Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Erfíðleikar koma upp hjá þér
í dag, en þér tekst að greiða
farsællega úr þeim áður en
dagurinn er að kvöldi kominn.
Það stoðar lítið að gera veður
út af smámunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Beittu allri þeirri lagni sem þú
átt til í því skyni að ná tak-
markinu sem þú hefur sett
þér. Gefðu þér góðan tíma til
að setja þig inn í minnstu smá-
atriði.
Tvíburar
(21. mai - 20. júní)
Ef þú leitast alltaf við að hafa
síðasta orðið ýtirðu vandamál-
inu aðeins á undan .þér. Veittu
smáatriðunum nána athygli í
vinnunni.
Krabbi
(21. júní - 22. jútí) HÍ6
Eyddu ekki hugsunarlaust fyrir
þig fram. Þér gefst gott tæki-
færi til að koma inálum þínum
fram núna, en þú verður að
fylgja því eftir með mikilli
vinnu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Heimilisvandamál veldur þér
áhyggjum í dag. Þú ættir að
þiggja boð sem þér berst um
að komast burt um tíma. Farðu
á gamlan uppáhaldsstað og
sinntu félagsskyldum þínum í
kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Smáatriðin fara í taugarnar á
þér í vinnunni. Reyndu að halda
ró þinni og æðruleysi. f dag
verður þú að líta á hlutina í
stóru samhengi.
Vog
(23. sept. — 22. október)
Þetta verður góður dagur hjá
þér, nema hvað þér hættir til
að eyða of miklu. Þér gengur
vel við skapandi verkefni sem
þú hefur með höndum.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) 9KI6
Nú kemur kornið sem getur
fyllt mælinn. Taktu hlutina
ekki of alvarlega og leyfðu
kímnigáfunni að njóta sín.
Heimilishagir þínir blómstra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Athugasemd sem einhver lætur
falla kann að særa þig. Þú
ættir samt ekki að gera úlfalda
úr mýflugu og varpa skugga á
dag sem gæti orðið hinn
ánægjulegasti.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þó að einn af vinum þínum
virðist fyrirferðarmikill kemur
fyrir lítið að predika yfír honum
núna. Þú nýtur þess að eiga
gott heimilislíf.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Vinnurfélagi þinn gerir miklar
kröfur til þín, en þetta er að-
eins hluti af starfi þínu. Þú
færð góðar fréttir í kvöld og
átt góðar stundir með gömlum
vini.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
f dag þarftu að glíma við afleið-
ingar þess sem gerðist í gær.
Það sem fram fer á bak við
tjöldin er þér hagfellt fjárhags-
lega.
Stjórnusþána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
hyggjast ekki á traustum grunni
• visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
þ/)6 £ieSk/LTI F&w\
rONO*N.. éetseread
læs/e> u (*ag.
LJÓSKA
SMÁFÓLK
Náðirðu fyrsta dæminu, herra’ Það er brot, er það ekki? Ég skrifaði „sex af einni og liálfri
tylft af hinu”.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í sveitakeppni er talið réttlæt-
anlegt að segja alslemmu sem
vinnst í 56% tilfella. Alslemma
suðurs nær því hlutfalli ekki al-
veg:
Suður gefur; NS á hættu.
Norður
♦ K4
♦ K43
♦ Á10987
♦ Á43
II
Suður
♦ Á1098765
¥ÁD2
♦ 2
♦ K2
Vestur Norður Áustur Suður
— — — ' 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 2 spaðar
Pass 2 grönd Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar*
Pass 4 hjörtu* Pass 4 grönd
Pass 5 lauf* Pass 7 spaðar
Pass Pass Pass
' fyrirstöðusagnir
” 3 lykilspil
Alsemma vinnst ef spaðinn
fellur 2-2 (40, 70%), eða ef vest-
ur hefur byrjað með skakkt há-
spi|, drottningu eða gosa. Þá
segir reglan um „takmarkað
val” að rétt sé að svína fyrir
hitt háspilið. Fyrirframlíkur á
því að vestur eigi blankt háspil
eru u.þ.b. 12%, svo slemman
rétt skríður yfír 50%. Það er því
nóg á spilin lagt að segja 6
spaða. En hvernig skyldi vera
best að spila hálfslemmuna?
Eina hættan er sú að vestur
haldi á öllum trompunum fjór-
Norður
♦ K4
VK43
♦ Á10987
Vestur *A43 Austur
♦ DG32 ♦ -
V 75 VG10986
♦ KDG4 ♦ 653
♦ G85 _ . ♦ D10976
Suður
♦Á1098765
VÁD2
♦ 2
♦ K2
En það má tryggja sig gagn-
vart þeirri legu með því að spila
smáum spaða eða blindum og
láta fjarkann duga ef vestur
lætur lítið! Sú öryggisspila-
mennska kostar stundum slag
en tryggir vinning í þessari legu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Podolsk
nálægt Moskvu kom þessi staða
upp í viðureign sovéska stórmeist-
arans Leonids Júdasins (2.595)
og landa hans, alþjóðlega meistar-
ans Kíselovs (2.510), sem hafði
svart og átti leik.
16. - Bc3!, 17. bxc3 - bxc3,
(Hvítur tapar nú skiptamun.) 18.
Dxc3 - Dxbl+, 19. Kd2 - Db2,
20. e5 - Dxt3+, 21. Kxc3 - Kd7
og svartur vann endataflið auð-
veldlega vegna liðsmunarins. Úr-
slit mótsins voru nokkuð óvænt,
en hlutskarpastur varð Jakob
Murey. Hann er fæddur og uppal-
inn í Sovétríkjunum, flutti til ísra-
el fyrir meira en áratug, en teflir
nú undir frönsku flaggi. Murey
er nú aftur orðinn aufúsugestur í
fæðingarlandi sínu og virðist
kunna því vel, því þetta var hans
langbezti árangur um langt skeið:
1. Murey 9 v. af 11 mögulegum,
2. Júdasín 8‘/2 v. 3. Zaitsev 7'/2
v. 4.-5. Kiselov og Savon 7 v. 6.
Belov 6V2 v.