Morgunblaðið - 21.11.1991, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
Frumvarp félagsmálaráðherra um starfsmenntun í atvinnulífinu;
Hver verður mótleikur
menntamálaráðherra?
- spyr Svavar Gestsson
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur nú á nýjan leik
lagt fram frumvarp til laga um starfsmenntun í atvinnulífinu. Félags-
málaráðherra mælti fyrir þessu frumvarpi 5. mars síðastliðinn og
leggur nú frumvarpið fram óbreytt. Þáverandi menntamálaráð-
herra, Svavar Gestsson, taldi sig þá geta stutt þetta frumvarp. í gær
sagði Svavar Gestsson blaðamanni Morgunblaðsins að hann hann
myndi flytja breytingartillögur við þetta frumvarp félagsmálaráð-
herra.
Frumvarp sjávarútvegsráðherra:
Erlend veiðiskip fái að
landa og sækja þjónustu
„Erlendum veiðskipum er heimilt að landa eigin afla og selja i
íslenskum höfnum og sækja þangað alla þá þjónustu er varðar
útgerð skipsins,” segir í 1. mgr. 3 greinar að frumvarpi til laga
um rétt til veiða í efnahagslögsögu Islands sem Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi.
Þótt gert sé ráð fyrir því að
erlend veiðiskip geti landað hér
afla og sótt þjónustu er kveðið á
um í 3. grein laganna að: „Sjávar-
útvegsráðherra er þó heimilt að
takmarka heimildir samkvæmt 1.
mgr. vegna skipa, er stunda veiðar
úr njrtjastofnum sem veiðast bæði
innan og utan íslenskrar efnahags-
lögsögu, hafi íslensk stjómvöld
ekki gert samning um nýtingu
viðkomandi stofns við stjómvöld
hlutaðeigandi ríkis. Má takmarka
heimildir við nauðsynlega neyðar-
þjónustu.”
Á engan hátt er útlendum veiði-
skipum heimiluð veiði í íslenskri
lögsögu með þessu fmmvarpi því
að í 1. gr. er áréttað: „Erlendum
skipum eru bannaðar allar veiðar
í efnahagslögsögu íslands eins og
hún er ákveðin í lögum nr. 41, 1.
júní 1979, um landhelgi, efnahags-
lögsögu og landgrunn. Erlendum
skipum er óheimilt að vinna afla
í efnahagslögsögu íslands.
Fmmvarp þetta hefur undanf-
arið verið í smíðum í sjávarútvegs-
ráðuneytinu en rétt þótti að doka
við og bíða niðurstaðna af
samingaviðræðum um Evrópskt
efnahagssvæði, EES. Og í fyrri
viku taldi sjávarútvegsráðherra
fært að kynna frumvarpið í ríkis-
stjóm.
Gustavsberg
I athugasemdum með fmm-
varpinu kemur m.a. fram: „Með
því að heimila frjálsari aðgang að
íslenskum höfnum er komið til
móts við þær breytingar til fijáls-
ræðis í verslun og viðskiptum milli
landa sem orðið hafa á síðari árum.
Með þeim fyrirvara sem gerður
er varðandi löndun afla úr sam-
eiginlegum fiskistofnum verður
ekki annað séð en að breyting
þessi geti orðið okkur til hags-
bóta. Sú rýmkun á reglum um
komu erlendra skipa til hafna sem
hér er gert ráð fyrir mun án efa
leiða til aukinna viðskipta við er-
lend veiðiskip.”
Það kemur m.a. fram í frumvarp-
inu að markmiðið er að: „Hvetja til
aukinnar starfsmenntunar í at-
vinnulífinu.” Og þessum markmið-
um skal m.a. náð með: „stuðningi
við skipulega starfsmenntun; undir-
búning, náms- og kennslugagna-
gerð.” Einnig með „frumkvæði og
mótun heildarstefnu varðandi
starfsmenntun í atvinnulífinu sam-
kvæmt ákvörðun starfsmennta-
ráðs.”
I öðrum kafla frumvarpsins er
m.a. kveðið á um starfsmenntaráðið
en gert er ráð fyrir því að félags-
málaráðherra skipi sjö manna ráð
til tveggja ára. Einn fulltrúi skal
skipaður af félagsmálaráðherra án
tilnefningar. Þrír fulltrúar skulu til-
nefndir af samtökum atvinnurek-
enda og þrír fulltrúar af samtökum
launafólks. í þessum kafla frum-
varpsins er einnig kveðið á um að:
„Starfsmenntun í atvinnulífínu skal
heyra undir félagsmálaráðuneytið.
