Morgunblaðið - 14.04.1992, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1992
munmn
Hann ætlar að líkjast föður
sínum, blessaður ...?
Ef þú þarft að vita það, er
ég að grafa rafmágnsgítar-
inn minn og hátalara ...
BKÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Upp, upp
mín sál
Frá Sigfúsi B. Valdimarssyni:
„Upp, upp, mín sál og allt mitt
geð, upp mitt hjarta og rómur með.
hugur og tunga hjálpi til.
Herrans pínu ég minnast vil.
Þannig byijar Hallgrímur Péturs-
son Passíusálma sína. Ég elska
Passíusálmana og ég er þákklátur
Ríkisútvarpinu fyrir flutning þeirra.
Boðskapur þeirra er sígildur, því
hann er eingöngu byggður á kenn-
ingu Biblíunnar um pínu og dauða
Jesú Krists til frelsunar syndugum
mönnum, þeim sem við því vilja
taka. „En öllum þeim, sem tóku vð
honum, gaf hann rétt til að verða
Guðs börn, þeim, sem trúa á nafn
hans“, Jóh. 1:12. Hróp hans frá
krossinum á Golgata: „Það er full-
komnað“, Jóh. 19:30, sannar okkur
að hjálpræðisverkið var og er í dag
fullkomið, því „Jesús Kristur er í
gær og í dag hinn sami“, Hebr.
13:8. „Það er fullkomnað," svo
hrópar hann hátt. Hann, sem á
Golgata dó. Höfuð að bijósti sér
hneigir hann lágt. Hæðir hann
múgurinn þó. Beiskur var hörm-
unga bikarinn hans. Bikar, sem
tæmdur þó var. Þegar á höfðinu
þyrnanna krans. Þungan og sáran
hann bar. (Sigurbj. Sveinsson). „En
hann var særður vegna vorra synda
og kraminn vegna vorra misgjörða,
hegningin, sem vér höfðum til unn-
ið kom niður á honum“, Jesaja 53:5.
Það er vel við hæfi á föstunni,
og ætti reyndar að vera alla okkar
daga, að fylgjast vel með innihaldi
Passíusálmanna. „Krossferli að
fylgja þínum, fýsir mig Jesús kær.“
Ég vona að fleiri geri það með
mér. Vð vitum samkvæmt orðum
Jesú að hann er „vegurinn, sann-
leikurinn og lífið, og að enginn kem-
ur til föðurins nema fyrir hann“,
Jóh. 14:16. Þarna er ekki nokkur
millivegur eða hliðargötur. Guð hef-
ur opinberað elsku sína og kærleika
til mannanna að opna þeim þennan
möguieika til sannrar hamingju hér
á jörð, og eilíft líf að lokum heima
í dýrð hjá sér. „Því svo elskaði Guð
heimfnn, að hann gaf son sinn ein-
getinn, til þess að hver, sem á hann
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
SÓLSKIN OG SKUGGAR
trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft
líf, Jóh. 3:16. En í því er hið eilífa
fólgið, að þeir þekki þig, liinn eina
sanna Guð, og þann sem þú sendir,
Jesúm Krist“, Jóh. 17:3. „í þessu
er kærleikurinn: ekki að vér elskuð-
um Guð, heldur að hann elskaði oss
og sendi son sinn til að vera frið-
þæging fyrir syndir vorar... Og
vér höfum séð og vitnum, að faðir-
inn hefir sent soninn, til að vera
frelsari heimsins. Hver sem játar,
að Jesús sé Guðs sonur, í honum
er Guð stöðugur og hann í Guði“,
1 Jóh. 4:9-15.
„í Drottni ef viltu deyja. Drottni
þá lifðu hér.“ Hver og einn verður
að endurfæðast sagði Jesús við ráð-
herrann forðum. Þetta gildir enn í
dag, og það ætti fólk að athuga í
alvöru, því mikið er í húfi. Svo virð-
ist þó sem margur gjöri það ekki.
„Steini harðara er hjartað það“, sem
heyrir um Jesú pínu. Gefur sig þó
þar ekki að „ann meir gjálífi sínu“.
