Morgunblaðið - 14.04.1992, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
Kj arasamningar
ASÍ o g VSÍ
Bifreiðakostnaður heimila
eftirBjörn Pétursson
Fram hefur komið furðuleg
skýrsla með ofangreindu heiti. Að
vísu finnst orðið „drög“ á titilsíðu,
en engu að síður hefur komið sú
frétt í fjölmiðlum að um ítarlega
skýrslu sé að ræða. Skýrsla þessi
er fuil af rangfærslum og öfugmæl-
um.
I inngangi er þó skýrt tekið fram
að þessi samantekt sé niðurstaða
nefndar sem skipuð var til að meta
horfur um verðlagsþróun varðandi
rekstur einkabifreiða og þá þætti
sem mest áhrif hafí á bifreiðakostn-
að heimila. Nefndinni var falið að
ræða þau atriði sem mestu máli
skipta um verðmyndun á þessu sviði
„einkum uppbyggingu og kostnað
við Bifreiðaskoðun íslands", en yfir
70% af lesmáli skýrslunnar ijallar
eingöngu um málefni BÍ.
Efnisval
Þrátt fyrir að birt sé tafla sem
sýnir vægi bifreiðakostnaðar í
framfærsluvísitölu fjallar skýrslan
nær eingöngu um þátt sem er um
1% af kostnaði bifreiða eða innan
við 0,2% af heildarútgjöldum vísi-
tölufjölskyldunnar. Engin ástæða
er talin til að fjalla um yfir 15 millj-
arða króna tekjur ríkisins af bif-
ÓKEYPIS
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
FRÁ KLUKKAN
11:30 TIL 23:00
ALLA DAGA
BRA6AGATA 38A
reiðaeigendum, ef frá er talið hrós
um að ríkið muni ekki hækka
ákveðin gjöld nema með um
0,0-0,06% áhrif á vísitölu. í 4. kafla
skýrslunnar sem er um 11% af les-
málinu, er fjallað um ýmsa aðra
liði, opinber gjöld og skatta. Megn-
ið af því lesmáli er fyrrnefnt hrós
um ríkisstjórnina og umfjöllun um
verðlagseftirlit, en þar er bent á
að um gæti verið að ræða samræm-
ingu á verðskrá þeirra er veita þjón-
ustu við hjólbarða á höfuðborgar-
svæðinu. Allt annað er bein umfjöll-
un um BÍ, og samandregnar niður-
stöður eru það eingöngu.
Rangfærslur
Dómsmálaráðuneytið og Alþingi
fjölluðu um stofnun Bifreiðaskoð-
unar íslands hf. Þar var samþukkt
að heimila hlutafélagi öryggisskoð-
un bifreiða, því markaðar tekjur og
sett skilyrði til starfsins. Þeirri hug-
mynd að færa öryggisskoðunina
alfarið inn á bifreiðaverkstæði var
hafnað og talin ástæða að hún
væri framkvæmd af óhlutdrægum
aðila. Settar voru skorður við ráð-
stöfun hagnaðar BÍ, arður mátti
vera allt að 10% en annað skyldi
renna til uppbyggingar skoðunar-
stöðva sem staðsettar skyldu í öllum
kjördæmum, eða varið til eflingar
umferðaröryggis. Tekjur voru
ákveðnar ríflegar enda við stórt
mál á að takast eftir áratuga van-
rækslu af hálfu hins opinbera. Af
hveiju gerðu ekki ASÍ og VSÍ at-
hugasemdir þá, en augsýnilegt var
að hagnaður yrði verulegur í upp-
hafi meðan fjármagnskostnaður af
uppbyggingu skilaði sér ekki í
reksturinn?
Á bls. 4 í skýrslunni er fullyrt
að fyrirtækið (BÍ) hafi fengið einok-
un til aldamóta „án“ þess að sett
væri virkt eftirlit með verðlagningu
þess. Þetta þykir ekki góð latína,
en latínuhestunum hefur yfirsést
að í samningi um sþarfið er ákvæði
um að gjaldskrá BÍ varðandi skoð-
unargjöld séu háð samþykki dóms-
málaráðherra og hefðu þeir kynnt
sér umferðalrögin, þá eru þar enn
afdráttarlausari ákvæði um gjald-
skrármál.