Starfsfræðsla í fiskvinnslu skal þó
heyra undir sjávarútvegsráðuneyt-
ið.”
Málamiðlun
Nokkuð skiptar skoðanir hafa
verið um tengsl starfsmenntunar í
atvinnulífinu við almenna fullorð-
insfræðslu en fyrrverandi mennta-
málaráðherra, Svavar Gestsson,
hefur ekki farið dult með þá skoðun
að menntun og fræðsla ætti að
vera eins og kostur væri á undir
forsjá menntamálaráðuneytis. Það
varð að samkomulagi milli ráðherr-
anna Svavars Gestssonar og Jó-
hönnu Sigurðardóttur, 24. febrúar
1989, að setja sérstakra löggjöf um
starfsmenntun í atvinnulífinu sem
heyrði til verksviði féjagsmálaráðu-
neytis og aðra er heyrði til verk-
sviði menntamálaráðuneytis.
Niðurstaðan varð sú að þáver-
Sjávarútvegsráðherra hefur
lagt fram áður boðað frumvarp
til laga um fullvinnslu botn-
fiskafla um borð í veiðiskipum.
í bráðabirgðaákvæði í lögunum
er gert ráð fyrir að skipum sem
hófu fullvinnslu afla fyrir gildi-
stöku laganna skul veittur frest-
ur til 1. september 1996 til að
fullnægja kröfum laganna.
I greinargerð með frumvarpinu
kemur m.a. fram að í sjávarút-
vegsráðuneytinu hafi lengi verið
uppi hugmyndir um að gera aukn-
ar kröfur til þeirra fískiskipa sem
vinna botnfiskafla um borð til að
5
Veljið aðeins það besta
— veljicI heildarlausn
frá Gustavsberg
í baðherbergið
Gustavsberg
Fæstíhelstu
f* I
JLliI
Er Jón Baldvin
í þjónustu Antíkrists?
Spádómarnir rætast
andi menntamálaráðherra lagði
fram frumvarp til laga um almenna
fullorðinsfræðslu sem var vísað til
menntamálanefndar. Þáverandi og
núverandi félagsmálaráðherra lagði
fram sitt frumvarp um starfsmennt-
un í atvinnulífinu sem var vísað til
félagsmálanefndar. Hvorugt frum-
varpið kom úr nefnd og dagaði
uppi. í umræðum á Alþingi hinn
fimmta dag marsmánaðar 1991
lýsti Svavar Gestsson þeirri skoðun
sinni að það væri að mörgu leyti
æskilegt að vera með eitt samfellt
endurmenntunar- og fullorðins-
fræðslukerfi, bæði utan vinnumark-
aðar og innan. Hins vegar lægi það
fyrir að aðilar vinnumarkaðarins
hefðu iðulega samið um ákveðin
starfstengd námskeið. Og það hafi
þeir gert í tengslum við eða að
nokkru leyti undir forræði félags-.
málaráðuneytis. Niðurstaðan hefði
því orðið samkomulagið sem var
undirritað 24. febrúar 1989. Svavar
Gestsson sagðist geta með mjög
góðri samvisku staðið að frumvörp-
unum báðum, annars vegar sem
flutningsmaður og hins vegar sem
Svavar Gestsson
stuðningsmaður ríkisstjómarinnar.
í samtali við Morgunblaðið í gær
lagði Svavar Gestsson áherslu á þá
skoðun sína að fullorðinsfræðsla
ætti að vera með þeim hætti að
þeir sem nytu starfsmenntunar í
atvinnulífinu gætu nýtt sér hana í
skólakerfinu og öfugt. Svavar taldi
ástæðu til að spyija, hver yrði mót-
leikur núverandi menntamálaráð-
herra. Hvort ekki mætti vænta
frumvarps um fullorðinsfræðslu úr
hendi Ólafs G. Einarssonar?
Athugasemd I'rá
útflutningsráði FÍS
MMnCI
Fiskvinnsla á sjónum
tryggja betri nýtingu þess afla sem
veiðist og auka gæði afurðanna.
Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir
að fullvinnsla afla um borð í fiski-
skipum verði háð sérstöku leyfi
sem sjávarútvegsráðuneytið veiti.
Fullvinnsluleyfí verður veitt þeim
skipum sem fullnægja eðlilegum
kröfum til nýtingar, vörugæða og
vinnuaðstöðu. „Með frumvarpinu
er því ekki verið að leggja til opin-
bera takmörkun á útgáfu slíkra
vinnsluleyfa. Engu að síður er lík-
legt að auknar kröfur muni hægja
á þeirri þróun að fískvinnslan flytj-
ist út á sjó.”
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi frá Félagi is-
lenskra stórkaupmanna:
„Útflutningsráð FÍS mótmælir
þeim ósannindum umboðsmanns
SÍS (íslenskra sjávarafurða hf.) í
Flórída, sem birtist í Mbl. sl. laug-
ardag, 16.11., að nýir útflytjendur
freðfisks undirbjóði SH og SÍS á
Bandaríkjamarkaði um allt að
20%.
Það er lágmarkskrafa, að þessi
fulltrúi SÍS, titlaður ræðismaður
íslands, opinberi fullar sannanir
fyrir staðhæfingum sínum. Ella
skoðast þær hreinn rógburður.
Það er reynsla þeirra útflytj-
enda, sem hafa keppt við SH og
SÍS, að undirboð og lágt verð hafi
löngum fylgt þeim sanitökum. Og
þau hafa nánast verið eftirlitslaus
fram á síðustu ár, þegar nokkrir
smærri útflytjendur eru farnir að
veita þeim aðhald.
Með útflutningsfrelsi því, sem
núverandi viðskiptaráðherra hafði
forgöngu um, er brotið blað í við-
skiptum íslands við umheiminn.
Nú þurfa stóru útflutningssamtök-
in að standa á eigin fótum án ein-
okunarforréttinda og án þess að
geta í friði greitt umboðsmönnum
sínum í Flórída og annars staðar
„viðunandi” umboðslaun. Þar gild-
ir nú samkeppni og allir hlutaðeig-
endur verða að standa sig gegn
lágmarksþóknun. Hins vegar er
alkunna, hversu óhófleg umboðs-
laun íslensku fyrirtækin í Banda-
ríkjunum hafa tekið um áratuga
skeið (oftast 11%) og þannig byggt
upp stórfyrirtæki og verkshiiðjur
fyrir fjármuni tekna úr íslenskum
vösum.
Það liggur í augum uppi, að lík-
lega eru fáir íslenskir fískframleið-
endur svo vitlausir að vilja selja
vöru sína allt að 20% undir mark-
aðsverði. Við þekkjum a.m.k. enga
slíka.
Að lokum er rétt að fram komi,
að enginn íslenskur freðfiskur er
seldur á Bandaríkjamarkaði undir
sumum af_þeim vörumerkjum, sem
fulltrúi SIS í Flórída lætur sig
hafa að nefna í grein sinni.
Við fögnum því, að SÍS og SH
hafa ekki lengur „þau tök sem þau
áður höfðu á frystihúsunum”, svo
notuð séu eigin orð SÍS-fulltrúans,
en því miður eru þau tök ennþá
of sterk.”
♦ ♦ ♦
teuzcv
Heílsuvörur
nútímafólks
IMiS
111 hbl
-■nfíod eeoq- nHiid
Menntamálaráðuneyti:
3,7 milljónir
úr Þróunar-
sjóði leikskóla
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur nýlega úthlutað styrkjum
fyrir árið 1991 til þróunarverk-
efna í leikskólum, en með því er
átt við nýjungar, tilraunir og ný-
breytni í uppeldisstarfi. Á fjárlög-
um þessa árs eru veitt 3.740.000
kr. til Þróunarsjóðs leikskóla, en
alls bárust 9 umsóknir úr sjóðnum
samtals að fjárhæð 9,2 milljónir.
Uthlutun úr sjóðnum að þessu
sinni hlutu Kópasteinn, Kópavogi,
Hálsaborg, Reykjavík, Fálkaborg,
Reykjavík, Leikskólinn Mýri, Reykja-
vík, Hraunkot, Hafnarfirði, Leikskól-
ar í Hafnarfirði og leikskólarnir Síð-
usel og Flúðir ú Akureyrí. * ;