Morgunblaðið - 02.02.1992, Side 24

Morgunblaðið - 02.02.1992, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1992 Minning: t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN GUÐJÓNSSON trésmiðameistari, Eiríksgötu 25, Reykjavik, andaðist 30. janúar sl. Maria Jónsdóttir, Guðjón St. Guðjónsson, Jóhanna Guðjónsdóttir, Ólafur Guðjónsson, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Guðlaug Guðjónsdóttir, Matthías Guðjónsson, Fjóla Guðjónsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA HELGA JÓNSDÓTTIR frá Gamla Hrauni, síðast til heimiiis á Álfaskeiði 64, Hafnarfirði, lést á Sólvangi 31. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS ERLA ÁSGRÍMSDÓTTIR, Fannarfelli 12, Reykjavik, verður jarðsungin frá Langholtskirkju þriðjudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Sigurður Ámundason, Louisa Aradóttir, Guðjón L. Sigurðsson, Ásgrimur Guðmundsson, Þórdís Heiða Einarsdóttir, Stefán Flego, Helga Skúladóttir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og bróðir, FRIÐRIK LUNDDAL BALDVINSSON, Álftamýri 38, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Hjartavernd. Margrét Sölvadóttir, Marta Lunddal Friðriksdóttir, Gestur Halldórsson, Ásta Lunddal Friðriksdóttir, Eðvarð Björgvinsson, Gunnar Lunddal Friðriksson, barnabörn, Louise Waage Landry. t Okkar ínnilegustu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, KARLOTTU MARGRÉTAR JÓHANNSDÓTTUR RIST, Höfða II, Dýrafirði. Þórarinn Sighvatsson, Þóra Þórarinsdóttir, Sighvatur Jón Þórarinsson, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts mannsins míns og föður okkar, FREYS A. BERGSTEINSSONAR, Bugðulæk 2, Salóme B. Bárðardóttir, Steinar Freysson, Björg Freysdóttir. Halldór Karlsson Fæddur 2. október 1928 Dáinn 23. janúar 1992 Alltaf kemur það á óvart þegar manni er sagt frá mannsláti. Þann- ig var það með mig þegar hringt var og sagt að vinnufélagi og góður kunningi, Halldór Karlsson, hefði látist á heimili sínu þá um nóttina. Samt vissi ég að hann var sjúkur og búinn að vera lasinn lengi. Ég hef þekkt Halldór síðan 1959, en þá vorum við saman á fískiðnað- arnámskeiði. Fyrir 18 árum fór ég að vinna í fiskeftirliti hjá Samband- inu, en þá var Halldór starfsmaður þar. Hann var góður félagi og gott að vinna með honum. Ég hef svo margt að þakka honum og oft ók hann mér heim, ef vont var veður, eftir að maðurinn minn hætti að aka bíl. Með þessum fáu orðum vil ég þakka Halldóri Karlssyni allt gott, kveðja hann og óska honum góðrar heimkomu yfir móðuna miklu. Að heilsast og kveðjast er lífsins saga. Ég votta eiginkonu hans, sonum og öðrum aðstandendum mína dýpstu samúð og bið Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyirr allt og allt.“ (V. Br.) Guðbjörg. Á morgun, mánudaginn 3. febrú- ar, fer fram í Fossvogskirkju útför góðvinar míns Halldórs Karlssonar. Halldór Karlsson fæddist í Reykjavík 2. október 1928. Eftirlif- andi eiginkona hans er Friðrós Jó- hannsdóttir frá Grímsey. Þau höfðu verið gift í 38 ár þegar Halldór lést. Börn þeirra eru tvö, Kári Jón og Karl Jóhann. Foreldrar Halldórs voru Karl Þórðarson og Guðfinna Guðbrands- dóttir úr Reykjavík. Systkini Hall- dórs voru Guðmundur og systir sém dó í frumbernsku. Hálfsystur á hann einnig á Akureyri, Körlu Karlsdóttur, sem er nokkru yngri. Móðir Halldórs lést