Morgunblaðið - 21.03.1992, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MENNING
LISTIR
LAUGARDAGUR 21. MARZ 1992 BLAÐ
ISLANDSKLUKKAN
TEXTI: SVERRIR PÁLL
MYNDIR: RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON
Það er ys og þys í Samkomu-
húsinu á Akureyri. Ekki út af
engu, öðru nær. Nú nálgast óðum
fruinsýningu, tímamótasýningu,
í tilefni 75 ára afmælis Leikfé-
lags Akureyrar. Og ekki ráðist á
garðinn þar
sem hann er.
lægstur í ís-
lenskum leik-
bókmenntum.
íslandsklukkan
eftir nóbels-
skáldið Halldór
Laxness. Að
þessu sinni er
Islandsklukkan í nýrri leikgerð
Sunnu. Borg, sem jafnframt er
leikstjóri. Sigurjón Jóhannsson
hefur gert leikmynd og teiknað
búninga, Jón Hlöðver Askelsson
hefur- samið tónlist fyrir þessa
sýningu og Ingvar Björnsson
skipulagt ljósanotkun alla. Is-
landsklukkan hefur áður verið á
sviði Samkomuhússins á Akur-
eyri, en hún var sýnd þar vetur-
inn 1959-60.
Frumsýning
verður í Sam-
komuhúsinu á
Akureyri 27.
mars. Afmælis-
dagur Leik-
félagsins er 19.
apríl, sem er
páskadagur nú,
og því verður sérstök hátíðar-
og afmælissýning 25. apríl, en
tveim dögum fyrr, 23. apríl, verð-
ur höfundurinn, Halldór Lax-
ness, níræður.
AFMiELISSÝNMG
LEIKFÉLA6S
AKUREYRAR
Morgunblaöið/Rúnar Þúr
Þráinn Karlsson og Sigurður Hallmarsson í íslandsklukkunni
Sunna Borg er höfundur þeirrar
leikgerðar íslandsklukkunnar sem
nú verður sýnd. Hún sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið styðjast í
stórum dráttum við eldri leikgerðir
en gera þó nokkrar breytingar á.
Til dæmis felldi hún brott nokkuð
af þeim alþýðuþáttum sem einkum
gæfu mynd af þjóðfélaginu á 17.
og 18. öld. „Mér hefur alltaf fund-
ist þessi atriði njóta sín ákaflega
vel í sögunni sjálfri, en mér hefur
fundist þau trufla framrás leikrits-
ins þannig að áhorfandinn detti
úr sambandi við atburðarásina.
Með þessu fínnst mér að mér tak-
ist að leggja megináherslu á ástar-
samband Arnæusar og Snæfríðar,
auðvitað með Jón Hreggviðsson
sem örlagavef í því öllu saman.
Auk þess sem ég hef stuðst við
fyrri leikgerðir hef ég ekki síst
unnið .þessa gerð með hliðsjón af
skáldsögunni sjálfri, tekið inn
ýmislegt sem sleppt var í fyrri leik-
gerðum en mér finnst nauðsynlegt
að hafa með til að skýra nánar
samband Snæfríðar og Árna.
íslandsklukkan getur aldrei orð-
ið annað en löng leiksýning, þessi
perla er svo stór. Á þessari stund
veit ég hreinlega ekki hvað sýning-
in tekur langan tíma, þessa dagana
erum við að setja saman leikinn
og leikmyndina og bæta þar við
ljósunum og tónlistinni. Þetta er
bæði flókið og viðamikið en miðast
þó við að áhorfandinn haldi at-
hygli allan tírnann."
Sunna sagði að í þessari leik-
gerð væru 26 hlutverk og með þau
færu 18 leikarar, svo ýmsir þyrftu
að bregða sér í fleiri en eitt gervi.
Sviðsmyndin væri mikil, gerð úr
átta fjögurra metra háum flekum
sem rynnu á hjólum þannig að á
andartaki breyttist sviðið úr hömr-
um Almannagjár í bókasafn Am-
æusar og allt eftir því. „Þetta er
bókstaflega eins og galdur. í sýn-
ingunni eru alls 20 skiptingar, við
höfum ekkert hringsvið hér og
ekkert hliðarsvið og þrengslin eru
alltaf jafnmikil i húsinu hjá okkur.
Það varð okkur til happs að við
fengum að komast inn í húsnæði
nýju slökkvistöðvarinnar til að
setja sviðsmyndina saman og mála
hana og skreyta. Það hefði ekki
verið hægt að gera það í leikhús-
inu.“ Búninga, sem eru viðamiklir,
hefur Freygerður Magnúsdóttir
gert eftir teikningum Siguijóns