Morgunblaðið - 21.11.1991, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
31
Á fljúgandi ferð
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Félagamir Sævar, Stefán og Birgir urðu sér úti um stóra gúmmíslöngu, sem þeir nota til bruna niður
brekkurnar, en þegar ljósmyndari hitti þá voru þeir á fleygiferð niður brekkuna við Eikarlund.
Fóstrunemar fá styrk úr bæjarsjóði:
Ekki hlutverk bæjar-
ins að veita námsstyrki
- segir Björn Jósef Arnviðarson bæjarfulltrúi
SAMÞYKKT var á fundi bæjarstjórnar í fyrradag að veita nemum
í svokölluðu „dreifðu og sveigjanlegu fóstrunámi” við Fósturskóla
Islands styrk sem nemur 70 þúsund krónum á hvern uemenda.
Styrkveitingin tekur til 7 starfsmanna sem starfa á dagvistum
Akureyrarbæjar og stunda þetta nám. Sex fulltrúar bæjarstjórnar
samþykktu styrkveitinguna, tveir voru á móti og þrír sátu hjá.
í bókun bæjarráðs segir að
styrkveitingin sé samþykkt í ljósi
þess að hér sé um að ræða ófag-
lærða starfsmenn Akureyrarbæjar
sem með ærnum tilkostnaði eru
að sækja sér menntun, sem bæj-
arfélagið sé í brýnni þörf fyrir.
Styrkirnir verða greiddir í febrúar
á næsta ári og fjárveiting verður
tekin upp í fjárhagsáætlun þess
árs.
Nokkrar umræður urðu um
styrkveitingu þessa á fundi bæjar-
stjómar og lýstu Birna Sigur-
björnsdóttir og Björn Jósef Arnvið-
Kaupfélag Eyfirðinga:
Ákveðið að kaupa vélar til
að pakka vatni á plastflöskur
Verslanakeðjur í Bandaríkjunum farnar að selja vatn í fernum frá mjólkursamlaginu
STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga ákvað á fundi í gær að festa kaup á
pökkunarvélum til að pakka vatni á plastflöskur. Kostnaður er áætlað-
ur um 25 milljónir króna, en stefnt er að því að vélarnar verði tilbún-
ar til vinnslu í mars á næsta ári og unnt verði að hefja útflutning vatns
á plastflöskum í júni.
I Mjólkursamlagi Kaupfélags Ey-
firðinga hefur vatni verið tappað á
femur í tveimur stærðum, 0,5 lítra
og 0,2 lítra, um nokkurt skeið, en
vatnið hefur einkum verið selt til
Bandaríkjanna og einnig til Bret-
lands.
„Við höfum allt þetta ár verið að
vinna að því að koma okkar vatni
inn í verslanir í Bandaríkjunum, en
það er töluverð vinna. Það hefur
tekist, en þá er eftir að markaðs-
setja varning okkar sem kemur inn
í þessar búðir og er sú vinna að
hefjast. Við gerum þó ekki ráð fyrir
að kosta miklu til þeirrar vinnu fyrr
en við erum farin að pakka í plast-
flöskur," sagði Magnús Gauti Gauta-
son kaupfélagsstjóri.
Hann sagði vatn sem flutt væri
út til Bandaríkjanna frá samlaginu
hið eina sem pakkað væri í fernur,
en nær öll sala á vatni þar í landi
væri í plastflöskum. „Plastflöskum-
ar eru þær umbúðir sem almenning-
ur í Bandaríkjunum þekkir, en þar
sem við erum eini aðilinn sem selur
vatn í femum höfum við ákveðna
sérstöðu sem hjálpar líka, við lendum
í minni beinni samkeppni við flösku-
vatnið, þó svo það vinni á móti okk-
ur á öðrum sviðum,” sagði Magnús
Gauti.
Hann sagði að ákveðnir möguleik-
ar virtust vera að opnast fyrir vatn
í fernum í Bretlandi, en of snemmt
væri að fullyrða nokkuð um árang-
ur. Horft væri til fleiri landa varð-
andi útflutning vatns, en enn sem
komið væri hefði árangur náðst á
þessum tveimur markaðssvæðum.
Stefnt er að því að pökkunarsam-
stæðan verði komin í notkun í mars
á næsta ári og er þá gert ráð fyrir
að hægt verið að hefja útflutning á
vatni í plastflöskum í júní, en nokk-
um tíma þarf til að kanna gæði
vatnsins áður en það er selt utan.
arson, Sjálfstæðisflokki, sig mót-
fallin styrkveitingunni. Sigfríður
Þorsteinsdóttir, Framsóknarflokki,
sagði skynsamlegra að nota þetta
fé, sem næmi tæplega hálfri millj-
ón króna til að vinna að því að fá
þetta nám norður.
