Morgunblaðið - 23.01.1992, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 23.01.1992, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1992 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) w* Hafðu hóf á peningaeyðslu þinni. Áætlun sem þú hefur gert varðandi menntun þína er þess virði að fylgja henni eftir. Naut (20. apríl - 20. maí) (ffö Settu ákveðið mál í bið og hugsaðu það betur. Endurskoð- aðu aðferðir þínar tii að tryggja fjárhagsöryggi þitt. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Reyndu að vinna á móti þeirri tilhneiginu þinni að ýta hlutun- um á undan þér. Láttu vini þína ekki teíja framgang þeirra mála sem þú þarft að koma frá. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú skalt ekki blanda saman leik og starfi núna, en farðu að fínna samstarfsmenn þína utan vinnutíma og eigðu með þeim glaða stund. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Horfstu í augu við sannleikann. Þig langar meira til að fara út að skemmta þér en taka á móti gestum heima fyrir. Njóttu þess að takast á við skapandi verkefni. Meyja (23. ágúst - 22. september) Losaðu þig við áhyggjur út af peningum og rannsakaðu vandlega viðskiptatilboð sem þér berst. Þú leggur á ráðin um endurbætur heima fyrir. Vog (23. sept. - 22. október) Þú virðist vera sammála maka þínum í einu og öllu í dag og þið hvetjið hvort annað til dáða. Farið varlega í peningamálun- um, en njótið samverunnar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þér hættir til að fara illa með tíma þinn í dag, en ef til vill nærðu þó takmarki þínu. Nú er tilvalið að prófa nýjar hug- myndir. Fjárhagsmálin taka hagstæða stefnu. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Þú kannt að fyllast sjálfsvork- unn út af eintómum leiðindum. Þig langar til að kanna nýjar slóðir. Finndu þér ný áhugamál og farðu á áður óþekkta staði. Láttu eitthvað gerast. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Ef þú ætlar að koma öllu því í verk sem þú ráðgerðir verður þú að forðast tafir og truflan- ir. Þú verður að njóta næðis til að rétta andrúmsloftið skap- ist í kringum þig. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Eftir óvenjuerfiðan dag í vinn- unni, þar sem verulega hitnar undir þér, fagnarðu óþvingaðri og örvandi samveru með vinum þínum og vandamönnum í kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) ISSít Þú sérð ekki aðeins hlutina í stóru samhengi í dag, heldur leggurðu á ráðin um framtíð þína. Láttu nú hendur standa fram úr ermum og berðu þig eftir því sem hugur þinn stend- ur til. Stjörnuspána á að lesa sem dœgradvól. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FERDINAND Kennarinn minn trúir því ekki, að þú hafir skrifað ritgerðina um inflú- ensufaraldurinn í fyrri heimsstyrj- öldinni. Ég var þar! Hún sagði, að ég ætti ekki að búa til skröksögur, hún sagði, að þú hefðir aldrei getað verið flugkappi í fyrri heimsstyrjöldinni... 5HE SAIP I 5HOULPN'T MAKE UP LIE5...5HE SAlP YOU C0ULP NEVER HAVE BEEN AWORLPUIARI FLYING ACE... Komdu með hana hingað, og sýndu henni skotgötin! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Svæðamóti Norðurlands eystra lauk nýlega með sigri sveitar Jak- obs Kristinssonar. Níu sveitir tóku þátt í mótinu, en fjórar efstu áunnu sér rétt til að keppa á íslandsmót- inu. í síðasta leik áttust við tvær efstu sveitirnar, Jakob og Arnar Einarsson, sem þá leiddi mótið með 2 stigum. Spilið í dag er úr þeirri viðureign: Suður gefur; NS á hættu. ¥ 6 Vestur i Á984 ♦ 1086 +AK942 ¥5 llllll ♦ D10762 111111 ♦ 10865 Suður ♦ KDG975 ¥ K932 ♦ 3 ♦ G3 Austur ♦ 4 ¥ ÁDG10874 ♦ KG5 ♦ D7 I lokaða salnum létu NS sér nægja að spila 4 spaða, sem unn- ust með yfirslag. Hinum megin sögðu Jakob og Ánton Haraldsson slemmuna gegn Sveinbirni Jóns- syni og Árna Bjarnasyni: Vestur Norður Austur Suður S.J. A.H. Á.B. J.K. — — — 1 spaði Pass 2 lauf 2 hjortu 2 spaðar Pass 3 spaðar 4 hjðrtu 4 spaðar Pass 6 spaðar Allir pass ’ geimkrafa. Sveinbjörn kom út með einspilið í hjarta, sem Ámi drap á ás og sendi drottninguna til baka. Jakob lét lítið hjarta heima og yfirtromp- aði spaðasexu Sveinbjamar með ás. Tók þvínæst tvisvar tromp og prófaði laufið: spilaði Ák og tromp- aði það þriðja. Lagði svo upp, „enda óþarfí að fletta spilunum í sannaðri stöðu“. Vestur verður að halda í hæsta lauf, austur í hæsta hjarta, svo hvorugur getur valdað tígulinn: tvöföld kastþröng. En hvernig fór svo leikurinn? Sveit Jakobs vann 16-14 og náði þar með Arnari að stigum. I slíkum stöðum ræður innbyrðis leikur, svo Jakob telst í fyrsta sæti. Það er alltaf gaman að vinna spil með kastþröng og ekki skygg- ir það á gleðina þegar spilið ræður úrslitum í tvísýnni baráttu. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á hinu árlega Hoogoven-móti i Wijk aan Zee í Hollandi, sem nú stendur yfir, hefur hinn 19 ára gamli Loek Van Wely (2.560) komið geysilega óvart. Þessi staða kom upp í skák hans við rússneska stórmeistarann Vladimir Epishin (2.620). Van Wely hefur svart og á leik: 32. - Rxg3!, 33. Bxg3 - Dh3, 34. Bxc7 (Hvíta kóngsstaðan er hrun- in, Rússinn getur aðeins reynt að tefla upp á frípeð sín á c6 og d5. Þau eru þó ekki komin nægilega langt og svarta sóknin ræður úrslit- um:) 34. - Dhl+, 35 Kf2 - Bh5+, 36. Bf4 - Dxh4+, 37. Kgl - Hxf4, 38. Hg2 - Df6, 39. Rd2 - Dd4!, 40. Dxd4 - Bxd4+, 41. Kh2 - Bxc3 (Svartur er orðinn manni yfir og hvítu frípeðin veita ekki fullnægjandi mótvægi) 42. d6 - Be5!, 43. d7 - e3, 44. Kh3 (Eða 44. d8=D+ - Hf8+) 44. - Bc7 og Epishin gafst upp. Staðan eftir átta umferðir: 1.-3. Gelfand, Salov og Van Wely 5 v. 4.-7. Epishin, Korc- hnoi, Hiibner og Seirawan 4‘/2 v. 8.-11. Piket, Sax, Nikolic og Van der Wiel 4. v. 12.-13. Brennink- meijer, Hollandi, og Romero Hol- mes, Spáni, 2Vi v. Lestina rekur sigurvegari á tveimur síðustu Ho- ogovens-mótum, Englendingurinn John Nunn, sem hefur aðeins 2 v.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.