Morgunblaðið - 21.11.1991, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
Alfheiður Jóns-
dóttir — Minning
Hún Alla er dáin, þrautunum er
lokið, hjómaði í eyru mér seint á
sunnudagskvöldið 10. þ.m. Það var
Þórunn systir hennar sem hringdi.
Mig setti hljóða, ég átti ekki von á
að heyra lát Öllu svo fljótt. Þó ég
vissi hversu veik hún hafði verið
síðustu vikur, hélt ég í vonina um
að hennar andlegi og líkamlegi
kraftur gæti sigrað.
Það voru aðeins tveir mánuðir
síðan hún fylgdi Hannibal föður-
bróður sínum til grafar, þá reyndar
í hjólastól. Fyrir aðeins þremur vik-
um ráðgerði hún að fara með bama-
bömum sínum og mér í leikhús til
að sjá Búkollu, en skömmu áður
en leikhúsdagurinn kom, versnaði
henni svo mikið, að tengdadóttir
hennar varð að fara með bömunum
í hennar stað. Fáum dögum síðar,
aðeins 10 dögum áður en hún dó,
heimsótti ég hana, þá var hún mál-
hress og hafði krafta til. að sýna
mér myndir af bömum og bama-
bömum. Ekki óraði mig fyrir að
það væri í síðasta sinn sem ég fengi
að sjá hana.
Alla er horfin yfir móðuna miklu
aðeins minningarnar um gáfað og
tápmikið barn og konu, eigum við
eftir.
Fullt nafn Öllu var Álfheiður
Kristín. Hún var fædd í Hafnarfirði
2. ágúst 1928, fyrsta barn hjónanna
Jóns V.G. Valdimarssonar vélsmiðs
frá ísafirði og Sigríðar Ásgeirsdótt-
ur gullsmiðs. Foreldrar Jóns voru
hjónin Valdimar Jónsson bóndi, son-
ur Jóns Jónssonar hákarlafarmanns
frá Melum í Ámeshreppi og Helgu
Guðmundsdóttur Jónssonar bónda
frá Kjörvogi, og Elín Hinriksdóttir
bónda í Tungu í Dalsmynni, Jóhann-
essonar bónda að Kleifum í Skötu-
firði og Sigríðar Arnórsdóttur próf-
asts í Vatnsfirði.
Foreldrar Sigríðar vom Ásgeir
Einarsson bóndi, sonur Einars Hálf-
danarsonar bónda Hvítanesi Hálf-
danarsonar prests að Eyri við Skut-
ulsfjörð (ísafirði) og bróður Helga
Hálfdanarsonar lektors og sálma-
skálds, og kona hans Halldóra Pét-
ursdóttir Zar, um ætt hennar veit
ég því miður ekki.
Þegar Alla var ársgömul fluttu
foreldrar hennar ásamt henni aftur
til ísafjarðar og næstu tvö árin
vom heimili okkar í sama húsi, með
sameiginlegt eldhús svo ég þekkti
Öilu náið frá þeim tíma.
Þegar hún varð tveggja ára gaf
Hannibal henni bók með stórum og
litlum bókstaf á hverri síðu alla í
litum. Þessa bók lagði Alla varla
frá sér og spurði stanslaust um
hvað stafirnir hétu. Næsta vetur
þekkti hún alla stafina. Hún olli
vinnustöðvun oftar en einu sinni
þegar fólk heyrði hana tauta og
benda á bókstafi sem hún sá.
„Þekkir þetta litla barn stafina,”
hrópaði stúlka í verslun sem ég var
stödd í ásamt Öllu, þegar ég játaði
því, tók hún Öllu á handlegg sér
og sýndi henni alla þá bókstafi sem
hún fann í búðinni, Alla þekkti þá
alla og fékk verðlaun. Næstu tvo
vetur fékk hún að fylgjast með
þegar hún vildi, þar sem ég var að
kenna 6 ára börnum að lesa og
skrifa. Þannig varð Alla læs fjög-
urra ára.
Þegar Alla var á þriðja ári dó
Halldóra móðir Sigríðar og þau
fluttu skömmu síðar í íbúð hennar
ásamt tveimur börnum, Álfheiði og
Arnóri. Halldór fæddist litlu síðar
og Hörður næsta ár á eftir. Sigríð-
ur átti son fyrir hjónaband sem ólst
upp hjá móður hennar og Gunnhildi
systur hennar, þau voru áfram í
sama húsi ásamt bróður Sigríðar,
Ásgeiri. Sumarið sem Hörður var á
fyrsta ári fór Alla að passa bræður
sína. Hún kom á morgnana með
Hörð í vagnirium og hina hangandi
í honum sinn til hvorrar handar.
