Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
43
fclk i
fréttum
Við sögðum frá því einhvern
tímann, að fyrirsæta í Holly-
wood að nafni Shelley Michelle
hefði sett allt á annan endann með
því að greina frá því, að þegar
bíógestir töldu sig vera að horfa
á kroppinn á Juliu Roberts í mynd-
inni „Pretty Woman”, þá hafi þeir
í raun verið að horfa á kroppinn
á sér. Það var út af fyrir sig lítið
til sýnis í umræddri kvikmynd, en
þó einhver skot af hálfnöktum
bakhluta og berum maga. Ungfná
Roberts þótti ekki nógu stinn og
því var staðgengill fenginn í hlut-
verkið.
í ljós kom við nánari eftir-
grennslan, að svona plat er við-
haft af minnsta tilefni í kvikmynd-
um þar vestra, til að mynda þótti
sjálf kynbomban Kim Basinger
ekki hafa nógsamlega fallega fót-
leggi til að sýna þá í stuttpilsasenu
í kvikmynd fyrir fáum árum.
Fengnir voru að láni fótleggir
annarrar leikkonu, Catherinar
Oxenberg. En Basinger rakar
samt saman milljónum á því að
sýna sokkabuxur. Nú hefur enn
eitt svona smáplat verið afhjúpað.
í nýrri kvikmynd, Mobsters,
leikur hin 21 árs gamla Lara Flynn
Boyle aðalkvenhlutverkið. Hún er
þekktust fyrir að leika hina sak-
lausu og dygðumprýddu Donnu í
Twin Peaks, en þreifar nú fyrir
sér í kvikmyndum með ágætum
árangri.
PLAT
Ekki er allt
sem sýnist
„Meira og minna,” var svarið
og þegar á hana var gengið viður-
kenndi hún að hún hefði sjálf leik-
ið í senunum og haft gaman að.
í „Mobsters” þarf hún að leika
í nokkrum eldheitum ástarsenum
með Christian Slater. A!1 nokkrum
sinnum sjást þau veltast um meira
og minna ber og berum bijóstum
bregður fyrir. Þetta vakti að von-
um athygli og þeim spumingum
var beint til Löru, hvort að þetta
væri allt saman ekta.
En brjóstin voru klippt inn í
atriðin.
Þau tilheyra einni af
„hauslausu stjömunum” í
Hollywood, eins og fólkið er
nú gjaman kallað þar vestra.
Þess má geta, að þarna eru rekn-
ar heilu umboðsskrifstofurnar fýr-
ir fólk sem gefur kost á sér í svona
smáplat....
Lara Flynn Boyle til vinstri
og Shelley Michelle hér til
hægri.
í kvöld kl. 2
Meiríháttar
undirfatasýning
frá verluninni CONNÝ
Eiðistorgi 11, 2. hæð
NAUSrKMlMRINN
l : , • • ' . : ■ . l ■ j
McÁlU*L*bXc&L4^
SYNA
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Fjóla Grétarsdóttir flytur foreldrum sínum heillaóskir þeirra systkin-
anna.
HJÓNABÖND
Samanlagður 100 ára
áfangi hjóna í Hveragerði
Grétar J. Unnsteinsson, skóla-
stjóri garðyrkjuskólans að
Reykjum í Ölfusi, varð fimmtugur
5. október sl. Eiginkona hans er
•Guðrún Guðmundsdóttir íþrótta-
kennari. Vegna merkra tfmamóta í
lífi þeirra tóku þau á móti gestum
í salarkjmnun skólans 9. október.
Grétar bauð gestina velkonjna með
þeim orðum að í raun væru þeir ;
mættir í 100 ára afmæli þeirra •
hjóna því nýlega hefðu þau átt.25 -
ára hjúskaparafmæli og hann 25
ára starfsafmæli sem skólastjóri. j
Fjölmenni heimsótti gestgjafana J
og móttökur voru stórkostlegareins q
og tilefnið.
- Sigrún.
COSPER
— Lilli er farinn að tala og hann taldi mig á að kaupa þessa
buxnadragl. |
►
►
►
►
►
k
►
►
►
►
►
►
►
►
►
►
LEITUR JASS
I KVÖLD
Jónas Þórir og félagar
(Jónas Þórirá píanó, Stefán S. Stefánsson á saxófón,
Bjarni Sveinbjörnsson á bassa og
Einar Valur Scheving á trommur)
Gestasöngvari:
Helga Möller
Sjáumst!
HOTEL SAGA
ttsEfaS