Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1992
Námsferðir lækna
nauðsynlegar
eftir Svein
Magnússon
Af og til bregður fyrir í fjölmiðlum
umfjöllun um námsferðir lækna.
Hefur ýmsum tekist að gera ferðir
þessar tortryggilegar þegar svo
hentar og talað um þær sem sóun
á naumu fé skattborgara. Nýlega
hafa námsferðir komið til umræðu
á Alþingi, stór orð fallið og háar
tölur nefndar.
Reglur þær, sem um námsferðir
þessar gilda, eru samkvæmt samn-
ingum Iækna við atvinnuveitendur
sína, t.d. Reykjavíkurborg, en þó
aðaliega fjármálaráðherra. Kjara-
samningar þessir eru öilum aðgengi-
legir. í samningum sjúkrahúslækna,
sem vísað er til í samningum heilsu-
gæslulækna, segir orðrétt:
Námsferðir. Sérfræðingar eiga
rétt á að fá greiddan kostnað, þ.m.t.
eðlileg námskeiðsgjöld, við náms-
ferðir til útlanda í 15 almanaksdaga
árlega eftir nánari ákvörðun vinnu-
veitenda.
Ferðir þessar eru ýmist á þing,
ráðstefnur eða til að skoða heilbrigð-
isstofnanir. Oft fara læknar á sinn
gamla námsstað, þar sem þeir kynna
sér nýjungar í sérgrein sinni.
Hvernig stendur á þessum náms-
ferðum? Þeim sem til Iæknanáms
þekkja er kunnugt, að flestir læknar
hafa um áratuga skeið sótt fram-
haldsmenntun, þ.e. sérfræðimennt-
un sína, til annarra landa. Frá 1911
hefur Háskóli Islands veitt læknum
grunnmenntun, sem lýkur með emb-
ættisprófi, en að lokinni starfsþjálf-
un, svokölluðu kandidatsári, halda
flestir læknar utan til sérnáms, sum-
ir taka hluta þess hérlendis. Fá-
menni þjóðarinnar, litlir rannsóknar-
og sérnámsmöguleikar gera dvöl
erlendis nauðsynlega.
Nýleg könnun á högum íslenskra
iækna sýnir, að 75-80% sumra ár-
ganga Iækna dyelja erlendis við nám
hveiju sinni. Islenskir Iæknar eru
nú um 1.200, þar ef eru um 375
erlendis, flestir við nám.
Þessi nauðsynlega sérnámsdvöl
hefur verið íslenskum skattgreiðend-
um algjörlega að kostnaðarlausu.
Ekkert annað vestrænt ríki þarf að
leita á þennan máta á náðir annarra
ríkja til að sérmennta lækna sína.
Islendingar njóta ekki einungis
þess, að fá sérnám lækna að kostn-
aðarlausu, þeir njóta einnig þeirra
sambanda og velvildar, sem þessi
dvöl erlendis skapar. Hún gefur
nauðsynleg færi á að ráðgast fyrir-
varalaust við erlendar stofnanir,
kynnast á fljótlegan hátt nýjungum
og jafnvel senda sjúklinga utan til
lækninga. Leitun ráða símleiðis við
erlenda sérfræðinga er algeng. Þessi
sambönd hafa einnig auðveldað
Sveinn Magnússon
„Námsdvöl íslenskra
lækna erlendis er ein
aðalforsendaþess, að
hér á landi er heilbrigð-
isþjónusta af hæsta
gæðaflokki.“
komu sérfræðinga frá öðrum löndum
hingað að okkar ósk til að ráðleggja
eða hjálpa til við erfiðar greiningar
eða lækningar. Þessa hafa fjölmarg-
ir íslendingar notið, bæði ungir sem
gamlir.
Námsdvöl íslenskra lækna erlend-
is er ein aðalforsenda þess, að hér
á landi er heilbrigðisþjónusta af
hæsta gæðaflokki. . j
Námi lækna lýkur ekki með dýrt
seldu leyfi til að mega kalla sig sér-
fræðing. Stöðugt viðhaldsnám er |
nauðsynlegt. Segir sig sjálft, að það ’
nám verður einnig að sækja til út-
landa. Þennan sjálfsagða skilning j
hafa læknar og atvinnuveitendur '
þeirra haft allt frá því fyrst var sam-
ið um framkvæmd námsferða 1970.
Að öðrum kosti væri þjónusta ís-
lenskra heilbrigðisstofnana önnur og
verri en hún er í dag.
Námsferðir lækna eru nauðsyn-
legar. Stéttir sem verða að sækja
sérnám sitt til annarra landa, verða
sömuleiðis að viðhalda því og bæta
við það nám erlendis. Þetta á ekki
einungis við um lækna, heldur einn-
ig um ljölda opinberra starfsmanna,
sem og starfsmanna einkafyrir-
tækja. Oðru vísi verða gæði þjónustu
þessara stofnana og fyrirtækja ekki
fryggð.
