Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NOVEMBER 1991
25
[
Shevardnadze skipaður utanríkisráðherra Sovétríkjanna:
Kveðst vilja vera með í því að
manna „götuvígi friðarins”
- « «
§ » fflvj
■ I * IH <1 ' ,/ -
;":l h iji 'í
! 1 1 1 1
f
% f ? f \
l|M’
f I 4 1 4
m:
■■■ . !
[ 8 f% M- -
m4- jUfiL'ýJ’ Vm
ijtí* .4» *
Heuter
Shevardnadze flytur ávarp á svölum ráðhússins í Moskvu er sovéskir harðlínukommúnistar reyndu að
ræna völdunum í ágúst.
sig inn í málin. Ég hef það eftir
samstarfsmanni hans í utanríkis-
ráðuneytinu að fyrst eftir að hann
kom þar til starfa hafi hann lagt
dag við nótt til að setja sig inn í
starfið. Hann las samninga Sovét-
ríkjanna við erlend ríki yfir og lagði
stund á þjóðarétt,” sagði Voslensk-
íj-
Shevardnadze sagði skömmu
eftir valdaránið í ágúst að hann
vildi ekki verða utanríkisráðherra
í ríki sem væri að leysast upp.
Eiga þau rök ekki við lengur? „Sov-
étríkin eru ekki bara að leysast
upp, þau hafa nú þegar orðið upp-
lausninni að bráð,” segir
Búkovskíj. Um þessi sinnaskipti
Shevardnadze segir Voslenskíj:
„Það er ljóst að átta til níu lýð-
veldi munu tilheyra Sovétríkjunum
áfram. Flest geta þau ekki leyft
sér fullkomið sjálfstæði af efna-
hagslegum ástæðum. Kasakhstan
er reyndar stórt land en ætti á
hættu að Kínverjar reyndu að sölsa
það undir sig. Úkraína getur stað-
ið á eigin fótum og framtíð lands-
ins er óljós. En maður getur ekki
endalaust beðið eftir skýrari línum.
Þess vegna var rétt hjá She-
vardnadze að taka boðinu nú, jafn
rétt og það var að hafna því
skömmu eftir valdaránið.”
Ferill Shevardnadze í Georgíu
Á árunum 1972 til 1985 var
Shevardnadze innanríkisráðherra
Georgíu og síðar flokksleiðtogi.
„Hann var blóðugur stjórnandi,”
segir Búkovskíj. „Honum var falið
að útrýma spillingu. Hann innleiddi
pyntingar og aftökur. Vestrænir
fjölmiðlar vilja ekki tala um þetta.
Ég reyndi að benda á þetta þegar
Shevardnadze varð utanríkisráð-
herra í fyrra sinnið. En fjölmiðlun-
um fannst að frásagnir af þessu
gætu spillt sambandinu við Sovét-
ríkin.” Voslenskíj er ekki á sama
máli: „Hann var ósköp venjulegur
sovéskur ráðamaður á Brezhnev-
tímanum. Hann var hvorki fijáls-
lyndur né sérlega harðneskjulegur.
Hann var enginn ívan grimmi, svo
mikið er víst. Georgíumenn voru
engu að síður ekki mjög hrifnir
af honum. Seinna var hann ekki
gerður að yfirmanni KGB, varnar-
málaráðherra eða innanríkisráð-
herra Sovétríkjanna heldur utan-
ríkisráðherra og það gefur til
kynna hvernig honum fórst stjóm-
in í Georgíu úr hendi.”
Moskvu, Washington. Reuter.
EDUARD Shevardnadze, sem
hefur verið skipaður utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, kvaðst í
gær hafa ákveðið að taka við
embættinu vegna þess að hann
hefði viljað „manna götuvígi frið-
arins”. Embættismenn og frétta-
skýrendur í Washington segja að
þótt skipun Shevardnadze í emb-
ættið kunni að gleðja James Bak-
er, starfsbróður hans í Banda-
ríkjunum, muni hann í náinni
framtíð gegna álíka hlutverki og
„fyrsti stýrimaður á Titanic”.
Hann fái það verkefni að aðstoða
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta
við að bjarga því sem eftir er
af völdum Sovétstjórnarinnar.
