Morgunblaðið - 26.04.1992, Side 25

Morgunblaðið - 26.04.1992, Side 25
seet j'iíha .as auoAauraíUB araAiavnjDfioM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ARRIL 1992 25 EPTA-tónleikar: Steinunn Birna í Islensku óperunni Píanóleikarinn á síðustu EPTA-i unn Birna Ragnarsdóttir, en hún óperunni mánudaginn 27. apríl kl Steinunn Birna Ragnarsdóttir er fædd í Reykjavík og stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík frá ellefu ára aldri. Þaðan lauk hún píanókennaraprófi árið 1979 ogein- leikaraprófi tveimur árum síðar. Þar var kennari hennar síðara árið Árni Kristjánsson. Hún fluttist til Boston til frekara náms og lauk masters- prófi frá New England Conservat- ory árið 1987 undir handleiðslu Mr. Leonard Shure. Hún starfaði á Spáni um tíma sem einleikari og þátttakandi í kammermúsík. Þar hlaut hún Gran Podium-verðlaun tónleikum þessa starfsárs er Stein- heldur einleikstónleika í Islensku . 20.30. „Juventuts de Musicals" í Barcelona og kom fram á ýmsum tónlistarhá- tíðum. Hún hefur einnig komið fram á tónleikum í Bandaríkjunum og á íslandi og starfar nú við Tónlistar- skólann í Reykjavík. Á efnisskrá Steinunnar eru tvær sónötur eftir Scarlatti, sónata í a-moll op. 143 eftir Schubert, Kinderszenen eftir Schumann og Ballade nr. 1 í g-moll eftir Chopin. Að venju verða tónleikarnir endur- teknir viku síðar í Kirkjuhvoli, Garðabæ, þ.e. laugardaginn 2. maí kl. 17. Alexander Makarov píanóleikari. Alexander Makarov með einleikstónleika ALEXANDER Makorov Goldfeder heldur einleikstónleika í Norræna húsinu sunnudaginn 26. apríl kl. 17. Alexander Makarov hefur áður haldið tónleika hér á landi, í Islensku óperunni í febrúar, og í mars lék hann einleik við opnun sýningar á verkum Finns Jónssonar i Listasafni íslands. Alexander er fæddur 1946 í Moskvu. Hann lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Moskvu 1970 undir handleiðslu Yakov Fleh- ar. Hann starfaði síðan i Moskvu sem einleikari og kennari auk þess sem hann hélt tónleika víða um lönd. Alexander neyddist til að taka sér listamannsnafnið Makarov í Rússlandi til að fela gyðinglegan uppruna sinn. En árið 1976 óskaði Alexander eftir að fá að flytja frá Rússlandi til ísraels en beiðni hans var synjað, í kjölfar þessa var hon- um hins vegar meinað að fara í tónleikaferðir utan Rússlands. Það var svo ekki fyrr en árið 1989 að beiðni hans um að flytja úr landi hlaut náð fyrir augum ráðamanna í Moskvu og það sama ár fluttist hann til ísraels ásamt fjölskyldu sinni. Síðastliðið ár dvaldi Goldfeder í Þýskalandi og Hollandi þar sem hann hefur haldið fjölda tónleika. Fyrir skemmstu var hann á tón- leikaferðalagi um Holland, þar lék hann meðal annars á tónleikum í Amsterdam sem haldnir voru í minningu hins þekkta píanóleikara Glenn Gould. Alexander Goldfeder hefur dvalið á Islandi frá áramótum ásamt fjöl- skyldu sinni, en kona hans, Ivegen- ia, er listdansari og kennir hjá Is- lenska dansflokknum og Listdans- skólanum. Á tónleikunum í Norræna húsinu leikur Alexander verk eftir Beet- hoven, Chopin, Debussy, Rachman- inoff og Prokofiev. Miðaverð á tón- leikana er kr. 1.000 og eru miðar seldir í bókabúðinni Borg, Lækjar- götu 2, og við innganginn. (Fréttatilkynning) Viðbygging við dval- arheimilið boðin út NÝLEGA voru opnuð tilboð í viðbyggingu við dvalarheimili aldr- aðra, Sólvelli á Eyrarbakka. Viðbyggingin verður á tveimur hæð- um, samtals 204 fermetrar. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 9.602.116 kr. Þijú lægstu tilboðin voru: Fróði Larsen 7.111.209 kr., G-verk sf. 7.634.263 kr., Björn Sigurðsson og Guðmundur Magn- ússon Eyrarbakka, 8.318.435 kr. og hæsta tilboðið átti Sveinn Páls- son í Hveragerði kr. 11.876.441. Tilboðin miðast við uppsteypt hús, fullfrágengið að utan og frá- gengna lóð. Verkinu á að skila í lok ágúst. Félagsheimilið Staður Hafin er vinna við stækkun fé- lagsheimilisins Staður á Eyrar- bakka. Verkið var boðið út og átti Hreiðar Hermannsson á Selfossi lægsta tilboðið, 19.800.800 kr. Kostnaðaráætlun var 24.700.000 kr. Miðað er við að húsinu verði skilað fullfrágengnu að utan og þak og gluggar gamla hússins verði endurnýjað, enda fellur það inn í heildarmynd byggingarinnar. Húsið sem byggt er við er um 150 fermetrar, en stækkunin er 512 fermetrar. Húsið á að verða fjöl- nota, þ.e. bæði til samkomuhalds og íþróttaiðkana. Verkinu á að vera lokið 1. október nk. Þegar hafa verið steyptir sökklar og virð- ist verkinu miða mjög vej. Óskar Borgarráð: Tilboð í dælustöð 75% af kostnaðaráætlun BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu Innkaupastofnunar Reykjavíkur um að taka 38,7 milljóna króna tilboði lægstbjóðanda Skipasmíðastöðv- arinnar Drafnar hf. í byggingu dælustöðvar fyrir Hitaveitu Reykjavik- ur við Víkurveg. Tilboðið er 75,44% af kostnaðaráætlun, sem er rúmar 52 milljónir króna. Steinunn Birna Ragnarsdóttir Tíu tilboð bárust í bygginguna og átti Örn Úlfar Andrésson næstlægsta boð en hann bauð rúmar 40,6 millj. eða 78,10% af kostnaðaráætlun, næstir komu Völur hf., sem bauð 41,8 millj. eða 80,44% af kostnaðar- áætlun, Istak hf. bauð 43 millj. eða. 82,82% af kostnaðaráætlun, Ártún hf. bauð rúmar 43,4 millj. eða 83,43% af kostnaðaráætlun, Grétar Sveins- son bauð 44,3 millj. eða 85,17% af kostnaðaráætlun og Hagvirki-Klett- ur hf. bauð 45,8 millj. eða 88,16% af kostnaðaráætlun, en við yfirferð tilboðsins kom í ljós að tvo liði vant- aði í tilboðið. Þá bauð Einar Þór Yngvason 46,2 millj. í verkið eða 88,88% af kostnaðaráætlun, Sigurð- ur K. Eggertsson hf. bauð 49,8 millj. eða 95,83% af kostnaðaráætlun og Gunnar og Guðmundur sf. buðu 53,3 millj. eða 102,53% af áætlun. Kaldársel eru sumarbúðir KFUM og KFUK í Hafnarfirði og reknar á kristilegum grundvelli. í hverj- um flokki eru u.þ.b. 35 börn, sem dvelja 7-14 daga í senn. Starfsmenn eru 7 og sumir með langa reynslu í.starfi meðal barna í sumarbúðum. Staðurinn er um 7 km fyrir austan Hafnarfjörð á falleg- um stað, sem býður upp á skemmtilega náttúru, sem mikið er notuð til skoðunar og skemmtun- ar. Farið í leiki, íþróttir stundaðar o.fl., o.fl. Á kvöldin eru kvöldvökur með fjölþreyttri dagskrá og hugleiðingu um orð Guðs. DVALARFLOKKAR SUMARIÐ 1992 Drengir: 4.-11. júní - 7 dagar 11.-25. júní - 14 dagar (hægt að fá viku) 1 -8. júlí - 7 dagar 8.-15. júlí - 7 dagar 15.-22. júlí - 7 dagar Stúlkur: 22.-29. júlí - 7 dagar 4.-11. ágúst - 7 dagar 11.-18. ágúst - 7 dagar 18.-25. ágúst - 7 dagar Allir flokkarnir eru fyrir börn 7-12 ára. Innritun og nánari upplýsingar eru veittar á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 17—19 eftir 21. apríl á Hverfisgötu 15 í Hafnarfirði, sími 91-53362 (símsvari á öðrum tímum). Eftirfarandi fyrirtæki fá bestu þakkir fyrir veittan stuðning. BÓNUS býður betur Reykjavikurvegi 72. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Strandgötu 33, Hafnarfirði Ámaurhraun ARNARHRAUNI 21 - SIMI 52999 VESTFJARÐALEIÐ Jóhannes Ellertsson Sæluni 4 -. 105 Reykjavík W .."l'iMi Kcnnil.; 22()bIB-421M VsL nr 10 ** OBBHBEll HÚSGAGNAVERSLUN Hl VKJAVÍKOHVUil bt. IIAI NAHI IRDI SÍMI S4 lOO STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Tryggvi filafsson, úrsmiður, Strandgötu 17, s. 53530 Bæjarbakarí, Bæjarhrauni 2 opið alla daga s. 50480 Allt til hreinlætis. TANDUR sf. Dugguvogi 1, Rvík Sími 688855 Efnaverksmiðjan Sjöfn styrkir sumarstarf í Kaldárseli Samúel V. Jónsson pípulagningameistari, Skútahrauni 17a, s. 54810, bílas. 985-23512 Skóhöllin, Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði, s. 54420 GUÐIYIUnÐUR flRflSOn SKÚTUV0GI 4 - PÓSTHÓLF 385 - 121 REYKJAVÍK Tryggingafélag bindindismanna Lágmúla 5, sími679700. MEISTARINN Dugguvogi3 sími 34340

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.