Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NOVEMBER 1991
41
mamma stjörnu sem ég hafði búið
til hjá Öllu. Við eigum líka fallega
skreytta jólastjörnu sem hægt er
að kveikja á sem Hreiðar bjó til og
gaf okkur.
Góði guð, passaðu Öllu vel.
Hanna
Það var mikið lán og gæfa að
fá að kynnast kvenskörungnum
Álfheiði Jónsdóttur.
Fyrir sex árum tók hún yngsta
Ijölskyldumeðlim okkar í sína umsjá
á daginn og gerði það svo vel að
aðdáunarvert var og verður aldrei
fullþakkað. í þessi sex ár hefur hún
kennt henni marga dýrmæta hluti,
sem til eftirbreytni eru. Orð hennar
voru lög og oft heyrðum við þessa
setningu sagða af miklum þunga:
„Jú víst, hún Alla mín sagði það.”
Þar með var það útrætt mál og
enginn vogaði sér að mótmæla. Hún
lærði ótrúlegustu hluti í hannyrð-
um, prjónaði, heklaði, saumaði og
perlaði fallega hluti á unga aldri,
sem prýða heimili okkar.
Álfheiður hefur gætt barna í
mörg ár á heimili sínu á Ásvalla-
götu. Hún varð strax þekkt í Vest-
urbænum, sem frábær dagmamma.
Því var ætíð mikil ásókn í að fá
dagvistun hjá henni og komust
færri að en vildu. Við vitum öll sem
hjá henni áttum börn hve það tók
hana sárt að þurfa að neita ein-
hverju barni um dagvistun. Hún var
dagmamma af Guðs náð, og kom-
ast flestir sprenglærðir uppeldis-
fræðingar ekki með tærnar þar sem
hún hafði hælana. Því var barna-
hópurinn alltaf stór sem hún gætti.
Þrátt fyrir fjölda barna á öllum aldri
voru aldrei læti og hamagangur í
kringum hana. Henni var lagið að
gera hina verstu óþekktarorma að
litlum kurteisum og prúðum ein-
staklingum, sem urðu ábyrg gerða
sinna. Alla hafði mikla útgeislun
og hlýju, var glettin og spaugsöm
og sá alltaf broslegu hliðarnar á
öllum hlutum. Þess vegna var alltaf
kátt og skemmtilegt andrúmsloftið
á heimilinu, mikið hlegið og spjall-
að.
Hún var ættuð að vestan og bar
málfar hennar vott um það. Hún
talaði kjarngóða íslensku við börn-
in, aldrei smábarnamál. Þess urðum
við fljótt áskynja heima hjá okkur,
t.d. var talað um hundslappadrífu,
ekki snjódrífu, einnig voru buxur
ætíð nefndar brækur svo eitthvað
sé nefnt.
Ásvallagata 48 var hreint undra-
og óskaland allra barna bæði innan
sem utan dyra. Garðurinn var svo
vel hirtur og fallegur að aðdáunar-
vert var. Þegar minnst var á það
við Öllu, sagði hún af lítilæti: Æ
hann Hreiðar minn er svo duglegur
að hjálpa mér.
Hreiðar maðurinn hennar, var
óskaplega natinn og flinkur við alla
hluti og voru þau ákaflega samhént
í öllu sem þau tóku sér fyrir hend-
ur. Hann sá um öll leiktæki barn-
anna, byggði hús handa þeim, Litla-
Bæ, og bjó til falleg jólaljós, sem
börnin fengu í jólagjafir. Fyrirjólin
breyttist húsið og garðurinn í undr-
aland jóla, þar sem allir unnu af
mikilli elju við framleiðslu jólagjafa
og föndur. Ljósin loguðu síðan langt
fram eftir vetri og veittu birtu og yl
í skammdeginu. Að sumarlagi
breyttist garðurinn í suðrænan
aldingarð þar sem allir unnu að
garðrækt og föndri eftir getu og
aldri.
Það var alltaf spennandi og mik-
il tilhlökkún að fara til Öllu. Aldrei
í öll þessi ár kom sá dagur að neit-
að væri að fara. Hins vegar komu
margir frídagar, sem beðið var um
að fá að fara til hennar. Það eru
óendanlega margar ljúfar og
skemmtilegar minningar, sem við
eigum um þessa góðu konu.