Það er þetta gjálífi alls konar sem
ræður mestu hjá mörgum, því mið-
ur. En „Guði séu þakkir, sem gefur
oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jes-
úm Krist“, 1 Kor 15:57. Nú berst
þetta blessaða fagnaðarerindi frá
kristinni kirkju víðar út um heiminn
en nokkru sinni fyrr. „Beinum því
sjónum vorum til Jesú, höfundar
og fullkomnara trúarinnar, til hans,
sem í stað gleði þeirrar, er hann
átti kost á, leið þolinmóðlega á
krossi, mat smán einskis, og hefur
sezt til hægri handar hástóli Guðs.
Virðið því fyrir yður þann, sem
þolað hefur slík andmæli gegn sér
af syndurum, til þess að þér þreyt-
ist ekki, lémagna á sálum yðar.“
SIGFÚS B. VALDIMARSSON,
Pólgötu 6, ísafirði.
HÖGNI HREKKVÍSI
SAGOt HrtNN ? "
Víkverji skrifar
að er mikið af skemmtilegum
myndlistarsýningum í borg-
inni um þessar mundir. Aður hefur
verið minnzt á sýningu á verkum
Finns Jónssonar í Listasafni ís-
lands, sem ástæða er til að hvetja
fólk til að sækja. En jafnframt hef-
ur Listasafnið opnað sýningu á
höggmyndum eftir Nínu Sæmunds-
son. Hún naut velgengni í Banda-
ríkjunum en ekki verður það sama
sagt um þær viðtökur, sem hún
fékk hér heima. Fyrstu sýningu
hennar eftir stríð var fálega tekið
en mesta áfall Nínu hér heima hef-
ur áreiðanlega verið, þegar haf-
meyjan í Tjörninni var sprengd í
loft upp.
Sá atburður hlýtur að hafa verið
mjög erfiður fyrir listakonuna.
Hvaða áhrif hefur það á tilfinninga-
líf listamanns, þegar verk hans hlýt-
ur slíkar móttökur? Og hvað skyldi
valda því, að ný afsteypa var ekki
gerð af myndinni og henni komið
fyrir á sama stað í Tjörninni?
Bæði Finnur Jónsson og Nína
Sæmundsson urðu að búa við mis-
jafnar undirtektir hér heima.
Hvernig erum við íslendingar sam-
an settir?! Eigum við erfitt með að
taka vel á móti íslenzkum lista-
mönnum, sem hafa hazlað sér völl
erlendis, nema þeir séu alveg áreið-
anlega orðnir heimsfrægir?!
Hvað sem þessu líður verður eng-
inn svikinn af því að skoða_ þessar
tvær sýningar í Listasafni íslands.
xxx
Sýning Jóhannesar Jóhannesson-
ar í Gallerí Borg er sérlega
skemmtileg. Þar eru fallegar og
vandaðar myndir og alveg sérstak-
lega þótti Víkverja mikið til koma
fyrstu myndarinnar til vinstri, þeg-
ar komið er inn í sýningarsalinn en
myndin er merkt nr. 1.
Þá er athyglisverð sýning ungs
listamanns, Sigurbjörns Jónssonar
í Nýhöfn í Hafnarstræti. Hann hef-
ur lokið mastersnámi í myndlist í
Parsons í New York, en sá skóli
er starfræktur þar í borg, í Los
Angeles og í París og hafa allmarg-
ir íslendingar stundað nám við skól-
ann.
Sýning Rúrí á Kjarvalsstöðum
er óvenjuleg svo að ekki sé meira
sagt. Myndverkin eru unnin úr blýi
að verulegu leyti og minnist Vík-
veiji þess ekki, að hafa áður séð
myndverk unnin úr því efni.
Myndir Heiga Gíslasonar, sem
einnig eru sýndar á Kjarvalsstöðum
eru fallegar margar hveijar, ekki
sízt þær, sem unnar eru úr bæði
málmi og gleri.
Það er mikil grózka í myndlistar-
lífi hér en engu að síður fátítt, að
svo margar skemmtilegar sýningar
séu á ferðinni á sama tíma.
xxx
að var mikið af fólki við Tjörn-
ina um helgina og á brúnni á
milli Iðnós og ráðhússins nýja. Þetta
má sjá helgi eftir helgi og er vís-
bending um, að ráðhúsið eigi eftir
að verða mikið aðdráttarafl fyrir
fólk.