Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
Minning:
Snæbjöm Sigurðs-
son, Grund íEyjafirði
Fæddur 21. ágúst 1908
Dáinn 17. nóvember 1991
Með Snæbirni Sigurðssyni á
Grund er genginn litríkur og eftir-
minnilegur maður, sem vafalaust
verður öllum þeim er kynntust hon-
um ógleymanlegur. Snæbjörn var
mikill athafna- og atorkumaður, en
samhliða miklum önnum gaf hann
sér þó meiri tíma en flestir aðrir
til að huga að menningu þjóðar
sinnar og í öllu því sem laut að
fornmenningu íslendinga var hann
mjög vel heima. Snæbjörn leit á það
sem grafalvarlegt starf að vera
bóndi og hann taldi hin gömlu sann-
indi síst of oft kveðin, að „bóndi
er bústólpi, og bú landstólpi”. Snæ-
björn nefndi það oft, að fyrr á öld-
um var orðið „bóndi” virðingar-
heiti, og þannig ætti það að vera
enn, þótt víða væri sótt að bændum
í firringu samtímans. Þessi mál
voru Snæbirni alvörumál, en marg-
ir munu ekki síður minnast hans
sem gleðimanns og sem manns sem
bjó yfir ríkri kímnigáfu. Allt þetta
sameinaðist með sérstökum hætti í
Snæbimi, og í jákvæðri merkingu
þess orðs má vissulega telja að
Snæbjöm ,á Gmnd hafi verið kyn-
legur kvistur á lífstrénu, en einmitt
slíkir kvistir vekja oft meiri athygli
6g verða minnisstæðari en þeir, sem
falla óaðfinnanlega inn í umhverfið.
Foreldrar Snæbjamar voru hjón-
in Hólmfríður Jónsdóttir og Sigurð-
ur Bjamason bóndi og fræðimaður
á Snæbjamarstöðum í Fnjóskadal.
Snæbjöm var yngstur níu systkina, .
en þau fæddust öll á Snæbjarnar-
stöðum. Sjálfur fæddist Snæbjöm
á Garðsá í Eyjafirði nokkm eftir
að foreldrar hans fluttu þangað, og
var hann því „getinn Þingeyingur
en fæddur Eyfírðingur” eins og
hann sagði oft brosandi á svip, þeg-
ar uppmna hans bar á góma. Þegar
Snæ.bjöm var sextán ára fluttist
hann að Grund í Eyjafirði ásamt
foreldmm sínum, en þar bjó þá
systir Snæbjarnar, Margrét, sem
var gift Magnúsi Sigurðssyni bónda
á Gmnd. Magnús lést árið 1925,
og tvítugur að aldri varð Snæbjöm
ráðsmaður á Grund hjá systur sinni.
Árið 1932 hóf Snæbjörn hins vegar
búskap sjálfur á Hólshúsum, næsta
bæ við Grund, og þá jörð keypti
hann síðar. Frá Hólshúsum sést vel
yfir Gmndarpláss, og ekki þarf að
efast um að 'oft hefur Snæbjörn lit-
ið yfir hið gjöfula Grundarland ofan
af hólnum, en árið 1947 keypti
hann hálfa Grund og bjó þar allt
til ársins 1976, er hann lét búið í
hendur börnum sínum. Snæbjörn
var um skeið einn stærsti kúabóndi
landsins, og að auki bjó hann með
sauðfé og hross. Snæbjörn hafði
kjark til að byggja búið upp af
miklum myndarskap, og hann hafði
metnað til að- reka það af sama
myndarskap, og mátti með sanni
segja að hann væri vel. verðugur
þess að búa á hinu forna höfðingja-
setri. Snæbjörn hæfði Grund vel og
Gmnd mátti vel við una að hafa
hann sem bónda þar, einhvem veg-
inn hæfir kotungsháttur ekki þess-
ari miklu jörð.
