Morgunblaðið - 21.11.1991, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1991
47
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
B91282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
^Mayuuutti
Endurkoman
Sagan er skrifuð í beinu fram-
haldi af Dómsdeginum sem birtist
í Velvakanda 17. október, en vegna
fjölda áskorana sá ég mig tilneydd-
an til að halda áfram með söguna.
Kristnu mönnunum hafði verið
vísað frá hliðinu. Því að þeir breyttu
ekki eftir Kristi í sínu lífi og stóð-
ust ekki kröfurnar inn í Paradís.
Gyðingarnir höfðu ekki orðið
varir við þá kristnu, sem voru að
reyna að jafna sig við hliðið eftir
að hafa fengið úrskurðinn.
Einn múslimi, sem hafði verið
skotinn niður, á leið sinni til Mekka
var að bíða þarna við hliðið eftir
vinum sínum, sem einnig höfðu
verið skotnir niður.
Gyðingurinn frá Auschwitz:
Hvað er réttlæti og hvað er lög-
mál? Er það í lögmálinu að-Messías
komi tvisvar, fæðist og komi síðan
í skýjum himinsins með lúðra-
blæstri og englasöng. Fyrir þá
kristnu. Þá kannast ég nú einfald-
lega ekki við svona lagað í helgirit-
unum hans Móses, Lögmálinu, sátt-
málanum um setningar og ákvæði
fyrir ísrael (5. Mós. 18:15-22, Ma.
4:4-6) og ekki heldur í Torah-helgi-
ritunum.
En hefði hann Messías okkar
komið í skýjum eins og sagt er frá
í spádóminum Daníels (Dan. 7:13),
hefðu forfeður okkar einfaldlega
ekki getað hugsað sér að krossfesta
hann Messías (1. Kor. 2:8). Og
ekki held ég að þeir kristnu fari
að myrða hann. Þegar mannsonur-
inn birtist þeim í skýjum (Mark.
13:24-27), þá koma þeir kristnu
menn heldur ekki til með að velja
milli Messíasar (Jesús Lúk. 23:14)
sem lýst var að leiddi þjóðina af-
vega og einhvers ræningja (Barrab-
as Jh. 18:40). Þegar hann kemur í
skýjunum.
Það virtist vera sem þetta.allt
sé gert svo einfalt fyrir þá kristnu
að ég get hreint út sagt ekki trúað
því.
Það er engu líkara en þeir fá
þetta allt á silfurfati.
Frelsun gegnum krossinn. Og svo
birtist hann þeim hvorki meira né
minna en í skýjum og tekur við
þeim kristnu eingöngu (Jh. 14:6-7
og Matt. 13:41-43).
Gyðingurinn frá Treblinka spyr
kristintrúarmennina: Hvernig á
Guðs ríkið að koma? Þar sem Krist-
ur fæddist sem maður hjá forfeðr-
um okkar, en forfeður okkar voru
látnir krossfesta hann til þess að
uppfylla spádómana (Sálm. 22, Jes.
53). En í raun og veru var ekki
hægt að krossfesta hann öðruvísi
en forfeður okkar tryðu ekki á
hann, til þess að þeir sem á hann
tryðu fengju frelsun í gegnum
krossinn (Heb. 10:10, Róm. 5:6-10)
síðan kemur Kristur í skýjum (Dan.
7:13) til þeirra kristnu með Guðs
ríkið tilbúið niður af himni (Op.
21:1—5), en ekki fyrir okkur Gyð-
inga. En er Guð nokkuð réttlátur
gagnvart okkur?
Músliminn greip þá fram í: Getur
Allah (Guð) nokkuð látið Hann
Messías koma öðruvísi. Hann fæðist
á jörðinni?
Annar kristintrúarmaðurinn: Það
hefði ekkert orðið neitt sem heitir
frelsunaráform gegnum krossinn
ef Jesús hefði ekki fæðst sem mað-
ur og síðan verið krossfestur (Heb.
10.10), hann kæmi síðan í skýjun-
um'og tæki á móti okkur kristnu
mönnum eingöngu.
En var ég ekki búinn að segja
ýkkur frá þrenningarkenningunni á
leiðinni upp? Um að Guð væri Son-
urinn, Faðirinn og Hinn heilagi
andi.
Gyðingurinn frá Auscwhitz: Nei,
þú varst ekki búinn að segja okkur
frá því en er Guð allt þetta?
Músliminn: Ég hef nú ekki heyrt
annað eins, en ef Hann (Messías)
kemur sem maður, sairjkvæmt kór-
aninu, munið þið kristnu menn að
öllum líkindum myrða Hann?
Og ef Messías kemur í skýjum?
Sem ég á nú ekki von á, munu all-
ir trúa á Hann, enda yrði þá enginn
dæmdur.
Því að allir myndú trúa á Hann.
En Hann kemur örugglega ekki í
skýjum þegar himinninn er heiðskír.
Það er algjör ógjörningur að
reyna skilja þessar tvær ' sögur
Dómsdaginn og Endurkomuna eða
hvað þá reyna komast að einhverri
niðurstöðu annarri en að koma í
skýjum sé í raun og veru táknræn
merking. Annars stangast á tvenns
konar spádóma í Biblíunni í Gt.
Mik. 5:1—3 og hins vegar Dan.
