Morgunblaðið - 26.04.1992, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGÁRsÚnNÚDAGI
QIG/
SUNNUÐAGUR-26.-APRIL 1992
ss
23
Jónína Þorfinns-
dóttír - Kveðjuorð
Fædd 16. september 1921
Dáin 10. apríl 1992
Síðdegis 10. apríl sl. hringdi sím-
inn og mig setti hljóðan því röddin
tjáði mér að Jónína Þorfinnsdóttir
hefði látist þá um morguninn. Sím-
talið var stutt. Ég sat og hugurinn
reikaði. Sá sem öllu ræður hafði
haft betur, Jónína var öll og gengin
á vit feðra sinna.
Jónína fæddist í Reykjavík 16.
september 1921 og var því rúmlega
sjötug þegar hún lést. Hún lauk
verslunarprófi frá Verslunarskóla
íslands 1939.
Hún kynntist ung að árum og
giftist heiðursmanninum Ragnari
Edvardssyni og eignuðust þau sex
mannvænleg börn.
Þegar börnin stálpuðust settist
hún í 3. bekk Kennaraskóla íslands
árið 1961 með Ebba syni sínum sem
hafði lokið 1. og 2. bekk og Iuku
þau saman kennaraprófi 1963. Jón-
ína var ekki í vandræðum með að
fá kennarastöðu í Reykjavík, en á
þeim tíma var ekki hlaupið í stöðu
við skóla borgarinnar. Barnaskólar
voru þá sjö en nú eru tuttugu og
sjö grunnskólar reknir af Reykjavík-
urborg.
Hinn mikli skólamaður og skáld
Hjörtur Kristmundsson sá strax að
þar fór góður starfskraftur þar sem
Jónína var og réð hana að skóla
sínum Breiðagerðisskóla strax að
loknu prófi.
Þar starfaði Jónína við góðan
orðstír í tvö ár. Ég þekkti Jónínu
ekki þegar hún hóf störf þar. Álfta-
mýrarskóli tók til starfa 1964 og
var nemendafjöldi þar mjög ört vax-
andi og var vandi minn að ná í sem
besta kennara því metnaðurinn var
mikill.
Ég hafði spurnir af Jónínu og
hennar ágæti sem kennara. Ég átti
tal við hana á vordögum 1966 og
'reyndi að fá hana að skólanum en
hann hafði allt að bjóða á þeim tíma,
það væri styttra fyrir hana að fara
frá heimili sínu og að öllu leyti
þægilegra fyrir hana sjálfa.
Hún sagði í fyrstu nei. Ég bað
hana hugsa sitt ráð og láta mig
vita innan viku. Hún talaði við mig
fyrir tilsettan tíma og sagðist vera
tilbúin ef ég skýrði tilflutninginn
fyrir Hirti Kristmundssyni, en ég
sagði henni að það væri hennar en
ekki mitt því skólastjórar tældu
ekki kennara hver frá öðrum. Jónína
hafði þá tekið ákvörðun og sagði
auðvitað geri ég það.
Vinur minn Hjörtur sagði eftir
samtal þeirra: „Djöfuls grikk ert þú
að gera mér strákur, en auðvitað
set ég ekki fót fyrir afbragðskenn-
ara.“ Málið var útrætt.
Jónína hóf störf við Álftamýrar-
skóla haustið 1966 og ég tók þá
ákvörðun að hún myndi kenna m.a.
4. - K. Sem traust mitt á hæfileik-
um Jónínu vil ég geta þess að ég
átti sjálfur tvö börn í þeim bekk,
en bekkurinn var stór, aðeins 36
böm, sem ekki þýddi að bjóða kenn-
urum í dag. Jónína kenndi þessum
bekk í þijú ár eða þar til þau fóm
í unglingadeild.
Sem dæmi um kappsemi og
áhuga fyrir velgengni nemenda
sinna kom hún eitt sinn til mín og
sagði: „Ragnar, það eru svo margir
með 10 í einkunn að ég verð að fá
að gefa 10+.“ Þú verður, svaraði
ég, þá að lækka einkunnirnar þann-
ig að þeir sem þú vilt gefa plúsinn
verði með 10. Það er útilokað sagði
hún, ekki hægt. Ég lét mig í það
skiptið sem oftar en sagði henni að
slíkt kæmi ekki oftar til greina og
10++ myndi ég aldrei samþykkja.
Þetta lýsir best harðfylgni hennar
og metnaði fyrir nemendum sínum.
Nemendur hennar stóðu við sínar
einkunnir þegar til framhaldsnáms
kom. Gamlir nemendur hafa oft
sagt við mig: „Hún var kröfuhörð
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð
um hinn látna.
ERFIDRYKKJUR
Perlan á Öskjuhlíð
peuan sími 620200
t
Móðir okkar,
MARGRÉT DUNGAL,
lést i Borgarspítalanum 25. apríl.
Sigrún Dungal,
Gunnar B. Dungal,
Páll Halldór Dungal.
t
Innilega þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð,
vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs sonar, bróður,
mágs og frænda,
MAGNA MÁS MAGNASONAR,
Akurgerði 15,
Akranesi.
Steinunn Jónsdóttir, Steinn Bragi Magnason,
Inga Birna Magnadóttir, Þröstur Haraldsson,
Sunna Björk Þórarinsdóttir, Birgir Baldursson,
Oddbjörg Jónsdóttir, Freydís Frigg Guömundsdóttir,
Steinunn Hlín, Elvar Árni og Jón Ingi.
Lokað
Einkaleyfastofan verður lokuð frá kl. 13.00
þriðjudaginn 28. apríl vegna útfarar
HANNESAR MAGNÚSSONAR, tæknifræðings.
en síðar kunnum við að meta það
og skynjuðum að það var fyrir okk-
ur.“
Jónína tók mikinn þátt í félags-
störfum og var þá oft valin til for-
ystu. Má þar nefna störf fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn en þar var hún m.a.
formaður Hvatar og í flokks- og
fulltrúaráði um árabil.
Öll þau félagasamtök sem Jónína
starfaði fyrir kann ég ekki að nefna.
Þegar börnin voru uppkomin
ákváðu hún og Ragnar að slíta sam-
vistir. Jónína eignaðist 1982 sinn
síðari mann Svein Sæmundsson
hinn ágætasta dreng sem reyndist
henni frábærlega ekki síst nú í þeim
veikindum sem hún hefur átt í.
Jónína lét af störfum við Álfta-
mýrarskóla um sl. áramót fyrir ald-
urssakir. Ég veit, þó hættur sé við
skólann, að ég mæli fyrir hönd
skólastjóra, kennara og alls starfs-
fólks skólans, þegar ég óska henni
velfarnaðar á þeim brautum sem
hún hefur nú lagt út á.
Manníjöldi sá sem fylgdi Jónínu
síðasta spölinn bar vott um virðingu
og vinsældir sem hún naut meðan
hún var og hét.
Megi sá sem öllu ræður hinn
hæsti höfuðsmiður himins og jarðar
vaka yfir henni og þeim sem henni
voru kærastir.
Fari hún í friði.
F.h. samstarfsfólks við
Álftamýrarskóla,
Ragnar Júlíusson,
fv. skólastjóri.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöf ða 4 — sími 681960
armarai
jan
Legsteinagerð
Höfðatúni 12, SEmi 91-629955
S.HELGASONHF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48-SlMI 76677