Morgunblaðið - 26.04.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2fi. APRÍL 1992 ;
19
Nýtt gallerí
opnarí
Austurstræti
SUNNUDAGINN, 26. apríl opnar
nýr sýningarsalur, „Gallerí Emil“ í
kjallara Austurstrætis 6 klukkan
15,30 með frumflutningi tónverks-
ins „Tveir“ eftir Svein Lúðvík
Björnsson. Tónverkið er sérstaklega
samið af þessu tilefni og er flytj-
andi þess Guðmundur Kristmunds-
son víóluleikari.
Galleríið fer af stað með sýningu
ungs myndlistarmanns, Helga Val-
geirssonar, sem sýnir þar verk sín
næstu tvær vikurnar. Verkin eru
unnin í olíu. Þetta er fimmta einka-
sýning Helga, en hann hefur einnig
tekið þátt í mörgum samsýningum.
Frá vinstri: Emil Sæmundsson, Guðmundur Kristmundsson, Helgi
Valgeirsson, Lúðvík Sveinn Björnsson og barnið: Anna Rannveig.
Ráðstefna haldin um
heimspekikennslu
SUNNUDAGINN 26. apríl efnir Félag áhugamanna um heimspeki
til ráðstefnu um heimspekikennslu á grunn- og framhaldsskóla-
stigi. Ráðstefnan verður haldin í stofu 101 Odda, hugvísindahúsi
Háskóla íslands við Suðurgötu, og hefst klukkan 14.
Heimspekikennsla er í örum
vexti hér á landi eins og víða í
nágrannalöndunum. Þessi vöxtur
helst í hendur við aukna þörf fyr-
ir heimspekilega hugsun og víða
sýn á mannlega tilveru til mótvæg-
is við sérhæfingu og brotakenndan
fróðleik. Á ráðstefnunni verður
meðal annars fjallað um hvernig
brugðist er við þessum aukna
áhuga og hvernig heimspeki getur
fléttast inn í almennt skólastarf.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni
verða Hreinn Pálsson, skólastjóri
Heimspekiskólans, Kristján Krist-
jánsson, heimspekingur og kenn-
ari, Þorsteinn Hilmarsson, heim-
spekingur og kennari, Þorsteinn
Hjartarson skólastjóri og Atli
Harðarson, heimspekingur og
kennari. Á eftir fyrirlestrum verða
pallborðsumræður.
Allt áhugafólk um heimspeki-
kennslu og nýbreytni í skólastarfi
er velkomið.
Könnun á hög-
um hjúkrun-
arfræðinga
ÁSTA St. Thoroddsen, Jóna Sig-
geirsdóttir og Ragnheiður Har-
aldsdóttir, hjúkrunarfræðingar
halda fyrirlestur um „Könnun á
högum hjúkrunarfræðinga og
viðhorfum þeirra til starfa og
náms“, í málstofu i hjúkrunar-
fræði mánudaginn 27. apríl
klukkan 12,15 í stofu 6 á 1. hæð
i Eirbergi, Eiríksgötu 34.
Könnunin var styrkt af Rann-
sóknasjóði Háskóla Islands, Hjúkr-
unarfélagi Islkands og Félagi há-
skólamenntaðra hjúkrunarfræð-
inga.
----»-■»--♦-
Göngnferð um
Hafnarfjörð
SUNNUDAGINN 26. apríl mun
ferðamálaráð skátafélagsins
Hraunbúa í Hafnarfirði bjóða al-
menningi upp á stutta gönguferð
um Hafnarfjörð. Ætlunin er að
bjóða reglulega upp á slíkar göng-
ur i sumar og er þetta sú fyrsta.
Markmiðið er að vekja athygli á
gönguleiðum og áhugaverðum stöð-
um í bænum og nágrenni. Göngurnar
leiða sérfróðir skátar, og göngustjóri
á sunnudaginn verður Magnús Már
Júlíusson kennari, og mun hann fara
um norður- og vesturbæ. Gangan
hefst við Skátavelli á Víðistaðatúni
kl. 14 og mun standa yfir í um eina
klukkustund. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
----♦ ♦ ♦---
Raðganga
Ferðafélags
íslands
RAÐGANGA Ferðafélagsins
1992 frá Kjalarnesi í Borgarnes
hefst á sunnudaginn. Raðgöngur
Ferðafélagsins hafa notið mikilla
vinsælda síðustu árin. I fyrra var
gengið í 12 áföngum um gosbelti
Reykjanesskagans, en í ár verður
farið frá Kjalarnesi umhverfis
Hvalfjörðinn og upp í Borgarnes.
Sú nýjung er tekin upp að fólk
getur valið um tvo kosti. A: fjalla-
hring Hvalfjarðar eða B: Strönd og
láglendi Hvalfjarðar. Gengið er í
10 áföngum. Viðurkenning verður
veitt fyrir góða þátttöku og farmiði
gildir sem happdrættismiði. Ferða-
getraun verður í öllum ferðunum.
Raðgangan hefst á sunnudaginn
26. apríl og síðan verður farið hálfs-
mánaðarlega til 19. september. í
sunnudágsferðinni er hægt að velja
á milli göngu á Kerhólakamb Esju
eða strandgöngu um Kjalarnesið.
Brottför er frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin kl. 13 og höfð
verður viðkoma hjá nýja Félags-
heimili Ferðafélagsins í Mörkinni 6.
(Fréttatilkynning)
ISLENSKIR HJOLBARÐASOLENDUR
"Þegar þú
velur þér
sumardekkin
haffin þetta
í huga"
Soluð dekk enu
endurunnin dekk!
Snlufi dekk eru
sterk eg örugg.
Ég þekki þafi úr rallinu.
OG... þau eru allt að
50% údyrari.
VERTU
UMHVERFISVÆNIU!
VERTU
HRESÝNN!
VELUU
Emmmm
ÍSLENSK DEKK!