Snæbjöm kvæntist árið 1933
Pálínu Jónsdóttur úr Ólafsfirði, og
var hún ekki síður en Snæbjöm
metnaðarfull fyrir hönd heimilis
þeirra og bús á Grund. Pálína var
komin af sterkum eyfirskum stofn-
um, því foreldrar hennar voru hjón-
in Þorgerður Jömndsdóttir og Jón
Bergsson í Ólafsfirði. Jón var kunn-
ur hagleiksmaður og listamaður,
ættaður úr Svarfaðardal, en Þor-
gerður var alin upp í Hrísey, dóttir
Hákarla-Jömndar.
Snæbjöm og Pálína eignuðust
sex böm: Sigurð bónda á Höskulds-
stöðum í Eyjafirði, Hólmfríði lög-
fræðing í Reykjavík, Sighvat lækni
í Reykjavík, Jón Torfa kennara og
útvegsbónda í Lónkoti í Skagafirði
og tvíburana Ormarr og Sturlu, sem
báðir hafa verið kennarar á Akur-
eyri. Bamaböm þeirra Pálínu em
fjölmörg, og eitt þeirra, Þórð
Sturluson, ættleiddu þau og ólu
upp. Þórður er við háskólanám í
Bandaríkjunum.
Pálína lést árið 1982, en bæði
hún og Snæbjörn áttu við töluverða
vanheilsu að stríða síðustu æviár
sín.
Sem fyrr segir hafði Snæbjörn
mikinn áhuga á sögu þjóðarinnar,
og íslendingasögur og fom fræði
vom honum ofarlega í huga. Eink-
um hafði hann dálæti á Njálssögu
og Sturlungu, og Sturlungu hygg
ég að hann hafí lesið nær árlega
áratugum saman, auk þess sem
hann gluggaði oft í rítið. Hann
hafði gaman af að ræða efni Sturl-
ungu og hafði oft á hraðbergi til-
vitnanir úr henni, og fannst mér
raunar oft sem honum fyndist sögu-
persónur og atburðir Sturlungaald-
ar miklum mun merkilegri og mikil-
vægari en ýmislegt það, sem fram
fór í samtímanum. Hann lifði sig
inn í heim Sturlungu og honum
fannst sem hann hefði ákveðnum
skyldum að gegna við hinar fomu
hetjur, þar sem hann sjálfur sat á
einu helsta höfuðbóli Sturlungaætt-
arinnar, bæ Sighvats Sturlusonar.
Þess má meðal annars sjá merki í
nafngiftum barna hans, og hann
var stoltur af því er sum barnaböm-
in voru aftur látin heita í höfuðið
á Sturlungum.
Ég minnist þess að sem barn
þótti mér mikið til Snæbjamar á
Grund koma, og þegar hugsað var
norður að Grund kom í hugann
nokkurs konar ævintýraheimur,
enda voru þær ófáar sögurnar, sem
fjölskyldan öll hafði að segja af
Grundarheimilinu. Þar bar hæst
aðalsöguhetjuna Snæbjörn, en einn-
ig komu við sögu Pálína kona hans
og svo öll bömin, og enn koma
sögur frá Gmnd, sannar, ýktar og
lognar, að góðu haldi í fjölskyldu-
boðum, þegar létta þarf geð við-
staddra. Þegar ég svo fluttist norð-
ur til Akureyrar haustið 1972 kom
það af sjálfu sér, að ég tók að venja
komur mínar að Grund, og þar var
mér vissulega vel tekið, en svo hátt-
áði til að Snæbjöm var þar enn um
hríð, eftir að ég kom norður. Þá
var mikil tilhlökkun í því fólgin að
fara fram í Grund um helgar og
hitta Snæbjörn bónda, og oftar en
ekki var setið fram eftir nóttu og
rætt um Sturlungu. Ekki spillti fyr-
ir ef guðaveigar voru hafðar í far-
teskinu, og sló Snæbjöm þá oft upp
veislu fyrir komumenn og var borið
fram feitt hangikjöt eins og hver
gat í sig látið. Snæbjörn hafði gam-
an af að taka á móti gestum, og
hann var í essinu sínu þegar húsið
var fullt af fjölskyldu hans, verka-
fólki og gestum. Snæbjöm hafði
gaman af að fá sér neðan í því, og
hann var kátur með víni. Hann
hafði hins vegar fyrirlitningu á
drykkjuskap, og hvers kyns óregla
og ómennska sem af neyslu áfengis
stafaði var honum ekki að skapi.
