Morgunblaðið - 15.04.1992, Qupperneq 10
1
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 1992
Loglræömgur
ÞortnlOur SanOhoU
Solumenn
Gish Sigu'Ojornsson
Sigu'D/om Þorbergsson
Heimasími sölumanns 33771
Einbýlishús
MIÐBRAUT - SELTJ.
Fallegt einbhús á stórri hornlóð hæð
og ris, um 130 fm. Laust nú þegar.
SÆVIÐARSUND
Mjög gott einbhús, 240 fm með 32 fm
bílskúr.
KÓPAVOGUR
Mjög gott tveggja íbúða hús með
bílskúr, fallegum garði og gróðurskála.
Parhús - raðhús
SAFAMÝRI
Glæsilegt og vel staðsett 300 fm par-
hús með 40 fm bílskúr. Húsiö er kjall-
ari og tvær hæðir.
TUNGUVEGUR
Snoturt 130 fm raðhús kjallari og tvær
hæðir.
Hæðir
GLAÐHEIMAR
Mjög góð neðri sérhæð, 133,5 fm með
4 svefnherb. 28 fm bílskúr.
HRAUNTEIGUR
111 fm neðri sérhæð. 2 stofur, 2 svefn-
herb. 27 fm bílskúr.
4ra-6 herb..
SAFAMÝRI
Mjög góð 4ra herb. íb. á 1. hæð,
108 fm. Bílskúr. 21,4 fm. Verð
8,6 millj.
JÖRVABAKKI
Gullfalleg 4ra herb. íb. á 1. hæð, 102
fm. Aukaherb. í kjallara.
NÖNIMUGATA
Falleg íb. 107 fm á tveim hæðum. Sval-
ir í suður og norður. Laus strax.
GAUKSHÓLAR
Glæsileg 5-6 herb. endaíbúð, 123,8 fm
á 5. hæð. Frábært útsýni. 27 fm bílskúr.
Verð 8,5 millj.
DALSEL
Mjög góð 4ra-5 herb. íbúð á 3. hæð,
107 fm. Tvö stæði í bíigeymslu fylgja.
Verð 7,9 millj.
3ja herb.
HAGALAND - MOS.
Falleg 90 fm íbúð á neðri hæð með
sérinngangi og góðum bílskúr. Laus.
OFANLEITI
Glæsileg, nýleg 3ja herbergja íbúð á
2. hæð, Laus 1.6.
HÁTÚN ®
Nýendurnýjuð 3ja herb. íbúð á 7. hæð
í lyftuhúsi. Laus strax.
HÁTÚN
Góð 3ja herb. kjallaraíbúö með sérinn-
gangi, 85 fm. Laus strax.
FURUGRUND
3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Góð lang-
tímalán. 4.350 þús.
2ja herb.
SEILUGRANDI
Gullfalleg íb. á 3. hæð með góðu hus-
næðísstjláni og bilskýli.
GAUKSHÓLAR
2ja herb. íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Laus
nú þegar. Verð 4,8 miilj.
Auk þess fjöldi eigna á skrá
Stakfell
Fasteignasaia SuOurianosbraut 6
687633 rf
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Finnur Jónsson í
Listasafni Islands
Myndlist
Eiríkur Þorláksson
í Listasafni íslands hefur und-
anfarnar vikur staðið yfir um-
fangsmikil sýning á úrvali af verk-
um Finns Jónssonar listmálara,
sem listamaðurinn og eiginkona
hans, Guðný Elísdóttir, hafa fært
Listasafninu að gjöf. Sýningin er
haldin í tilefni af aldarafmæli lista-
mannsins síðar á þessu ári, og
gefur almenningi kost á að kynn-
ast þessari einstöku listaverkagjöf
þeirra hjóna, sem er ein sú vegleg-
asta, sem Listasafni íslands hefur
borist.
Gjöfín, sem telur alls um 800
verk, er um marga hluti einstök,
en hún var afhent safninu 1985 í
tilefni af aldarafmæli þess. Það
er ekki aðeins að þau hjónin gefí
safninu listaverkin, heldur hafa
þau einnig látið fylgja með næga
fjármuni til að lagfæra verkin,
hreinsa þau og búa um þau á
þann hátt sem best þykir. Hér er
því horft til framtíðar og sýnd sú
umhyggja fyrir listinni, sem þarf
til að komandi kynslóðir fái notið
hennar á sama hátt og þær núlif-
andi.
