Morgunblaðið - 23.11.1991, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
Ráðskast með bam
gegn vilja móður
eftir Einar Bjarnason
Fyrir rúmum fimm árum lenti það
blessaða barn, sem ég ætla að skrifa
um, af slysni í höndum Félagsmála-
og barnaverndarnefndar Hafnar-
fjarðar. Við hjónin kenndum okkur
að nokkru leyti um að svona illa
tókst til og mun ég skýra það nánar
seinna, ef með þarf. Barnavemdar-
nefnd fór nú strax að ráðskast með
barnið í óþökk allra. Eitt af því
fyrsta, sem gert var, var að kalla
móðurina, sem var 16 ára reglusöm
og prúð stúlka, fyrir nefndina og var
henni sýnt skrifað plagg, sem átti
að þröngva henni til að skrifa undir
og afsala sér móðurréttinum. Sem
betur fór tókst þessi leikur ekki.
Eftir þetta kom nefndin baminu í
fóstur en skilyrðin voru þau, að mig
minnir, að móðirin mátti fá barnið
í heimsókn alls ekki oftar en einu
sinni í mánuði og þá mjög stuttan
tíma. Við hjónin vorum búin að
ákveða að ná barninu með einhveij-
um ráðum, hvað sem það kostaði.
Nú leið og beið og loksins kom að
því að barnið átti að koma í heim-
sókn en sú heimsókn var allsöguleg.
Við töluðum við móður barnsins
og báðum hana að koma með það
til okkar, og það gerði hún. Um leið
og barnið var komið tók ég símann
og hringdi í barnaverndarnefnd og
tilkynnti þeim að barnið væri komið
til okkar og þau skildu sækja það
ef þau þyrðu. Allsnörp orðaskipti
urðu á milli okkar en eftir að þeim
linnti hef ég ekkert heyrt frá þessum
blessuðum nefndum.
Hvorki hósti né stuna
Nú eru liðin mörg ár og aldrei
heyrst hósti né stuna frá nefndunum.
Barnið hefur oft verið hjá okkur og
dafnað vel. Aldrei orðið veikt. Sól
bregður sumri og senn líður að
haustdögum og skólar byija. Barnið
átti að ganga Oldutúnsskóla og byij-
aði þar. En Adam var ekki lengi í
Paradís. Einn eftirmiðdaginn var
dyrabjöllunni hringt hjá okkur og fór
ég til dyra. Við dymar stóðu tvær
konur og sögðust vera frá Félags-
málastofnun, hvort þær mættu koma
inn og ræða við okkur um barnið.
Ég bauð þeim inn. Mér varð nú á
að byija samtalið og spurði þær
hvað þær ætluðu að ræða um bam-
ið, þeim komi þetta barn ekkert við.
Jú, þeim kom barnið víst við, því
Félagsmálastofnun hafði borist til-
kynning um misfellur á uppeldi og
aðbúnaði telpunnar. Þessi mistök
áttu að vera hjá ömmu hennar og
hennar sambýlismanni og einnig
okkur. Þann tíma sem hún hefur
verið þar fullyrði ég að hún hefur
ekki getað'haft það betra. Ég krafð-
ist að fá að vita hver hefði kært.
Jú, þær upplýstu það að kæran
væri frá bróður móður barnsins og
hans fylgikonu. Einhverra hluta
vegna er hatrið í algleymingi út í
fjölskylduna. Einnig kom kvörtun
frá manneskju, sem óskaði nafn-
leyndar að ástæðulausu. Ég hef
sterkan grun um að þessi kvörtun
hafi komið eftir pöntunum frá fyrr-
nefndum persónum. Það verður upp-
lýst síðar. Við hjónin höfum ekki
farið varhluta af ofstæki þessa fólks.
Bamið á að vera stórskemmt af því
að vera hjá þessum geðbiluðu gamal-
mennum eins og þau orða það. Af
hverju láta þau svona við okkur.
Þeirra vegna læt ég bíða að upplýsa
það. Konurnar stoppuðu alllangan
tíma og ræddu vítt og breitt um
barnið og önnur þeirra vildi fá það
og fara með það í annað herbergi
og tala við það, ég neitaði því nú
fyrst en þar sem konan mín taldi
kannski rétt að leyfa það, lét ég
undan.
Tekið fyrir sálfræðing
Eftir því sem telpan sagði mér
var samtalið að mínu mati vart sæm-
andi konu í þeirri stöðu sem hún er
í. Með því síðasta sem þær upplýstu
okkur um var að barnið yrði látið
fara til sálfræðings. Móðir barnsins,
amma og hennar sambýlismaður
vora kölluð fyrir nefndina og þeim
tilkynnt þetta ásamt ýmsu öðru.
