Morgunblaðið - 23.01.1992, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANUAR 1992
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur L. Friðfinnsson tekur við Davíðspennanum úr hendi
Vilhjálms Hjáimarssonar.
Guðmundur á Egilsá
hlaut Davíðspennann
Guðmundur L. Friðfinnsson
rithöfundur á Egilsá hlaut Davíð-
spennann fyrir bók sína Þjóðlíf
og þjóðhætti sem kom út á síð-
asta ári. Davíðspenninn er viður-
kenning Félags íslenskra rithöf-
unda og var afhentur í annað
sinn sl. þriðjudag, 21. janúar á
afmælisdegi Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi, sem penninn er
kenndur við.
Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrver-
andi ráðherra afhenti Guðmundi L.
Friðfinnssyni Davíðspennann og
100 þúsund krónur í peningum. Við
það tækifæri sagði Guðmundur að
ekki væri laust við að sá 86 ára
gamli bóndi, sem þar stæði, kenndi
nokkurrar feimni að veita viðtöku
Gjaldþrot Pólarlax hf.:
Lýstar kröf-
ur rúmar
114 milljónir
SKIPTAMEÐFERÐ á þrotabúi
fiskeldisfyrirtækisins Pólarlax
hf. í Straumsvík í Hafnarfirði er
lokið án þess að nokkuð hafl
fengist greitt af lýstum kröfum.
Tilkynning um skiptameðferðina
birtist í Lögbirtingablaðinu 22. jan-
úar. Þar segir að henni hafí lokið
20. desember 1991 án þess að nokk-
uð fengist greitt upp í Iýstar kröfur
sem samtals nema 114.688.758 auk
vaxta og kostnaðar eftir upphafs-
dag skipta.
Búið var tekið til gjaldþrota-
skipta með úrskurði skiptaréttar
Hafnarfjarðar 20. janúar 1989.
kjörgrip sem bundinn væri nafni
Davíðs Stefánssonar. Ekki vegna
þess að hann væri bóndi, heldur
vegna þess að Davíð hefði verið svo
ástsælt skáld að mælt var að hrein-
ar meyjar svæfu með ljóð hans
undir koddahornunu. „En án þess
að í því felist nokkur kvörtun hafa
ekki borist spurnir af því að kvenna-
blómi þessa lands hafi kúrt með
bókarkom Egilsárbónda undir
kodda,“ sagði Guðmundur.
Hann bætti við, að hugur Davíðs
Stefánssonar hefði alla tíð verið
mjög bundinn við átthagana hvar
sem hann fór. Þannig væri hveijum
manni hollt að minnast uppruna
síns, tengslanna við fortíð, borg og
landsbyggð. Nauðsynlegt væri að
hafa þéttbýliskjama, en ekki síður
blómlegar byggðir með gróandi at-
vinnulíf til sjávar og sveita. „Það
er allar stundir ósk mín að við
sundrumst aldrei né klofnum í tvær
þjóðir en beram gæfu til að vera
ein samstillt þjóð í einu landi,“ sagði
Guðmundur.
Við sama tækifæri afhenti Örlyg-
ur Hálfdánarson Guðmundi merki
bókaútgáfunnar Amar og Örlygs,
sem gaf bókina út.
Þjóðlíf og þjóðhættir er æviminn-
ingaþættir Guðmundar L. Friðfinn-
sonar þar sem fjallað er um atvinnu-
hætti og mannlíf á uppeldisáram
hans í Skagafirði. í formála segir
Guðmundur að upphafiegur til-
gangur bókarinnar hafí verið að
minnast nokkurra samferðar-
manna, vina og æskufélaga, sem
allir væra gengnir bakvið kvöldroð-
ann. Jafnframt hafí svo hlotið að
fara að brugðið yrði upp nokkram
svipmyndum af þeim aldarhætti
sem gekk um garða þegar höfundur
var að vaxa úr grasi.
Tölvuendurmemitun fyrir konur
Grunnatriði, ritvinnsla og tölvubókhald fyrir konur sem vilja breyta til.
