Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1992 íslenskur útvarpsþátt- ur í finnska útvarpinu FINNSKA ríkisútvarpið hefur keypt útvarpsþáttinn „Ljósið er týnt en vorið kemur, vorið kemur“ sem Þorsteinn J. Vilhjálmsson gerði fyrir íslenska ríkisútvarpið. Þátturinn var fluttur á sænskri rás finnska ríkisútvarpsins sl. fimmtudagskvöld. Um er að ræða svokallaðan fléttuþátt sem tekur rúinar sjö mínútur í flutningi. Þorsteinn sagði að þátturinn hefði verið leikinn í þætti sem nefnist Skymnings Expressen þar sem fleiri fléttuþættir, sem á ensku eru nefndir montage-þættir, hefðu verið leiknir. Hann sagði að fléttuþættir væru ólíkir öðrum út- varpsþáttum, í þeim væru lausir endar sem hlustendum væri látið eftir að ráða í. Hann sagði að sömu grunnþættir væru í fléttuþáttum og í leikritum, þ.e.a.s. ris, flétta og lausn. „Ljósið er týnt... fjallar um samvistir manns og drengs í óveðri þegar rafmagn hefur slegið út. Efni þáttarins væri á mörkum draums og veruleika. Þorsteinn sagði að verið væri að gera tilraunir með slíka dag- skrárgerð hér á landi en hún hefði tíðkast í mörg ár erlendis. í byijun maí yrði alþjóðleg ráðstefna fléttu- þáttagerðarmanna frá um 20 lönd- um í Kaupmannahöfn og legðu íslendingar þar í fyrsta sinn fram efni. Framlag íslands yrði ofan- nefndur þáttur auk þáttar um vegalaus börn. Þáttur Þorsteins verður fluttur á Rás 1 föstudaginn 1. maí að loknum kvöldfréttum. Akureyri: Snjókoma tefur Andr- ésarleikana SNJÓ kyngdi niður á Akur- eyri í gærmorgun og varð að fresta Andrésarleikunum í Hlíðarfjalli fram eftir degi, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Snjóinn festi ekki í byggð enda hiti yfir frostmarki en í Hlíðarfjalli varð að fresta skíða- mótinu. Var haft á orði að ann- ar eins snjór hefði ekki sést í fjallinu síðan í nóvember. A Iron Maiden til Islands BRESKA þungarokk- sveitin Iron Maiden heldur tónleika hér á landi í júní. Það verða upphafstónleikar hljómsveitarinnar á ferð hennar um heim- inn. Iron Maiden. Iron Maiden, sem álitin er vinsælasta þungarokk- hljómsveit Bretlands og ein sú vinsælasta í heimi, hefur starfað frá árinu 1977. Hljómsveitin sendi nýverið frá sér smáskífu í Bretlandi sem fór beint í annað sæti breska smá- skífulistans, en væntanleg er breið- skífa eftir tvær vikur. Tónleikamir hér á landi, sem haldnir verða 5. júní nk., verða fyrstu tónleikamir í heimsreisu sveitarinnar til að fylgja þeirri plötu eftir. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ingólfur Þór Tómasson, Friðþjófur Karlsson og María Ágústsdóttir afhenda Markúsi Erni Antonssyni borgarstjóra undirskriftir nemenda í MS, þar sem óskað er eftir auknu umferðaröryggi við Höfðabakka- brú. Endurbætur gerðar við Höfðabakkabrú í sumar BORGARYFIRVÖLD munu láta gera endurbætur á akbrautinni sunnan Höfðabakkabrúar í sumar að sögn Sigurðar Skarp- héðinssonar gatnamálastjóra. Tvö banaslys urðu við brúna í vetur auk fleiri slysa. Nemend- ur í Menntaskólanum við Sund afhentu nýlega Markúsi Erni Antonssyni borgarstjóra undir- skriftalista þar sem skorað er á borgarstjórn að hlutast til um úrbætur á þessum vegarkafla. Að sögn Mariu Ágústsdóttur nemanda í MS var ráðist í undir- skriftasöfnunina innan skólans eftir að piltur úr skólanum lést í umferðarslysi við brúna. Sigurður Skarphéðinsson gat- namálastjóri sagði við Morgun- blaðið í gær að vegarhalli á kafla sunnan brúarinnar væri öfugur við það sem vera ætti. Þetta ætti sér þær skýringar að ráðgert hefði verið og væri enn að mót Höfða- bakka og Stekkjarbakka yrðu á öðrum stað en nú væri. Málið hefði komið til skoðunar í kjölfar all- margra slysa, sem orðið hefðu beggja vegna brúarinnar og ráðist yrði í úrbætur í sumar. Skoðað yrði hvort unnt væri að breikka götuna og koma fyrir vegriði á Eftir að Pálmi lauk námi við Samvinnuskólann á Bifröst vann hann hjá Kaupfélagi Borgfírðinga um skeið og síðan hjá Vöruhúsi Kaupfélags Árnesinga á Selfossi. Hann hefur stundað hagfræðinám í Álaborg undanfarin 3 ár. Einnig hefur verið gengið frá ráðningu á framkvæmdastjóra hjá Borgey, hinu