Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER 1991
Skáldsaga
eftir Astu
Ólafsdóttur
VATNSDROPASAFNIÐ heitið
nýjasta saga Ástu Ólafsdóttur
sem komin er út hjá Bókaútgáf-
unni Bjarti.
í kynningu útgáfunnar segir-
m.a. um söguefnið: „Við eru leidd
inn í veröld elskenda sem lýtur
dularfullum og flóknum lögmál-
um. í sögunni er blandað saman
óbeisluðu ímyndunarafli, sérkenni-
legri kímni og einlægri frásögn
af fólki í ölduróti ástarinnar.”
Bókin er 96 blaðsíður.
Spádómarnir rætast I
\ s gps ,fTKt m %( t
Ásta Ólafsdóttir
STEIKARTILBOD
til áramóta
GRILLSTEIKUR (naut, lamb, svín)
m/bakaóri kartöflu, hrásalati og
kryddsmjöri
Hráefni: Ungnautakjöt, lambafillet, svínahnakki
BESTU KAUPIN í STEIKUM
▼
BARNABOXIIÍ vinsælu meÖ
fallegu jóladagatali og
ofurjarlablöðrum
KR. 480,-
Auk þess: Hamborgarar, kjúklinga-
bitar, pítur, klúbbsamlokur,
djúpsteiktur fiskur, salatbar o.fl.
w
Jaríinn
^ Giaður í bragði
SPRENGISANDI - KRINGLUNNI
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
_________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands sl. fímmtudag eru með
bestu tónleikum sveitarinnar það
sem af er og er það að þakka
frábærum einleikara, Truls
Mörk, og ekki síður hljómsveitar-
stjórum, Michel Tabachnik, sem
mótaði leik sveitarinnar á mjög
persónuiegan máta.
Fyrsta viðfangsefni tónleik-
anna var Coriolan-forleikurinn
eftir Beethoven. í þessu verki
fjallar Beethoven um hetjuna og
hatrið, sem erjylginautur hetjud-
áðanna, sviksemina og dauðann,
sem eru endalok svikarans. Þessa
myrku þætti náði Tabachnik að
túlka á eftirminnilegan máta með
því að stemma af hraðann og
skerpa alla drætti verksins.
Sinfónía Concertante op. 125
eftir Prokofíev er sérkennilegt
verk, þar sem höfundurinn ýmist
leitar fanga í verkstæðum klassi-
kera og bregður svo upp sínum
skilningi á nútímanum. Þetta
veldur ósætti í verkinu, þar sem
í hægu köflunum er „sungið”
með trega en í þeim hröðu með
reiði og jafnvel út úr. Miðþáttur-
inn er stórbrotin tónsmíð og besti
hluti verksins en í lokakaflanum,
sem er skemmtilegur tilbrigða-
leikur með tvö stef, er alvörunni
eins og slegið upp í gamansemi.
Norski sellósnillingurinn Truls
Mörk lék þetta viðamikla verk
með þeim hætti, að fáu má þar
við bæta og síst að nokkuð verði
skýrt í orðum, nema til lofs, t.d.
Truls Mörk
að leikur hans var ótrúlegur í
hinum stórbrotna miðþætti þessa
sinfóníska verks.
Tvö síðustu viðfangsefnin voru
Síðdegi skógarpúkans eftir Deb-
ussy og Bolero eftir Ravel. Mjög
hefur þessum verkum verið slitið
út og líklegt að mörgum hljóm-
leikagestum hafi verið það til lí-
tillar tilhlökkunar að eiga von á
að heyra þessi vinsælu og marg-
oft leiknu verk. Það er ekki
nokkrum vafa undirorpið, að
Tabachnik er frábær hljómsveit-
arstjóri, því hann endurskóp þessi
verk og hljómsveitin lék frábær-
lega vel. Galdur Tabachniks er
fólginn í því að leika verkin hægt
Jón H. Sigurbjörnsson
og gefa sér tíma til að móta blæ-
brigði og tónhendingar, svo að
tónverkið bókstaflega opnast.
Flautueinleikur Jóns H. Sigur-
björnssonar í Síðdegi skógarpúk-
ans var fallega útfærður og sama
má segja um leik félaga hans í
blásarasveitinni, þó „túttileikur”
þeirra í Bolero væri ekki nógu
hreinn á köflum. Það var blátt
áfram stórkostlegt að heyra
hversu Tabachnik tókst að
magna upp mikla stemmningu í
báðum þessum verkum, draga
þau skýrum dráttum og laða
fram það besta hjá hljómsveit-
inni.
Óðruvísi bCómabúð
WH blómaverkstæði
Skólavöröustíg 12 -