Morgunblaðið - 21.11.1991, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
37
Sigurlaug Guðmunds-
dóttir - Minning
í dag er til moldar borin föður-
systir mín, frú Sigurlaug Guð-
mundsdóttir.
Með Laugu, en svo var frænka
mín ávallt nefnd, er gengin ein af
þeim alþýðukonum, sem lifðu
tímana tvenna. Heiðvirð og sam-
viskusöm og hélt heimili af miklum
myndarskap, þótt ekki væri alltaf
úr miklu að moða.
Sigurlaug fæddist að Heyholti í
Borgarfirði 22. des. 1905. Móðir
hennar var Halldóra Vilhjálmsdóttir
verkakona, d. 1959 og faðir Guð-
mundur Bjarnason smiður, d. 1929.
Þau fluttu til Borgarness 1919
og byggðu þar hús við Borgarbraut
sem stendur enn í miðbæ Borgar-
ness. Lauga ólst upp hjá foreldrum
sínum ásamt syni Halldóru, Friðrik
Þórðarsyni, kaupmanni í Borgar-
nesi, d. 2. ágúst 1977.
Upp úr 1930 fluttist Lauga til
Reykjavíkur. Þar kynntist hún eig-
inmanni sínum, Jóni Vigfússyni, f.
12. ágúst 1899, d. 6. desember
1979. Jón vann m.a. við mjólkur-
flutninga til húsa í Reykjavík frá
Korpúlfsstaðabúinu í nokkur ár,
síðan hjá Reykjavíkurborg í fjölda
ára við sandnámið á Ártúnshöfða.
Síðustu æviárin vann Jón við vöru-
afgreiðslu Hafskip á Eiðisgranda.
Alls staðar innti Jón störf sín af
hendi af mikilli samviskusemi og
snyrtimennsku.
Jón og Lauga eignuðust tvær
dætur. Maríu, flugfreyju, er fórst
með flugvélinni Hrímfaxa við Osló
í apríl 1963, og Esther, sem var
búsett í Bandaríkjunum og Þýska-
iandi, en flutti til íslands fyrir
nokkrum árum og bjó með móður
sinni og annaðist hana af mikilli
alúð og umhyggjusemi.
Jón og Lauga ólu einnig upp
dóttur Maríu, Sigurlaugu Halldórs-
dóttuh og var hún augasteinninn
þeirra'og-mikil huggun íþeim harmi
er dótturmissirinn oili.
Eg vil að lokum þakka Laugu
og Jóni þá miklu vináttu og hlýhug
er þau ávallt sýndu mér og minni
fjölskyldu.
Það eru margar góðar endur-
minningar sem bijótast fram í hug-
ann, ekki síst frá þeim tíma er ég
dvaldi hjá þeim vetrarlangt fyrsta
skólaárið í Reykjavík, en í þá daga
var vegalengdin til Borgarness
lengri og torfærari en í dag.
Halldór Sturla Friðriksson
Þ.ÞORGRfMSSON &C0
Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640
steinsteypu.
Matargerð er list
og undirstaðan er úrvals hráefni
mJ
.aiubic B'ts 11 nnnni mntrtöd buimöd íifitfi
Snjóþotur með bremsum (minni).
Litir: Rautt, blátt, svart og appelsinugult.
kr. 1.186,- stgr.
Snjóþotur með bremsum (stærri).
Litir: Rautt, blátt, svart og appelsinugult.
kr. 1.383,- stgr.
Sleðar með bremsum.
Lltlr: Svart og lilla. Kr. 2.384,- stgr.
Sleðar með stýri og skóflubremsu.
Litir: Svart og rautt. Kr. 4.989,- stgr.
TURBO sleðar með sírenu og bllkkljósi.
Kr. 6.587,- stgr.
/TiGm
CLASSIC: Blár/svartur. kr. 7530,- stgr.
GT: Svartur, með fjöðrum á framskiði og
sjálfinndregna snúru á kr. 8.947,- stgr.
Mesta úrval
landsins af sleðum
og snjóþotum
VERSLUN, SIMI679890