Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1992 Borgin rekur ekki veitingastaði í samkeppni við veitingamenn - segir Markús Örn Antonsson borgarstjóri MARKÚS ÖRN Antonsson borg- arstjóri segir, að borgin reki ekki veitingastaði í samkeppni við veitingamenn, eins og fram komi í bréfi Sambands veitinga- Opinn fund- ur SKOTVÍS SKOTVEIÐIFÉLAG fslands heldur fund mánudaginn 27. apríl klukkan 20.30 í Norræna húsinu. Umræðuefni fundarins er „Frumvarp til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fugl- um og villtum spendýrum öðr- um en hvölum“. Umhverfisráðherra, Eiður Guðn- ason, mætir á fundinn ásamt veiði- stjóra, Páli Hersteinssyni, og öðrum embættismönnum og sérfræðing- um. Fundarstjóri verður dr. Vil- hjálmur Lúðvíksson framkvæmda- stjóri. ' r og gistihúsa til borgarstjórnar. Rekstur veitingastaða í eigu borgarinnar, Viðeyjarstofu, Perlunnar, Ráðhúskaffis, Hótel Borgar og Kjarvalsstaða, er ýmist boðinn út eða samið er við veitingamenn um rekstur þeirra. í bréfi veitingamanna er bent á að hugsanlega verði komið upp veitingaaðstöðu í Laugardal í tengslum við Húsdýragarðinn og væntanlegan Fjölskyldugarð. Sagði Markús, að erindi veitingamann- anna vegna þessa hafi verið vísað til umhverfismálaráðs, sem taka mun afstöðu til þess hvort ástæða sé til að hverfa frá því að koma upp veitingaaðstöðu í dalnum. „Ég geri ráð fyrir því að tildrög bréfsins séu þau að endanlega var ákveðið að hafa veitingaaðstöðu í Ráðhús- inu,“ sagði Markús. „Ég held að menn sem leið eiga í Ráðhúsið núna eftir opnun sannfærist mjög fljótt um ágæti þeirrar ráðstöfun- ar, að hafa þarna litla kaffistofu, bar sem fólk getur sest niður og notið þessa einstaklega fagra út- sýnis yfir Tjörnina úr Ráðhúss kaff- istofunni. Það er aftur á móti ekki Reykjavíkurborg, sem stendur að þeim rekstri heldur var hann boðinn út og bárust nokkur tilboð og var hagstæðasta tilboði fyrir borgina tekið.“ Sagði hann, að uppbygging Við- eyjarstofu og bygging Perlunnar hafi alltaf miðast við að þar yrði veitingaaðstaða. Reykjavíkurborg væri hins vegar ekki í samkeppni við veitingamenn í borginni um rekstur veitingaaðstöðunnar. Gerð- ir hafa verið samningar við veit- ingamenn um reksturinn og hann boðinn út. Það sama ætti við um kaffisölu Kjarvalsstaða og á Korp- úlfsstöðum yrði að sjálfsögðu kom- ið upp veitingaaðstöðu í tengslum við safn Errós, sem þar verður til húsa. „Þeirri stefnu hefur hins veg- ar verið fylgt að leita samvinnu við veitingamenn sem gjarnan eru með sín fyrirtæki á markaðinum," sagði hann. Umsóknir um Sumardvöl í Orlofshúsum VR Auglýst er eftir umsóknum um dvöl í orlofshúsum VR sumarið 1992. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofu VR, þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi fimmtudaginn 30. apríl 1992. Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum: Húsafelli í Borgarfirði Svignaskarði í Borgarfirði Stykkishólmi Akureyri lllugastöðum í Fnjóskadal Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu Kirkjubæjarklaustri Flúðum, Hrunamannahreppi Miðhúsaskógi í Biskupstungum Ölfusborgum við Hveragerði Húsin eru laus til umsóknar á tímabilinu 29. maí til 18. september. BREYTTAR ÚTHLUTUNARREGLUR. Fram að þessu hefur tölva dregið úr öllum fullgildum umsóknum. Við þessa úthlutun byggist réttur til úthlutunar á félagsaldri í VR, að frádregnum fyrri úthlutunum orlofshúsa. Nánari upplýsingar um úthlutunarregiur fást á skrifstofu VR og er reglunum dreift með umsóknareyðublaðinu. Leigugjaldið er Kr. 8.500.- til 9.500.- á viku. Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu VR í síðasta lagi 30. apríl n.k. Upplýsingar um hverjir hafa fengið úthlutað orlofshúsi munu liggja fyrir 8. maí n.k. Umsóknareyðublöð ásamt reglum um úthlutun eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis, en senda má útfyllt umsóknareyðublöð í myndrita númer 678356. V Verzlunarmannafélag Reykjavíkur J ^ .j, , . Morgunblaðið/Ámi Helgason Bjartmar Guðlaugsson við eitt verka sinna. Stykkishólmur; Málverkasýmng hald- in í Norska húsinu Stykkishólmi. MÁLVERKASÝNING var haldin í Norska húsinu í Stykkishólmi dag- ana 12. og 13. apríl sl. Var hún mjög umfangsmikil og voru öll herbergi á efri hæð hússins notuð til sýningarinnar. Þessi sýning var í sam- bandi við og áframhald af vorvöku sem Emblurnar hér gengust fyrir. Þar sýndu verk sín Bjartmar Guð- laugsson vísnasöngvari með meiru og voru það bæði landslagsmyndir og eins andlitsmyndir af sérkennileg- um mönnum. Þá sýndi Ingi Hans Jónsson, Grundarfirði, myndir úr athafnalíf- inu. Ein sú ágætasta var af bátum hlið við hlið í höfninni. Gunnar Gunnarsson, myndlistar- kennari við Grunnskólann í Stykkis- hólmi átti einnig á sýningu þessari fjölda mynda af húsum, götum og gróðri hér í Hólminum og af hestum, hesthúsum o.fl. Þetta voru allt sölusýningar. Margir nýttu sér að skoða sýningúna þótt góða veðrið kallaði fólkið út í ríki náttúrunnar. Þess má geta að fengnar voru að láni á þessa sýningu myndir eftir Halldór Pétursson og Steinþór Sigurðsson listmálara. - Árni. KiTstján Guðmundsson Rjyndlist Eiríkur Þorláksson Það hefur oft verið erfitt að standa fýrir listsýningum á helgi- dögum, þegar fólki er meira um- hugað að njóta frídaganna en að fylgjast með því sem er að gerast á listasviðinu; væntanlega hefur nýliðin páskavika ekki verið nein undantekning frá þessu. SI. fimmtudag lauk lítilli sýn- ingu á verkum Kristjáns Guð- mundssonar í Galleríi einn einn við Skólavörðustíg. Kristján er meðal þekktustu myndlistarmanna Islendinga, þó ekki fari mikið fyrir honum í fjöl- miðlum. Síðasta einkasýning hans hér á landi var haldin í Slunkaríki á ísafirði fyrir kosningar á síðasta ári, en slíkar „kosningaárssýning- ar á þeim stað hafa verið regluleg- ur þáttur í sýningarhaldi Kristjáns um árabil. Annars hefur hann mest sýnt erlendis undanfarið, t.d. í Galerie Nordenhake í Stokkhólmi síðastliðið haust og svo í Galerie Anhava í Helsinki nú í vetur. í sambandi við fyrri sýninguna var gefin út verkleg sýningarskrá, sem einnig liggur frammi á sýn- ingimni í Galleríi einn einn. Á sýningunni nú getur að líta fjögur verk, sem öll eru nefnd teikningar. Tvö verk frá 1990 eru af sömu gerð og Kristján hefur verið að vinna með um nokkurra ára skeið. Þessi verk, sem eru gerð úr grafítlengjum og pappírs- rúlíum, má frekar líta á sem upp- setningar en teikningar, þar sem hráefni teikningarinnar eru ein- faldlega lögð fram og síðan er það áhorfandans að vinna úr mögu- leikunum; áreitið er fólgið í efn- inu, sem listamaðurinn hefur lagt fram. Hin tvö verkin, sem eru frá þessu ári og hinu síðasta, eru ann- arrar gerðar; þau minna að nokkru á framlag Kristjáns á Listahátíð í Hafnarfirði síðasta sumar, þó að þar hafi önnur efni verið á ferð- inni. Á meðan fyrmefndu verkin fjalla um efni teikningarinnar, má segja að þessi tvö reyni að af- marka rýmið, þann flöt sem teikn- ing nær yfir. Þetta gerir Kristján með því að afmarka stóra vegg- fleti skilmerkilega með venjulegu ritblýi, sem hann límir upp sem Kristján Guðmundsson. markalínur, í stað þess að draga þær; þannig er það enn hráefnið, sem Kristján leggur fram, en ekki notkun þess, t.d. með því að „teikna línurnar". Þessi upplíming er mikil nákvæmnisvinna, og mis- munandi skarpleiki flatanna kem- ur fram í misjafnri þykkt ritblýs- ins, sem samt er allt innan við millimetri á þykkt. Kristján heldur þannig áfram að fjalla um listina í sínum verk- um, og að gefa áhorfendum tæki- færi til að taka að sér hina endan- legu sköpun listaverkanna en dregur um leið í efa að hugtakið „endanlegt" getur nokkurn tíma átt við í myndlist. Því er ávallt 'forvitnilegt að fylgjast með á hvem hátt listamaðurinn tekst á við viðfangsefnið, og finnur sífellt ný atriði til að fjalla um. Þó óvíst sé hversu margir komi *á sýninguna í Galleríi einn einn, má telja víst að fleiri landsmenn hafi séð listaverk Kristjáns Guð- mundssonar síðustu daga en nokkru sinni fyrr. Verk hans, „Vatn - Silfur" prýðir fundarsal borgarstjórnar í hinu nýja Ráðhúsi Reykjavíkur. Vai verksins hefur verið umdeilt, en ætla má að hinir fjölmörgu gestir salarins undan- farna daga séu flestir sammála um að það tekur sig afar vel út á þessum stað í allri sinni hófsemi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.