Morgunblaðið - 14.04.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1992
35
Fyrirtæki
Aðalfiuidir Sambands-
fyrírtækjanna í apríllok
AÐALFUNDUR Sambands íslenskra samvinnufélaga verður haldinn
föstudaginn 5. júní nk., en félagið er venjulega nokkuð seinna á
ferðinni í þeim málum en flest önnur. Eins og kunnugt er var síð-
asta ár hið fyrsta eftir róttækar breytingar á rekstrarformi Sam-
bandsins sem lauk með stofnun sex sjálfstæðra fyrirtækja í eigu þess.
Sambandsfyrirtækin sex halda
öll aðalfundi sína í lok þessa mánað-
ar. Samskip hf. ríða á vaðið með
aðalfundi 22. apríl nk. Þessa dag-
ana er verið að undirbúa sölu hluta
af hlutafjáreign Sambandsins í
Samskipum, en breytingar sem
gerðar voru á samþykktum félags-
ins sl. haust heimila frjálsa meðferð
hlutabréfa þess. Sömu breytingar
voru gerðar á samþykktum Mikla-
garðs hf., Jötuns hf. og íslensks
skinnaiðnaðar hf., en að sögn Sig-
urðar Markússonar, stjórnarform-
anns Sambandsins, eru þessi mál
mun styttra á veg komin þar og
ólíklegt að þar verði hafin sala
hlutabréfa á þessu ári.
Jötunn hf. heldur aðalfund sinn
28 apríl nk. og aðalfundur íslenskra
sjávarafurða verður tveimur dögum
síðar eða 30. apríl. Skv. upplýsing-
um Morgunblaðsins er dagsetning
aðalfundar íslensks skinnaiðnaðar
ekki endanlega ákveðin, en stefnt
er að því að halda fundinn í síðustu
viku apríl mánaðar. Sömu sögu er
að segja af Miklagarði hf., en aðal-
fundur Goða hf. verður 27. eða 28.
þessa mánaðar.
Þjónusta
Danskt afsláttarkort
í boði hér á landi
Viðurkenning
Alfasteinn og Nói-Síríus
fengii Scanstar verðlaunin
Álfasteinn hf. í Borgarfirði Eystra og sælgætisverksmiðjan Nói-Sír-
íus fengu nýlega norrænu umbúðaverðlaunin, Scanstar, sem veitt
voin í Danmörku. Verðlaunin hlaut Nói-Síríus fyrir umbúðir úr
pappír og áþynnu utan um súkkulaði og Álfasteinn fyrir tréöskjur
fóðraðar með hálmi og með glerloki.
Hönnuður umbúðanna fyrir Álfa-
stein er Jón Þórisson, leikmynda-
teiknari hjá Leikfélagi Reykjavík-
ur. í móttöku sem haldin var til
kynningar á verðlauninum kom
fram að vegna aðstoðar frá verk-
efninu Fi-umkvæði-Framkvæmd,
sem er samstarfsverkefni Iðn-
tæknistofnunar og Iðnlánasjóðs,
varð Álfasteini kleift að vinna bet-
ur að vöruþróun og markaðssetn-
ingu sinnar framleiðslu. Umbúðirn-
ar hafi m.a. verið afrakstur þeirrar
aðstoðar en gert er ráð fyrir að
þær munu stuðla að söluaukningu
vörunnar.
Til hönnunar á umbúðum sínum
leitaði Nói-Síríus til íslensku aug-
lýsingastofunnar en Kristján Frið-
riksson og Heimir Guðmundsson
unnu þar ásamt öðrum að því
verki. Árangurinn varð umbúðir
um nýja vörulínu sem samanstend-
ur af- fjórum bragðtegundum.
Eitt íslenskt fyrirtæki hefur áður
hiotið Scanstar verðlaunin, en það
var SÓL hf. árið 1989 fyrir
drykkjavöruumbúðir.
Kísiljárnmarkaðir
Vísbendingar um bata
en óvissa framundan
ÍSLENSKUM ferðamönnum sem eru á leið til Danmerkur gefst nú
kostur á að kaupa danska afsláttarkortið Entertainment hjá helstu
ferðaskrifstofum hér á landi. Með kortinu er unnt að fá afslátt af
matarverði á rúmlega 200 veitingahúsum í Danmörku. Ef tveir gest-
ir snæða saman og framvísa kortinu fær annar matinn án endur-
gjalds. Á sama hátt geta fjórir gestir fengið 25% afslátt eða að einn
fær matinn án endurgjalds. Jafnframt er unnt að fá afslátt hjá um
600 hótelum víða um heim gegn framvísun kortsins með því að panta
gistingu fyrirfram.