Með þakklæti í huga kveðjum
hana og vottum Hreiðari ög allri
fjölskyldunni okkar dýpstu samúð.
Sigríður Ragna Sigurðar-
dóttir og fjölskylda.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN M. SVEINSSON,
Hrafnistu v/Kleppsveg,
áður Austurbrún 25,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 22. nóvember
kl. 13.30.
Sveinn Kristinsson, Elín Snorradóttir,
Þorkell Kristinsson, Guðrún Ármannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN PÁLSDÓTTIR,
Drápuhlíð 38,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 22. nóvember
kl. 13.30.
Þorsteinn Þorsteinsson,
Kristín Þorsteinsdóttir, Kristmann Eiðsson,
Þórhildur Þorsteinsdóttir, Juan Carlos Roldan.
Margrét Leifsdóttir.
t
Eiginkona mín og móðir,
KRISTÍN EINARSDÓTTIR,
Krabbastíg 1a,
Akureyri,
sem lést 12. nóvember, verður jarðsungin föstudaginn 22. nóv-
ember kl. 13.30 frá Akureyrarkirkju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Jóhannsson,
Aðalbjörg Jónsdóttir.
Móðir okkar,
HRAFNHILDUR EINARSDÓTTIR,
Hallkelsstaðahlíð,
Hnappadal,
verður jarðsungin frá Kolbeinsstaðakirkju laugardaginn 23. nóv-
ember kl. 14.00. Ferð verður frá B.S.Í. kl. 11.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á St. Fransiskusspítalann
í Stykkishólmi.
Börn hinnar látnu.
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SÆMUNDUR í LOGA
vélsmíðameistari,
Aðalstræti 115,
Patreksfirði,
verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 23. nóv-
ember kl. 14.00.
Aðalheiður Kolbeins,
börn, tengdabörn, barnabörn
og langafabarn.
t
Sambýlismaður minn, sonur og bróðir,
ÞORLEIFUR ARASON
slökkviliðsstjóri,
Skúlabraut 2,
Blönduósi,
verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 23. nóvember
kl. 14.00.
Hildur Gunnarsdóttir, Guðlaug Nikódemusdóttir
og systkini hins látna.
t
Elskuleg móðir mín,
ÁSA SIGURÐARDÓTTIR,
Öldrunarstofnun Flateyrar,
sem andaðist 15. nóvember sl., verður jarðsungin frá Flateyrar-
kirkju föstudaginn 22. nóvember kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnlaugur P. Kristjánsson,
Flateyri.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
vid öll tækifæri
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
t
Hjartans þakkir færum við öllum þeim,
sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, sonar, tengdasonar og
bróður,
EGGERTS GARÐARSSONAR,
Krummahólum 4,
Reykjavík.
Arndís Sölvadóttir,
Sóley Eggertsdóttir, Örlygur Eggertsson,
Erling Eggertsson,
Fjóla Eggertsdóttir, Garðar Hannesson,
Hilda Guttormsson, Sölvi Guttormsson
og systur hins látna.
Minning ,
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
v____--------------/
VANTAR ÞIG SENDIBIL???
Vantar þig sendibíl allan daginn, hálfan daginn eða bara hluta úr degi?
Er með kúlubens. Reynið viðskiptin. Það gæti borgað sig.
Hafið samband við auglýsingadeild Mbl. og leggið inn nafn og síma
merktan, „N.S. 91”, og ég læt heyra í mér.
Ný og glœsileg hesthús til sölu
með 20% afslœtti til 15. desember!
Til sölu nokkur 6-7 hesta hús og eitt 22 hesta lúxushús að Heims-
enda í Vatnsendalandi. Húsin skilast fullfrágengin með hlöðu, kaffi-
stofu,salerni, og vönduðum innréttingum. Sér rafmagn fyrir hvert
hús. Gerði, taðþró og allt annað utanhúss er einnig fullfrágengið.
Verð á 6-7 hesta húsi aðeins kr. 1.560.000. stgr,-
Verð á 22 hesta húsi aðeins kr. 5.850.000. stgr.-
Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni í síma 65 22 21.
Rfl
SH VERKT4KAR HF
STAPAHR^UN 4,220 HAFNARFJÖRÐUR, SÍMI 652221
!. .4 1»i,u8 f51 ö 0 'lj o
1