Morgunblaðið - 15.04.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992
9
NÚTÍMA H ROSSARÆKT
OG BLUP-KERFIÐ
Opinn fundur verður haldinn í félagsheimili Fáks, miðvikudaginn
15. apríl kl. 20.30.
Frummælendurverða þeirdr. ÞorvaldurÁrnason kynbótafræðing-
urog Kristinn Flugason hrossaræktarráðunautur.
Stuttar framsögur og opnar umræður um þetta eldheita mál.
Fundarstjóri: Kári Arnórsson, formaður LFI.
Aðgangseyrir kr. 500.
Flestamannafélagið
Andvari
Búnaðarfélag
íslands
Eiðfaxi
Hestamannafélagið
Fákur
Hestamannafélagið
Gustur
Hestamannafélagið
Hörður
Hestamannafélagið
Sörli
Hestamenn-Reiðmenntaskóli
Nú er rétti tíminn til að
hefja reglulegan sparnað með
áskrift að spariskírteinum
FJÁRMÁL
Davíð Oddsson, forsætisráðherra:
RÍKISSTJÓRNIN MUN STARFA
í ANDA SÁTTA MILLI
LANDSBYGGÐAR OG
HÖFUÐBORGARSVÆÐIS
Framsöguræða á fjármálaráöstefnu sambandsins
Tuttugu ára fólks-
streymi úr strjálbýlinu.
Fólksstreymi úr sveitum í þéttbýli og frá
landsbyggð til höfuðborgarsvæðis hefup
ekki verið meira í annan tíma en síðast-
liðin tuttugu ár, 1971-1991. Framsóknar-
flokkurinn sat samfellt í ríkisstjórnum
þetta tímabil. „Byggðastefna", sem fylgt
var, fékk ekki rönd við reist þessari
byggðaröskun. En eru breyttar áherzlur
í byggðastefnu núverandi ríkisstjórnar?
Staksteinar staldra við það efni í dag.
Vaxtasvæði á
landsbyggð-
inni
I stefiiuyfirlýsingu rík-
isstjórnar Davíðs Odds-
sonar, „Velferð á vai-an-
legum grunni“, segir
m.a.:
„Sú byggðastefna, sem
rekin hefur verið, hefur
ekki skilað tilætluðum
árangri. Ibúar heilla
byggðarlaga hafa þurft
að sætta sig við, að af-
koma þeirra og búsetuör-
yggi sé komið undir póli-
tískum duttlungum mið-
stýringarvaldsins. Við
svo búið verður ekki
lengur unað. Undirstöðu-
atvinnuvegir þjóðarinnar
verða að búa við sann-
gjöm kjör, stöðugleika
og heilbrigð rekstrarskil-
yrði. Ríkisstjórnin mun
með almennum aðgerð-
um styðja við viðleitni til
að byggja upp iðnað og
þjónustu á vaxtasvæðum
landsbyggðarinnar og
greiða fyrir aðlögun að
breyttum atvinnuháttum
og markaðsskilyrðum.
Rikisstjómin vill í sam-
vinnu við heimamenn
beita sér fyrir uppbygg-
ingu orkufreks iðnaðar á
landsbyggðinni og hlúa
að vexti og viðgangi smá-
fyrirtækja. Efling vaxta-
svæðanna með bættum
samgöngum og aukinni
samvinnu sveitarfélaga
og fyrirtækja innan
þeirra er í senn hom-
steinn liagkvæmrar
byggðastefnu og al-
mennrar atvinnu- og
efnahagsstefnU á næstu
ámm. Ríkisstjórnin mun
fylgja eftir áætlunum
sínum um jöfnun búshit-
unarkostnaðar í landinu.
Ríkisstjórnin mun starfa
í anda sátta milli lands-
byggðar og höfuðborg-
arsvæðis."
Hver er stefna
forsætisráð-
herrans?
í ræðu sem Davið
Oddsson forsætisráð-
herra flutti á fjármála-
ráðstefnu Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga og
birt er í nýjasta hefti
Sveitarstjómarmála seg-
ir ma.:
„Hver er mín stefna í
þessum efnum [byggða-
málum]?