Heimir Ingimarsson, formaður
bæjarráðs, sagði að ákveðið hefði
verið að styrkja þessa aðila þar sem
þeir ættu ekki kost á styrk SF
fræðslusjóði STAK og fræðslusjóð-
ur Einingar hefði ekki hug á að
veita þeim styrk þár sem þeir
væru á leið út úr félaginu.
Birna Sigurbjömsdóttir kvaðst
óttast að styrkveitingin hefði for-
dæmisgildi, vissulega væri þörf á
fólki sem hefði fóstrumenntun, en
hið sama gilti einnig um aðra
starfshópa. Fjölmargir þyrftu að
sækja suður til að afla sér mennt-
unar og væri skynsamlegra fyrir
bæjarstjóm að stuðla að því að P
boði væru fleiri námsmöguleikar í
bænum en veita einstökum hópum
styrki til náms.
Björn Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði það ekki hlut-
verk bæjarins að veita slíka náms-
styrki. Vissulega væri málið gott
og umrætt starfsfólk hefði starfað
vel og lengi hjá dagvistum bæjar-
ins og því bæri að fagna að það
sækti sér viðbótarmenntun. Það
breytti hins vegar ekki því að á
engan hátt væri rökrétt að bærinn
veitti námsstyrki, sérstaklega þeg-
ar um væri að ræða nám sem láns-
hæft væri hjá Lánasjóði íslenskra
námsmanna. Hann sagði að ein-
ungis væri um eina styrkveitingu
að ræða, hún væri ekki ávísun til
þeirra sem sækja myndu þetta nám
á næsta ári.
Sáttafundur í mjólkursamlagsdeilunni:
Bjartsýni á lausn
NOKKUÐ virðist hafa miðað í
samkomulagsátt á fundi Verka-
lýðsfélags Húsavíkur og Iðju, fé-
lags verksmiðjufólks, og Vinnu-
málasambands samvinnufélag-
anna með sáttasemjara í gær.
Tveir fundir voru haldnir og
lögðu fulltrúar verkalýðsfélag-
anna fram hugmynd til lausnar
deilunni á síðari fundinum.
Deiluaðilar voru bjartsýnni en
áður á að lausn væri í sjónmáli er
Morgunblaðið hafði tal af þeim eftir
fundinn í gær, en þeir vildu ekki
láta uppi um hvað væri rætt.
Kristín Hjálmarsdóttir, formaður
Iðju, sagði að verkalýðsfélögin hefðu
varpað fram hugmynd á fundinum
sem vonast væri til að leitt gæti til
lausnar á deilunni. Hún sagði að
félögin ætluðu ekki að hvika frá
fyrri kröfu sinni um að starfsnám
ófaglærðs starfsfólks í mjólkursam-
lögum væri metið til launa, „en það
er auðvitað hægt að útfæra þetta á
mismunandi vegu,” sagði hún.
Hjörtur Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna, sagði að jákvæður
Háskólinn á Akureyri:
Ráðstefna um þýðing-
ar, mál og menningu
Dr. KENEVA Kunz flytur opinberan fyrirlestur í Háskólanum
á Akureyri á laugardag, 23. nóvember kl. 14, en hann nefnist:
„Segðu það á íslensku! - þýðingar, málið og menningin”.
Þetta er hinn fjórði og síðasti
í röð fyrirlestra um íslenskt mál
sem Háskólinn á Akureyri og
Samtök móðurmálskennara,
Norðurlandsdeild, hafa gengist
fyrir undanfarnar vikur í tengsl-
um við endurmenntunarnámske-
ið fyrir kennara. Allir fyrirlestr-
arnir hafa verið vel sóttir af al-
menningi og er stefnt að því að
taka upp þráðinn að nýju eftir
áramót.
Dr. Keneva Kunz starfar um
þessar mundir hjá Orðabók há-
skólans við EB-þýðingar og þar
að auki sem sjálfstæður þýðandi
og blaðamaður. Hún hefur ný-
lega lokið doktorsprófi í þýðing-
arfræði við Kaupmannahafnar-
háskóla.
Allir eru velkomnir á fyrir-
lesturinn meðan húsrúm leyfir.
(Frcttatilkynning)
Morgunblaðið/Kúnar Þ6r
Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari og samningamenn litu í blöðin
í fundarhléi.
andi svifi yfir vötnum. „Það kom
fram jákvætt innlegg frá verkalýðs-
félögunum sem við munum skoða,”
sagði hann. Fulltrúar sambandsins
fóru yfir hugmyndina t gærkvöld.
Af hálfu þess hefur komið fram að
launahækkanir komi ekki til greina
nema til komi einhver hagræðing í
rekstri mjólkurbúanna. Hjörtur stað-
festi að hugmynd verkalýðsfélag-
anna væri á þeim nótum, en sagðist
ekki geta tjáð sig frekar þar um.
Fundur í deilunni verður haldinn
fyrir hádegi í dag, fimmtudag.
BRÉFA-
BINDIN l
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað. ^
iMúlalundurlL„____1
jSÍMI: 62 84 50
3
v>