Hann var þrátt fyrir allt of mikill
alvörumaður til að láta sér detta í
hug að taka skemmtanir fram yfír
alvöru lífsins, og eins var honum
búreksturinn alltaf efstur í huga,
þótt hann leyfði sér um leið að láta
hugann reika í frelsi tíma og rúms.
Kynni mín af Snæbimi voru ekki
löng, en mér verður hann þó alltaf
ógleymanlegur, sem og allt um-
hverfið á Grund í tíð hans og Pálínu
móðursystur minnar þar. Það var
gott að koma að Gmnd og það er
gott að minnast Snæbjarnar. Mér
mun jafnan koma hann í hug, þá
er ég heyri góðra manna getið.
Anders Hansen
Rússneski ritgæðingurinn Leo
Tolstoj var þeirrar skoðunar að fyr-
ir siðmenntaða menn væri dauðinn
marklaus. Rök hans voru á þá leið,
að um leið og líf þeirra tengdist
framförunum tæki það stefnu út í
hið óendanlega. Sá sem valið hefði
veg framfaranna tryggði sér því
jafnframt miða á fyrsta farrými inn
í eilífðina. Leiðarlokum yrði m.ö.o.
aldrei náð. í þessu sambandi taldi
hann mörk lífs og dauða ekki á
nokkurn hátt geta sett strik í reikn-
inginn. í stað eins kæmi einfaldlega
annað.
Vissulega kunna menn að mót-
mæla þessu en hlýtur kénning, sem
felur í sér endalausa uppskeru
mannsandans, ekki að vera þess
Ingibjörg Eggertsdótt-
ir, Sigurður Gunnlaugs-
son — Hjónaminning
Fædd 14. maí 1912
Dáin 11. mars 1969
Fæddur 5. október 1906
Dáinn 22. október 1991
Þegar ég var bam að alast upp
á Siglufirði átti ég eins og flest
önnur böm öruggt athvarf og leið-
sjón hjá foreldrum mínum. En þeg-
ar þeirra ráð nægðu ekki, að mínu
mati, leitaði ég yfír götuna til nöfnu
og Sigga, þó aðallega til nöfnu á
þeim árum. Nafna leiðbeindi mér á
sinn Ijúfa og glettna hátt en Siggi
sá um agann.
Nafna, sem ég hafði tekið nafn
eftir, hét fullu nafni Ingibjörg Egg-
ertsdóttir og var fædd 14. maí
1912. Foreldrar hennar voru Guð-
laug Sigfúsdóttir og Eggert Einars-
son er bjuggu á Akureyri. Hún var
ung tekin í fóstur af Snjólaugu
Þorláksdóttur og Jóni Gísiasyni sem
bjuggu í Siglufírði. Þar ólst Ingi-
björg upp og þar kynntist hún Sig-
urði Gunnlaugssyni, verðandi
mannsefni sínu, en of snemmt var
þá að sjá fyrir að þeirra lífsþræðir
ættu eftir að tvinnast saman.
Sigurður var fæddur í Siglufírði
5. október 1906. Foreldrar hans
voru Gunnlaugur Sigurðsson og
Margrét Meyvantbdóttir - sém þar
bjuggu. Þessi ár vom mikil um-
brota- og uppbyggingarár í Siglu-
fírði. Bjartsýnin var að vinna bug
á bölmóð aldamótaáranna og von
um betri tíma fyllti ýmsa hugsjóna-
eldmóði.
Sigurður og Ingibjörg voru bæði
góðum gáfum gædd. Hvort þeirra
um sig átti líka eftir að hleypa heim-
draganum til að afla sér þekkingar.
