Morgunblaðið - 14.04.1992, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1992
Viðgerðardagar
hjá Bílanausti
Guðjón Jónatansson (Viðgerðarlínan Rás 2)
leiðbeinir og svarar spumingum fólks um
bílaviðgerðir, í verslun Bílanausts, mánudag,
þriðjudag og miðvikudag (13. - 15. apríl),
frákl. 16 til 18.
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Unglingarnir láta hugann reika til fortíðar í Blóminu.
1
Skrúfuloftþjöppur
•o
Q.
0)
GC
Þú ert öruggur með
Atlas Copco
FYRIRLIGGJANDI í VERSLUN OKKAR:
Loftþjöppur, lofthamrar, handverkfæri, borstál,
borkrónur, málningarsprautur, sandblásturstæki,
loftstýribúnaður, loftstrokkarog margtfleira.
Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Jlthui Copcu
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
LANDSSMIÐJAN HF.
VERSLUN: SÖLVHÖLSQÖTU 13-101 REYKJAVlK
SlMI (91) 20680 -TELEFAX (91) 19199
GRINDAVÍK
Óður til fortíðar á árshátíð
grunnskólans
Nemendur Grunnskólans í
Grindavík héldu nýlega árs-
hátíð sína og tókst hún í alla staði
vel og var þeim til sóma.
Árshátíð skólans var með nýju
formi því fjórir yngstu árgangarnir
héldu sína árshátíð í gamla íþrótta-
salnum við skólann sem gengur
undir nafninu Heilsubæli en eldri
árgangar héldu sína hátíð í félags-
heimilinu Festi. Þessi nýbreytni
mæltist vel fyrir og vakti ánægju
þeirra sem þátt tóku.
Yngri árgangarnir höfðu margt
á dagskrá en söngur var þar mjög
áberandi í tilefni árs söngsins. Að
skemmtiatriðum loknum var síðan
boðið upp á kaffi og meðlæti sem
foreldrar komu með. Eldri árgang-
arnir sýndu í Festi og vöktu atriði
þeirra mikla hrifningu. 6. bekkur J
sló rækilega í gegn með leikgerð á
plötu Gísla Rúnars Jónssonar, Stríð-
ið sem gerði syni mína fræga, og
mátti þar ^já stúlkur með greitt í
báta og íklæddar fatnaði þess tíma
auk dáta sem voru klæddir í her-
mannabúninga með viðeigandi
heiðursmerkjum þess tíma. Mikil
vinna var lögð í verkið og tókst vel
til.
Unglingabekkirnir sameinuðust
um að flytja verk sem var sett sam-
an af tveimur kennurum skólans,
Dagnýju Reynisdóttur og Örnu
Valsdóttur, í leikstjórn Stefáns
Sturlu Siguijónssonar leikara.
Verkið var nefnt Blómið og var
óður til hippaáranna. Nemendurnir
íklæddust skrautlegum fötum og
sviðið var skreytt í sterkum litum.
Hljómsveit undir stjórn Kristjáns
Kristmannssonar og skipuð nem-
endum skólans flutti lög frá þessu
tímabili og sáu leikendur um söng.
Flutningur þessi vakti mikla lukku
og var vel fagnað í leikslok. Víst
er að margir sem voru upp á sitt
besta á þessum árum upplifðu ljúf-
ar minningar þegar lögin Slappaðu
af, í bláum skugga, Easy to be
Hard úr Hárinu og fleiri lög hljóm-
uðu. Til þess að áhorfendur
gleymdu sér ekki alveg í fortíðinni
enduðu kennarar á því að dansa
hip-hop og færðu fólk til nútímans.
- FÓ
COSPER
P E N N A V
I N I R
fyrir lífstíð
Dömu- og herrapennar
í miklu úrvali.
Penni er góð gjöf.
VISA • KREDITKORT • SAMKORT ■ PÓSTKRÖFUR
SKÁKHÚSID
Laugavegi 118 við Hlemm, sími 19768.