Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 14

Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NOVEMBER 1991 Að vera eða vera ekki í BHM Opið bréf til Heimis Pálssonar eftir Elnu Katrínu Jónsdóttur Þar sem þú hefur nú efnt til bréfaskrifta við stjórn þíns gamla félags á síðum Morgunblaðsins vil ég rita þér nokkrar línur. Bréf þitt er ritað í yfirheyrslustíl og gætir í því nokkurs yfírgangs sem mér fellur illa. Ég kann því illa hvemig þú í yfirskrift bréfs þíns kastar rýrð á störf aðalfundar félagsins og virðist ekki telja stjórn HÍK verðuga fulltrúa þar. Ég undrast einnig að þú skulir tala niður til kennara þar sem þú fjallar um kennara og háskólamenntun eins og þú sért þess fullviss að öll fag- leg og akademísk umræða leggist af innan HÍK við það að félagið hætti beinni aðild að BHM. Mér þykir afar leitt ef þú telur að þér vegið persónulega vegna setningar félaga í HÍK um starf sitt á póli- tískum vettvangi. Ekkert í þessa „Það skyldi þó ekki vera að einhvers staðar í lögum BHM stæði að bannað væri að ganga úr samtökunum?” veru kom til umræðu í starfshátta- nefnd fyrir aðalfund né heldur á fundinum sjálfum. Ég held að ég tali því fyrir munn margra þegar ég segi að æsifréttamennska und- anfarinna daga hefur algjörlega yfirskyggt staðreyndir málsins og er það miður. Um aðalfund HÍK Aðalfundur HÍK hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Þar ber að ráða til lykta þeim málum sem fyrir liggja og móta stefnu og Elna Katrín Jónsdóttir starfsáætlun félagsins til næstu tveggja ára. Hver fulltrúi skóla eða svæðis hefur á bak við sig 20 fé- Opnum í dag nýja og glæsilega sjónvarps og hljómtækjadeild Nú hafa staöið yfir miklar breytingar í verslun okkar í Sætúni 8 þar sem búið er að koma fyrir á neðri hæðinni sérstakri deild fyrir sjónvarps- og hljómflutningstæki og hverjum hlut er haganlega fyrir komið. DAGAMUN! og skoðaðu það sem við höf um upp á að bjóða við fullkomnustu aðstæður SAINIYO iftSíierwood Kaffi á könnunni sólberjasafa frá ÚJSgK Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 (0 e/umsue^oHfegf/o í samuHgu/to • Tylltu þér niður með hljómtækjasérfræðingnum okkar og fáðu tónlistina beint í æð úr BOSE hátölurum - það besta á markaðnum. • Komdu og skoðaðu sjónvarpstækjalínuna hjá okkur, allar stærðir og gerðir á sama stað. • Sjáðu allt það nýjasta og fullkomnasta í hifi steríó línunni. Eitt mesta úrval landsins samankomið. • Við kynnum nýtt merki í hljómflutningsgeiranum; Sherwood. Hágæða vara frá USA. • Allt þetta og miklu miklu meira. - Sannköituð veisla fyrir unnendur sjónvarps- og hljómtækja. Næg bílastæði ■\ lagsmenn og hefur verið falið að hlutast til um málefni félagsins fyrir þeirra hönd. Stjórn félagsins er kjörin í allsheijaratkvæða- greiðslu og hefur að minnsta kosti hingað til verið talin fær um að endurspegla sjónarmið félaganna í samvinnu við fulltrúaráð og aðal- fundarfulltrúa. Mér þykir það því ærið annarlegur málflutningur að láta að því liggja að aðalfundur hafi ekki leyfi til eða jafnvel fulltrú- arnir ekki vit til að ráða þar málum til lykta. Að vera eða vera ekki í BHM „Þessum lögum má ekki breyta” er klausa sem ku standa í lögum ónefnds félags hér á landi og þyk- ir fyndin. Það skyldi þó ekki vera að einhvers staðar í lögum BHM stæði að bannað væri að ganga úr samtökunum? Umræða um veru eða ekki veru HÍK í BHM hefur staðið svo árum skiptir eins og þér er fullkunnugt um. Allar götur síðan háskóla- menntaðir ríkisstarfsmenn hófu samstarf innan BHMR hefur hlut- verk BHM verið nokkuð óljóst. Ég er þér algjörlega ósammála um það að línur þar á milli séu skýrar. Félagsmenn í HÍK hafa þráfald- lega bent á þá staðreynd að verið er að fást við svipaða hluti í hinum ýmsu bandalögum sem við eigum aðild að og tilgreina gjarna þætti eins og fræðslustarf, ráðstefnuhald um fagleg málefni og útgáfumál. Rétt er það að í atkvæðagreiðslu fyrir tveimur árum valdi röskur helmingur þeirra sem atkvæði greiddu að vera áfram í BHM en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Félagið hefur átt í harðn- andi kjarabaráttu og verið rekið með tapi. HÍK er í faglegu og kjar- alegu samstarfí við önnur samtök kennara innanlands og utan auk samstarfs við aðra háskólamenn í ríkisþjónustu. Aðalfundur féllst á þau rök að skynsaiglegt væri að draga svolítið saman seglin, vera ekki í samstarfi við fleiri aðila en við getum sinnt án þess að skerða þjónustu við okkar eigin félags- menn. Hafi kennarar í HÍK eitt- hvað við þessa málsafgreiðslu að athuga munu þeir væntanlega koma því á framfæri við stjórn félagsins. Um lýðræðið Tillaga stjórnar HÍK lá báða aðalfundardagana frammi og allir þingfulltrúar áttu þess kost að bera fram breytingartillögur, t.d. leggja til aðra málsmeðferð svo sem allsheijaratkvæðagreiðslu. Slíkar tillögur bárust ekki um þetta mál. Þingfulltrúar ræddu málefna- lega um aðild að BHM eins og önnur málefni þingsins. Ákvörðun aðalfundar felur ekki í sér áfellis- dóm um BHM eða kastar rýrð á störf bandalagsins. Þvert á móti voru reifaðar ýmsar hugmyndir um möguleika einstaklinga eða fagfé- laga innan HÍK á aðild að BHM ef þeir óskuðu þess sjálfir. Aðdrótt- anir um ljósfælin markmið stjómar HÍK í lok bréfs þíns dæma sig sjálf- ar. Að vera sjálfum sér samkvæmur Þú gerir í einum kafla bréfs þíns forsendur BHM að umræðuefni og í öðrum ræðirðu um kennara og háskólamenntun. Þessir kaflar eru býsna mótsagnakenndir þar sem í þeim fyrri er ýjað að því að án HÍK eigi BHM ekki rekstrargrund- völl en í hinum kaflanum er HÍK líkt við bátkænu sem vart virðist líkleg til að ná landi af sjálfsdáð- um. Mér finnst þú hins vegar skulda fyrrverandi félögum þínum í kennarastétt skýringar á því hvers vegna þú gefur í skyn að fagleg og akademísk umræða inn- an HIK muni svo gott sem leggj- ast af _ við úrsögn félagsins úr BHM. Ég vona að lokum að þess- ari leiksýningu í beinni útsendingu sé nú lokið. Ilöfundur er varaformaður IIÍK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.