Morgunblaðið - 02.02.1992, Page 27
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVI NNIlA UGL ÝSINGAR
Hárgreiðslunemi
óskast
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hárný,
Nýbýlavegi 22, sími 46422.
Þórdís Helgadóttir, hárgreiðslumeistari.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREVRI
Staða yfirsjúkraþjálfara er laus til umsóknar
vegna afleysinga til 6 mánaða.
Staðan veitist frá 1. júní nk.
Einnig er laus til umsóknar staða sjúkraþjálfara.
Staðan veitist frá 1. mars nk.
Umsóknarfrestur er til 10. febrúar nk.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 96-22100.
Sölumaður
Kvikmyndafélag óskar eftir sölumanni. Starf-
ið er krefjandi og við leitum að kraftmikilli
og lífsglaðri manneskju, sem getur unnið
sjálfstætt. Þarf að hafa eigin bíl til umráða.
Tilboð með upplýsingum um fyrri störf o.fl.
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudag-
inn 7. febrúar merkt: „KÖ-2404“.
Kennarar
Vegna barnsburðarleyfis vantar kennara í
Snælandsskóla í Kópavogi frá miðjum febrú-
ar 20 stundir á viku.
Um er að ræða umsjón og kennslu í stærð-
fræði og dönsku í 10. bekk og dönsku í 8. bekk.
Skipti á greinum koma til greina ef um vanan
kennara er að ræða.
Upplýsingar gefa skólastjóri eða aðstoðar-
skólastjórar í síma 44911.
Pressan
Vegna stækkunar á blaðinu vantar okkur
sölumann á auglýsingadeild strax.
Hafið samband við auglýsingastjóra.
Pressan,
sími 621313.
Laus staða
Staða skólastjóra Leiklistarskóla íslands er
laus til umsóknar.
Samkvæmt 3. gr. laga um Leiklistarskóla
íslands skal skólastjóri „settur eða skipaður
af ráherra til fjögurra ára í senn“ og miðast
ráðningartími við 1. júní. „Skólastjóri getur
sá einn orðið, sem öðlast hefur menntun og
reynslu í leiklistarstörfum".
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu, sendist menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir
20. febrúar nk.
HRAFNISTA HAFNARFIRÐI
Eftirtalin störf eru laus til umsóknar:
Stöður hjúkrunarfræðinga á hjúkrunardeild-
um á kvöld- og helgarvöktum.
Staða aðstoðardeildarstjóra á hjúkrunar-
deild frá 1. apríl.
Sjúkraliðar óskast til starfa fljótlega eða eft-
ir samkomulagi.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri
í síma 54288.
Bygginga-
verkfræðingur
óskar eftir vinnu eða verkefnum sem fyrst.
Til greina koma bæði framtíðarstörf eða
tímabundin verkefni.
Hef góða reynslu og er vanur ráðgjöf í verkleg-
um framkvæmdum fyrir verkkaupa og verk-
taka, almennri áætlan- og tilboðsgerð auk al-
mennri hönnunarvinnu fyrir húsbyggingar.
Vinna á höfuðborgarsvæðinu, landsbyggð-
inni eða erlendis komur jafnt til greina.
Einungis kemur til greina vinna fyrir trausta
aðila.
Störf eða verkefni verða að vera á sviði bygg-
ingaverkfræði og tengdum greinum. Stjórn-
unarstörf koma til greina.
Svar óskast sent auglýsingadeild Mbl. fyrir
10. febrúar merkt: „B - 11099".
Menntamálaráðuneytið,
29. janúar 1992.
Framkvæmdastjóri
Eignarleigufélagið Lýsing hf. óskar að ráða
framkvæmdastjóra.
Starfið krefst víðtækrar þekkingar á sviði fjár-
mála og íslensku atvinnulífi. Við leitum að ein-
staklingi með starfsreynslu, sem er tilbúinn
að takast á við krefjandi starf en fjölbreytt.
Lýsing hf. er í eigu Búnaðarbanka (slands
(40%), Landsbanka íslands (40%), Sjóvá-
Almennra trygginga hf. (10%) og Vátrygg-
^ ingafélags íslands hf. (10%).
Afkoma félagsins er og hefur verið góð og
eiginfjárstaða mjög traust.
Umsóknum um starf framkvæmdastjóra,
ásamt upplýsingum um starfsferil og mennt-
un, skal merkja stjórn félagsins og senda til
Lýsingar hf. fyrir 15. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri,
Sverrir Hermannsson, stjórnarforn^ður,
Jón Adólf Guðjónsson, varaformaður.
Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál og þeim svarað.
Lýsinghf.
Lýsing hf.,
Suðurlandsbraut 22,
108 Reykjavík,
sími 689050.
Góðir sölumenn
Rótgróið en jafnframt spennandi fyrirtæki
óskar að ráða góða sölumenn í áhugaverð
söluverkefni sem krefjast hæfni, dugnaðar
og sjálfstæðra vinnubragða. Fyrir rétta aðila
gæti verið um framtíðarstörf að ræða.
Verulegir tekjumöguleikar í boði.
Upplýsingar um fyrri störf og meðmælendur
sendist til auglýsingadeildár Mbl. fyrir
12. febrúar merktar: „Góður - 12940“.
Ung kona
með góða þekkingu og reynslu í skrifstofu-
störfum, óskar eftir starfi hálfan daginn.
Tölvubókhald, ritvinnsla, sjálfstæð.
Upplýsingar í síma 625544.
Varahlutaverslun
Óskum eftir ungum og áhugasömum starfs-
manni til almennra afgreiðslustarfa í bílavara-
hlutadeild okkar.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um mennt-
un, reynslu og fyrri störf til Globus hf.,
Lágmúla 5, Reykjavík fyrir 8. febrúar nk.
G/obusi
éh
Mosfellsbær
Fóstra óskast
í leikskólann Hlíð frá 1. mars nk.
(eða eftir nánara samkomulagi).
Vinnutími frá kl. 7.45-12.15.
Fullt starf kemur einnig til greina.
Óskum einnig eftir að ráða starfsmann með
aðra menntun og/eða reynslu.
Upplýsingar gefur Gunnhildur Sæmunds-
dóttir, leikskólastjóri, í síma 667375.
Góður vinnustaður.
I
Atvinnurekendur
Norræn ungmenni á aldrinum 18 til 26 ára
óska eftir vinnu á íslandi í sumar á vegum
Nordjobb.
Ef ykkur vantar starfskraft í styttri eða lengri
tíma og hafið áhuga á norrænni samvinnu,
hafið þá samband við Ásu Hreggviðsdóttur,
verkefnisstjóra Nordjobb, í síma 19670 hjá
Norræna félaginu.