Barnið fór 4 eða 5 sinnum í yfir-
heyrslu til sálfræðings, en þá neitaði
hún að fara oftar. Spurningarnar
vora víst margar spaugilegar og
sumt sem hann sagði við hana var
beinlínis til skammar fyrir hann. Ég
ætla aðeins að nefna tvö atriði. Það
fyrra er að hann sendi hana með
blöð heim og hún átti að teikna á
þau, jú, jú hún gerði það og fór með
þau í næstu yfirheyrslu, en hvað
haldið þið að hann hafi sagt. Þetta
hefur amma þín gert fyrir þig. Barn-
ið neitaði því og sagðist hafa gert
þetta sjálf. Hún er mjög listræn.
Hefði nú ekki verið eðlilegra að hann
hefði spurt hana hvort hún hefði
gert þetta sjálf en ekkki bera á hana
að annar hefði gert þetta fyrir hana.
Börn skrökva ekki svoleiðis. Annað
„Fyrir utan stóðu karl-
maður og kona. Konan
kvaðst vera frá Félags-
málastofnun og vera
hingað komin til að
sækja barnið. Félags-
málastofnun var búin
að gefa út úrskurð um
það og honum yrði að
framfylgja.”
sem hún gat ekki gleymt var það
að hann spurði hana hvað hún hefði
mörg eyra. Sálfræðingurinn sagði
ömmu barnsins að hann væri búinn
að tala við skólann en ekki fékkst
uppgefið hvað hann hefði talað um.
Kvöldið, sein hún var tekin, sagði
hún ömmu sinni að henni hefði fund-
ist skrítið að kennarinn talaði mikið
við hinar stelpurnar í bekknum en
eiginlega ekkert við sig. Gat þetta
verið nokkuð í sambandi við sál-
fræðinginn? Bragð er að þá barnið
finnur. Mér þótti verst að hún skyldi
ekki vera búin að segja okkur þetta
fyrr svo ég hefði fengið tækifæri til
að tala við Hauk Helgason skóla-
stjóra, þann öndvegismann. Ég veit
að hann hefði fengið réttar upplýs-
ingar um málið. Félagsmálastofnun
fór eftir upplognum sökum frá óheið-
arlegu fólki en reyndi ekki að kynna
sér málið. Ekki var talað við okkur.
Seinnipartinn þriðjudaginn 17. sept-
í
iMtááur
r a | Í5\\WÍÉ::.*Íi
tnorgun ! síii
Reykjavikurprófastsdæmi vestra
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14 með þátt-
töku Arnfirðingafélagsins í Reykja-
vík, sem hefur kirkjukaffi í safnaðar-
heimili Áskirkju eftir messu. Árni
Bergur Sigurbjörnsson. Fimmtu-
dag: Biblíulestur í safnaðarheimil-
inu kl. 20.30 og kvöldbænir í kirkj-
unni að honum loknum.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Arna og Gunnar. Guðsþjón-
usta kl. 14. Einsöngur: Stefanía
Valgeirsdóttir. Organisti: Guðni Þ.
Guðmundsson. Sr. Ingólfur
Guðmundsson messar.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organisti:
Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Barnastarf á sama
tíma í safnaðarheimilinu í umsjá
Báru Elíasdóttur. Bænaguðsþjón-
usta kl. 17. Organisti Marteinn H.
Friðriksson. Sr. Jakoþ Á. Hjálmars-
son. Miðvikudag: Hádegisbænir í
kirkjunni kl. 12.05. Léttur máls-
verður á kirkjuloftinu á eftir. Sam-
vera aldraðra í safnaðarheimilinu
kl. 13.30-16.30. Tekið í spil. Kaffi-
borð, söngur, spjall og helgistund.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. 6 ára börn og eldri
og foreldrar þeirra uppi. Yngri börn-
in niðri. Messa kl. 14. Prestur sr.
Halldór Gröndal. Organisti: Árni
Arinbjarnarson. Fyrirbænir eftir
messu og molasopi. Þriðjudag:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur í
10 mínútur. Fyrirbænir, altaris-
ganga og léttur hádegisverður. Kl.
14 biblíulestur og kirkjukaffi. Allir
velkomnir. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslu-
samvera kl. 10 um trú og trúarlíf.
Messa og barnasamkoma kl. 11.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Helgistund
kl. 17. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjónusta
kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Arngrímur Jónsson. Bar-
naguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn
fer frá Suðurhlíðum um Hlíðarnar
fyrir barnaguðsþjónustuna. Há-
messa kl. 14. Sr. Tómas Sveins-
son. Mánudag: Biblíulestur kl. 21.
Kvöldbænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barna
kl. 11. Söngur, sögur, fræðsla. Sr.
Flóki Kristinsson og Jón Stefáns-
son organisti sjá um stundina.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr.
