Morgunblaðið - 02.02.1992, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1992
EFNI
2 FRÉTTIR/INNLENT
Hafnarfjörður:
Helmingi
fleiri at-
viimulausir
en í fyrra
212 MANNS voru á atvinnuleys-
isbótum í Kópavog-i í janúar og
hafa aldrei fleiri á sama tíma',
að sögn Hrafns Sæmundssonar
atvinnumálafulltrúa. Sömu sögu
er að segja í Hafnarfirði en þar
voru 160 manns á atvinnuleysis-
skrá í lok janúar eða helmingi
fleiri en á sama tíma í fyrra.
í Kópavogi eru 78 konur á at-
vinnuleysisbótum og 134 karlmenn.
Hrafn sagði að þrjár stéttir skæru
sig úr, þ.e. ófaglærðir verkamenn,
verslunar- og skrifstofumenn og
opinberir starfsmenn.
Hrafn kvaðst eiga von á því að
fjöldi manns bættist við á atvinnu-
leysiskrá í næstu viku vegna upp-
sagna sem eru miðaðar við 1. febrú-
ar. Opinberum starfsmönnum á at-
vinnuleysisskrá færi jafnt og þétt
fjölgandi. Þá væri háskólamenntað
fólk komið inn á atvinnuleysisskrá
en það hefði ekki þekkst til þessa.
í Reykjavík voru 590 manns á
atvinnuleysisskrá í lok desember,
en tölur fyrir janúar liggja ekki
fyrir.
Morgunblaðið/Alfons
Frímínútur
Börnin í 6. bekk Grunnskóla Ólafsvíkur notfæra sér snjóleysið til þess að leika sér í fótbolta í frímínútun-
um, enda skín áhuginn úr andlitum þessara ungu pilta. Hver veit nema einhver hverfí á vit atvinnumennsku
í knattspymu í framtíðinni?
Óákveðið hvort LÍN lánar fyrir skólagjöldum:
Rætt um að stofna styrktarsjóð
fyrir efnaminni stúdenta við HÍ
Háskóiastúdentar andmæla hækkun skólagjaldanna
SÚ hugmynd hefur verið rædd í Háskólaráði að komið verði á fót
styrktarsjóði fyrir efnalitla stúdenta, sem ekki sjá sér kleift að
greiða skólagjöld. Háskólaráð ákvað á fimmtudag að hækka innrit-
unargjöld við Háskóla íslands úr 2.000 krónum í 17.000. Ekki ligg-
ur fyrir hvort Lánasjóður íslenzkra námsmanna muni lána fyrir
skólagjöldunum.
Stúdentaráð Háskóla íslands
hyggst andmæla hækkun skóla-
gjaldanna og niðurskurði á fjárveit-
ingu til Háskólans á fundi 13. febrú-
ar. „Við erum á móti þessum skóla-
gjöldum. Þau ógna jafnrétti til
náms. Þótt upphæðin í sjálfri sér
sé kannski ekki há í krónum talið
getur hún vaxið mörgum í augum,
sem búa við þröngan kost. Fólk
þarf a.m.k. að hugsa sig tvisvar
um áður en það fer í háskólanám,"
sagði Steinunn V. Óskarsdóttir, for-
maður SHÍ, í samtali við Morgun-
blaðið. „Svona gjöld hafa tilhneig-
ingu til að hækka. Við erum á
móti því að sú meginregla sé brot-
in, að fólk greiði ekki beint fyrir
þessa þjónustu."
Steinunn sagði að ekki lægi fyrir
hvort Lánasjóður íslenzkra náms-
Sveinn sagði að innanlands-
neysla búvara hér á landi væri
lauslega áætluð samsvara um 14,5
milljörðum króna, og því yrði um
að ræða innflutning fyrir 400
manna myndi lána fyrir skólagjöld-
unum. „Þótt svo væri, réttlætti það
ekki neitt, því að þar yrði aðeins
um lán að ræða, sem síðan þyrfti
að borga til baka,“ sagði hún.
