Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 2

Morgunblaðið - 18.01.1992, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1992 Loðnukvótinn aukinn um 300 þúsund tonn: Sólinni fagnað með kaffi og pönnukökum SÓLARKAFFI ísfirðingafélagsins í Reykjavík var haldið í gærkvöldi á Hótel íslandi. Veitingarnar voru ólíkar því, sem gestir skemmtistaðarins eiga að venjast, kaffi og ijómapönnukökur. Sá siður hefur lengi verið á ísafirði að borða ijómapönnukökur með kaffinu 25. janúar ár hvert, en þá er því fagnað, að aftur sést til sólar í bænum, eftir myrkan vetur. Brottfluttir Ísfírðingar láta ekki sitt eftir liggja og í gær komu um 800 manns í kaffisopann á Hótel íslandi, þó að sólarkaffíð væri í raun á borð borið viku of snemma. Meðal gesta var Herdís Albertsdóttir, 83ja ára, sem kom gagngert frá ísafírði á sólarkaffið, eins og hún hefur gert um margra ára skeið. Fyrir aftan Herdísi er dóttir hennar Guðný Hanner og við hlið hennar situr Margrét Sanders, dóttir Alla Kalla, eins og hún sagðist ætíð kynna sig. Eimskip kaupa lóð og húsnæði Vikurvara 1 j EIMSKIPAFELAG Islands hf. hefur keypt lóð og húsnæði fyrirtækis- ins Vikurvara hf. vestast í Sundahöfn. Vikurvörur, dótturfyrirtæki BM Vallár, hefur flutt út vikur, en flytur nú starfsemi sína til Þorláks- hafnar. Þorkell Sigurlaugsson, frainkvæmdastjóri þróunarsviðs Eim- skipafélagsins, sagði að tilgangur kaupanna væri að efla og tengja þessa aðstöðu við athafnasvæði félagsins í Sundahöfn og hafa mót- töku þar á vöru fyrir innanlandsflutninga. „Þetta tengist því að við ætlum gefa upp söluverðið á eignum Vikur- að efla þessa starfsemi í ljósi þess að Ríkisskip hættir þessum sigling- um. Við ætlum að bæta þjónustuna og efla hana. Hugmyndin er sú að aðgreina betur móttöku á vörum frá einstaklingum eða fyrirtækjum, sem eiga að fara út á land, frá þeim rekstri sem tengist millilandasigl- ingum,“ sagði Þorkell. Um er að ræða 1.100 fermetra iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði, 2.000 fermetra vikurgeymslu og 8.000 fermetra lands. Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Vik- urvara, sagði að samningaviðræður hefðu hafíst síðastliðið sumar. Fyrir- tækið hefði fengið vilyrði fyrir ágætri aðstöðu í Þorlákshöfn, en með tilkomu Óseyrarbrúarinnar hafí hagkvæmni Þorlákshafnar aukist mjög varðandi útflutning á vikri. Vikurinn er tekinn á Heklusvæðinu. Vegalengdin þaðan til Þorlákshafn- ar væri meira en 70 km styttri en til Reykjavíkur. Víglundur vildi ekki vara í Sundahöfn en þar væri um umtalsverðar fjárhæðir að ræða. Eftir kaupin verða fímm aðilar með starfsemi í Sundahöfn auk Eim- skipafélagsins, Komax, Fóður- blandan, Lyftir, vörubílastöðin ET og Reykjavíkurhöfn sem hefur þar viðlegukant fyrir skemmtiferðaskip. Eimskip hyggst nýta húsnæðið undir skrifstofur og móttöku á vör- um og sagði Þorkell að einhveijar breytingar þyrfti að gera á hús- næðinu en að öðru leyti þyrfti félag- ið ekki að kosta miklum fjármunum til að koma starfseminni á laggirn- ar. Hann sagði að hluti lóðarinnar hefði verið í eigu Reykjavíkurhafn- ar. -----♦ ♦ ♦-- Stunginn með hnífi á heimili Verðmæti loðnuafurða gæti orðið 5,4 milljarðar íslendingar gætu veitt a.m.k. 700 þúsund tonn Útflutningsverðmæti loðnu- afurða gæti orðið 5,4 milljarðar króna á þessari vertíð, miðað við að íslendingar veiði um 700 þúsund tonn, að sögn Jóns 01- afssonar framkvæmdastjóra Félags íslenskra fiskmjölsfram- leiðenda. Hann segir að veiðar íslensku skipanna verði hins vegar að ganga mjög vel á næst- Umsóknir um 400 milljónir króna vegna greiðsluerfiðleika