Morgunblaðið - 27.02.1992, Side 9

Morgunblaðið - 27.02.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1992 9 Góð ávöxtun Raunávöxtun m.v. 3 s.l. mánuði: Kjarabréf..8.2% Tekjubréf....8,1% , Markbréf...8,7% Skyndibréf....7,0% ! & VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF. HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRIN6LUNN1, (91) 689700 - AKUREVRI.S. (96) 11100 OÍTlROn ENDASTOPPSROFAR mikið úrval fyrirliggjandi á lager OLYMPUS Þegar hvert orð skiptir málí! Borgartúni 22 © 61 04 50 Framkvæmd og fjármögnun R&Þ starfsemi á íslandi 1990 samanborið Fyrirt. Opinb. Háskst. Aðrir Fyrirt. Opinb. Önnur Eriend Fjórar auðlindir íslendinga „Við Islendingar eigum fjórar auðlindir, sem verða að standa undir lífskjörum okkar og því mannlífi, menningu og list- um, sem við viljum búa við í þessu landi.“ Svo segir í fréttabréfi, sem gefið er út í samvinnu Vísindaráðs og Rannsóknar- ráðs ríkisins (VOR). Þessar auðlindir eru fiskimiðin, gróðurlendið, orkan í jarð- varma og vatnsföllum og síðast en ekki sízt menntun og hugvit fólksins. Stærsta auð- lindin vannýtt 1 forystugrein frétta- bréfs Vísinda- og Rann- sóknarráða ríkisins segir m.a.: „Því miður hafa marg- ar tilraunir til að renna fleiri stoðum undir at- vinnulíf á íslandi ein- kennst af skammtíma- hugsun veiðimamisins. Dæmin blasa hvarvetna við, í fiskeldi, loðdýra- rækt og ótímab;eiuin virkjunum. I þessari við- Ieitni veiðimaimsins til nýsköpunar h'efur lítið borið á góðum undirbún- ingi og raimsóknum, og varla sést til ræktunar- mannsins, sem gróður- setur trjáplöntu í þeirri trú að hún muni skila bömum hans húsaviði eftii- hálfa öld. Fjórða stærsta auðlind þjóðarinnar, menntun og hugvit, hefur verið vau- nýtt og vanrækt til þessa. Þetta er eina auðlmdin sem getur tryggt okkur viðunandi lífskjör og staðið undir blómlegu mannlífi hér á landi í framtiðinni og komið í veg fyrir að við verðum fátæk veiðimannaþjóð og framleiðendur hráefnis á útkjálka Stór-Evrópu... Fyrstu skrefin til ný- sköpunar ættu að vera efling menntakerfisins, ekki sízt á sviði verk- menntunar og tækni og vemlegt átak til eflingar rannsókna- og þróunar- starfsemi. Hvemig væri að byrja á því að leggja andvirði tveggja loð- dýrabúa í Rannsóknar- sjóð og einnar fiskeldis- stöðvar í Vísindasjóð?" Evrópusam- starfíð og ís- lendingar í tilvitnuðu fréttabréfi er vikið aö Evrópusam- starfi á sviði vísinda og rannsókna. Þai' segir m.a.: „I væntanlegum EES- samiúngi er gert ráð fyr- ir umfangsmiklu sam- starfi EB og EFTA á sviði raimsókna og þró- unar. Gert er ráð fyrir, að frá og með gildistöku samningsins, 1. janúar 1993, taki EFTA-ríkin fullan þátt í svokallaðri þriðju rammaáætlun. Full þátttaka Islands í rammaáætluninni miðast þó við 1. janúar 1994 ... Hér á landi mun menntamálaráðuneytið tryggja framkvæmd væntanlegs EES-samn- ings á þeim sviðum sem snerta vísindamál, en gera má ráð fyrir, að Vísindaráði og Raim- sóknarráði ríkisins verði falin umsjón með þátt,- töku íslaiuls í einstökum áætlunum. Ýmsar rami- sóknarstofnanh' og nokk- ur fyrirtæki hér á laudi vinna nú þegai' að sam- starfsverkefnum eða eru að undirbúa verkefni inn- an rammaáætlunar EB. Þar má nefna rannsókn- arstofnanir mnan Há- skóla Islands, Norrænu eldfjallastöðina, Iðn- tæknistofnun, Hafrann- sóknastofnun, Alpan, Marel o.fl. Akvæði væntanlegs EES-sanuúngs um fulla aðild Islands að ramma- áætlun EB frá og með 1. janúar 1994 að telja veitir rannsóknarstofn- unum, fyiTrtækjum og vísindamömium hér á landi möguleika á aö fjármagna samstarfs- verkefni við aöila að EB-ríkjum um allt að 50% af verkefniskostn- aði. Meimtámálaráðu- neyti, Vísindaráð og Ramisóknarráð ríkisins veita allar nánari upplýs- ingar um framkvæind visindasamstarfsins við EB.“ Rannsóknar- o g þróunar- starf á Islandi Fjármagn sem varið var til rannsóknar- og þróunarstarfs hér á landi nam 0,8% af vergri þjóð- arframleiðslu árið 1987. Fjármagn til þessa starfssviðs eykst í nærri 1% árið 1990. „Þess ber þó að geta,“ segir í frá- sögn fréttabréfsins, „að þjóðai'framleiðsla lækk- aði að raungildi um 16% frá 1987 til 1990. Hefði þjóðarframleiðsla hækk- að sem nemur verðgildi krónunnar milli viðmið- unaráramia hefði hlutfall útgjalda til r&þ (rann- sóknai'- og þróunar- starfs) af þjóðarfram- leiðslu verið töluvert undir 1%. Til samanburð- ar má geta þess, að óveg- ið meðaltal þessa hlut- falls í ríkjum OECD var um 1,7%. Þrátt fyrir óhagstæðan samanburð þokar málum til réttrar áttar.“ Skilningur og þátttaka fyrirtækja hér á landi i rannsóknar- og þróunar- starfi hefur aukist, var um 16% árið 1987 en nam tæpum 19% 1990. Hlutur hins ophibera í heildarfjármögnun rann- sókna var nálægft 70% árið 1990. „Hér á landi er framlag hins opinbera bæði í fjármögnun og framkvæmd raimsókna til muna meira en gengur og gerist í OECD-lönd- um,“ segh' í fréttabréf- inu. „Það ei; einnig óvenjulegt hér á landi, að fyrirtæki fjármagni stærri hluta r&þ-starf- seminnar en þau sjálf framkvæma, þ.e. þau fela stofnunum að fram- kvæma ramisókuir eða fjármagna að hluta sam- vimiuverkefni, sem unn- in eru í stofnunum. Þetta tíðkast í rikai i mæli hér en annars staðar. Astæð- an er sú, að fæst fyrir- tæki liafa bolmagn til þess að koína upp og reka cigin aðstöðu til r&þ-starfseminnar. A því er þó að verða nokkur breyting.“ Þýskir sturtuklefar og babkarshurbir á lækkuðu 1rerði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.