Sigurður fór í Samvinnuskólann,
vann við verslunarstörf í nokkur
ár á Húsavík og í Siglufirði, en
hélt síðan til Danmerkur og Þýska-
lands í framhaldsnám. Þegar heim
kom vann hann nokkur ár á Isafirði
en 1934 kom hann til starfa hjá
Siglufjarðarbæ og þar starfaði hann
síðan óslitið í 42 ár. Ingibjörg sigldi
til Kaupmannahafnar til að mennta
sig. Þar nam hún hjúkrunarfræði
og þegar hún svo sneri heim, gift-
ust hún og Sigurður.
í minningunni fannst mér þau
fjarskalega ólík; nafna mjúk, glað-
lynd og alltaf tilbúin til að bjarga
málum fyrir alla. Á þeim árum var
það ekki síst hún sem hvatti, laðaði
og lokkaði og átti sinn stóra þátt
í að skapa þá hlýju og þau notaleg-
heit sem ævinlega fylgdi þeim hjón-
um báðum. Sigurður virtist þá,
ungu auga, strangur og ábyrgðar-
fullur og ég umgekkst hann með
viðeigandi lotningu. En það kom í
Ijós þá eins og oft síðar að hann
var vinur vina sinna og brást ekki
þeim sem til hans leituðu. Seinna
átti ég svo eftir að kynnast betur
glaðlyndi hans og meðfæddri bjart-
sýni.
Um nokkurt skeið átti Sigurður
við vanheilsu að stríða og þurfti að
dvelja langdvölum á sjúkrahúsi. En
með meðfæddri atorku sinni og
dyggum stuðningi nöfnu tókst hon-
um að ná allgóðum bata enda mátti
Sigurður Gunnlaugsson ekkert vera
að því að vera veikur. Honum fannst
líka tímasóun að sofa of lengi.
Sigurður var listamaður og það
lán léð að flest lék í höndum hans.
Hann reis árla úr rekkju, vann að
sinni listsköpun áður en hann fór
til vjnnu hjá Siglufjarðarbæ, síðan
kom helgistundin þegar hann koni
heim frá þeirri vinnu, þá settist
hann við píanóið og spilaði og söng
um hríð, eigin lög og annarra og
þá mátti ekki trufla hann. Þá safn-
aði hann orku fyrir síðari hluta
dagsins, fyrir hin störfín og áhuga-
málin sem á honum brunnu.
í öllu þessu studdi nafna hann
af lífi og sál. Hún fór hljóðar yfír
og rækti sín störf í kyrrþey, hvort
sem um var að ræða umönnun fjöl-
skyldunnar, hjúkrunarstörf á
sjúkrahúsinu eða sálgæslu vina og
kunningja. Hún var listfeng eins
og maður hennar og unnu þau sam-
an ýmis verk, hann teiknaði, hún
saumaði eða óf. Þau Sigurður eign-
uðust tvo syni, Gunnlaug skóla-
stjóra og Jón byggingameistara,
sem báðir eru búsettir í Garðabæ.
Oft er ég búin að sakna hennar
rtöfnu minnar en húndóst 11. márs
virði að henni sé gaumur gefínn. í
það minnsta er það mín trú að þeg-
ar líf einstaklinga (þ.e.a.s. í jarðleg-
um skilningi) þjónar ekki nokkrum
tilgangi lengur, sé öllum fyrir bestu
að viðkomandi hverfi á fund óviss-
unnar og þess sem hún kann að
bera í skauti sér.
Ekki get ég, með góðri sam-
visku, sagt að ég hafí þekkt afa
minn, Snæbjörn á Grund, vel. Þar
vegur þungt sú staðreynd að ég var
ekki ýkja gamall þegar ókunn öfl
rændu hann lífsþróttinum og
dæmdu, í framhaldi af því, nauðug-
an til vistar í fangelsi fábreytileik-
ans. Örlög þeirra sem þurfa að
hýrast, um lengri eða skemmri
tíma, í biðstofu dauðans eru grimm-
ileg. Ekki síst þegar lífsglaðir og
atorkusamir einstaklingar eru ann-
arsvegar. Vafalítið fylgja því slíkir
leiksoppar hins óþekkta ekki síðasta
andardrættinum úr hlaði með mik-
illi eftirsjá.