liggja fyrir og eru það síðustu lán- in vegna þess flokks lána sem hefur verið lokað. Auk þess er talið að umsóknir vegna um 300-400 milljóna bíði afgreiðslu vegna kaupa á notuðu húsnæði og vegna nýbygginga, sem hafa dregist verulega saman. Til sam- anburðar bárust umsóknir um húsbréf fýrir rúman milljarð í des- ember 1991. Sigurður Geirsson, forstöðu- maður húsbréfadeildar Húsnæðis- stofnunar ríkisins, sagði að mun minni eftirspum hefði verið eftir lánum vegna notaðs húsnæðis og nýbygginga en í venjulegum mán- uði. Honum sýnist að það sé farið að draga úr sölu og metur horfurn- ar þannig að eitthvað dragi úr fasteignaviðskiptum og nýbygg- ingum á þessu ári. Samtals voru afgreiddir um 15 unni ef þau eigi að ná þessum afla. Akveðið hefur verið að auka heildarloðnukvótann á vertíðinni um 300 þúsund tonn, upp í 740 þúsund tonn, og þar af koma 577 þúsund tonn í okk- ar hlut, sem er nálægt meðal- veiði okkar síðustu 5 árin. Talið er að þegar loðnan var mæld í nóvember hafi af þessum 300 milljarðar í húsbréfum á síðasta ári, þar af um 2,9 milljarðar vegna greiðsluerfiðleikalána. Útgáfan minnkaði úr rúmum 1.400 milljón- um í nóvember í rúmar 400 millj- ónir í desember síðastliðnum og hafði ekki verið jafnlítil fyrr á árinu. Að undanskildum júnímán- uði, þegar gefin voru út húsbréf fyrir 829 milljónir, var útgáfan í mánuði hveijum frá því að vera rúmur milljarður allt upp í að vera tæpir 2 milljarðar þegar hún varð mest í júlí. Að sögn Sigurðar má gera ráð fyrir að tæplega 2/?. af útgefnum húsbréfum, eðatæpir 10 milljarðar árið 1991, hafí skilað sér út á markað, það sem á vantar er ann- aðhvort í eigu fólks eða bréfín ganga áfram í fasteignaviðskipt- um. Húsbréfaútgáfan frá upphafi er þá orðin rúmir 20 milljarðar. I ár er gert ráð fyrir að húsbréfaút- gáfa verði 12 milljarðar. þúsund tonnum 100 þúsund tonn verið undir ís en 200 þús- und voru blönduð smáloðnu og því ekki mælanleg. íslendingar hafa mest veitt 1,053 milljónir tonna af loðnu en það var á vertíðinni 1986-’87. Af þessari 300 þúsund tonna aukn- ingu nú er hlutur íslendinga 234 þúsund tonn en bráðabirgðakvóti íslensku skipanna var 351 þúsund tonn. Okkar kvóti verður því auk- inn um 234 þúsund tonn, sem þýðir að útflutningstekjur gætu aukist um 1,7 milljarða. Hugsan- legt er að loðnukvótinn verði auk- inn enn frekar á þessari vertíð ef loðna kemur til hrygningar við vestanvert landið í vor, að sögn Jóns Ólafssonar. Samkvæmt rannsóknum Haf- rannsóknastofnunar er loðnu- stofninn 1,458 milljónir tonna og af þeim eru 1,086 milljónir tonna kynþroska en 400 þúsund tonn eru skilin eftir til að hrygna. Á síðustu vertíð voru veidd hér 303 þúsund tonn af loðnu og þar af veiddum við 280 þúsund tonn. Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra hélt í gær. Af heildarloðnukvótanum fá Is- lendingar 78%, eða 577.200 tonn, Norðmenn 11% (81.400 tonn) og Grænlendingar 11%, samkvæmt samningi þessara þjóða, sem gildir tiTl.júlí nk. Haft hefur verið sam- band við Norðmenn og Grænlend- inga vegna aukins loðnukvóta og kvótinn verður ekki gefinn út fyrr en þeir hafa sagt álit sitt á aukn- ingunni. Erlend skip mega hins vegar ekki veiða hér eftir 15. fe- brúar ár hvert og heldur ekki sunnan 64,30. gráðu, sem liggur um Papagrunn. Grænlendingar eiga engin loðn- uskip en hafa selt loðnukvóta sinn Færeyingum, Norðmönnum og ís- lendingum. Þar sem loðnan er nú við Austfirði gerir Jón Ólafsson ráð fyrir að erlend skip nái ekki að veiða neitt af loðnukvóta Græn- lendinga og Norðmenn geti ein- ungis veitt helminginn af sínum kvóta. Þessi