Morgunblaðið - 07.03.1992, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 07.03.1992, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARZ 1992 UTGEFENDUR STEFNAI BANVÆNAR ÓGÖNGUR - SEGIR ÞORGEIR ÞORGEIRSSON RITHÖFUNDUR SEM HEFUR SAGT SIG ÚR LÖGUM VIÐ BÓKA- MARKAÐINN OG ÞRÓAÐ ÖÐRUVÍSI ÚTGÁFU „Ég HRÖKKLAÐIST eiginlega út í þetta útgáfuform. Ég var orð- inn svolítið hvekktur á gnýnum og djöfulganginum í útgáfunni, en þó aðallega á því hvað mér fannst auglýsingastofurnar vera orðnar ráðríkar og hvað þær seildust langt.“ Svona lýsir Þorgeir Þorgeirson, einn virtasti rithöfundur og þýðandi Islendinga um árabil, aðdragandanum að því að hann sagði sig úr lögum við bóka- markaðinn og stofnaði sitt eigið forlag, Leshús. Morgunblaðið/Einar Falur „Þeir útgefendur sem maður hafði samband við sögðu: Þorgeir minn, þú skrifar ágætlega og við vitum að þú ert einn af viðurkenndustu höfundum þessarar þjóðar, en þú ert ekki gjafavara, þú ert dæmdur glæpamaður og það er ekki markaðsíega gott.“ Hávaða- og íburðarlaust gefur Leshús út bækur eftir út- gefandann, þýddar eða frumsamdar, og verða les- endur nánast að ryðjast inn á heim- ili Þorgeirs til að verða sér úti um bækurnar. Frá 1988 hefur Leshús gefið út sex bækur með þessum hætti, þar á meðal ljóða- og rit- gerðasöfn eftir Þorgeir og þýðingu hans á Tataraþulum Federicos García Lorca. Innan tíðar eru svo væntanlegar þýðingar á verkum þriggja merkra höfunda, m.a. Bo- humils Hrabals. Þreyttur á gnýnum „Seinasta bók sem ég gaf út hjá mínu gamla útgáfufyrirtæki, Ið- unni, sem ég hafði átt afskaplega gott og farsælt samstarf með í áratug, var ævisaga Péturs Kid- sons og þá fann ég að ég fékk engu að ráða um hvað skrifað var aftan á bókina. Ég fékk engu að ráða um útlit bókarinnar. Að vísu hafði ég fengið að ráða flestu um hvað stóð í henni, en mér fannst stutt í að auglýsingastofan færi að skipta sér af því líka. Ég hafði allan tímann á tilfinningunni að verið væri að kynna eitthvað sem ekki var fyrir hendi, einhverja bók sem ég hafði aldrei skrifað. Svo komst ég að því að þessi bók seld- ist meira en nokkur önnur bók eftir mig áður. Salan var um 500 eintökum meiri á fyrsta ári en ég átti að venjast. Ég var hissa á þessu, því ég átti nokkuð stöðugan kaupendahóp og hef alltaf haft gott samband við hann. En svo fer ég að mæta fólki á götu sem seg- ir: Þorgeir, nú er ég hættur að kaupa þig, nú ert þú farinn út á einhveijar brautir sem mér líkar ekki. Meðan ég átti eitthvað af höfundareintökum til áð gefa gat ég sannfært stöku mann um að reyna að lesa bókina. Og þá komu menn til mín aftur og sögðu: Jújú, þetta er alveg rétt, þetta er þinn gamli texti, þetta er þinn gamli stíll. En þama lenti ég í því að auglýsingastofan og forleggjarinn í sameiningu voru að búa til af mér einhveija ímynd. Tilgangurinn var sala. Svona ímyndasmíð hefur ágerst mikið síðan.“ Banvæn sala „Sala af þessari tegund getur orðið manni banvæn. Þetta var sú fyrsta af mínum bókum sem sást eitthvað að ráði á fombókasölum. Fram að því hafði ég átt mina föstu lesendur sem keyptu bæk- umar mínar og áttu þær. Þessa lesendur hafði ég gaman af að hitta og ræða við þá um bækum- ar. Þeir kenndu mér margt, enda eru samskipti höfunda og lesenda afskaplega mikilvæg, bæði fyrir lesendur og höfundinn. Ég held að þessi auglýsingamennska, þessi gnýr allur, komi þama að vissu leyti upp á milli og ijúfí náttúrlegt samband höfundar og lesenda. Ef það er rétt tilfínning hjá mér er salan af hinu vonda. Og ég sé ekki betur en útgefendur stefni nú í banvænar ógöngur, þeir nota auglýsingamar eins og „dópistar“ nota eiturlyf, hömlulaust — þeir treysta orðið á að einhver af þeirra bókum nái metsölu út á auglýsing- una. En ég held að þetta sé að hefna sín og mér er sagt að í sum- um tilfellum sé allt að 90% seldra bóka skilað aftur. Þessar met- sölubækur eru náttúrlega aðallega keyptar til gjafa og maður á kannski fimm vini sem vita hvaða smekk maður hefur og fær þá allt upp í fímm eintök af sömu bókinni í jólagjöf. Útgefendur reyna að veija sig með því að láta höfund- ana skrifa á sem flestar bækur svo ekki sé hægt að skila þeim aftur; ég þekki fólk sem á allt upp í fimm eintök af áritaðri bók sem það hefur ekki getað skilað. Þessi áhersla á sölumennskuna hefur orðið til þess að það eru gefnir út alltof margir titlar, en sölumagnið er það sama í eintakafjölda frá ári til árs. Og núna eru útgefendur að grafa sér gröf með þessum risa útsölumarkaði strax eftir jólabóka- flóðið þar sem maður getur keypt bækumar á típrósent af verði. Maður hittir meira og meira af fólki sem segir: Ég ætla að