Þetta gerði hún fjögurra til fimm
ára gömul. Hörður svaf mikið betur
úti, og garðurinn hjá okkur var lok-
aður svo þau voru örugg þar.
Mamma tók líka gjarnan á móti
sonarbörnum sínum. Síðla dags fór
svo Alla heim aftur, með hópinn
sinn. Eftir að Hörður hætti að vera
í vagni kom hún leiðandi alla þrjá
bræður sína.
Eftir að við mamma fluttum suð-
ur 1936 kom Alla við að vori og
hausti, á leið til og frá Hveragerði.
hún var sendill hjá Guðrúnu systur
minni, sem var þar símastjóri. Eg
kom þar oft, og ég dáði Öllu fyrir
dugnað og athygli, við sendilsstörf-
in. Þá var fólk út um allt í tjöldum
í Hveragerði á sumrum og Alla
þekkti alla og mundi hvar hver var.
Svo eignaðist Alla systkini sem
þurfti að hjálpa við að passa, svo
bræður hennar komu til send-
ilsstarfanna í Hveragerði, Arnór og
Hörður hver á eftir öðrum, en Alla
var heima. Eftir að Alla lauk barna-
og unglingaskólanámi á Isafírði
kom hún til okkar mömmu, lærði
vélritun og kvenna- og barnafata-
saum. Eftir það fór hún að vinna
hjá Farmanna- og fiskimannasam-
bandinu, á skrifstofu hjá Guðmundi
Jenssyni frænda okkar, og frá okk-
ur flutti hún til Guðmundar og konu
hans, þar sem hún fékk stærra
húsjdáss.
Árin liðu í gleði og sorg. Alla
sýndi ávallt sama dugnaðinn þegar
sorg og mótlæti kvöddu dyra.
Alla og Guðmbndur Erlendsson
hófu búskap og áttu saman þijá
efnilega syni, Jón Erlend, Þórarinn
Flosa og Gunnar Smára, en þegar
sá yngsti var aðeins 9 mánaða gam-
all skildi Alla við Guðmund. Jón og
Sigríður tóku yngsta barnið sem
ólst upp hjá þeim til 12 ára, en
Alla hafði hina tvo með sér. Hún
varð matráðskona í skólum, fyrst
að Eiðum síðan að Hólum í Hjalta-
dal og síðast í mötuneyti í Grundar-
firði. Þar kynntist hún Karli Back-
mann Stefánssyni, giftist honum
og eignaðist með honum tvo syni
Stefán og Hörð, en þegar Hörður
var á fjórða ári missti hún Karl.
Nú eru þeirra synir líka uppkomn-
ir, Hörður 23 ára.
Síðustu 15 árin hefur hún búið
með Hreiðari Hálfdanssyni ættuð-
um frá Dýrafirði. Hann hefur reynst
henni og sonum hennar mjög vel,
nú síðast í veikindum hennar gerði
hann henni mögulegt að _ vera
heima, og stundaði hana ásamt
sonum og tengdadætrum til hinstu
stundar. Þökk sé þeim öllum.
Eftir að Alla keypti húsið á
Ásvallagötu 48 fór hún aftur að
gæta barna ásamt sonum sínum,
nú sem dagmamma. Þau eru orðin
mörg dagmömmubörnin hennar
Öllu því mikil var aðsóknin. Hún
vann við það þangað til hún var
fiutt á spítala fársjúk í ágústmán-
uði. Rétt áður en hún ætlaði með
mér norður í Vaglaskóg í sumarhús
símamanna. Við mennirnir áætlum
en _Guð ræður.
Ég drúpi höfði í hljóðri þökk fyr-
ir öll árin, og bið henni Guðs bless-
unar, kæru frænku minni. Hreið-
ari, sonum hennar, systkinum, Álf-
heiði Amórsdóttur og öllum fjöl-
skyldum þeirra, sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Sigríður Valdemarsdóttir
Ég fæ tár í augun þegar hugsa
um að Alla amma sé dáin. Hún
passaði mig þegar ég var iítil og
þegar ég hætti í Ölluskóla byijaði
Ema systir mín og svo seinna Ein-
ar bróðir minn. Hún var jafn góð
við okkur öll.