nýja sjávarútvegs- henni miðri. Kannað yrði hvort leyfðar yrðu breytingar á sam- þykktri tengingu Höfðabakka og Vatnsveituvegar, sunnan brúar- innar. fyrirtæki sem stofnað var út frá KASK í ár. Halldór Árnason, framkvæmdastjóri hjá Fiskmati ríkisins, var ráðinn í stöðuna. Sam- kvæmt upplýsingum frá Ingólfi Björnssyni, formanni stjórnar KASK, er nú verið að vinna að því að sameina fiskvinnslu KASK við Borgey og á því verki að verða lokið um miðjan júní. KASK á Höfn í Hornafirði: Nýr kaupfélagsstjóri ráðinn - einnig nýr framkvæmdastjóri fyrir Borgey BUIÐ er að ganga frá ráðningu nýs kaupfélagsstjóra hjá KASK á Höfn í Hornafirði. Sá sem ráðinn var heitir Pálmi Guðmundsson 32 ára gamall hagfræðinemi við háskólann í Álaborg í Dan- mörku. Pálmi lýkur hagfræðináminu um miðjan júní nk. og tekur þá við stöðunni. Vergar þjóðartekjur 1987-1992 Breyting frá fyrra ári 12,3% Verg landsframleiðsla 1987-1992 Breyting frá fyrra ári Viðskiptajöfnuður 1987-1992 Hlutfall af landsframleiðslu Verðbólguleiðréttur jöfnuður (hefðbundið uppgjor I svigum) Kaupmáttur ráðstöfunar- Atvinnuleysi tekna 1987-1992 1987-1992 Breyting frá fyrra ári Hlutfall af heildarvinnuafli Þróun hagstærða frá 1987 ÞJÓÐHAGSSTOFNUN kynnti í vikunni skýrslu um þjóðarbúskap- inn, framvinduna á síðasta ári og horfur á yfirstandandi ári. Á súluritunum hér að ofan sést þróun nokkurra hagstærða á árunum 1987 til 1992, samkvæmt skýrslunni. Þróun viðskiptajafnaðar við útlönd er sýnd þegar jöfnuðurinn hefur verið leiðréttur vegna verðbólgunnar í heiminum, en það hefur Þjóðhagsstofnun gert fyrir Morgunblaðið. Viðskiptajöfnuður samkvæmt hefðbundnu upp- gjöri er hafður til hliðsjónar innan sviga en á þessum aðferðum munar um 2%, eins og Þórður Friðjónsson forstjóri Þjóðhagsstofn- unar gerir nánar grein fyrir hér á eftir: „Samkvæmt alþjóðlegum stöðl- um um þjóðhagsreikninga er ekki tekið tillit til verðbólgu við mat á vaxtagreiðslum milli landa. Þetta felur meðal annars í sér að við- skiptahalli skuldugra ríkja mælist meiri en væri hallinn verðbólgu- leiðréttur. Þetta stafar af því að nafnvextir af erlendum lánum eru allir færðir til útgjalda þótt aðeins hluti þeirra séu raunvextir vegna þess að verðbólga er í heiminum. Sé miðað við 4-5% verðbólgu að jafnaði á ári í heiminum er raun- halli á viðskiptum íslendinga við önnur lönd um það bil 2% minni en samkvæmt hefðbundnum að- ferðum. Þar sem íslendingar eru mjög skuldugir erlendis, líklega skuld- ugasta þjóð Vestur-Evrópu, er lág- mark að ná raunjöfnuði í viðskipt- um við önnur lönd á næstu árum. í þessu felst að hallinn verði að jafnaði innan við 2% af landsfram- leiðslu samkvæmt hefðbundnum uppgjörsaðferðum, að minnsta kosti ef ekki verður ráðist í stór- fellda nýja fjárfestingu á borð við álver. Slíkur halli svarar til þess að erlendar skuldir standi nokkurn veginn í stað að raungildi. Það er hins vegar hættuleg hugmynd að setja þetta sjónarmið þannig fram að engin ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af 2% halla á við- skiptum við önnur lönd, því það hlýtur að vera markmiðið að grynnka á erlendum skuldum þjóð- arinnar í framtíðinni,“ ségir Þórð- ur. Húsavík: Unnið að samein- ingn sjáv- arútvegs- fyrirtækja Húsavík. TIL UMRÆÐU hefur verið að sameina þrjú útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki á Húsavík, Höfða hf., íshaf hf. og Fiskiðju- samlag Húsavíkur, og ná með því hagkvæmari rekstri fyrirtækj- anna. Fyrsta skrefið í sameiningarátt hefur verið stigið, með því að nú skipa sömu menn stjórnir allra fyr- irtækjanna, en stjórnirnar skipa nú Einar Njálsson bæjarstjóri, formað- ur, Örlygur Hnefill Jónsson, vara- formaður, Katrín Eymundsdóttir, Ragnar Jóhann Jónsson og Þorgeir B. Hlöðversson. Unnið er að frekari sameiningu, en ekki gert ráð fýrir að því verki ljúki fyrr en þá um næstu áramót og enn eru framkvæmdastjórarnir tveir, Kristján Ásgeirsson fyrir Höfða og íshaf og Tryggvi Finnsson fyrir Fiskiðjusamlag Húsavíkur. Fréttaritari. ( i c « 0 í t; 0 0 0 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.