1992
Á sömu síðu er einnig sagt, að
BÍ hafi yfirtekið „blómlegt bú“ bif-
reiðaeftirlitsins. Málvenja er „að
setjast í blómlegt bú“, og þýðir að
taka við verulegum eignum. BÍ var
gert að kaupa eigur Bifreiðaeftir-
litsins þegar hún var látin taka við
starfseminni ári fyrr en ætlað var.
Þar fyrir utan skyldi enginn ætla
að ríkisstofnun, sem búin var að
vera í fjársvelti í áratugi, mundi
státa af blómlegu búi. Misvitrir
stjórnmálamenn ráðstöfuðu launa-
tekjum almennings í nafni byggða-
stefnu, stendur í skýrslunm og fjár-
festingaróðir stjórnendur BÍ ákváðu
að nýta ekki allan samningstímann
til að standa við ákvæði um upp-
byggingu skoðunarstöðva. Nefnd-
armenn virðast sammála um að
landsbyggðinni hæfði næsta ára-
tuginn að búa við gamla. skoðunar-
kerfið, þar sem skoðunarmenn
fengu vettlinga, vasaljós og hand-
lyftu til að vinna með undir berum
himni í hvaða veðri sem var, í stað
þess að fá þá gæðaskoðun sem
skýrslan þó staðfestir að nú sé
framkvæmd.
Að skuldir þessa unga fyrirtækis
skuli eftir tveggja ára rekstur að-
eins nema helming af eignum þykir
glapræði. Bifreiðaeigendur hafa
haft nokkur óþægindi undanfarin
ár af þjónustufyrirtækjum sem áttu
ekki eignir fyrir skuldum, og þó
góðar skuldir þykir sumum lífvæn-
legar, þá getur það nú komið í bak-
ið á sumum.
Aðalkrafan er afnám einokunar
og talið æskilegt að verkstæðum
og bifreiðaumboðum verði heimilað
að framkvæma öryggisskoðun bif-
reiða. Til að bytja með vet'ði það
eingöngu bundið nýrri bílum, enda
má búast við að það sé hagkvæm-
ara.
EB-reglur
Umfjöllun um EB-reglur er nokk-
uð furðuleg. I vissum tilfellum á
að skoða íslenskar aðstæður en
öði'um ekki. EB-reglur gera ráð
fyrir að lögbundin öryggisskoðun
fari fram í öllum löndum sem teng-
ist EB, að lágmarkstíðni annað
hvert ár fyrir einkabíla. Hér er því
verið að reyna að skylda lönd, sem
ekki hafa lögbundna öryggisskoð-
Björn Pétursson
„Mér finnst að hér sé
fjallað um mikilvægan
hlekk í öryggi í umferð
á íslandi á furðulegan
hátt.“
un, til að taka hana upp. En svo
væri kannski ástæða til að bera
saman vegakerfin í löndunum og
hvernig þau fara með bílana.
Stærsti skattur á íslenska bifreiða-
eigendur eru vegirnir, segir Ólafur
Þórðarson, alþingismaður, á spjöld-
um Alþingistíðinda, en.það minnist
skýrslan hvergi á, hvað þá um áhrif
saltburðar á götur eða þá staðreynd
að „Iífaldur" bifreiða er skemmri á
Islandi en víðast annars staðar.
Þegar kemur, að reglum EB um
að öryggisskoðun og viðgerðir bif-
reiða megi ekki inna af hendi af
sama aðila, þá er vísað til þess að
það gildi nú bara hjá milljónaþjóð-
um, og sérstök skoðundrfyrirtæki
muni ekki hafa rekstarlegan grund-
völl nema í Reykjavík og Akureyri.
Og svo er sagt að leita verði ann-
arra leiða til að tiyggja_ óhlut-
drægni við bifreiðaskoðun! í niður-
stöðum er lagt til að skipuð verði
nefnd hagsmunaaðila til að yfirfæra
og aðlaga umræddar EB-reglur.
Snobb-númer
Talsverðu rými er varið í tillögur
um sölu svonefndra snobb-númera,
dýru verði. Númerin gætu borið
upphafsstafi, nöfn eða heiti að vilja
eigenda. Ekki get ég skilið hvað
erindi þetta á inn í umræðu um
kjarasamninga, nema ef néfndar-
menn séu að sýna eitthvert Hróa-
hattar eðli um tilfærslu frá þeim
ríku til láglaunastéttanna.