Hún var alltaf í góðu skapi og
fann upp á svo mörgu skemmti-
legu. Á morgnana þegar það var
kalt og dimmt úti eins og núna,
kveikt hún alltaf kertaljós. Ég
hugsa oft um hvað mér fannst gam-
an hjá Öllu. Við eigum fullt af fal-
legu skrauti sem við bjuggum til
hjá henni. Einu sinni þegar það
vantaði topp á jólatréð þá fann
_______________________ j
Leiðrétting
í minningagrein um Þorstein Ö.
Stephensen í Morgunblaðinu í gær
féll niður eftirnafn eins höfundar.
Þar sem stóð Geir átti að standa.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og dóttir,
ODDNÝ STELLA ÓSKARSDÓTTIR,
Hellisgötu 5,
Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði miðvikudaginn 20. nóvember.
- Óskar John Bates,
Nikulás Óskarsson,
Óskar Kristinn Óskarsson,
Þuríður Óskarsdóttir,
Una Nikulásdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðír, amma og langamma
okkar,
MARÍA EYJÓLFSDÓTTIR,
Hringbraut 39,
lést í Landspítalanum þriðjudaginn 19. nóvember.
Jón Veturliðason,
Eyjólfur Jónsson, Helen Brynjarsdóttir,
Kristinn Jónsson, Björk Aðalsteinsdóttir,
Sigrún Jónsdóttir, Jóhannes Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar,
RAGNHEIÐUR SIGURGÍSLADÓTTIR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
lést í Landspítalanum 20. nóvember sl.
Börnin.
t
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
IÐUNN KRISTINSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést í Borgarspítalanum 19. nóvember.
Þórhildur Ágústsdóttir, Erling Klemenz Antonsson
og barnabörn.
t
Ástvinur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HANNES RAFN JÓNSSON,
Frostafold 20,
lést í Landspítalanum 19. nóvemer.
Ólafia S. Helgadóttir,
Anna Helga Hannesdóttir,
Ásdís Eva Hannesdóttir, Jónas Kristinsson,
Ingimundur H. Hannesson, Þórlaug B. Stefánsdóttir,
Jón Hafsteinn Hannesson, Birna Björnsdóttir,
Eva Björk Hannesdótjtir ,,
og barnabörn.
----------------------—-...........-......■ ■
t
Elskulegi maðurinn minn, faðir, sonur
og bróðir,
MAGNÚS INGI HALLDÓRSSON,
Brautarholti 12,
ísafirði,
er lést af slysförum 14. nóvember, verð-
ur jarðsunginn laugardaginn 23. nóv-
ember kl. 14.00 frá ísafjarðarkapellu.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á
Slysavarnafélag íslands.
Guðbjörg Hjartardóttir,
Halldór Ingi Magnússon, Hjörtur Rúnar Magnússon,
Helga Guðrún Magnúsdóttir,
Halldór Magnússon, Inga Magnúsdóttir,
Margrét Halldórsdóttir, Steinunn Björg Halldórsdóttir,
Helga Rut Halldórsdóttir, Sara Halldórsdóttir.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
JÓNATAN BJÖRNS EINARSSON,
andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 18. nóvember.
Útförin fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 23. nóvember
kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja
minnast hins látna, geta látið líknarstofnanir njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sólveig Þórðardóttir,
Torfhildur Torfadóttir.
t
ÞORKELLSKÚLASON
húsamíðameistari,
Hátúni 27,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. nóvember
kl. 15.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið.
Bergþóra Gísladóttir,
Skúli Þorkelsson,
Guðrún Þorkelsdóttir,
Elfn Þorkelsdóttir.
t
Eiginmaður minn, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJÖRN MAGNÚSSON,
ketil- og plötusmiður,
Suðurgötu 18,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 22. nóvember kl. 14.00.
Guðrún Einarsdóttir,
Lúðvík G. Björnsson, Þórdis Garðarsdóttir,
Einar G. Björnsson, Júlíanna M. Nilsen,
Maria K. Björnsdóttir, Jens Elisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
| WKSnCHHNMHHMMMnn
Geir Botg. Moi'gunblodið biðsL ul-
sökunar á þessu.