Morgunblaðið - 26.04.1992, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIMNIINIGAR SUNNUDAGUR
26. APRIL 1992
t
ELÍN AUÐUNSDÓTTIR,
frá Minni-Vatnsleysu,
Ásbraut 3,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 29. apríl kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
vinsamlegast bent á líknarstofnanir.
Halldór Friðgeirsson,
Eyjólfur Friðgeirsson,
Auður V. Friðgeirsdóttir,
Steinar Friðgeirsson,
Geir Friðgeirsson,
Edda Friðgeirsdóttir,
Friðgeir H. Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Gunnhildur Valdimarsdóttir,
Bergþóra Einarsdóttir,
Victor Kugajevsky,
Anna Oddsdóttir,
Kolbrún Þormóðsdóttir,
Hinrik Jónasson,
t
Útför
ERNU SÆMUNDSDÓTTUR,
Sjafnargötu 2,
sem lést í Landakotsspítala 16. apríl sl., fer fram frá Hallgríms-
kirkju þriðjudaginn 28. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er vinsamlegast bent á Kattavinafélagið/
Kattholt eða Krabbameinsfélag fslands.
Elfsabeth Ley, Grétar Erlingsson,
Vigdís Þórðardóttir
og aðrir aðstandendur.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
HANNES NORDAL MAGNÚSSON,
Einarsnesi 10,
Reykjavík,
sem lést 20. apríl, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 28. apríl kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Hjartavernd.
Ása Valdimarsdóttir,
Guðrún Margrét Hannesdóttir,
Valdimar Kristinn Hannesson,
Guörún Margrét Þorsteinsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MATTHÍAS GUÐMUNDSSON
fyrrv. bankaútibússtjóri,
Þórunnarstræti 91,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 28. apríl kl.
15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, þeir sem vildu minnast hins
látna láti líknarfélög njóta þess.
Helga Torfadóttir,
Guðmundur Matthiasson, Anne Matthfasson,
Torfi Matthíasson, Sunneva Filipusdóttir,
Ásgeir Matthíasson, Anna Ó. Sigurðardóttir,
Arnar Matthfasson, Anna K. Arnarsdóttir,
Hlynur, Helga og Harpa.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, dóttur og ömmu,
LÁRU B. ÞORSTEINSDÓTTUR,
Miðvangi 3,
Hafnarfirði,
fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 28. apríl kl. 13.30.
Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ingunn St. Einarsdóttir,
Hjálmar Þröstur Pétursson,
Þorsteinn Auðunsson, Lili Hjördís Auðunsson,
Róbert Einar Pétursson,
Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson.
t
Þökkum öllum þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall
HANS GUÐNA FRIÐJÓNSSONAR
vélstjóra,
Eyrarvegi 5,
Grundarfirði,
er fórst með togaranum Krossnesi á halamiðum 23. februar sl.
Ingibjörg Hansdóttir,
Ásdfs Viggósdóttir,
Viggó Hansson, Ingibjörg Hansdóttir,
Matthildur K. Friðjónsdóttir, Guðmundur Bergþórsson
og börn,
Guðlaug Björgvinsdóttir
og börn.
Magni Már Magna-
son - Minning
Ó, hversu hafið er djúpt
hnífseggin bitur og hvöss
hversu eitrið brennur sárt að innan
en allt þetta veitir þó óminnis hvíld
í djúpum, löngum svefni
sem örmagna sál hefur þarfnast,
það er friður í ókunnu tóminu
þaðan sem engin leið liggur til baka.
(Eftir Langston Hughes. Þýðing úr The
Poetry of the Negros 1746-1970.)
" Enn einu sinni þurfum við að
kveðja náinn frænda okkar á ung-
um aldri, frænda sem var okkur sem
bróðir og sonur, svo náin voru kynni
okkar af Magna. Við lifðum með
honum súrt og sætt, því hann var
enginn lognmollumaður, heldur
maður sterkra tilfinninga.
Mörg urðu vonbrigðin í lífi hans,
en alltaf reis hann upp og reyndi
aftur. Bjartsýnin og sjálfsbjargar-
viðleitnin voru aðalsmerki hans.
