23.30 á kvöldin.
Aftur til fortíðar:
myndum og matargerð
FRÖNSK veisla verður í kvik-
myndum og matargerð í Há-
skólabiói, Oðinsvéum og Perl-
unni dagana 21.-30 nóvember.
Háskólabíó mun sýna franskar
kvikmyndir og veitingahúsin
bjóða matargestum upp á
franska rétti.
Bjarni Ingvar Ámasson, veit-
ingamaður í Brauðbæ, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að franskur
matreiðslumeistari, Francois Fons,
réði ríkjum í Óðinsvéum á meðan á
frönsku veislunni stæði. Myndu
hann og aðrir matreiðslumeistarar
hússins hafa alls kyns nýstárlega
gómsæta rétti á boðstólnum. Gaml-
ir klassískur franskir réttir verða
hins vegar á matseðli Perlunnar.
Franskir tónlistarmenn munu
skemmta á gestum á veitingastöð-
unum tveimur í tilefni Frönsku
veislunnar.
í franskri bíóveislu eru fímm
kvikmyndir. Þær eru Hinir saklausu
(André Téchine leikstýrir), íslands-
togarinn ( Pierre Schoendoerffer
leikstýrir), Vertu sæll Bonaparte
(Youssef Chahine leikstýrir), Segðu
honum að ég elski hann (Claude
Miller leikstýrir) og Tvöfalt líf Ver-
oniku ( Krzysztof Kieslowski leik-
stýrir).
Friðbert Pálsson, forstjóri Há-
skólabíós, lagði áherslu á síðastt-
öldu kvikmyndina á kynningarfundi
um Frönsku veisluna. Myndin fjall-
ar um tvær konur sem fæðast í
tveimur ólíkum löndum, Frakklandi
og Póllandi. Þær eru eins útlits og
hafa báðar mikla tónlistargáfu. Líf
þeirra tengist með þeim hætti að
önnur nýtir sér ómeðvitað reynslu
og visku hinnar.
Perlan, Sparisjóðirnir og Fróði
munu gangast fyrir barnadögum
laugardaga og sunnudaga yfír að-
ventuna í Perlunni. Verður þar
ýmislegt til skemmtunar. Nefna
má tónlist og kynningar á barna-
bókum. Þá munu íslensku jólasvein-
arnir koma í heimsókn.
Fundað um umhverf-
isvemd á miðhálendi
Dómsmálaráðuneytið, sam-
gönguráðuneytið og umhverfis-
ráðuneytið gangast fyrir ráð-
stefnu um ferðamennsku og
umhverfisvernd á miðhálendi ís-
lands á Hótel Borg föstudaginn
22. nóvember, frá kl. 11 til 18.
Jafmnikilvægt að varðveita íslenska
tónlist og handritin á sínum tíma
- segir Jónatan Garðarsson útgáfusljóri hjá Steinum hf.
JÓNATAN Garðarsson, útgáfustjóri hjá Steinum hf., hefur unnið
nánast sleitulaust að því að lagfæra upptökur og velja íslensk dægur-
lög frá árunum 1950-1980 til útgáfu undanfarin tvö ár. Með útgáfu
á 180 lögum frá þessum tíma á 9 geisladiskum og kasettum undir
heitinu Aftur til fortíðar er séð fyrir endann á endurútgáfunni í bili
en Jónatan segir söfnun íslenskrar tónlistar ekki ómerkara verk en
handritasöfnunina á sínum tíma. Meðal útgáfuefnisins eru gamlar
upptökur laga sem ekki hafa heyrst í mörg ár en njóta enn mikilla
vinsælda jafnt hjá ungu kynslóðinni og þeim sem eldri eru.
