Morgunblaðið - 23.01.1992, Page 15

Morgunblaðið - 23.01.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1992 15 Vegið að starfs- heiðri mínum eftir Egil Jónsson Verra hvað? Vegna skrifa Magnúsar R. Gísla- sonar, yfírtannlæknis í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í Morgunblaðinu 10. janúar 1992 er ég knúinn til að halda uppi vömum fyrir starf mitt sem tannlæknir barna með aðsetur á Akureyri. í grein sinni sem Magnús kýs að skrifa undir fyrirsögninni „Tann- læknaþjónusta á íslandi 1991“ lýsir hann yfir að ástand 12 ára barna sé hér helmingi verra hvað varðar tannskemmdir miðað við hin Norð- urlöndin og Bandaríki Norður- Ameríku. Ég mótmæli Þessi fullyrðing er ekki alls kost- ar rétt því á mörgum stöðum hefur tannlæknum tekist að lækka skemmdartíðni barna langtum meira, og læt ég hér fylgja graf af ástandi 12 ára barna í skólum á Akureyri. Tannlæknar á Akureyri hafa sjálfir byggt upp skólatann- lækningar í byggð sinni og komið að skipulagi sem kallar ekki á mið- stýringar hins opinbera með tilheyr- andi útgjöldum okkar skattborgara. Egill Jónsson Eins góð í niðurlagi greinar sinnar gefur yfirtannlæknir í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu í skyn að ástand tannheilsu þeirra er á landsbyggðinni búa sé slaklegri vegna skipulagsleysis. Þetta er al- röng ályktun. Ef borið er saman ástand barna á Akureyri og í Reykjavík hallar heldur á höfuð- borgina. Miðað við allan þann tíma sem miðstýringin hefur verið á skól- atannlækningum borgarinnar er ljóst að ekki er að vænta betri ár- angurs af því skipulagi en uppbygg- ingu svipaðri þeirri er hefur verið viðhöfð á Akureyri. Akureyri Akureyrar-líkan um uppbygg- ingu á tannheilsu skólabarna bygg- ist á því að börn og forráðendur geta valið sér þann tannlækni sem þeim líkar bezt, eru ekki aðeins númer í hverfinu heldur fijálsir ein- staklingar um val á sínum tann- lækni. Vilja það ekki allir, börn og fullorðnir? Höfundur er tannlæknir á Akureyri. Tannviðgerðir barna á Akureyri 1990-91 Skemmdar viðgerðar og úrdregnar tennur. Fjöldi tanna sem lagaðar voru hjá 12 ára Skoðað af Agli Jónssyni ÖTRÚUGT VIRÐ ca. 30sm. 399.- ca. 45sm. 499.- ca. 60sm. 599.- t'jSwKOHAR SKRAUTMUNIR Fíkus 7267- Alparós (minni) 4097- Alparós 827.- Flöskuliljur (minni)4F87- Flöskuliljur 616.- Þykkblöðungar 4847- Madagascarpálmi 4847- Húsfriður §727 Gúmmítré (lítil) 4307- Stofugreni 418:- Stofuaskur 404-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.