Skissubækur, bréfasöfn, ljós-
myndir og hlutir sem tengjast
gull- og silfursmíði Finns gera
þessa gjöf að enn merkari heimild
fyrir fræðimenn til rannsókna á
ferli hans, listhugsun og vinnu-
brögðum.
Frá listsögulegu sjónarmiði er
þó mikilvægast við þessa miklu
gjöf að í henni er að finna öll þau
óhlutlægu listaverk, sem Finnur
Jónsson vann á fyrri hluta þriðja
áratugarins, og sýndi hér á landi
haustið 1925. Á þeirri sýningu
mun afstraktmyndlist fyrst hafa
borið fyrir augu landsmanna, en
ekkert af þeim myndum seldist,
og voru eftir það alía tíð í eigu
listamannsins. Þessi brautryðj-
endaverk eru öll á sýningunni nú.
- Nokkrar myndir Finns sem voru
á sýningu hjá Der Sturm í Berlín
sama ár munu hins vegar hafa
selst, og m.a. borist til Bandaríkj-
anna, þar sem þær eru nú í lista-
safni Yale-háskóla; þær áttu tals-
verðan þátt í að skapa honum
nafn meðal samtímalistamanna,
þó áð það kæmi ekki í ljós fyrr
en mörgum áratugum síðar.
Finnur Jónsson fæddist 15. nóv-
ember 1892 á Strýtu í Hamars-
fírði; hann ólst þar upp hjá foreldr-
um sínum, og rétt um fermingu
fór hann að vinna fyrir sér sem
sjómaður. Hann kom til Reykja-
víkur 1915 til að læra gullsmíði;
um leið aflaði hann sér tilsagnar
í teikningu, og þegar sveinsprófinu
var náð 1919 hélt hann til Dan-
merkur til frekara listnáms. Þang-
að höfðu flestir íslenskir listamenn
farið til þessa, en Finnur braust
út úr hefðinni er hann hélt áfram
til Þýskalands 1921, til Berlínar
og Dresden, þar sem harín átti
eftir að vera til 1925. Þarna fann
Finnur valinn félagsskap, og
margir þeirra sem hann kynntist
voru annaðhvort þegar eða urðu
síðar meðal þekktustu listamanna
framúrstefnunnar á fyrri hluta
aldarinnar; nægir að nefna nöfn
manna eins og Kokoschka,
Schwitters, Moholy-Nagy og
Kandinsky. Þarna var Finnur
Jónsson við fremstu víglínur sam-
tímalistarinnar.
Sýningin sem hann hélt eftir
heimkomuna 1925 var því tíma-
mótaatburður í íslenskri myndlist-
arsögu, þó að viðbrögðin bæru
þess ekki vott. Listamenn voru
nokkuð jákvæðir á' þau óhlut-
bundnu verk, sem Finnur sýndi,
en flestir aðrir létu sér fátt um
finnast. Þessar viðtökur ollu því
að Finnur pakkaði þessum mynd-
um niður og sneri sér að öðrum
sviðum í myndlistinni. Hann hefur
í gegnum tíðina m.a. verið þekktur
listamaður á sviði landslags- og
persónumynda, en hann hefur ekki
síst notið sín við gerð mynda af
sjónum, þar sem barátta manns
og náttúruafla er hvað augljósust;
þar hefur erfíðisvinna æskuáranna
skilað sér á myndrænan og eftir-
minnilegan hátt.
Þrátt fyrir þetta mun listamað-
urinn alltaf öðru hvoru hafa snúið
aftur til óhlutbundinnar myndsýn-
ar; skissubækur, teikningar og
minni verk frá síðari árum bera
þess glöggt vitni, þó hann hafi
ekki haldið þessum verkum fram.
Það var svo um 1970, að vitneskj-
an um brautryðjendahlutverk
Finns á þessu sviði komst í sviðs-
ljósið, og fengu landsmenn loks
tækifæri til að beija þau augum
á sýningu 1971, og síðan á yfirlits-
sýningu, sem Listasafn Islands
hélt á verkum listamannsihs 1976,
þegar listamaðurinn varð 85 ára.