7:13. Sama er einnig uppi á ten-
ingnum í Nt. Op. 12:5, 19:11—16
og hins vegar Mark. 13:24—27.
En Guð getur ekki verið óréttlát-
ur og mismunað mönnum eins og
gyðingum eða öðrum.
Lúk. 17:20—21. „Farísear spurðu
hann, hvenær Guðs ríkið kæmi.
Hann svaraði þeim: „Guðs ríkið
kemur ekki þannig að á því beri.
Ekki munu menn segja: Sjá, þar
er það eða hér er það, því Guðs
ríkið er innra með ykkur.”
Heimildin Biblían, Gods will and the world,
Pagans and the Christians, City of God, Basic
Judaism og The Koran.
Þorsteinn S.T.
Rafvirkjar ALLAN sólariiritiÉn
%
Neyóarbiónusfa fyrir heimili os fyrirfæki
allan sólarhrinsinn.
Dyrasímabjónusta. m.a. síónvarpssímar.
Uiðhald o& endurnýjun raflasna.
^Haukur &• Qiafur
Rafverktakar ^
674506Jf
Royal
skyndibúðingur
Látið t.d. súkkulaði og vanillu-
búðing í mislit lög í há glös
með þeyttum rjóma.
Táknmál Biblíunnar
Kæri Velvakandi
Hinn 13. nóvember birtist í pistli
þínum grein frá efasemdarmanni
þar sem hann ijallar um gildi frá-
sagnar hinnar helgu bókar gyðinga
og þá um leið allra sem trúa á að
Guð sé einn og hann sé uppspretta
allra annarra trúarbragða.
Sennilega eru fá umræðuefni í
Biblíunni sem oftar hafa leitt til
orðaskipta en einmitt þetta við-
fangsefni sem efasemdarmaðurinn
nefnir, sögunar um Adam og Evu.
Það var ekki fyrr en undirritaður
komst yfir bók sem gefin er út af
Baha’íum að ég skildi vísdóminn
með þessari sögu og kom niðurstað-
an mér verulega á óvart. Bókina las
ég á dönsku og heitir hún „Nogle
besvarende spörsmal”. í þessari bók
er sérstakur kafli sem fjallar um
þetta tiltekna efni. Því miður er
ekki nægjanlegt pláss hér til þess
að endursegja það sem í bókinni
stendur um útskýringu þessa til-
tekna máls. Það er ljóst að margt
af því sem í hinni helgu bók stend-
ur er á líkingamáli, þar er verið að
skýra ákveðna andlega hluti sem
ekki verða skýrðir með öðru móti
en orðum og hugtökum. Þannig er
lagt út af því að Adam er andi hans
í merkingu orðsins andlegur maður,
Eva á hinn bóginn skoðast sem sál
mannsins. Tréð, það góða og vonda,
í frásögninni verður að skoðast sem
veröld mannsins, í veröld Guðs er
allt fullkomið en í veröld mannsins
finnst bæði gott og vont, mikið ljós
og eins staðir þar sem algjör skort-
ur er á ljósi, það köllum við myrk-
ur, það er andstæðan við ljósið og
það vonda er skortur á því góða.
Slangan í frásögninni merkir sam-
bandið við hinn mannlega heim, það
er í hinum mannlega heimi sem
valið stendur milli hins rétta og
ranga, þannig er það í hendi hvers
og eins hvort hann hlýðir reglum
og lögum Guðs, þannig er merking
slöngunnar bundin hveijum og ein-
um. Lífsins tré er merking fyrir hið
hæsta plan í veröld tilverunnar,
reglu og lög Guðs og alltumliggj-
andi stöðu opinberunar Guðs í hvert
sinn. Þegar hinn andlegi og sálar-
legi hluti Adams (mannsins) var
bundinn heimi hins efnislega manns
má lauslega segja að sálin og and-
inn hafi gengið út úr heimi algjörs
friðar og inn í heim baráttu, erfið-
leika, þroska. Því miður er þetta
fátækleg tilraun að sýna örlítinn
hluta á stórfenglegri skýringu Abd-
ul Baha á þessu dulda fyrirbrigði,
sem er miklu ítarlegii.
Fyrir þá sem hafa áhuga á hinum
ýmsu viðfangsefnum í trúarlegu
samhengi vil ég eindregið benda á
nefnda bók.
Fyrrverandi efasemdamaður.
S.J.
Skuggi horfinn
Skuggi er týndur. Hann fór að
heiman frá sér, Hraunbraut 17
Kópavogi, miðvikudaginn 13. nóv.
Skuggi er svartur og loðinn. Hann
er ekki með ól en er eyrnarmerktur
og númerið er: R1H091. Þeir sem
verða varir við Skugga, vinsamlega
hafi samband í síma 16738 (dag-
inn) og 40510 (kvöldin).
Myndir sem birtast í Morgunblaðinu,
teknar af Ijósmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA”
Aðalstrœti 6. sími 691150
101 Reykjavík
SYN 1 N G á prenttækjum frá AM International AM International.
dagana 20. 21. og 22. nóvember n.k. í húsakynnum Multigraphics
okkar að Skipholti 33. Varityper
Við kynnum og sýnum:
Multi 1960XE-CD offset prentvél Otto B. Arnar hf.
Multi SP888 plötugerðartæki Skipholti 33 Reykjavík
Varityper 4000/5300 setningartæki Símar624631 - 624699