Flóki Kristinsson. Kór Langholts-
kirkju syngur stólvers. Organisti:
Jón Stefánsson. Molasopi að guðs-
þjónustu lokinni. Aftansöngur alla
virka daga kl. 18 í umsjá sr. Flóka
Kristinssoriar.
LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Barnastarf á sama tíma.
Fermingarbörn aðstoða. Foreldrar
fermingarbarna eru sérstaklega
hvattir til að koma. Organisti:
Guðmundur Sigurðsson. Sr. Jón
D. Hróbjartsson. Heitt á könnunni
eftir guðsþjónustuna. Fimmtudag:
Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu að
stundinni lokinni.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Sr. Frank M. Halldórsson.
Guðsþjónusta kl. 14. Orgel- og
kórstjórn: Reynir Jónasson. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Munið
kirkjubílinn. Miðvikudag: Bæna-
messa kl. 18.20. GuðmundurÓskar
Ólafsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Barna-
starf á sama tíma í umsjá Eirnýjar,
Báru og Erlu. Organisti: Þóra
Guðmundsdóttir. Prestur sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir. Mið-
vikudag: Kyrrðarstund kl. 12. Söng-
ur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
hádegisverður í safnaðarheimilinu.
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Barnaguðsþjónusta á sama
tíma. Kirkjubíllinn fer um Árbæinn
fyrir og eftir barnaguðsþjónustuna.
Miðvikudagur: Fyrirbænaguðs-
(Róm. 13, 8—9.)
Skuldið ekki neinum neitt,
nema það eitt að elska
hver annan, því að sá,
sem elskar náunga sinn,
hefur uppfyllt lögmálið.
þjónusta í Árbæjarkirkju kl. 16.30.
Prestar Árbæjarkirkju taka á móti
fyrirbænaefnum. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti: Jakob Hallgrímsson.
Að lokinni guðsþjónustu verður
kaffisala kirkjukórsins. Bænaguðs-
þjónusta þriðjudag kl. 18.30. Sr.
Gísli Jónasson.
DIGRANESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
FELLA- og Hólakirkja: Vináttu-
messa kl. 11. 12 ára börn sýna
samtalsþátt. Sunnudagaskólabörn
syngja og einnig kór aldraðra úr
Gerðubergi. Eftir messu býður
æskulýðsfélagið uppá vöfflur og
rjóma. Guðsþjónusta miðvikudag
kl. 20.30. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Sönghópurinn „Án
skilyrða” sér um tónlist. Fyrirbænir
í Fella- og Hólakirkju mánudag kl.
18. Prestarnir.
GRAFARVOGSSÓKN: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11Í Fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn. Umsjón:
Valgerður, Katrín og Hans Þormar.
Skólabíllinn leggur af stað frá
Hamrahverfi kl. 10.30 og fer venju-
lega skólaleið. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti: Sigurbjörg Helgadóttir.
Aðalsafnaðarfundur eftir guðsþjón-
ustuna. Venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarkaffi. Vigfús Þór Árnason.
HJALLASÓKN: Messusalur Hjalla-
sóknar Digranesskóla. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guösþjónusta kl.
14. Sr. Einar Eyjólfsson safnaðar-
prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
messar. Organisti: Oddný Jóna
Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þor-
varðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
starf í safnaðarheimilinu Borgum
sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Krakkar
úr 12 ára bekkjum Seljaskóla og
Ölduselsskóla flytja dagskrár um
vináttuna. Krakkar úr 10 ára bekkj-
um beggja skólanna og KFUK sýna
myndir og fjalla um vináttuna. Org-
anisti: Kjartan Sigurjónsson. Mola-
sopi eftir guðsþjónustuna. Kirkjan
opin og nýbyggingarnar verða til
sýnis til kl 17. Heitt á könnunni.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Flautu-
skólinn laugardag kl. 11. Violeta
Smid. Guðsþjónusta kl. 14. Mið-
vikudaginn 27. nóv. morgunandakt
kl. 7.30. Orgelleikari: Pavel Smid.
Cecil Haraldsson.
FÆREYSKA sjómannaheimilið:
Samkoma á morgun sunnudag kl.
17. Þorvaldur Halldórsson talar og
syngur.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjölskyldu-
samkoma á morgun kl. 16.30. Síð-
asta samkoma Venke og Ben
Nygaard.
KFUM og K: Almenn samkoma kl.
20.30 í kristniboðssalnum, Háaleit-
isbraut 58. Ræða: Arnmundur Kr.
Jónasson. Upphafsorð: Jón Ágúst
Reynisson. Sunnudagaskóli kl. 11.
Bænastund á Holtavegi nk. mánu-
dag kl. 17.30.
KRISTSKIRKJA Landakoti: Messa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Messa
kl. 14. Ensk messa kl. 20. Laugar-
daga messa kl. 14. Ensk messa kl.