Einföld tölvuvinnsla
í umræðum um eigendaskipti og
nýskráningar er talað um einfalda
tölvuþjónustu, og virðist sem nefnd-
armenn staðnæmist við fingur inn-
sláttarfólksins. Halda þessir menn
að það þurfi bara einfaldar PC-tölv-
ur til að halda utan um bifreiðaskrá
með yfir 100 þúsund bifreiðum,
með tilheyrandi upplýsingum um
gerð, eiganda, tryggingafélaga o.fl.
Þótt gerðarskoðun sé talin einföld
skoðun á stimplun pappíra, en fok-
dýr, þá er fjargviðrast út af því að
bifreiðasalar beri mikinn kostnað
af því vafstri sem þessu fylgi. Er
ekki rétt að rilja þá upp vafstrið
sem almennir bíleigendur stóðu í
hjá Bifreiðaeftirlitinu sáluga þegar
þeir umskráðu bíla, en þá fóru í það
heilu eða hálfu dagarnir, oftast í
launalausu fríi aðila, og bera það
saman við fyrirkomulagið í dag.
Varðandi tíðni eigendaskipta má
fullyrða, að það er ekki allur al-
menningur sem stendur í sífelldu
bílabraski, síst láglaunafólkið.
Trúverðug skýrsla?
Miðað við þær rangfærslur sem
fram koma í þessari skýrsTu og
hreinar villur (bls. 7 og 9) leyfi ég
mér að efast um trúverðugheit
þeirrar töflu sem birtist, í raun for-
sendulaust, í lok skýrslunnar. Að-
eins eitt vil ég þó nefna; er líklegt
að bifreiðaverkstæðum nægði að
taka sama verð og BÍ fyrir öryggis-
skoðun, að það væri talið nægilega
hagkvæmt?
Góð latína?
Ég get því ekki skilið af hveiju
þessi skýrsla ber yfirskriftina
„Kjarasamningar ASI, og VSI
1992“. Nær væri að halda-að betur
hæfði nafnið „Undanfari frumvarps
um afnám einokunar BI á öryggis-
skoðun bifreiða, æskilegar leiðir til
aðlögunar EB-reglna á íslenskum
aðstæðum". Mér finnst að hér sé
fjallað um mikilvægan hlekk í ör-
yggi í umferð á íslandi á furðulegan
hátt og svo notuð séu orð skýrslu-
höfunda, að þetta sé ekki „góð lat-
ína“.
Höfundur er stjórnarmadur í
Félagi íslenskra bifreiðaeigenda
og varkjörinn varaniaður ístjórn
BI á síðasta aðalfundi.
------» ♦ «----
Alltaf upp-
selt á Þrúg-
ur reiðinnar
SÝNING Leikfélags Reykjavík-
ur á Þrúgum reiðinnar eftir
sögu John Steinbeck hefur nú
verið sýnd í nær sex vikur fyrir
troðfullu húsi, við góðar undir-
tektir.
Mikil aðsókn hefur verið að aug-
lýstum sýningum og er nú svo
komið að uppselt er á allar sýning-
ar í apríl og maí nema 12., 19. og
26. maí. Sala er hafin á sýningar
fram til 13. júní en gert er ráð
fyrir að sýningum Leikfélags
Reykjavíkur á þessu leikári ljúki
20. júní.
Sumardvalarheimilið Kjarnholtum Biskupstungum ■
-Ævintýraleg sumardvöl í sveit fyrir 6-12 ára börn-
7. starfsár: Reiðnámskeið, íþróttir, sveitastörf, siglingar , ferðalög, sund,
kvöldvökur ofl.
Tímabil: 31 maí-6júní 14júní-20júní 28 júní-4júlí 12júlí-18 júlí 26júlí-1 ágúst
7 júní-13 júnf 21 júní-27 júní 5 júli-11 júlí 19 júIí-25 júlí 3 ágúst-9 ágúst
Sama verð og í fyrra kr. 15.800.- Systkinaafsláttur
Innritun og upplýsingar í s-98-68808 daginn, 98-68991 kvöld og helgar
Hagststt verð d Storno farsímum
Vegna mikillar sölu á síðasta ári náðum við mjög
hagstæðum samningum við framleiðendur og getum
nú boðið Storno farsíma á hreint ótrúlega lágu verði.
Storno bílasími kr. 79-580 stgr. með vsk.
Storno burðarsími kr. 84.280 stgr. með vsk.
Burðarsíma íylgir 4 Ah rafhlaða.
PÓSTUR OG SÍMI
Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni
og á póst- og símstöðvum um land allt