kvóti, samtals um 122 þúsund tonn, falli því í hlut íslend- inga án þess að bætur komi fyrir. Þá telur Jón Ólafsson að Norð- menn hafí meiri áhuga á að ná loðnukvóta sínum í Barentshafinu, 540 þúsund tonnum, en að veiða loðnu hér við land en þeir hafa veitt um 20 þúsund tonn af loðnu hér í vetur. Yfir 60 norsk skip hafa leyfi til loðnuveiða hér, eða um 30 færri en í fyrra. í gær voru 26 norsk skip í okkar lög- sögu, flest út af Seyðisfirði. Jón segir að einungis tvö færeysk skip, Þrándur í Götu og Krónborg, geti stundað loðnuveiðar hér, en þau hafa ekki fengið veiðileyfi. Af íslenska kvótanum er búið að veiða 93 þúsund tonn á yfir- standandi vertíð. MAÐUR á fimmtugsaldri var stunginn með hnífi á heimili sínu í Þingholtunum í fyrrinótt. Sár hans reyndist grunnt og var gert að því á slysadeild. Maður á þrítugsaldri, sem var gestur hins, viðurkenndi að hafa lagt til hans. Mennirnir, sem þekktust ekki fyrir, hittust í miðbæ Reykjavíkur fyrr um kvöldið og bauð sá eldri hinum heim með sér. Kl. 1.49 var hringt til lögreglunnar í Reykjavík og tilkynnt að maður hefði verið stunginn með hnífi í tilteknu húsi í Þingholtunum. Þegar lögreglan kom á vettvang kom húsráðandi til dyra og var hann mjög blóðug- ur. Hann sagðist hafa verið stung- inn í brjóstið. Yngri maðurinn var í stofu íbúðarinnar. Hnífurinn, sem hann hafði beitt, var lítill, með um 10 sm löngu blaði. Við skoðun á slysadeild kom í ljós að sárið á bringu mannsins var mjög grunnt, þó töluvert hefði úr því blætt og hafði hnífurinn stöðvast á bringubeininu. Yngri maðurinn var fluttur í fanga- geymslu lögreglunnar. Rannsókn- arlögregla ríkisins tók við rann- sókn málsins. í gær var maðurinn í haldi, en þá hafði ekki verið gerð krafa um að hann yrði úrskurðað- ur í gæsluvarðhald. 100 ár liðin frá fæð- ingu Olafs Thors EITT HUNDRAÐ ár eru liðin frá fæðingu Ólafs heitins Thors forsætisráðherra nú á sunnudag, 19. janúar. Að því tilefni verður Ólafs minnst víða, t.d. í Ríkisútvarpinu á sunnudag, og hans hef- ur verið minnst á Aðalstöðinni og Bylgjunni. Sérstök dagskrá verður flutt í Ríkisútvarpinu um líf og störf Ólafs Thors og hefst hún klukkan 14 á sunnudag. Guðrún Péturs- dóttir og Ólafur Hannibalsson annast þáttinn. Sá þáttur verður reyndar endurfluttur sunnudag- inn 2. febrúar klukkan 20.50. Einnig var útvarpað sérstökum síðdegisþætti í gær, föstudag, á Aðalstöðinni og Bylgjunni. Sá þáttur var í umsjá ungra sjálf- stæðismanna. Loks gat Ásgeir Pétursson þess að tímaritið Stefnir, sem Samband ungra sjálfstæðismanna gefur út í febrú- ar, væri helgað minningu Ólafs Thors. Ásgeir Pétursson, bæjarfógeti í Kópavogi, hefur verið formaður nefndar Sjálfstæðisflokksins, sem haft hefur með höndum undirbún- ing afmælisins. Ásgeir sagði í samtali við Morgunblaðið að í Hólavallakirkjugarði yrði minn- ingarsamkoma klukkan 14 á sunnudag og verður þar lagður blómsveigur að bautasteini Ingi- bjargar og Ólafs Thors. Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, mun flytja þar ávarp og flokkur söngmanna úr Karla- kórnum Fóstbræðrum syngur. í Keflavík verður minningarat- höfn við styttu Ólafs Thors og hefst hún klukkan 10.30. Verulega dregið úr eftirspurn eft- ir húsbréfalánum VERULEGA hefur dregið úr eftirpurn eftir húsbréfalánum vegna notaðs og nýs húsnæðis að undanförnu ef undan er skilið það sem eftir er að afgreiða vegna greiðsluerfiðleikalána. Verið var að gefa út nýjan flokk húsbréfa að upphæð 4 milljarðar króna um miðjan mánuðinn og höfðu þá ekki verið afgreidd lán frá miðjum desember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.