Steinar hf. keypti útgáfurétt á dægurlaga yfír á stafrænar kasett-
öllu hljóðrituðu efni frá Fálkanum,
íslenskum tónum, Tóniku, SG-
hljómplötum og Takti, fyrir um það
bil tveimur árum en þá tók að sögn
Jónatans við mikil vinna við að fara
í gegnum hljóðritanirnar. „Við kom-
umst að því að farsælasta lausnin
til þess að verðveita upptökumar
væri útgáfa af einhveiju tagi og
ákváðum, eftir nokkrar bollalegg-
ingar, að byija á því að gefa út
dægurlög frá árunum 1950 til 1980
og flokka í þijá flokka eftir hverjum
áratugi fyrir sig. Útgáfunni skipt-
um við í þrennt, þrír geisladiskar
með 20 lögum og kasettur komu út
í fyrra, aðrir þrír diskar og kasettur
í vor og síðasta útgáfan fyrir
skömmu.”
Helstu dægurlagasöngvarar
og hljómsveitir
Jónatan færðj upptökur um 1000
ur en aðeins um 180 lög voru gefin
út. Útgáfan nær að hans sögn til
allra helstu dægurlagasöngvara og
hljómsveita frá 1950 til 1980. „Af
lögum má nefna Litlu fluguna með
Sigfúsi Halldórssyni sem talin er
vera fyrsta íslenska dægurlagið en
lagið fékk vængi í fyrsta skiptið sem
það var leikið í útvarpi. Þá má telja
upp lög með Alfreð Claesen, Soffíu
Karlsdóttur yfír í lög Trúbrots,
Hljóma og allra þeirra hljómsveita
sem verið hafa síðustu þijátíu árin.”
Tíminn sem fór í að laga upptök-
ur, hreinsa plötur og taka af þeim
smelli, var að sögn Jónatans ómæld-
ur en útkoman framar björtustu
vonum. Jónatan segir að sumar
upptökurnar hafí verið í svo slæmu
ástandi þegar farið var að vinna
úr þeim að þær verði ekki spilaðar
aftur. „Við teljum okkur vera að
bjarga stórum hluta af . íslenskum
menningarverðmætu, þ.e.a.s. tón-
listarverðmætum, með útgáfunni,”
segir Jónatan,„því þó menn tali um
dægurmenningi í dálítið niðrandi
tón er hún engu að síður sú menn-
ing sem almenningur neytir dags
daglega, meðvitandi eða ómeðvitað,
í miklum mæli,” bætir hann við og
minnir á að mörg þeirra laga sem
nú hafí verið gefín út hafi ekki feng-
ist lengi og séu kærkomin mörgum
af eldri kynslóðinni. Tónlistin hefur
einnig fengið góðan hljómgrunn
meðal ungs fólks sem er að sögn
Jónatans sérstaklega hrifíð af tíma-
bilinu milli 1960 og 1970.
Gleðileg viðbrögð
„Gleðileg fínnast mér líka við-
brögð sjálfra tónlistarmannanna
sem ég hef haft samband við í því
skyni að afla upplýsinga um hvar
upptökumar hafí verið gerðar, um
höfunda laga eða texta, hljóðfæra-
leikara og fleira sem á þarf að halda
því oft fylgja litlar upplýsingar upp-
tökunum. Flestir hafa verið afar
fúsir að rifja upp og láta í té upplýs-
ingar og margir þakklátir fyrir að
munað sé eftir þeim, einhver hafí
áhuga á að rifja upp tónlistina og
halda henni til haga,” segir Jónat-
an. --------- —.------------
Megintilgangur ráðstefnunnar er
að fá fram sjónarmið hinna ýmsu
aðila, opinberra stofnana, samtaka
í ferðaþjónustu og áhugafélaga um
útivist, sem tengjast beint eða
óbeint ferðamennsku og umhverfís-
vernd á hálendi íslands, um það
hvemig best megi tryggja samspil
ferðamennsku og umhverfísvemdar
á hinu viðkvæma hálendi íslands.
Eiður Guðnason umhverfísráð-
herra setur ráðstefnuna en inn-
gangserindi flytur Þóra Ellen Þór-
hallsdóttir, líffræðingur.
