Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
33
Bústaður Félags Norð-
manna í Heiðmörk
eftir Else Miu
Einarsdóttur
Bústaður Félags Norðmanna á
Islandi og vina Noregs - Nordmann-
slaget - stórskemmdist í eldi mið-
vikudaginn 23. október sl. Bústaður-
inn ber nafnið Torgeirsstaðir í höfuð-
ið á Torgeir Andersen:Rysst sem var
sendiherra Noregs á íslandi á árun-
um 1945 til 1958. Það var fyrst og
fremst Andersen-Rysst sendiherra
og konu hans Ruth að þakka að
húsið var gefið og flutt hingað til
íslands. Gefendur voru Norræna
félagið í Noregi, Mathissen skógar-
eigandi á Eidsvol og Hið norska
skógræktarfélag.
Sagan hófst reyndar með því að
formaður Hins norska skógræktar-
félags Nils Ringset og fylkisskóg-
ræktarstjórinn í Tromso komu hing-
að í boði sendiherrans sumarið 1950.
Rétt er að geta þess að Torgeir
Andersen-Rysst og kona hans voru
áhugamenn um skógrækt. Einmitt
um þetta leyti hafði Nordmannslaget
verið úthlutað svæði í Heiðmörk til
skógræktar. Félagið gekkst nú fyrir
hópferð félagsmanna sinna þangað
til að marka upphafið og voru þá
einnig komnir á staðinn skógræktar-
frömuðirnir frá Noregi sem áður
voru nefndir ásamt Andersen-Rysst
sendiherra og dóttur hans, Þórunni.
Landsskikinn í Heiðmörk hlaut nafn-
ið Torgeirsstaðir. Um leið og sendi-
herrann þakkaði heiðurinn kom hann
með þá fyrirspurn hvort skógrækt-
arfélagið norska gæti útvegað Nord-
mannslaget á íslandi fjallabúsað úr
timbri. Formaðurinn tók vel í fyrir-
spurnina og aðeins þremur árum
síðar - 1953 - var húsið risið af
grunni.
Félagarnir unnu sjálfboðavinnu
við að grafa grunninn og steypa
plötuna. Enn í dag er varðveitt kvik-
mynd sem sýnir þá að þessu verki.
Frú Ruth Andersen-Rysst afhenti
húsgögn í bústaðinn að gjöf: Borð,
bekki, hornskápa og forláta, gamla,
norska kistu.
Nordmannslaget hefur lagt kapp
á að halda bústaðnum sem best við
öll árin sem hann hefur staðið í
Heiðmörk og veitt félagsmönnum
og gestum þeirra ómælda ánægju
og skjól. Landsspildan umhverfis
bústaðinn er nú vaxin myndarlegum
trjám er teygja sig hátt yfir höfuð
manna. Á hveiju ári er farið í Heið-
mörk til að hreinsa svæðið og gróð-
ursetja nýjar tijáplöntur. Fjölmargir
félagar í Nordmannslaget taka þátt
í þessu ásamt fjölskyldum sínum og
vinum. Og bömin sem áður komu
með pabba og mömmu sækjast nú
eftir að heimsækja bústaðinn í Heið-
mörk þegar þau hafa sjálf stofnað
til fjölskyldubanda. í augutn Norð-
manna á íslandi og vina Noregs er
bústaðurinn ómetanlegur til fjár.
Skógarsvæððið í kringum bústað-
inn og víðar um Heiðmörk - grið-
Breiðholtskirkja.
„En nú þarf að endur-
reisa Torgeirsstaði í
Heiðmörk hið allra
fyrsta. Eyðileggingin
eftir eldsvoðann er hins
vegar svo mikil að óvíst
er hvort hægt er að
gera við gamla húsið.”
land Reykvíkinga - er í dag lýsandi
dæmi um það að hér má rækta skóg
með góðum árangri.
Bústaðurinn er ósvikinn norskur
timburkofi gerður úr ótilhöggnum
tijám eins og Norðmenn hafa notað
allar götur frá miðöldum.
En nú þarf að endurreisa Tor-
geirsstaði í Heiðmörk hið allra
fyrsta. Eyðileggingin eftir eldsvoð-
ann er hins vegar svo mikil að óvíst
er hvort hægt er að gera við gamla
húsið. Félagar í Nordmannslaget
vonast til þess að þeim berist aðstoð
sem allra víðast að við endurreisnar-
starfið á næstu mánuðum og árum.
Höfundur er formaður Félags
Norðmanna á íslandi.
SJÁLFAN
ÞIG UM
SKATT-
FRELSI
Jón Grímur Jónsson gerði tímamótasamning við sjálfan sig. Hann ákvað að
kaupa sér Launabréf og getur nú greitt sjálfum sér laun með nýjum hætti.
Launin eru vextirnir af bréfunum, sem eru greiddir fjórum sinnum á ári, og
verðbætur leggjast við höfuðstólinn þannig að hann heldur verðgildi sínu.
Þar að auki eru Launabréfin skattfrjáls. Eigandi þeirra greiðir hvorki eignarskatt
af höfuðstólnum né tekjuskatt af vöxtunum.
Það eru fleiri en Jón Grímur sem geta notið árangurs erfiðis síns og skapað sér
og sínum meiri tíma og ánægju. Farðu að dæmi hans: Festu fé þitt í
Launabréfum, bréfum sem eru skattfrjáls tekjulind og einvörðungu byggð á
ríkistryggðum eignum.
Kynntu þér kosti Launabréfa hjá ráðgjöfum Landsbréfa og umboðsmönnum
Landsbréfa í útibúum Landsbanka íslands um allt land.
B FYRIRLESTUR á vegum
Nýrrar dögunar, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð í Reykja-
vík, verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30.
Ólöf Helga Þór, námsráðgjafí og
fyrrverandi formaður samtakanna,
fjallar um makamissi. Er þar bæði
átt við missi maka við dauða og við
hjónaskilnað. Fyrirlesturinn er öllum
opinn og á eftir verður boðið upp á
umræður og viðtöl fyrir þá sem þess
óska. Einnig skal á það bent að Ný
dögun hefur opið hús í Laugarnes-
kirkju öll þriðjudagskvöld kl. 20-22.
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðurlandsbraut 24, sími 679200
Löggilt veröbréfafyrirtæki Aöili aö Verðbréfaþingi íslands
AUK/SlAk117d21-19