Eftir slæmt slys á barnsaldri varð
hann að breyta hægrihandarvana
yfir á vinstri hönd. Sjálfsagt hefur
hann þurft að breyta ótal mörgu
öðru sem við vissum ekki um og
mörgu sem var honum ofviða.
Magni Már var mannblendinn
einfari, hversu ólíklega sem það
hljómar og áhugamál hans voru af
ólíklegustu gerð. Leika sér við lítil
börn og setja sig í þeirra spor, ríf-
ast við ofjarla sína, rækta blóm,
reyna sig við erfið störf, baka brauð,
spila við fjölskylduna, hlusta á góða
tónlist og síðast en ekki síst að
mála. Og þar hafði hann hæfileik-
ann og möguleikann til að finna
sjálfan sig, bæði í formi og þó sér-
staklega í litum. Allt gert með
áunninni vinstri hönd, fínleg pensil-
strik innan um æsandi, sterka liti.
Frændi okkar fæddist á Akranesi
og ólst þar upp í stórum systkina-
hópi. Ungur að árum flutti hann
til höfuðborgarinnar í leit að stöðu
sinni í lífinu. Fljótlega snerist hugur
hans að garðyrkju og lét hann þann
draum sinn rætast að læra meira
og var hann tvö ár í Garðyrkju-
skóla ríkisins, en lauk þó ekki námi.
Magni dvaldi einnig vetrarlangt í
Bandaríkjunum hjá föður sínum og
vann þar við garðyrkjustörf.
Svo virtist sem Magni væri sí-
fellt að leita að einhveiju æðra stigi
eða tilgangi með lífinu og kynnti
hann sér ýmsar kenningar í dul-
speki og heimspeki. Honum nægði
aldrei það sem var eða hið hefð-
bundna líf. Síðustu árin virtist lífið
honum léttara og hann sáttari við
t
Bróðir okkar,
VIGFÚS SCHEVING JÓNSSON
frá Vatnsskarðshólum í Mýrdal,
verður jarðsunginn frá Áskirkju þriðjudaginn 28. apríl kl. 13.30.
Ólafía Jónsdóttir,
Guðný J. Scheving.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
BALDVINS BJÖRGVINSSONAR,
Aðalbraut 31,
Raufarhöfn.
Ragnheiður Ingvarsdóttir,
Erna Baldvinsdóttir, Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Dýrfinna Baldvinsdóttir, Guðfinnur Jóhnsen,
barnabörn og tengdabörn.
t
Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför
ELSU KRISTJÁNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvítabandsins fyrir góða umönnun.
Stefán Guðnason,
Ólöf Stefánsdóttir, Karl Ómar Jónsson,
Guðrún Stefánsdóttir, Baldur Jónsson,
Svava Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem á einn eða annan hátt auð-
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
INGE-LISS JACOBSEN,
Sóleyjargötu 13.
Sérstakar þakkir skulu færðar starfsfólki deildar 12-G, Land-
spítalanum.
Haukur Jacobsen,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
KRISTINS GUÐMUNDSSONAR,
Miðengi,
Grimsnesi.
Helga Benediktsdóttir,
Halldóra Kristinsdóttir, Guöbrandur Kristjánsson,
Valgerður Kristinsdóttir, Gústav A. Guðnason,
Þórunn Kristinsdóttir, Eirfkur Helgason,
Katrín Kristinsdóttir, Árni Þorvaldsson.
tilveruna, þess vegna kemur dauði
hans okkur svo á óvart, einmitt nú,
en enginn ræður sínum næturstað.
Fjölskyldu hans og ástvinum
verður hann ógleymanlegur svo
lengi sem fuglarnir syngja og blóm-
in opna blöð sín móti sól, því þar
er hans staður í vorljósri nóttinni.
Nú hvílir hann við hlið bróður
síns sem var honum svo kær, en
hvarf alltof fljótt. Blessuð sé minn-
ing þeirra beggja.
Freydís og Odda.
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öllkvöld
til kl. 22,-einnig umhelgar.
Gjafavörur.