Höfundur er varaformnður
Læknafélags Islands.
OPIUUN RABHUSS
Vegna ílutnings í
Ráðhus Reykjavíkur
Regluleg starfsemi í Ráðhúsinu
hefst þann 15. apríl og verða
borgarskrifstofur framvegis opnar
alla virka daga frá kl. 8:20 til 16:15,
nema gjaldkeradeild til 16:00
3 0
Þaö gæti verið gott
aö geyma þessa auglýsingu
t.d. í símaskránni.
veröa borgarskrifstofur Austurstræti 16
og Pósthússtræti 9 lokaðar mánudaginn
13. apríl og þriöjudaginn 14. apríl.
Báöa dagana verður símaþjónusta viö allar
deildir opin sem hér segir:
Mánudag 13. apríl frá kl. 8:20 til 16:15
Þriðjudag 14. apríl frá kl. 8:20 til 12:00^
Nýtt símanúmer á borgarskrifstofum,
Ráöhúsi Reykjavíkur er:
63 20 00
Beint innval eftir deildum:
Borgarbókhald 632130
Borgargjaldkeri/lnnheimtudeild 632060
Endurskoðunardeild 632100
Fjármála- og hagsýsludeild 632080
Skrifstofa borgarstjóra 632020
Starfsmannahald/Launadeild • 632111
Upplýsingaþjónusta 632005
RáMÉíið vepður opið
til sýnis eftirtalda daga um páskana,
ásamt sýningu um byggingarsögu hússins.
Skírdag, 16. apríl frá kl. 12:00 til 18:00
Laugardag, 18. apríl frá kl. 12:00 til 18:00
Mánudag, 20. apríl frá kl. 12:00 til 18:00
SHstofa,
borganstjona
Tónleikar táknmálskórs-
ins og guðsþjónustan
TÁKNMÁLSKÓR Kirkju heyrn-
arlausra hélt nýlega tónleika á
listahátíð fatlaðra í Osaka, Jap-
an.
Listahátíðin, „Very Special Art
Festival — Japan“ var haldin af
Öryrkjabandalagi Japans með
stuðningi forsætis-, heilbrigðis- og
menntamálaráðuneytis Japans og
var þetta f fyrsta skipti sem boðið
var til slíkrar alþjóðlegrar listahá-
tíðar meðal fatlaðra. I þetta skipti
komu alls 17 þjóðir.
Ferð táknmálskórsins til Japans
var styrkt af Sasakawa-sjóðnum
og íslenska ríkinu.
Þar sem táknmálskórinn er
kirkjukór, söng hann aðallega ís-
lenska sálma á táknmáli.
Og nú-vill táknmálskórinn halda
hluta af tónleikunum sunnudaginn
19. apríl í Hallgrímskirkju á undan
páskamessu Kirkju heyrnarlausra
og hefjast tónleikarnir kl. 13.30.
Síðan byrjar messan sjálf kl.
14.00, þar sem fv. biskup Islands,
herra Pétur Sigurgeirsson, predikar
og prestur fyrir heyrnarlausa þjónar
fyrir altari. Táknmálskórinn syngur
undir stjórn Júlíu Guðnýjar Hreins-
dóttur og organisti er Hörður
Áskelsson.
Eftir messuna verður samveru-
stund með góðgæti í safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Miyako Þórðarson,
prestur fyrir heyrnarlausa.
Afmælisfundur AA
á f östudaginn langa
AFMÆLISFUNDUR AA-samtakanna verður haldinn að venju, föstu-
daginn langa 17. apríl 1992 í Háskólabíó kl. 21.00 og eru allir vel-
komnir. Þar tala nokkrir AA félagar og gestur frá Al-anon-samtökun-
um, sem eru samtök aðstandenda
að fundi loknum.
AA-samtökin á íslandi voru stofn-
uð föstudaginn langa 1954, eða fyr-
ir 38 árum. Síðan hefur þessi dagar
verið hátíðis- og afmælisdagur sam-
takanna, alveg sama hvaða mánað-
ardag hann ber uppá.
í dag eru starfandi um 198 deild-
ir um land allt, þar af í Reykjavík
um 104 deildir, erlendis eru 5 ís-
lenskumælandi deildir. Hver þessara
deilda heldur að minnsta kosti einn
fund í viku og er fundarsókn allt frá
alkóh.ólista. Kaffiveitingar verða
5-10 manns og uppí 150 manns á
fundi.
Hér í Reykjavík eru margir fund-
ir á dag og byija fyrstu fundirnir
kl. 11 fyrir hádegi og þeir síðustu
um miðnætti. Upplýsingar um l'undi
og í'undarstaði er hægt að fá á skrif-
stofu alla virka daga milli kl. 13-17
og er síminn 91-12010. Einnig hafa
AA-samtökin símaþjónustu alla
daga milli kl. 17-20. Síminn er
91-16373.
(llr fréttatilkynningu)
f