Steinunn sagði að stjórn Stúd-
entaráðs hefði rætt möguleika á að
lækka gjöld þau, sem stúdentar eru
skyldugir að greiða til félagsstarfs
við Háskólann. Á yfírstandandi önn
er gjaldið 5.700 krónur, þar af
renna 3.250 krónur til Félagsstofn-
unar stúdenta og afgangurinn,
2.450 kr., til Stúdentaráðs. Gjald
þetta leggst ofan á innritunargjald
það, sem Háskólaráð leggur á, og
stúdentar þurftu því alls að greiða
7.700 krónur er þeir innrituðu sig
á yfirstandandi önn. Þegar skóla-
gjöldin hækka verður þessi upphæð
22.700 krónur samanlagt að
milljónir króna við upphaf samn-
ingstímans. Það yrði örugglega
mjög erfíð framkvæmd að úthluta
þessum 400 milljónum í einhveij-
um tilteknum vörum á innflytjend-
óbreyttu gjaidi til FS og SHÍ. „Milli-
uppgjör Stúdentaráðs sýnir góða
afkomu, þannig að við höfum rætt
um að lækka gjaldið eins og við
getum. Það hefur hins vegar ekki
verið tekin nein ákvörðun um slíkt,“
sagði Steinunn.
Hún sagði að þolinmæði náms-
manna væri nú á þrotum, og stefnu
stjórnvalda gagnvart Háskólanum
yrði mætt með harðri andstöðu inn-
an skólans.
Lárus Jónsson, framkvæmda-
stjóri Lánasjóðs íslenzkra námsV
manna, sagði í samtali við Morgun-'
blaðið að ekkert væri hægt að segja
um það hvort sjóðurinn myndi lána
stúdentum fyrir skólagjöldunum.
Hann sagði að úthlutunarreglur
Lánasjóðsins yrðu teknar til endur-
skoðunar í tengslum við samþykkt
frumvarps til nýrra laga um LIN á
Alþingi og ekki myndi fást niður-
staða í þessu máli fyrr en að frum-
varpinu samþykktu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur sú hugmynd komið
til umræðu í Háskólaráði að jafn-
ur, en hans spá væn sú að það
muni rísa upp að minnsta kosti
500 innflytjendur á landbúnaðar-
vörurn strax fyrsta daginn og opn-
að verður fyrir innflutninginn.
Sveinn sagði útlit fyrir að ekki
yrði aðeins að takmarka magnið
við einhveija ákveðna upphæð hjá
hveijum og einum, heldur yrði
einnig að ákveða hvort mönnum
yrðu skammtaðir ákveðnir vöru-
flokkar eða hvort upphæðinni yrði
fyrst deilt niður á vörurnar og síð-
an á fyrirtækin.
framt því, sem skólagjöld verði
hækkuð, verði komið á fót styrktar-
sjóði fyrir efnaminni stúdenta. Þeir,
sem ekki telji sig ráða við að greiða
skólagjöldin, til dæmis vegna fötl-
unar eða af því að þeir hafa fyrir
mörgum að sjá, geti þá sótt um að
fá styrk úr sjóðnum eða að fá skóla-
gjöldin felld niður. Fyrirkomulag
af þessu tagi tíðkast við ýmsa er-
lenda háskóla, þar sem skólagjöld
eru innheimt.
-----.....+—---
Hitaveita Seyðisfjarðar:
RARIK kaup-
ir dreifikerf-
ið á 76 millj.
RAFMAGN S VEITUR ríkisins og
bæjaryfirvöld á Seyðisfirði hafa
undirritað samning þess efnis
að RARIK kaupir dreifikerfi
Hitaveitu Seyðisfjarðar á 76
milljónir króna og taka þar með
að sér rekstur kerfisins.
í samningnum er kveðið á um
að viðskiptavinir Hitaveitunnar
munu næstu tvö árin kaupa vatnið
á sambærilegum kjörum og verið
hefur. Ennfremur munu heima-
æðagjöld lækka til samræmis við
aðrar hitaveitur RARIK. Að þess-
um tíma liðnum munu hitataxtar
Rafmagnsveitnna á Seyðisfirði
verða samræmdir.
