Alþýðublaðið - 09.11.1920, Side 1
Í92Q
Þriðjuudaginn 9 nóvember.
Áður en lik tengdaföður míns, síra Glafs Finns-
sonar i Kálfholti, verður flutt austur, fer fram
kveðjuafhöfn í dómkirkjunni miðvikudaginn 10.
nóvemher og hefst klukkan 10 árdegis.
Sigurður Guðmundsson.
Alþýðublaðið flutti fyrir tæpum
%nánuði grein í tveim blöðum,
sem hét „Sósíaiistar og kommún-
•istar", og var þar ssgt frá því,
hvað þéssuni tveim mismunandi
stefnum bæri á miili.
í gær flutti Alþbl. símskeyti,
þar sem sagt var frá ávarpi, er
stjórn ganfla alþjóðaféiagsins (2.
a'þjóðafélagið) hefði sent út, þar
aem farið er hörðum orðum um
aðferð þá, sem kommúistar (bolsi-
vfkar) viija viðhaía. Þessi yfiriýsing
«ða ávarp mun sízt hafa komið
fyr en búist var við henni, þar
seni bæði aiþjóðaþing komnsúnista
(boisivíka) í sumar, og síðar, hvað
eftir annað, stjórn 3, alþjóðabanda
iagsins (alþjóðabandalag kommún-
ista) er búin að senda út ávörp
og áskoranir tii verkalýðsins, þar
sem gamla alþjóðabandalagið og
forgöngumenn þess eru nefndir
svikarar við ja/naðarsteýnuna,
hlífðarskj'óldur auðvaldsins o s. frv.
Það mun þvf engum, sem eitt-
Hvað fylgist með í þvf, hvað er
að gerast erlendis, hafa komið þáð
á óvart, að stjórn 2. alþjóðab.
'"**ki tii andsvara. Það er því bros-
iegt, að Jakob MöHer finnur ástæðu
I*já sér tii þess, að skrifa 2 dálka
Krein um þetta f Vísi í gær, og
Sa®nar það bezc hve vel hann er
sér um það, sera gerist f út
löndum, eins og Ifka hinar oft
■Aaraalegu greinar hans um útlend
mál sýna, enda mun honum það
raeðfætt, að fara altaf á hundavaði.
Jafnaðarmenn hafa hingað tii
ekkí, hvorki innlendir eða útlend-
ir, átt upp á pallborðið hjá Jakab.
En hvað veldur því þá nú, að
hann skoðar yfirlýsingu stjórnar
2. alþjóðasambandsins, sem úrsiita
dóm um 3. alþjóðasambandið ?
Mundi hann hafa tekið yfirlýsingu
frá 2. aiþjóðasamb., sem gekk á
móti auðvaldinu, sem jafn ótvf
ræðum sannleika? Önei, það hefði
þá víst orðið annað uppi á ten-
ingnum.
Annars er gaman að athuga að
skeytið er rangt f Vísi. Eins og
margoft hefir verið sýnt fram á
hér í blaðinu, er Jakob Mölier
nokkuð óprúttinn með sannieikann,
en þó skal ekkert um það sagt,
hvott skeytið er falsað með viija,
eða hvort það er að kenna hinum
fyrnefnda hætti Jakobs, að fara
altaf á hundavaði.
Eins og skeytið er birt eru að
minsta kosti tvær villur í því (og
það eru ekki prentvillur!) Önnur
villan er það, að Diktatur er
kallað ofbeldisstjórn. Auðvitað
getur Diktatur verið ofbeldisstjórn,
en þar fyrir þýða orðin ekki hið
sama. Diktatur þýðir einrœði eða
einveldi (og svoleiðÍ3 stóð það f
Alþbl.), en þessi orð þýða alt
annað en ofbeidisstjórn.
Hin villan er það, að leggja
„demoraliserende" út siðspillandi,
f því sambandi sem það er notað
í skeytinu, þó orðið þýði oft þetta.
í skeytinu er verið að tala ura
258 töiubl.
þau áhrif, er kenniagar 3. alþjóða-
samb. hafi á hinn stríðandi verba-
iýð (gegn auðvaldinu) og orðið
þýðir því að kenningarnar spilli,
það — er taki móðinn frá — verka-
mönnunum, „Rúfneraður, demó-
ralíseraður og knekkaður," sagðí
Gröndal; hér þýða demóralíserað-
ur og knekkaður hið sama.
Orðið demoraliseraður er oft
notað bæði í ensku og dönskiz
um heri sem eru á undanhaldi,
eða af einhverjum öðrum ástæð-
um eru andlega »knekkaðir«, og
vita þetta allir sem nokkumveg-
inn kunna dönsku, En kannske
ritstjóri Vísis hafi íarið of snögg-
lega frá Kaupmannahöfn á sínum
tfma, til þess að iæra dönskuna
svo vel að hann get.i bjargað sér
í henni.
Flestir þeirra sem leita vilja
hins sanna um það hvort alþjóða-
sambandið muni hafa rjettara fyr-
ir sér, munu hallast að þeirri
skoðun að réttur sé nú ekki all-
ur öðru megin, og álífca, að álit
sfcjórnar 2. aiþjóðasambandsins um
3. aiþjóðasambandið geti jafniila
verið úrslitadómer, eins og álit
hins sfðarnefnda um hið fyrnefnda.
Þetta mun sú skoðun sem flestir
vandaðir menn munu hafa á þ essu,
svo það er máske ekki að furða
þó Jakob sé á annari skoðun.
Að lokum skai þess getið þó
áður hafi verið sagt frá því f
Alþbl, að af jafnaðarmannaflokk-
um hinna íandanna er norski
flokkurinn i 3. aiþjóðasambandinu
(kommunista), en danski flokkur-
inn er í 2. alþjóðasambandinu. £
Svíþjóð er flokkurinn klofinn og
er meirihlutaflokkurinn (Brantings-
hlutinn) í 2. alþj. en minni hlut-
inn (form. Z. Höglund) er f 3.
aiþj.sambandinu.
Mannalát. Síðastliðinn Iaugar-
dag andaðist á Lindakotsspítála
síra ólafur Finnsson í KálfhÓÍti.
Hafði hann verið skorinii upp, e®
kom að engu liði.