meðan hann var enn á unga aldri. Ólst hann síðan upp hjá afa sínum og ömmu í móðurættina, Guðbrandi og Hall- dóru í Reykjavík. Kynni okkar Halldórs hófust þeg- ar hann var verkstjóri í frystihúsi Meitilsins í Þorlákshöfn. Ég var þá nýráðinn í Sjávarafurðadeild Sam- bandsins. Ég fann fljótt að Halldór hafði góða þekkingu á vinnslu fisks og að verkstjórn hans var lipur og hávaðalaus, en þeir eiginleikar eru mikils virði við alla stjórnun. Því hagaði svo til að hann réðist ekki löngu seinna í vinnu til okkar, eða 1. september 1973. Reyndar hafði hann unnið hjá fyrirtækinu í fiskeftirliti áður. Frá þeim tíma var Halldór á ný starfsmaður Sjávaraf- urðadeildar Sambandsins, seinna Islenskra sjávarafurða hf. Skemmst er frá að segja að Halldór vann sér álit allra sem hann hafði saman við að sælda í vinnu sinni. Lengst af var Halldór starfsmað- ur í fiskeftjrliti fyrirtækisins, en sú t Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð við fráfall sonar míns, , JÓNASAR FRIÐGEIRS ELÍASSONAR, sem lést 21. janúar 1992. Sérstakar þakkir sendi ég starfsfólki í eldhúsi Sólvangs í Hafnarfirði og öðrum kunningjum og vinum fyrir þeirra myndarlega framlag og hlýju. Ég og fjölskylda mín sendum þeim bestu þakkir. Fyrir hönd fjölskyldu minnar Svanhildur Maríasdóttir. t Okkar innilegustu þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okk- ar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU HALLDÓRU PÉTURSDÓTTUR, Pósthússtræti 13. Ennfremur innilegar þakkir til Ársæls Jónssonar yfirlæknis og starfsfólks hans á deild B-5 Borgarspítalans og starfsfólks heima- hjúkrunar fyrir frábæra og góða hjúkrun í veikindum hennar. Hróbjartur Lúthersson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t - Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR EIRÍKSDÓTTUR HANSEN, Skógargötu 15, Sauðárkróki. Sigurður Hansen, Maria Guðmundsdóttir, Jósefína Friðriksd. Hansen, Guðmundur B. Jóhannsson, Eiríkur Hansen, Kristín Björnsdóttir, Friðrik Hansen og barnabörn. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf ________um gerð og val legsteina._ I! S.HELGASON HF 8 STEINSSHIIÐJA ■ SKEWMUVK3I48 SÍMI 76677 vinna fór mest fram á framleiðslu- stöðum allt í kringum landið. Mikið var því um ferðalög í starfi hans og stundum langar fjarvistir frá heimili. Mátti oft líkja starfinu við sjómennsku, þótt á landi væri. Við þessar aðstæður reyndi mikið á sjálfstæði manna og útsjónarsemi. Síðar meir tengdist hann vinnu í rækjuframleiðslu, en þá var sú vinnsla í örri framþróun og fram- leiðendum okkar dýrmætt að hafa reyndan mann sér við hlið. Þá kom sér vel að hafa völ á manni sem Halldóri, en samvizkusemi og ár- vekni voru meðal mannkosta hans. Fjölskylda mín og ég höfðum mikla ánægju af samvistum við Halldór og Rósu og er margs að minnast í því efni, þó hér sé ekki upp talið. Halldór var mér og eflaust mörgum öðrum fordæmi, sem gjarnan má hugsa til á réttum stundum. Fjölskyldu Halldórs votta ég samúð mína og bið góðan Guð að vera með þeim. Guð blessi minningu Halldórs og geymi hann vel í þeim framtíðarheimi sem okkur öllum er ætlaður. Halldór Þorsteinsson. sími689120 Við erum flutt í Fákafen 11 Opið 9-22 alla daga Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öilkvöld tíl kl. 22,- einnig um hetgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.