En þó ég þekkti manninn sjálfan
ekki vel, þekkti ég goðsögnina þeim
mun betur. Því í litlum samfélögum
eru litríkir persónuleikar jafnan á
allra vörum. Og ég velkist ekki í
nokkrum vafa um að Snæbjörn á
Grund hafí verið einn slíkur. Hann
setti sterkan svip á sína samtíð, það
veit ég fyrir víst, enda vandfundinn
sá Eyfírðingur, yfír fertugu, sem
ekki hefur heyrt hans getið. Víða
hafa sögurnar af honum flogið og
ófáar þeirra tekið hús á mínum
eyrum. Og oftar en ekki hafa þær
ómað úr börkum fólks, mér alls-
endis óskyldu. Fyrir vikið hefur mér
alltaf þótt gamli maðurinn sveipað-
ur einhveijum ævintýraljóma. Enda
ósjaldan leitt hugann að því hvort
hann hefði ekki tekið sig vel út í
einhverri klassíkinni hans Laxness.
Þá er því ekki að neita að nokkur
brögð hafa verið að því, í gegnum
tíðina, að manni hafi beinlínis verið
talið til tekna að vera afkomandi
Grundarbónda. Enda tel ég fullvíst
að þeir sem af því státa séu ekkert
að lúra á þeirri ánægjulegu stað-
reynd.
Ég játa mig því alfarið sekan um
að renna kenningu Tolstojs hýru
auga á forsendum óskhyggjunnar.
Því standist hún opnast tvímæla-
laust fyrir þann áhugaverða mögu-
leika að við Snæbjörn á Grund
gætum átt eftir að stilla saman
strengi okkar og e.t.v. fá okkur
saman í nefíð, einhvemtíma í fram-
tíðinni á hinum voldugu víðáttum
óendanleikans.
Orri Páll Ormarsson
1969, aðeins 58 ára.
Þá höfðu margir áhyggjur af
Sigurði en hann sýndi og sannaði
að hann gerði þær sömu kröfur til
sín og annarra; að þeir stæðu sig.
í 20 ár bjó hann áfram einn á Hlíð-
arvegi 22 og sá um sig. Lengi vel
vildi hann ekki frá Siglufírði fara
en loks flutti hann suður, festi kaup
á lítilli íbúð í nágrenni við syni sína
og fjölskyldur þeirra. Þar átti hann
eftir að una sér vel.
Sigurður ferðaðist víða og hélt
nákvæmar skrár yfír öll sín ferða-
lög. í tengslum við ferðalögin og
félagastörfín eignaðist hann fjölda
vina og kunningja út um allan heim
sem hann hélt sambandi við af sömu
nákvæmni og natni og hann hafði
áður sinnt störfum sínum fyrir
Siglufjarðarkaupstað.
I mínum huga varð Sigurður
aldrei gamall þótt æviár hans yrðu
85. Hann var hress og kátur til
hinsta dags og nýkominn úr mánað-
arferð til Spánar þegar lífshlaupi
hans lauk.
Nú kemur Siggi ekki Iengur í
heimsókn á jólunum, sest ekki oftar
við píanóið og krefst þess að Atli
taki lagið með sér. Við, fjölskyldan,
eigum eftir að sakna þess og ótal
margs annars.
Ég er forsjóninni þakklát fyrir
að hafa átt þessi góðu hjón að ráð-
gjöfum og vinum.
Sigurður hvílir nú við hlið Ingi-
bjargar, konu sinnar, í Siglufjarðar-
kirkjugarði. Blessuð sé minning
þeirra.
Jóni, Gunnlaugi og fjölskyldum
þeirra sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Ingibjörg Símonardóttlr uj