Á sama tíma hefur Iistamaðurinn
hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir
framlag sitt á listasviðinu, bæði á
innlendum og erlendum vettvangi.
Viðurkenningin lét því sannar-
lega bíða eftir sér, en um leið er
saga þessara verka gott dæmi um
þörfina fyrir góða fræðimennsku
á sviði myndlistarinnar. Mikilvæg
Iist mun fyrr eða síðar komast á
framfæri og öðlast þann frama
sem hún á skilinn, ef fræðimenn
halda vöku sinni og láta skeytinga-
leysi samtímans ekki villa sér sýn.
Á sýningunni í Listasafninu eru
um níutíu verk Finns Jónssonar
sett upp í 4 sölum safnsins, og
hefur þeim verið skipt niður eftir
efnisflokkum. Afstraktverkin frá
þriðja áratugnum er að finna í
efsta salnum, ásamt nokkrum
yngri óhlutbundnum myndum.
Þessi verk eru óhemju tær og
björt, og hefur tekist vel til við
hreinsun þeirra og uppsetningu.
Olíumálverkin yÖrlagateningurinn
(LÍ 4784) og „Oður til mánans (LÍ
4785) skipa ótvírætt öndvegi, en
hinar íjölmörgu kompósisjónir
unnar með svörtu túski eru ekki
síður áhugaverðar, og tengja verk
Finns vel við meginstrauma í evr-
ópskri myndlist þriðja áratugarins.
En um leið er auðvelt að skilja
tómlegar móttökur þessara verka
fyrir nærri sextíu og sjö árum;
slíkt hafði aldrei sést hér áður.
En hversu mikið hafa viðtökur
almennings á nýjungum í myndlist
breyst í raun til þessa dags?
í sal 2 hefur verið komið fyrir
landslagsmyndum, sem Finnur
hefur unnið flestar með vatnslitum
á ferðum sínum um landið; þetta
eru fjörlegar myndir, oft lausbeisl-
aðar, þar sem stemmning litanna
ræður ferðinni, en tilraun til stað-
arlýsinga er síður mikilvæg. Ætla
má að margar af þessum myndum
hafi verið undanfari landslagsmál-
verka, sem listamaðurinn vann
síðan á vinnustofu sinni. Svipað
má segja um litlar blýants- og
blekteikningar frá sjónum, sem
komið hefur verið fyrir í neðsta
sal safnsins; þarna er að íinna
kveikjur að mörgum þekktum
sjávarmyndum, en teikningarnar
sýna mikla tilfinningu Finns fyrir
öldurótinu, ágjöf og veðrabrigð-
um; þarna er listamaðurinn vissu-
lega á heimavelli.
I stærsta sal safnsins er komið
fyrir expressjónískum landslags-
og mannamyndum, en nokkrar af
þeim síðarnefndu vann hann á
Þýskalandsárum sínum; er fróð-
legt að sjá hversu eðlilega þær
tengjast persónumyndum, sem
hann gerði áratugum síðar. Það
er viss dulúð í þessum myndum,
einkum þeim sem snúa að himin-
hvolfinu og geimnum, og enn og
aftur eru bein tengsl milli fyrri
verka og hinna síðari; þannig er
ekki meginmunur á inntaki mynd-
anna „Tunglskin (LÍ 4417) frá
1928 og „Tvístimi (LÍ 4473), sem
er gerð tæpri hálfri öld síðar.
Margar landslagsmyndanna eru í
raun á jaðri þess að kallast af-
straktverk, og því er ljóst af sýn-
ingunni að það er greinilegri heild-
arþráður til staðar í verkum Finns
en oft hefur verið talið.
Listasafnið hefur gert þessa
sýningu vel úr garði, og sýningar-
skráin er glæsileg og til sóma.
Myndprentanir eru góðar, og
myndgreiningar eru afar fróðlegar
og vel unnar; það er helst að
maður sakni meiri fræðslu um á
hvern hátt verk Finns féllu að
þeirri þróun, sem átti sér stað í
evrópskri myndlist á þeim tíma
sem hann starfaði þar - samheng-
ið skiptir miklu.