20. Aðra rúmhelga daga messa kl.
18.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa
kl. 11. Laugardaga messa kl. 14.
Fimmtudaga messa kl. 19.30. Aðra
rúmhelga daga messa kl. 18.30.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa á sunnu-
dögum kl. 10.
KAPELLA ST. Jósefsspftala Hafn-
arfirði: Messa á sunnudögum kl.
10.30. Rúmhelga daga er messa
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa á
sunnudögum kl. 8.30. Rúmhelga
daga er messa kl. 8.
KAÞÓLSKA Kapellan, Keflavik:
Messa kl. 16 á sunnudögum.
ÓHÁÐI söfnuðurinn: Guðsþjón-
usta kl. 14. Gídeonfélagar koma í
heimsókn og segja frá starfinu. Sig-
urbjörn Þorkelsson forseti Gídeon-
félagsins prédikar. Safnaðarprest-
ur.
MOSFELLSPRESTAKALL: Messa
í Lágafellskirkju kl. 11. Organisti:
Guðmundur Ómar Óskarsson. Ein-
söngur: Dúfa Einarsdóttir. Ath.
breyttan messutíma v/útvarps-
sendingar. Barnastarfið í safnaðar-
heimilinu kl. 11. Jón Þorstejpsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: í dag
laugardag, fræðslufundur með sr.
Erni Bárði Jónssyni verkefnastjóra
Þjóðkirkjunnar um safnaðarupp-
byggingu kl. 11 í Dvergi (gengið inn
frá Brekkugötu). Boöið upp á léttan
hádegisverð. Sunnudagaskóli kl.
11. Munið skólabílinn. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti: Helgi Braga-
son. Sóknarprestur.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason mess-
ar. Kór Víðistaðasóknar syngur.
Organisti: Úlrik Ólason. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barna-
samkoma kl. 11. Einar Eyjólfsson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Séra Halldór Reynis-
son í Hruna messar. Kirkjukórar
Hruna- og Hrepphólakirkna og
Álftaneskórinn syngja. Stjórnendur
John Speight og Heiðmar Jónsson.
Organisti Þorvaldur Björnsson.
Sóknarnefndin.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Sunnudag-
askóli kl. 11. Messa kl. 14. Kven-
félagskonur lesa úr ritningunni og
kynna bænaefni. Einsöngur:
Margrét Sighvatsdóttir. Organisti:
Siguróli Geirsson. Kór kirkjunnar
syngur. Sóknarnefnd.
YTRI-Njarðvíkurkirkja: Messa kl.
11. Prestur: Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir. Organisti: Gróa Hreinsdótt-
ir. Kór kirkjunnar syngur. Barna-
starf á sama tíma í umsjón Gróu
og Sigfríðar.
INNRI-Njarðvíkurkirkja: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í safnaðarheimilinu
í umsjón Helgu og Láru.
HVALSNESKIRKJA: Sunnudaga-
skólinn verður í grunnskólanum í
Sandgerði kl. 11 í umsjón Jóhönnu
Norðfjörð. Hjörtur Magni Jóhanns-
son.
ÚTSKÁLAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 14 í umsjón Málfríðar Jó-
hannsdóttur. Hjörtur Magni Jó-
hannsson.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta verður í Borgarnes-
kirkju kl. 11. Kirkjutónleikar kl.
16.30. Kórar Menntaskólans við
Hamrahlíð syngja. Helgistund í
kirkjunni nk. þriðjudag kl. 18.30.
EYRARBAKKAKIRKJA: Messa kl.
14. Kaffi eftir messu.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
AKRANESKIRKJA. Kirkjuskóli
yngstu barnanna í dag, laugardag,
í safnaðarheimilinu Vinaminni kl.
13.00. Barnaguðsþjónusta í kirkj-
unni sunnudag kl. 11.00. Sönghóp-
ur æfir kl. 10.30. Messa kl. 14.00.
Ragnar Gunnarsson kristniboði
prédikar. Messa í Dvalarheimilinu
Höfða kl. 15.30. Fyrirbænaguðs-
þjónusta fimmtudag kl. 18.30. Beð-
ið fyrir sjúkum. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Séra Björn Jónsson.
HALLGRÍMSKIRKJA, Saurbæ:
Kirkjutónleikar kl. 14. Flytjendur:
Hamrahlíðarkórinn og kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Stjórnandi:
Þorgerður Ingólfsdóttir. Sóknar-
prestur.
SELFOSSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14. Æsku-
lýðsfundur kl. 20. Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 14. Sr. Tómas Guðmunds-
son prédikar og kveður söfnuðinn.
Sr. Svavar Stefánsson þjónar fyrir
altari. Organisti: Hákon Björnsson.
Eftir messu býður sóknarnefnd til
kaffisamsætis í félagsheimilinu.
Sóknarnefnd.