hætta að kaupa bækur á jólamarkaðnum. Og maður hittir meira og meira af fólki sem segir: Ég fer á bóka- markaðinn og kaupi bækumar fyr- ir næstu jól. Með þessu era útgef- endur líka að gera bókina að rusli. Bókin hefur verið stolt íslendinga, hún hefur verið höfð í hilium uppi á vegg og verið til vitnis um að þar byggi greint og lesandi fólk, en innan skamms mun þeim takast með þessu að gera bókina að hálf- gerðu sorpi og þá hættir hún að vera veggskraut; maður fer ekki út í öskutunnu til að sækja sér veggskraut, nema maður sé mjög frumlegur og það byggir enginn markað á slíkum einstaklingum." Vonlaus metnaður „Maður á sér kollega sem blómstra í þessu kerfi, þeim líður vel, og núorðið eru til rithöfundar sem hafa allt að því bærilega af- komu. En ég er hræddur um sjálf- ar bókmenntimar í þessu, vegna þess að ég sé hinn takmarkaða og vonlausa metnað nútímabók- menntanna á íslandi að hluta til sem afleiðingu af þessu markaðs- kerfí. Mér virðist metnaður ungu höfundanna vera tvennt: Að segja helst ekki neitt, en þó helst með þeim hætti að það veki athygli. Mér sýnist skoðanahræðsla og ótti við að meiða einhvem vera orðið inntakið. Þannig gæti peningavelta bóksölunnar hæglega orðið að hug- myndalegri kreppu bókmenntanna, sem eru ekki í eðli sínu vara, bók- menntir era í eðli sínu ákveðinn hugsunarháttur. Ég er ekki að segja að það sé slæmt út af fyrir Ég fékk engu aó ráóa um útlit bókar- innar. Aó vísu hafói ég fengió aó ráóa flestu um hvaó stóó í henni, en mér fannst stutt í aó aug- lýsingastofan færi aó skipta sér af því líka. Ég hafói allan tímann á tilfinning- unni að verið væri aó kynna eitthvaó sem ekki var fyrir hendi, einhverja bók sem ég hafói aldrei skrifaó. sig að bókmenntir séu markaðs- settar með krafti og faglegum hætti, en þetta hefur gengið háska- lega langt og ég er orðinn hrædd- ur um að ef ekki verði til einhveij- ir aðrir möguleikar í útgáfu geti svo farið að bókmenntir lendi í veralegum þrengingum." Bóksalar áhugalausir „Með áranum hef ég farið að taka þessa útgáfu mína meira sem alvarlega tilraun til að skapa nýtt útgáfuform. Ég ákvað að taka svona hálfan áratug í að tapa pen- ingum og safna skuldum til þess að athuga hvemig allt öðruvísi hugsuð útgáfa gengi. Hún er ekki stunduð í hagnaðarskyni, það er að segja, það verður aldrei hagnað- ur af henni. Ég vinn starf útgef- andans launalaust í von um að fá síðar vænni sneið höfundarins af kökunni. Ég held öllum kostnaði í lágmarki, neita mér algjörlega um auglýsingar og allan yfirbygging- arkostnað, hef útlit bókanna ein- falt þannig að prentunarkostnaður verði í lágmarki. Ég prenta aðeins 350 eintök í einu og svo prenta ég aftur, því það er ekkert miklu dýrara að prenta svona lítið í einu, og á móti sparar maður sér lager- kostnað. Ég hef kannski verið svo- lítið öfgafullur í því að láta bæk- umar ekki líta gimilega út, það getur vel verið að ég fari að setja tvo liti á forsíðuna. Satt að segja hafði ég vonast til að vera kominn í jafnvægi eftir svona þijú ár, en það hafa verið á þessum vegi ljón sem égekki reikn- aði með. Eg hélt til dæmis að ég væri orðinn það kunnuglegt nafn eftir fímmtíu titla af framsömdum og þýddum bókum að bóksalamir mundu taka þessar bækur til sölu. Ég skrifaði í fyrra þessum 108 bóksölum á íslandi, enginn þeirra hafði áhuga á að selja mínar bæk- ur. Athyglisverðast er þó að enginn þeirra hafði áhuga á að kaupa sér eintak á góðum kjöram til að lesa sjálfur. Þetta segir mér að bóksali í þeirri gömlu merkingu sem ég er alinn upp við er ekki lengur til. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að bókabúðir nú til dags era bara afhendingarstaðir fyrir það sem sjónvarpið er raunverulega búið að selja. Þetta voru erfiðleikar sem ég hafði ekki reiknað með. Leshús auglýsir hvorki í sjón- varpi né blöðum. Fyrir vikið getur orðið torsótt að fá bækumar kynntar. Fyrsta Leshúsbókin var þrívegis send öllum bókmennta- gagnrýnendum Qölmiðla en enginn þeirra skrifaði staf um hana. Heild- arútgáfa af ljóðum mínum (70 kvæði) hlaut sömu örlög. Enginn skrifaði. Samt er mesta furða hversu margir virðast frétta af útkomu Leshúsbókanna. Og þær bækur sem enga umfjöllun fá era raunar betur staddar en hinar sem fá umfjöllun hvanngrænna eilífðar- stúderita sem halda að Pjölnis- mannastafsetning sé subbuskapur í prófarkalestri og gá ekki einu sinni að því hvort einhver heildar- hugsun leynist í bók sem er ein- föld að umbúnaði. Undarlegt ann- ars að bók skuli þurfa að líta út eins og konfektkassi til að þetta fólk sjái eitthvað í textanum og

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.