Eins og fyrr segir hefur þessi
sýning nú staðið yfir í mánuð, og
verið vel sótt. Hún mun standa
viku fram yfir páska, til sunnu-
dagsins 26. apríl, og er rétt að
hvetja allt áhugafólk um íslenska
myndlist til að iáta hana ekki fram
hjá sér fara. Það er ekki á hveiju
ári sem tækifæri gefst til að sjá
íslenska myndlist tengjast heims-
listinni á jafn skemmtilegan hátt.
01 Q7fl LÁRUS Þ. VALDIMARSSON FRAMKVÆMDASTJÖRKí.
41 I 0U"4 I W / U KRISTINNSIGURJÓNSSON. HRL.loggilturfastEiGNa^ÁiV
Á söluskrá óskast meðal annars:
Einbýlishús í Garðabæ
180-220 fm. Má vera í byggingu. Fjársterkur kaupandi. Eignaskipti
möguleg.
Lítið einbýlis- eða raðhús
óskast í borginni eða nágrenni, t.d. Mosfellsbæ. Bílskúr þarf að fylgja.
Miðsvæðis í borginni óskast
einbýlis- eða raðhús, 120-150 fm. Bílsk fylgir. Eignaskipti möguleg.
3ja-4ra herb. íbúð
óskast á 1. eða 2. hæð, miðsvæðis í borginni.
Margskonar eígnaskipti.
Höfum á skrá fjölmargar beiðnir um eignaskipti. Vinsamlegast hafið
samband við skrifstofuna sem fyrst.
• • •
Opiðkl. 10-16
á skfrdag og laugardag.
Vinsamlegast kynnið ykkur ____________________________
augiýsinguna á morgun. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
AIMENNA
FASTEIGNASAL AH
Af helgihaldi í Bústaðakirkju
MIKIL fjölbreytni í tali og tónum
verður við helgihald í Bústaða-
kirkju um bænadaga og páska.
Á skírdagskvöld kl. 20.30 verður
flutt Míssa Stella Matutina eftir
Vito Carnevalli. Einsöngvarar verða
Elín Hrund Arnadóttir, Magnea
Tómasdóttir, Ólöf Ásbjörnsdóttir,
Reynir Guðsteinsson og Þórður
Búason. Einnig verður altarisganga
í minningu síðustu máltíðar Jesú
með lærisveinunum.
Á föstudaginn langa verður
guðsþjónusta kl. 14.00. Þar prédik-
ar dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson.
Á páskadagsmorgun kl. 8 árdeg-
is verður hátíðarguðsþjónusta. Þar
kemur fram auk kirkjukórsins bjöll-
usveit kirkjunnar. Hljóðfæraleikar-
ar verða Sveinn Birgisson á tromp-
et, Sigurjón Árni Eyjólfsson á saxó-
fón og Hanna María Pálmadóttir á
þverflautu. Kl. 14.00 verða kór,
organisti og prestur með messu á
skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Þá verð-
ur skírnarguðsþjónusta í kirkjunni
kl. 16.00 á páskadag.
Annan páskadag verður ferming-
arguðsþjónusta kl. 10.30.
evrópumót og Norðurlandaniót í
Othello, en samtök Othellospilara
Organisti og söngstjóri kirkjunn-
ar er Guðni Þór Guðniundsson.
Bústaðakirkja hefur alla tíð verið
vel sótt um bænadaga og páska.
Vert er að vekja athygli á flutningi
kirkjukórs og einsöngvara á Missa
Stella Matutina á skírdagskvöldi
kl. 20.30.
á Norðurldöndum hafa einnig gefíð
út sameiginlegt fréttabréf.
Pálmi Matthíasson
sóknarprestur.
íslandsmót í Othello
ÍSLANDSMÓT í Othello verður haldið hérlendis í fyrsta skipti í
Norræna húsinu laugardaginn fyrir páska og hefst klukkan 14. Ot-
hello eða Riversi eins og spilið er einnig nefnt er að sögn mótshald-
ara jafnögrandi og skák, spennandi spil fyrir alla.
Haldið er heimsmeistaramót,