Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
RAB AUGL YSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Hárgreiðsla
Nemi og/eða sveinn óskast.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Uppiýsingar á staðnum í dag, fimmtudag, og
á morgun, föstudag, milli kl. 16.00 og 18.00.
Hárgreiðslustofa Siggu Finnbjörns,
Engihjalla 8, Kópavogi.
Sérverslun
Sölu- og skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða starfskraft, á aldrinum
25-50 ára, hálfan daginn. Starfsreynsla og
menntun í verslunarstörfum skilyrði.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Sérverslun - 3419” fyrir 26. þessa
mánaðar.
Iðntœknistofnun vinnur að tœkniþróun og aukinni fram-
leiðni i íslensku atvinnulifi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, ráðgjöf gceðaeftirlit, þjón-
usta, frœðsla og stöðlun. Áhersla er lögð á hceft starfsfólk
til að tryggja gceði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Staða forstjóra
Iðntæknistofnunar
Laus er til umsóknar staða forstjóra Iðn-
tæknistofnunar.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og fyrri störf, sendist til Iðntæknistofnunar
merktar: Stjórn Iðntæknistofnunar,
Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti,
112 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 2. desember nk.
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
iðntækmstofnun ■ I
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSUNDS
Keldnaholt, 112 Reykjavík
Sími (91) 68 7000
Alþingistíðindi
Útgáfudeild Alþingis óskar að ráða tíma-
bundið starfsmann til að vinna við útgáfu
Alþingistíðinda. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi hafi háskólapróf (helst í íslensku) og
geti hafið störf nú þegar.
Auk háskólaprófs er nauðsynlegt að viðkom-
andi hafi einhverja reynslu í vinnu með tölvu.
Um er að ræða fullt starf og talsverða yfirvinnu.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
Alþingis.
Umsóknum skal skila til Jóns Sigurgeirsson-
ar, útgáfustjóra, Vonarstræti 8, sími 16725,
fyrir 25. þ.m. og veitir hann jafnframt allar
frekari upplýsingar um starfið.
TILKYNNINGAR
Frá Bæjarskipulagi Kópavogs
Hellusteypan -
deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi á lóð Hellusteypunn-
ar við Hagasmára auglýst hér með sam-
kvæmt gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr.
318/1985.
Deiliskipulagið miðar að því að á lóðinni verði
byggð tvö tveggja hæða hús fyrir atvinnu-
starfsemi.
Skipulagsuppdráttur, skýringarmyndir ásamt
greinargerð verða til sýnis á Bæjarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 2, 4. hæð, frá kl. 9-15
alla virka daga frá 21. nóvember til 19. des-
ember 1991.
Athugasemdum eða ábendingum, ef ein-
hverjar eru, skal skila skriflega til Bæjarskipu-
lags innan auglýsts kynningartíma.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Auglýsing
um kosningarétt íslenskra ríkis-
borgara, sem búsettir eru erlendis
Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis
hafa íslendingar, sem flust hafa af landi brott
og sest að erlendis, kosningarétt hér í átta
ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá
1. desember næstum fyrir kjördag. Eftir það
falla menn sjálfkrafa af kjörskrá nema sér-
staklega sé sótt um að fá að halda kosninga-
rétti. Einungis þeir, sem einhvern tíma hafa
átt lögheimili á íslandi, geta haft kosninga-
rétt hér. Kosningaréttur fellur niður ef íslend-
ingur gerist ríkisborgari í öðru ríki. Kosninga-
rétturinn miðast við 18 ára aldur. Reglur
þessar gilda með sama hætti um kjör
forseta íslands.
Þeir, sem búsettir hafa verið erlendis skem-
ur en átta ár, talið frá 1. desember næstum
fyrir kördag, munu verða teknir á kjörskrá
án umsóknar. Þurfa því þeir, sem flust hafa
af landinu eftir 1. desember 1983, ekki að
sækja um skráningu á kjörskrá miðað við
1. desember 1991.
Þeir, sem búsettir hafa verið erlendis lengur
en átta ár (þ.e. fluttu af landi brott fyrir
1. desember 1983) þurfa að sækja um það
sérstaklega að verða teknir á kjörskrá. Úm-
sókn skal senda Hagstofu íslands á sérstöku
eyðublaði. Sé umsókn fullnægjandi skráir
Hagstofa íslands umsækjanda á kjörskrár-
stofn. Slík skráning gildir fjögur ár og þarf
þá að endurnýja hana með nýrri umsókn.
Eyðublöð fyrir slíkar umsóknir fást í sendiráð-
um íslands erlendis, sendiræðisskrifstofum,
skrifstofum kjörræðismanna og hjá fasta-
nefndum við alþjóðastofnanir. Einnig er
hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Hagstof-
unnar.
Umsækjandi verður sjálfur að undirrita um-
sókn sína.