12 vikna námskeið, mætt 3 klst í viku • Hagstætt verð og greiðsluskilmálar
Leiðbeinandi: Kristín Þormar, kerfisfræðingur TVÍ
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Verkfraöistofa Halldórs Kristjánssonar fjr
(Srensásvegi 16*stofnuð 1. mars 1986 (J)
Vil frekar semja tónlist
en stunda lögfræðistörf
- segir Finnur
Torfí Stefánsson
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands frumflytur verkið Hljóm-
sveitarverk II, eftir Finn Torfa
Stefánsson tónskáld í kvöld,
fimmtudag, kl. 20 í Háskóla-
bíói. Þetta er frumflutningur
verksins en Sinfóníuhljóm-
sveitin hefur ekki áður flutt
verk eftir Finn Torfa. Stjórn-
andi er Finninn Osmo Vanská.
Finnur Torfí er bæði lögfræð-
ingur og stjórnmálafræðingur að
mennt. Eftir að hafa starfað sem
slíkur um nokkurra ára skeið,
sem og að hafa tekið virkan þátt
í stjórnmálum, en hann sat um
tíma á Alþingi, hóf hann nám í
tónfræðum í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og lauk þaðan BA prófí
árið 1986. Arið 1989 lauk hann
MA prófí frá Kaliforníuháskólan-
um í Los Angeles og því næst
fór hann í framhaldsnám til San
Diego og fluttist aftur heim árið
1990. „Það var mikið átak að
læra allt sem læra þurfti í tón-
smíðum en til þess að sinna þessu
af alvöru þarf mikið nám og þjálf-
un. -Ég lærði á píanó sem strákur
og á skólaárum mínum spilaði
ég bæði rokk og popp meðal ann-
ars með hljómsveitinni Óðmönn-
um þannig að tónlistinn átti allt-
af mikil ítök í mér,“ segir Finnur
Torfi.
Ásamt því að semja tónlist
kennir hann m.a. í Tónlistarskó-
lanum í Reykjavík. Hann hefur
helgað líf sitt tónlistinni en segist
samt hafa haft gaman að því að
hafa tekið þátt í stjómmálum og
stundað lögfræðistörf. „Heimur
Morgunblaðið/KGA
Finnur Torfi Stefánsson fyrir framan Listamiðstöðina Straum,
þar sem hann vinnur nú að tónsmíðum.
tónlistarinnar gefur mér hins
vegar miklu meira. Ég vil miklu
frekar semja tónlist jafnvel þó
að ég fái ekkert fyrir það, heldur
en að stunda stjómmál eða lög-
fræðistörf. Tónsmíðar era gef-
andi og veita önnur lífsgæði en
venjuleg störf.“
Finnur segir mikinn kraft vera
í tónlistarlífi hér á landi, sem
byggist m.a. á áhuga tónlistar-
manna og áheyrenda auk þess
sem ýmis fyrirtæki hafa stutt
tónleikahald með fjárframlögum.
„íslenskir tónlistarmenn era yfir-
leitt jákvæðir og áhugasamir um
að flytja ný verk og þurfa oft að
leggja mjög mikla vinnu í það
og fá ekki mikið fyrir. Tónlistar-
líf er mjög blómlegt og gott hér
og mikið að gerast,“ segir Finnur.
Hann segir Hljómsveitarverk
II hafa verið verkefni sitt til
meistaraprófs, en þetta er fram-
flutningur verksins. „Það er
skrifað fyrir töluvert stóra hljóm-
sveit og er frekar stutt en sam-
þjappað að formi. Það er í einum
þætti, sem skiptist í ýmsa kafla,
og ég hef lagt mikið upp úr því
að hagnýta litadýrð sinfóníu-
hljómsveitarinnar. Þó að maður
kunni helstu fræðigreinamar þá
er það fyrst og fremst við að
heyra verkið, sem hægt er að
heyra hvort tekist hefur vel eða
ekki. Ég er mjög ánægður með
stjórnandann og hann hefur gott
vald á verkinu og ég geri mér
vonir um að þetta takist vel,“
segir Finnur Torfí Stefánsson að
lokum.