Shevardnadze sagði í viðtali við
sovésku fréttastofuna Interfax að
ástandið í Sovétríkjunum sé mun
alvarlegra nú en fyrir valdaránstil-
raun sovéskra harðlínukommúnista
í ágúst. „Ég gat ekki látið nægja
að fylgjast með utan vallar,” sagði
hann. „Við verðum að manna götu-
vígi friðarins, því öllu mannkyninu
stafar mest hætta af óstöðugleika
í Sovétríkjunum.”
Sættir sig síður við
auðmýkingu en Pankín
Þótt aðeins séu liðnir ellefu mán-
uðir frá því Shevardnadze sagði af
sér sem utanríkisráðherra hafa Sov-
étríkin gjörbreyst. Efnahagur
landsins hrynur stjórnlaust á sama
tíma og völdin færast í auknum
mæli frá miðstjórnarvaldinu í Kreml
til einstakra lýðveld undir forystu
Rússlands.
„Ekkert bendir til þess að þetta
embætti eigi sér mjög langa fram-
tíð í núverandi mynd,” sagði einn
af embættismönnum George Bush
Bandaríkjaforseta. „Það er vissu-
lega spurning hversu miklu hann
getur fengið áorkað nú.”
Bandaríski stjórnmálaskýrand-
inn Kim Holmes tók dýpra í árinni.
„Þetta er eins og að verða fyrsti
stýrimaður á Titanic,” sagði hann.
í Washington var litið á fyrir-
rennara Shevardnadze, B_orís Pank-
ín, sem pólitískan léttvigtarmann
og tekið var til þess að hann veitti
ekkert viðnám þegar Borís Jeltsín,
forseti Rússlands, fyrirskipaði
miskunnarlausan samdrátt í ráðu-
neyti hans. Flest bendir til þess að
Pankíns verði aðeins minnst fyrir
að sætta sig þegjandi og hljóða-
laust við hveija auðmýkinguna á
fætur annarri. Hann féllst á að
starfsfólki utanríkisráðuneytisins
yrði fækkað um helming og á Aust-
urlandaráðstefnunni í Madrid í síð-
asta mánuði gat sovéska sendi-
nefndin ekki einu sinni greitt hótel-
reikninga sína. Bandaríkjamenn og
Spánveijar gerðu það fyrir hana
án jiess að láta mikið á því bera.
Olíklegt er að Shevardnadze
sætti sig við slíka auðmýkingu.
Hann nýtur mikillar virðingar er-
lendis, auk þess sem skapast hafa
vináttutengsl milli hans og James
Bakers. Þeir hittust 29 sinnum á
tveimur árum og lögðu báðir
áherslu á að halda vináttunni eftir
afsögn Shevardnadze.
Liður í baráttu
Sovétstjórnarinnar fyrir
völdum
Nú, þegar Shevardnadze tekur
við embættinu á ný, kann svo að
fara að tengsl hans við Jeltsín verði
enn mikilvægari en sambandið við
Baker. Þeir stóðu sem kunnugt er
saman umkringdir vegatálmum í
byggingu rússneska þingsins þegar
sovéskir harðlínukommúnistar
reyndu að ræna völdunum í ágúst.
„Helsta verkefni hans kann að
verða að fást við lýðveldin og
tryggja að miðstjórnin í Moskvu
haldi hlutverki sínu. Pankín var það
augljóslega um megn,” sagði
bandaríski Sovétfræðingurinn Dim-
itri Simes.
Þó er talið ólíklegt að Sovét-
stjórnin endurheimti þau völd, sem
hún hefur þegar glatað, og margt
bendir til þess að Sovétríkin haldi
áfram að liðast í sundur. „Stjórn
Bush leggur nú æ meiri áherslu á
að koma á tengslum við lýðveldin
en ekki miðstjómarvaldið. Það ætti
ekki að breytast,” sagði Sovétfræð-
ingurinn Francis Miko.
Simes telur að Shevardnadze sé
mikill vandi á höndum. „Gorbatsjov
reynir nú alit sem hann getur til
að tryggja Sovétstjórninni völd.
Skipun Shevardnadze í embætti
utanríkisráðherra er eitt af síðustu
tækifærum hans til þess.”
í BAKSTURINN
í VEIÐITÚRINN
í BOLLANN
Á SKÍÐUM
í HEITA POTTINN
Á TOPPINN
Islenskt og gott