Hún er ekki sú, sem
haldið hefur verið fram,
að ég vilji í raun diaga
úr gildi byggðanna í
landinu og að ég vilji
draga úr stuðningi rikis-
valdsins við það, að hag-
kvæm byggðastefna
megi vera við lýði í land-
inu. Þvert á móti þá tel
ég nauðsynlegt, að meim
hugsi dæmið upp á nýjan
leik og menn vinni þann-
ig að málum, að memi
séu i raun að stuðla að
því, að byggðirnar hald-
ist, en ekki með gerviað-
ferðum, upphrópunum
og yfirlýsingum, sem
ekkert gagn gera. Eg
vil, að þegar menn horfi
til byggðamála, þá séu
menn ekki eingöngu að
blína á eina eða tvær til-
teknar stofnanir í þeim
efnum. Það sé algjörlega
nauðsynlegt, að þegar
menn marki það fjár-
magn, sem til byggðanna
á að renna — og það verð-
ur að vera mikið, ekki
minna en áður hefur ver-
ið — að þá sé þar um
samræmdar aðgerðir að
ræða. Meim horfi á málin
í heild, memi horfi á það
fjármagn, sem til vega-
gerðar, hafnarmála,
skólamála, heilbrigðis-
mála og annarra þátta
byggðamála á sérstak-
lega að ganga, og skoði
í einu, hvernig þessir
fjármunir nýtist til að
efia byggðina og styrkja
svæði sem þjónustuheild-
ir. Við sjáum oft, að það
er ekki vegna þess endi-
lega, að atvinnuástand sé
slæmt á tilteknum stöð-
um sem fólksfiótti hefur
verið frá þeim stöðum.
Við eigum að horfa á
þetta sem veruleika, og
við eigum að skynja, að
fólk gerir auknar kröfur
um tiltekna þjónustu og
tiltekinn stíl, lífsstíl, og
það er að hverfa frá sum-
um stöðum vegna þess
að þetta vantar, og við
eigum að bregðast við
því ... Við eigum að
bregðast við því og skila
þeim fjánnunum, sem
menn vilja leggja til
byggðamála — sem al-
gjör sátt er um í rauninni
í landinu — þannig, að
þeir í raun gagnist, en
ekki með þeim hætti, að
við sjáum peningana
bremia upp engum til
gagns ár eftir ár, áratug
eftir áratug.“
Stærri og
sterkari sveit-
arfélög
Forsætisráðherra vitn-
aði í ræðu sinni til stefnu
ríkisstjórnarinnar í mál-
efnum sveitarfélaga:
„Sveitarfélögin verða
efid og aðstaða þeirra til
að veita íbúum sínum
félagslega þjónustu bætt.
Aðgerðir stjórnvalda á
sviði byggðamála, at-
vinnumála, samgöngu-
mála og sveitarstjórnai--
mála verða samræmdar
með markvissari hætti
en verið hefur.
Aherzla verður lögð á
sameiningu sveitarfélaga
og stefnt að því að ná
þar verulegum árangri á
næstu fjórum árum, m.a.
með breytingum á sveit-
arstjórnarlögum, sem
stuðli að stækkun sveit-
arfélaga, auknum fjár-
stuðningi Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga og aðgerð-
um á sviði samgöngu- og
atviimumála".
Þá sagði forsætisráð-
herra að lög um tekju-
stofna sveitarfélaga yrðu
endm’skoðuð með það í
huga að samræma skatt-
lagningu atvinnufyrir-
tækja því, sem gerizt í
grannríkjum. Og að
áfram yrði unnið að til-
færslu verkefna og tekju-
stofna frá ríki til sveitar-
félaga.
ríkissjóbs.
RABBFUNDIR I VIB-STOFUNNI
Notaðu símann núna,
hringdu í
62 60 40,
69 96 00
eba 99 66 99
sem er grænt númer.
I
3
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91- 626040
Kringlunni, sími 91- 689797
Kalkofnsvegi 1,
sími 91- 699600
Þökkum frábærar undirtektir
í vetur hafa verið haldnir 18 rabbfundir í VÍB-stofunni.
Mjög margt fólk hefur mætt á fundina og við viljum
þakka því þátttökuna. Nú verður gert hlé á reglulegri
dagskrá til liausts, en haldnir verða einstakir fundir af
og til í sumar ef tilefni gefst.
Öllum er velkomið að líta inn í VÍB-stofuna alla
virka daga og leita sér upplýsinga. Þar er meðal annars
að fínna upplýsingaskjá REUTERS, s'em veitir aðgang
að öllum kauphöllum Evrópu.
Ármúla 13a, 1. hæö.