Aðrir frummælendur eru: Magús
Oddsson, Halldór Bjamason, Stein-
unn Harðardóttir, Guðmundur Pét-
ursson, Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir,
Hörður Sigurbjarnason, Steingrím-
ur R. Friðriksson, Kári Arnórsson,
Kári Kristjánsson, Herbert Hauks-
son, Þóroddur F. Þóroddsson, Jón
Birgir Jónsson, Þorgeir Andrésson
og Órn Sigurðsson. Þórhallur Jós-
epsson stjórnar pallborðsumræðum
og Arnþór Garðarsson tekur saman
niðurstöður. Ráðstefnustjóri verður
Magnús Jóhannesson.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Jónatan Garðarson.
Jónatan segir að honum fínnist
ekki síður miklvægt að varðveita
íslenska tónlist, dægurlög, sönglög
og einsöngslög, og gera ráðstafanir
með að færa tónlistina yfir á varan-
leg bönd eða diska en þegar hand-
rit voru tínd úr íslenskum kotum
og afrituð. „Því þó okkur í dag
fínnst þetta ef til vill ekki mjög
merkilegt er það svo að engin veit
t. d. hvernig tónlist var flutt fyrir
500 ámm á íslandi.”
Landsbanki íslands:
Skuld borgar-
innar rúmur
1,5 milljarður
BANKASTJÓRN Landsbanka ís-
lands hefur með fréttatilkynningu
staðfest að skuld Reykjavíkur-
borgar við bankann sé 1.556.412
milljónir króna cn ekki 2,9 millj-
arðar eins og kom fram í frétt
DV s.l. laugardag.
Að sögn Markúsar Arnar Antons-
sonar borgarstjóra, eru nokkrar
sveiflur á stöðu borgarinnar milli
mánaða. Um síðustu áramót var
skuldastaðan rúmlega 1,4 millj. og
er gert ráð fyrir að hún verði sú
sama í lok desember næstkomandi.
KYNNING a tillögum að umferð um Fannarfold í Grafarvogi á veg-
um Borgarskipulagsins stendur yfir félagsmiðstöðinni Fjörgyn í
Foldahverfi. Tillögurnar verða kynntar fram til 29. nóvember og
er óskað eftir athugasemdum og ábendingum íbúanna. Kynningin
er opin alla virka daga frá kl. 9 til 19.
Að sögn Ivars Eysteinssonar ark-
itekts hjá borgarskipulaginu, var
það samkvæmt ósk íbúanna við
Fannafold, sem lögðu fram undir-
skriftarlist í skipuiagsnefnd máli
sínu til stuðnings, að gatan var lok-
uð rétt vestan við Jöklafold. Þegar
til átti að taka urðu íbúar í götunni
óánægðir með lokunina og mót-
mæltu henni jafnvel sumir þeirra
sem áður höfðu farið fram á lokun.
Flestir sem mótmæla búa við Jökia-
fold og þar austan við en þeir sem
mæla með lokuninni búa vestast.
„íbúarnir sóttu um lokun aðeins
austar en samþykkt var í skipulags-
nefnd en samt austan við Jökla-
fold,” sagði ívar. „Núna er verið
að leysa þetta mál með því að setja
fram þijár tillögur, þar sem gert
er ráð fyrir annarskonar útfærslu
á þessari samþykktu lokun. Önnur
tillaga gerir ráð fyrir þrengingu en
engri lokun og loks sú þriðja sem
gerir ráð fyrir lokun aðeins ofar við
sjálfa Jöklafoldina.”
Óskað er eftir áliti íbúanna og
jafnframt öðrum hugmyndum frá
þeim. „Þær verða síðan allar lagðar
fyrir skipuiagsnefnd að nýju, sem
metur hvaða afstað verður tekin í
lokin,” sagði ívar.
Morgunblaðið/Júlíus
Sigmar B. Hauksson, Einar Thoroddsen, Helgi Sigurðsson og Bjarni Ingvar Árnason bragða á Cha-
berlay rauðvíni frá því í sumar, en þetta splunkunýja vín verður á boðstólum í frönsku veislunni.
Háskólabíó, Brauðbær og Perlan:
Frönsk veisla í kvik-