Umsókn þarf að hafa borist til Hagstofu ís-
lands fyrir 1. desember nk. til þess að um-
sækjandi verði tekinn á kjörskrá fyrir næstu
kosningar.
íslendingar, sem búsettir eru erlendis, verða
skráðir á kjörskrá þar sem þeir seinast áttu
lögheimili samkvæmt þjóðskrá.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
19. nóvember 1991.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Iðnaðarhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu iðnaðarhúsnæði
u.þ.b. 200 fm. Lofthæð þarf að vera nálægt
4 metrum auk góðra innkeyrsludyra. Æskileg
staðsetning Ártúnshöfði eða Múlahverfi.
Vinsamlegast sendið upplýsingar til auglýs-
ingadeildar Mbl. mektar: „HG - 900” eða
hafið samband í síma 44617 eftir kl. 19.00,
fyrir 29. nóvember.
TIL SÖLU
Einbýlishúsalóðir
Til sölu og afhendingar strax stórar einbýlis-
húsalóðir á besta stað í Setbergshlíð í Hafn-
arfirði. Frábært útsýni. Einstaklega hagstætt
verð og greiðsiuskilmálar.
SH VERKTAKAR
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, simi 652221.
ÓSKASTKEYPT
Fiskeldisker
Vil kaupa nokkur fiskeldisker. Ýmsar stærðir
koma til greina.
Upplýsingar í síma 98-71250 á daginn (Þórir).
Góð 4ra herb. íbúð óskast
Reglusama fimm manna fjölskyldu vantar
góða 4ra herbergja íbúð. Mjög góðri um-
gengni heitið. Góð meðmæli.
Ársfyrirframgreiðsla.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
4. desember merkt: „GB - 9622”.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
Útboð
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur óskar eftir til-
boðum í raflagnir í 57 íbúðir við Laufengi í
Grafarvogi. Útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu H.N.R., Suðurlandsbraut 30, gegn
5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 12. des-
ember kl. 14 á skrifstofu H.N.R.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Innritun nema á vorönn
1992
Innritun fer fram fimmtudag 21. og föstudag
22. nóv. kl. 13.00-18.00 í Iðnskólanum í
Reykjavík.
Þetta nám er í boði:
1. Dagnám
1. Samningsbundið iðnnám
(námsssamningur fylgi umsókn).
2. Grunndeild í málmiðnum.
3. Grunndeild í rafiðnum.
4. Grunndeild í tréiðnum.
8. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði.
9. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun.
10. Framhaldsdeild í bókiðnum.
11. Framhaldsdeild í hárgreiðslu.
12. Framhaldsdeild í húsasmíði.
13. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði.
14. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun.
15. Framhaldsdeild í rafvirkjun/rafvélavirkjun.
16. Framhaldsdeild í vélsmíði og rennismíði.
17. Almennt nám.
18. Tölvubraut.
19. Tækniteiknun.
20. Tæknibraut. (Lýkur með stúdentsprófi).
2. Meistaranám
3. Öldungadeild
1. Grunnnám í rafiðnum.
2. Rafeindavirkjun.
3. Tölvubraut.
4. Tækniteiknun.
Innritun fer fram gegn gjaldi sem er kr.
7.900,- í dagnámi og kr. 13.000,- í kvöldnámi.
Innritun er með fyrirvara um þátttöku.
Nauðsynlegt er að umsókn fylgi staðfest
afrit af gögnum um fyrra nám.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á Ennisbraut 29, efri hseð, Ólafsvík, þinglýstri eign
Sigríðar G. Halldórsdóttur og Magnúsar Gunnlaugssonar, fer fram
eftir kröfum Tryggingastofnunnar ríkisins, Byggingarsjóðs ríkisins
og Hróbjarts Jónatanssonar hrl., á eigninni sjálfri fimmtudaginn 28.
nóvember 1991 kl. 10.00.
Þriðja og síðasta á Ólafsbraut 42, Ólafsvík, þinglýstri eign Birgis
Vilhjálmssonar, fer fram eftir kröfum Tryggingastofnunar rikisins,
Byggingarsjóðs ríkisins og Ævars Guðmundssonar hdl., á eigninni
sjálfri, fimmtudaginn 28. nóvember 1991 kl. 10.30.
Þriðja og síðasta á Hamraenda 1, Stykkishólmi, þinglýstri eign Bjarg-
ar hf., þrotabús, fer fram eftir kröfum Byggðastofnunar og Iðnlána-
sjóös, á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 28. nóvember1991 kl. 13.30.
Þriðja og síðasta á Flesjustöðum, Kolbeinsstaðahreppi, þinglýstri
eign Ingólfs Gíslasonar, fer fram eftir kröfum Sigríðar Thorlacius
hdl., Ólafs Axelssonar hrl. og Búnaðarbanka (slands, á eigninni
sjálfri, fimmtudaginn 28. nóvember 1991 kl. 15.00.
Sýslumaður Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu.
Bæjariógetinn I Ólafsvik.