Afmæliskveðja:
Jón K. Hafstein
tannlæknir
Opið bréf til afa míns
Hvemig á að skrifa um mann
sem maður hefur þekkt alla ævi?
Á maður að lýsa kynnum sínum
af honum, lífsstarfí hans eða því
hvemig áhrif hann hefur haft á
umhverfi sitt? Myndi frásögn sú,
sem ungur maður skrifar um afa
sinn, vera trúverðug og honum til
sóma?
Hvað sem öllum vangaveltum
líður um svona pistla, langar mig
til að kasta afmæliskveðju á hann
nafna minn og afa, Jón Kristinn
Hafstein, sem á 75 ára afmæli í
dag.
Yfir 2000 m2 af flísum. Hreinlætis- og blöndunartæki
með 40% afslætti.
Útsalan stendur yfir dagana 20. janúar -1. febrúar.
10% af öðrum
vörum
E
| IUROCARO ■■HSBi
Raðgreiöslur
AiFAÐORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR Knarrarvogi 4
104 Reykjavík - Sími 686755
Kæri afi! Nú á þessum tímamót-
um vil ég fyrir hönd ijölskyldunnar
óska þér hjartanlega til hamingju
með afmælið. Ég veit að þetta er
óvenjuleg afmæliskveðja en ég get
ekki setið á strák mínum vegna
þess að mér hefur ávallt fundist
þú vera óvenjulegur maður að
mörgu leyti. Þá meina ég auðvitað
óvenjulegur í jákvæðri merkingu.
Það eru ekki ýkja margir sem lifa
lífí sem snýst að mestu um það
að hjálpa öðram, lífi sem varðveit-
ir, skapar og bætir önnur líf, lífi
sem aðrir gætu tekið sér til fyrir-
myndar. Eg hef lengi reynt að
finna þá töfraformúlu sem þú
braggaðir til þess að öðlast ham-
ingjusamt líf og ég held að ég
hafí nú fundið hana. Vonandi reið-
ist þú mér ekki þótt ég leki henni
í fjölmiðla því í raun væri það
mannréttindabrot að lúra á henni.
Enda væri það í hróplegri mótsögn
við eðli þitt og innri mann ef fleiri
fengju ekki að njóta hennar. Að
mínu mati er formúlan þessi:
Maður verður að hafa kjark og
kristna trú til að sigla hamingju-
samur í gegnum lífið. Maður bítur
á jaxlinn í harðæri en þakkar góð-
ærið. Gjafmildi lengir lífið og hjálp-
semi við þá, sem hjálpar era þurfi,
gefur minningunum meira gildi en
góð bók. Með hjálpsemi eignast
maður vini og með gjafmildinni
náungakærleik. Hlýja stækkar
hjartað og með formúlunni geym-
ast margar góðar blöndurnar á
réttum stað. Húmor er ómissandi
og ekki vantar hann þar sem þú
ert.
Ég mun í mínu lífi reyna að til-
einka mér þessa góðu formúlu þína
sem samanstendur af kjarki, trú,
gjafmildi, hjálpsemi, hjartahlýju og
húmor, en ég veit að hlutföllin
verða því miður aldrei þau sömu.
í pólitík hefur þú ávallt verið
traustur og átt dijúgan þátt í að
móta skoðanir mínar þar að lút-
andi. Og þó svo starf þitt hafi að
mestu farið í það að kafa upp í
annarra manna kjafta hefur þú
ávallt verið til staðar þegar til þín
hefur verið leitað. Þannig varst þú
bróður þínum styrkur en hann
stýrði landi og lýð og lýðræðið
varðir þú á Austurvelli 30. mars
1949.
Afí minn, þessi orð verða ekki
fleiri á opinberum vettvangi en ég
óska þér áframhaldandi góðrar
heilsu og hamingju.
Jón Kristinn Snæhólm.