Morgunblaðið - 23.11.1991, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 23.11.1991, Qupperneq 52
VOLVO PENTA Besti vinur sjómannsins! MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Háskóli íslands í fjársvelti: Ein milljón nemanda í Tromso en 310 þúsund í HÍ FJÁRVEITINGAR til nemenda í Háskóla íslands er oftast tvisvar sinnum lægri og í sumum tilfellum þrisvar sinnum lægri en fjárveit- ingar til nemenda í háskólum á Norðurlöndum. Fjárveiting til hvers nemanda í háskólanum á Akureyri er meira en tvöfalt hærri en til nemanda í háskól- anum í Reykjavík og ncmendur í Kennaraháskólanum fá hátt í þriðjungi hærri fjárveitingu en nemendur I HÍ í Reykjavík. Þetta kemur fram í grein Þórðar Harð- arsonar, prófessors í lyflæknis- fræði, og Símonar Steingrímsson- ar, verkfræðings á skrifstofu Rík- isspítala, í Morgunblaðinu í dag. I greininni segir að þrátt fyrir stór- aukin umsvif háskólans hafi rekstr- aifjárveiting á nemanda minnkað jafnt og þétt og muni enn minnka stórlega samkvæmt fjárlagafrum- varpi fyrir 1992. Árið 1988 var fjár- —-veiting á nemanda við Háskóla ís- 1ands um 350 þúsund kr. á ári en 1991 er hún rúmar 310 þúsund kr. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir 1992 sé ráðgert að lækka fjárveiting- una niður í 290 þúsund kr. en Há- skóli íslands hefur gert tillögu um að fjárveiting það ár verði rúmar 320 þúsund kr. Á meðan fjárveiting á nemanda í Háskóla íslands er 310 þúsund kr. 1991 er þessi upphæð rúm ein millj- ón kr. í Háskólanum í Tromso í Nor- egi, rúmar 800 þúsund kr. í háskó- lanum í Uppsölum, rúmar 700 þús- und kr. í háskólanum í Stokkhólmi og einnig rúmar 700 þúsund kr. í háskólanum á Akureyri. Fjárveiting á hvern nemanda í háskólanum á • ^vkureyri er hærri en meðaltalsfjár- veiting í öllum háskólum í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Sjá „Eru stofnanir velferðar- kerfisins of dýrar?” á miðopnu. ------» ♦ ♦------ Skólabúðir í skátabúðum SKÓLAMÁLARÁÐ hefur sam- þykkt að gera tilraun með rekstur skólabúða að Úlfljótsvatni í sam- starfi við skátahrcyfinguna á vor- __ önn 1992. Til verkefnisins verða væntanlega veittar tíu milljónir króna á fjárhagsáætlun borgar- innar fyrir næsta ár. Að sögn Ragnars Júlíussonar, for- stöðumanns kennslumáladeildar Skólamálaráðs, verða búðirnar rekn- ar í tengslum við Lions-quest, sem kallað hefur verið Tilveran. Það er • sérsök áætlun til vamar fíkniefna- neyslu unglinga. Áætlunin er nú kennd í sjöundu bekkjum grunnskóla borgarinnar og verður væntanlega kennd í sjöunda og áttunda bekk næsta skólaárs, ef vel tekst til. Reykjavíkurborg hyggst bjóða nemendum sjöunda bekkjar grunn- skólanna í tvo daga í senn að Úlfljóts- vatni og verður megintilgangurinn að brýna fyrir nemendunum hætt- urnar samfara neyslu vímuefna. Einnig verður lögð áhersla á útiveru og nemendum verður kynnt starf- semi Nesjavallavirkjunar. . Fyrirhugað er að 64 bekkjardeild- um, tveimur í senn, verði boðið að Úlfljótsvatni á vorönn 1992, þeim fyrstu í byijun janúar. Þyrla varnarliðsins yfir Eldhamri GK 13 í briminu við Hópsnes í gærkvöldi. Morgunbiaðið/Þorkell Beðið uin aðstoð er skip- ið rak stjórnlítið að landi Báturinn kastaðist upp í stórgrýtið o g skorðaðist síðan í gjótu ALLT tiltækt björgunarlið var kallað á vettvang er hjálparbeiðni barst frá vélbátnum Eldhamri GK 13 í gærkvöldi. Þá aðstoðaði þyrla varnarliðsins við björgunarstörf. Þungur sjór og mjög erfið- ar aðstæður voru á slysstað. Fimm menn fórust með bátnum en einn komst lífs af og voru þeir allir frá Grindavík nema einn. Svo virðist sem þung alda hafi fleytt skipinu upp í fjöruna þar sem það skorðaðist í gjótu og gengu miklir sjóir yfir það. Um kl. 20 hringdi skipveiji af Eldhamri, í formann björgunar- sveitarinnar Þorbjarnar og sagði að bátinn ræki stjórnlítið að landi og væri að stranda. Skömmu síð- ar talaði Tilkynningaskyldan við stýrimanninn á Eldhamri og sagði hann að báturinn hefði látið illa, en virtist vera að festast. Þá sagð- ist stýrimaðurinn sjá til björgun- arbátsins Odds V. Gíslasonar, sem var á leið frá landi. Að sögn Gunn- ars Tómassonar, formanns slysa-. varnadeildarinnar í Grindavík, var björgunarsveitin þegar kölluð út og óskað eftir aðstoð þyrlu. Kann- að var hvaða skip væru í nánd til aðstoðar. Að sögn björgunarsveit- armanna virðist hafa komið brot á bátinn við Hópsnestána, sem er rétt fyrir utan innsiglinguna í Grindavík og báturinn kastast upp í stórgrýtta Ijöruna. Þar skorðað- ist hann í gjótu og vísaði gálginn upp. Þrátt fyrir að brim gengi yfir bátinn haggaðist hann lítið. Björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason var kominn á móts við skipið kl. 20.04 til að reyna björg- un af sjó, en gat ekkert aðhafst vegna sjógangs. Þá hafði stjórn- stöð Landhelgisgæslunnar einnig verið látin vita af slysinu. Þremur mínútum síðar strandaði skipið. Björgunarþyrla vamarliðsins lýsti upp fjöruna meðan björgun- armenn fóm um svæðið. Einnig notuðu bandarísku björgunar- mennirnir „infra-rautt” ljós sem nemur hita við leitina. Eldhamar GK 13 var 53 tonna stálskip, smíðað í Svíþjóð árið 1988. Það var í eigu samnefnds útgerðarfyrirta.kis í Grindavík. 20.00 Bjöfgunarsveitin Þorbiöm hefur Hér fórst Eldhamar 20.03 Tilkyrmingaskyldan lætur Land- Þetgisgæsluna vita af strandinu. 20.04 Björgunarsveitarbátur kominn út. 20.07 Skipið strandar. 20.20 Tílkynningaskyldansegirgæslunní að bjðrgun af sjó sé úr sögunni, mennirnir ætli aðreynaaðyfirgefeskipið. 20.39 Landhelgisgæslan hefur samband við Þorbjöm sem táur rétt að setjabjörgunarsveii vamartiðsins i viðbragðsstöðu. 21.48 Þyrla bjorgunarsveitar vamarliósins kemur á staðinn. metrar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.