Morgunblaðið - 26.04.1992, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 26.04.1992, Qupperneq 16
:eei jíína .as HuoAaumiue aiaAjavíuoaoM TMOKGUNBLAÐIÐ SUNNIJDAGUR 26.APRÍL T992 KALLARA SAMVINNU KENNARA OG NEMENDA Það var galsi í nemendum 10. bekkjar Grundaskóla. eftir Kristínu Gunnarsdóttur, myndir/Emilía B. Björnsdóttir VIÐ GRUNDASKÓLA á Akranesi hefur verið unnið þróun- arstarf, sem miðar að breyttum kennsluháttum á unglinga- stigi. Verkefnið hefur verið kallað Skárri skóli og þótti forvitnilegt að kynna hvernig til hefur tekist en eins og margir foreldrar og kennarar hafa rekið sig á eru unglings- árin oft erfiður tími. Rauði þráðurinn er samvinna kennar- anna og áhugi fyrir að reyna nýjar leiðir. 1 '*”***„ & -s— WBm Heimavinna er vinsæl valgrein og hér eru þeir Árni- Nemendur i 10. bekk sjá um gangbrautavörslu R. Alfreðsson, Benedikt Helgason og Daði Birgisson í við skólann og hljóta að launum styrk í ferða- tíma hjá Birgi Einarssyni kennara. sjóð frá Sjóvá-Almennum. Ragnheiður Ásgeirsdóttir, Flosi Einarsson og Guðrún Géirsdóttir Tveir kennarar við 10. bekk skólans, þær Guðrún Geirsdóttir og Ragnheiður Ásgeirs- dóttir, voru fengnar til að segja frá tildrögum þess að ráð- ist var í verkefnið og hvernig til hefur tekist. Tilraunin hófst vetur- inn 1989 til 1990 og reynslunni rík- ari hafa kennarar komið sér niður á þá þáetti sem gefið hafa góða raun. „Skólastarf þessa skóla krefst þess að kennarar vinni saman í mun ríkara mæli en víða annarsstaðar, bæði í yngr: deildum og nú áfram á unglingastigi,“ sagði Guðrún. „Það eru valkennarafundir, ár- gangskennatafundir og oft fundir um ákveðin viðfangsefni eins og til dæmis þemaverkefnisfundir. Við verðum því að vinna saman og við fáum þjálfun til þess, en um leið er nánast ómögulegt fyrir kennara að einangrast.“ Óánægja kennara með kennslu- fyrirkomulag og húsnæðisþrengsli voru upphaf þróunarstarfsins. Ákveðið var að fimm kennarar tækju þátt í umræðuhópi um ný- breytnistarf í eldri bekkjum grunn- skólans, sem þá var í boði við End- urmenntunardeild Kennaraháskóla íslands. Stjórnandi hópsins var Hannes Sveinbjörnsson kennari í Æfingadeild KHÍ og í fyrstu tóku fjórir skólar þátt í námskeiðipu, en f tveir heltust fljótlega úr léstinni. j Kennarar Grundaskóla ákváðu að j taka sérstaklega fyrir með hvaða \ hætti mætti breyta skipulagi skól- ans og mótuðu drög að sex vikna þemaverkefni um skóla og skóla- starf. Meginmarkmiðið var að nem- endur og kennarar ynnu saman að því að gera skólann að betri og þroskavænlegri vinnustað. Vildum umturna öllu Lesnar voru innlendar og erlend- ar bækur, aðallega frá Norðurlönd- um, um tilraunir, sem gerðar hafa verið með kennslu á unglingastigi. Öllum fróðleik var miðlað áfram til annarra þátttakenda á námskeiðinu á fundum einu sinni í mánuði í Reykjavík, auk þess sem kennar- arnir fimm á Akranesi hittust þess á milli. „Við áttum að setja fram okkar eigin hugmyndir um hvernig við vildum breyta skólanum okkar,“ sagði Ragnheiður. „Við frá Akra- nesi fengum mjög róttæka hug- mynd, sem við kölluðum „Skárri skóli“, og gekk afar langt, svo vægt sé til orða tekið. Við vildum umturna öllum skólanum og fá nemendur í heils árs þemaverkefni um til hvers fólk væri í skóla. Fimm af tíu kennurum unglingadeildar- innar voru á námskeiðinu og því miður féllum við í þá gryfju að við gleymdum samstarfskennurunum, sem ekki sóttu námskeiðið og þuld- um yfir þeim hugmyndir um hvern- ig við hugsuðum okkur skólastarfið. Þeir neituðu auðvitað að taka þátt í þessari vitleysu og þar með hófst eiginlegt þróunarstarf innan skól- ans, með heljarinnar rimmu, sem varð til þess að við fórum að ræða hvaða drauma við ættum um skóla- starf.“ Einhver hafði alltaf haft áhuga á að vinna meira með dagblöð, hlusta á fréttir og vinna út frá þeim, svo dæmi sé tekið, en aðrar hug- myndir voru umfangsminni og gátu allir sætt sig við þær. „Við fórum að vinna saman að styttri þema- verkefnum og reyndum í fyrsta sinn að vinna markvisst að þeim hug- myndum, sem við höfðum um hvernig viðyildum að skólinn væri,“ sagði Guðrún. Sami umsjónarkennari fylgi bekknum Þessar nýjungar gáfu ágæta raun og um sumarið fór fimm manna' hópurinn í kynnisferð til Danmerkur og kynnti sér skólastarf í nokkrum skólum. Það sem ein- kenndi dönsku skólana var sú áhersla sem Iögð var á hlutverk umsjónarkennara, til dæmis fylgdi yfirleitt sami umsjónarkennarinn bekknum nánast frá fyrsta og fram til síðasta árs. „Þessi þríheilaga tala sem við- gengst hér og enginn veit af hveiju, að sami kennarinn megi helst ekki kenna bekknum nema í þrjú ár, vakti mikla undrun,“ sagði Guðrún. „Það eru engin rök fyrir þessari skiptingu, nema ef kennara gengur illa með bekkinn. Við erum ekki hlynnt því að skipta um umsjónar- kennara þegar kemur yfir á ungl- ingastigið og viljum helst að kenn- arar haldi sínum bekk. Það breytist svo margt þegar þangað kemur, nýtt námsefni, þau fermast og fé- lagslíf verður meira, auk alls ann- ars. Það er svo margt að breytast í lífi nemandanna, að það besta sem eru bekkjarkennarar í 10. bekk. þeim er gert, er að gamli kennar- inn, sem þekkir þau út og inn, fylgi þeim og verði áfram fasti punturinn í tilverunni. Svo undarlegt sem það kann að virðast hefur reynst hvað erfiðast að ná þessu fram og það hefur leitt til þess að við höfum einangrast í okkar þróunarstarfi frá öðrum kennurum skólans. Sem bet- ur fer sjáum við fram á breytingar í haust þegar kennarar sjöundu- bekkinga fylgja sínum nemendum yfir í unglingadeildina." Sumum líður aldrei vel í skóla „Við erum alltaf að leita leiða til að hjálpa nemendum og láta þeim líða vel, en sumum líður aldrei vel í skóla,“ sagði Ragnheiður. „Aðrar breytingar sem við tókum upp eru í raun mjög einfaldar. Bóklegar greinar eru kenndar frá kl. 8 að morgni til kl. 12.30. Við þijú sem kennum 10. bekkjunum höldum okkar bekk, erum bekkjarkennarar og kennum allar greinar og berum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.