í frétt frá RARIK um þetta mál
segir m.a? að Rafmagnsveitunar
hafí þjónustustöð á Seyðisifirði.
Rekstur heitaveitu falli vel að ann-
ari þjónustu Rafmagnsveitnanna
enda séu notendur hennar jafn-
framt rafmagnsnotendur. Því sé
ljóst að hagræði næst með sam-
rekstri þessara tveggja veitukerfa.
Kaupverð Hitaveitu Seyðisfjarð-
ar er byggt á viðskipalegu mati
eignanna þannig að tekjur af eign-
um standi undir kaupverðinu.
Óvíst með úthlutun inn-
flutningsleyfa á búvörum
ALGJÖR óvissa ríkir um það hvernig staðið verður að úthlutun
innflutningsleyfa á þeim landbúnaðarvörum sem skylt verður að
veita lágt tollaðan lágmarksaðgang samkvæmt fyrirliggjandi drög-
um að GATT-samkomulagi Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að
við gildistöku samkomulagsins verði veittur 3% iágmarksaðgangur
miðað við innanlandsneyslu, en hann síðan aukinn í 5% á samnings-
tímanum. Þetta kom fram í máli Sveins Á. Björnssonar sendifull-
trúa í utanríkisráðuneytinu á hádegisverðarfundi Félags íslenskra
stórkaupmanna um GATT-viðræðurnar-
Boðorð bandormsins
►Niðurskurðaráform stjórnvalda
í heilbirgðiskerfinu er ekki sárs-
aukalaus og hér er fjallað um
áhrifin á sjúkrahúsin ./10
Dauði dagblaðs
►55 ára sögu Þjóðviljans, „mál-
gagns sósíalisma, þjóðfrelsis og
verkalýðshreyfingar" lokið. /14
Engin snjór
►Jeppa-, vélsleða- og skíðamenn
horfa til himins og bíða eftir vetri.
/16
Skoðun
► „Þarf að herða sóknina eða
hvað? spyr Sigfús Schopka, físki-
fræðingur í grein í blaðinu í dag.
/18
Bheimili/
FASTEIGNIR
► 1-28
Aldrei eins fjarri hinu
Ijúfa lífi
►María Erlingsen leikkona er
tæplega hálfnuð með tveggja ára
samning í bandarísku sjónvarps-
þáttaröðinni Santa Barbara og
þegar hún var hér á ferð í jóla-
leyfi átti hún að baki leik í ná-
kvæmlega eitthundrað þáttum. /1
Guðfaðir stöðnunar
►í síðasta þætti greinarflokksins
„Sovétríkin liðin undir lok“ er fjall-
að um Brézhnev-tímabilið, þar sem
hernaðarmáttur ríkisins var efldur
uns kerfíð komst í ógöngur og
endalokin voru óumflýjanleg. /6
9
Sat inni saklaus
►í þættinum „Af spjöldum glæpa-
sögunnar" segirfrá Joseph Majcz-
ek sem var dæmdur fyrir morð og
sat inni í þrettán ár. En móðir
hans gafst ekki upp. /8
Ekki farin að skrifa
tékka
►Þrír Sykurmolar velta fyrir sér
frægðinni, nýju plötunni og vænt-
anlegri tónleikavertíð. /10
Lánsami landmaður-
inn
►Afmælisbarnið Aðalsteinn Jóns-
son eða „Alli ríki“ sóttur heim í
blíðuna á Eskifírði til að segja frá
Jóni „sífuila" og fleiri happafleyj-
um. /14
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 16c
Dagbók 8 Dægurtónlist 17c
Hugvekja 9 Fólk í fréttum 19c
Leiðari 20 Myndasögur 20c
Helgispjall 20 Brids 20c
Reykjavíkurbréf 20 Stjörnuspá 20c
Minningar 22 Skák 20c
tþróttir 34 Bíó/dans 20c
Utvarp/sjónnvarp 36 Afömumvegi 24c
Garur 39 Velvakandi 24c
Mannllfsstr. 4c Samsafnið 26c
Menning.st. 12c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4