SPÁDÓMAR um að efnahagsbatinn sé hafinn og stálframleiðslan sé
farin að taka við sér, eru byijaðir að sjást. Þetta kom fram í árs-
skýrslu íslenska járnblendifélagsins. Þar segir jafnframt að stjórnend-
ur fyrirtækja í kísiljárnframleiðslu séu brenndir af vonbrigðum undan-
genginna ára og trúi engu fyrr en á reyni. Samdráttur á kísiljárnmörk-
uðum kalli á að draga þurfi úr framleiðslukostnaði verksmiðjunnar.
Á sl. ári fækkaði stafsmönnum fyrirtækisins úr 193 í 182 talsins án
þess að til uppsagna fastráðins starfsfólks hafi komið.
Umboðsmaður Entertainment
hér á landi er Þorvaldur Sævar
Pálsson, starfsmaður hjá SAS í
Kaupmannahöfn. Hann hefur kom-
ist að samkomulagi við Ferðaskrif-
stofu Reykjavíkur, Samvinnuferðir
Landssýn, Ferðabæ, Alís, Norrænu
ferðaskrifstofuna, og Ferðaskrif-
stofu stúdenta um að þessir aðilar
taki að sér sölu á kortinu. Einnig
hafa Flugleiðir til athugunar að
hafa kortið á boðstólum fyrir með-
limi í velvildarklúbbi félagsins.
Að sögn Sævars er kortið upp-
runnið í Bandaríkjunum og hefur
það notið vinsælda í Danmörku á
undanförnum árum. Kvaðst hann
telja það einkar hentugt fyrir ís-
lenska ferðamenn í Danmörku þar
sem andvirði árgjaldsins fengist til
baka með afslætti í einni eða tveim-
ur ferðum á veitingahús. Auk þess
fæst einnig afsláttur á ýmsum
diskótekum, næturklúbbum,
líkamsræktarstöðvum o. fl. í Dan-
mörku.
Árgjald fyrir kortið verður um
3.900 kr. Korthafar fá sérstaka bók
með yfirliti yfir nöfn og heimilisföng
fyrirtækjanna en þar er einnig að
finna matseðla veitingastaðanna.
Tap íslenska járnblendifélagsins
var 487 milljónir króna á sl. ári sam-
anborið við 127,3 milljóna tap árið
áður, þó er eiginíjárhlutfall fyrir-
tæksins enn hátt eða 59,7%.
Fjárhagsafkoma allra kísiljárn-
framleiðenda í hinum vestræna
heimi var mjög slæm í lok árs 1990
og upphafi árs 1991, segir í árs-
skýslu íslenska járnblendifélagsins.
Verðhrun varð á mörkuðum sam-
hliða vaxandi framboði, einkum frá
Kína, fyrrverandi Sovétríkjunum,
fyrrverandi Austur-Þýskalandi,
Egj'ptalandi og Júgóslavíu.
Á aðalfundinum sagði stjórnar-
formaður félagsins, Barði Friðriks-
son, að mikilvægt væri að því tæk-
ist aftur að ná sinni fyrri stöðu.
Sagði hann að ekki væri fjarri lagi
að áætla að 15-20% af atvinnumark-
aðnum á svæðinu sunnan Skarðs-
heiðar hvíldi á þessum atvinnu-
rekstri, beint eða óbeint. Teikn væru
um breytingu en þau væri ekki
nægilega skýr enn til að kísiljárn-
framleiðendur gætu á þau treyst.
„Hins vegar er það ljóst, að iðnaður
af þessu tagi hérlendis getur því
aðeins verið lífvænlegur að hann sé
samkeppnishæfur bæði að því ev
tekur til afkasta og orkuverðs,“
sagði Barði.
SIEMENS
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Trciustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
• Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
• Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, MunaÖarhóli 25.
• Grundarfjöröur: GuÖni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
• Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
• Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
• ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
• Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Eanisbraut 1.
• Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
• Siglufjöröur: TorgiÖ hf., AÖalgötu 32.
• Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
Húsavík: Öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guömunds., Kaupvangi 1.
Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.
c co
3
gi:
O* o*
3 <Q
0:0
gS
3 9:
oS
£=r
fs +mm*
Q Q'
3 £
qS
=5=0
3
Q.