Morgunblaðið - 26.04.1992, Síða 27

Morgunblaðið - 26.04.1992, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1992 27 JATV'IMPÍliAUOI YSINGAR Viðskiptafræðingur af fjármála- og reikningshaldssviði óskar eft- ir góðu framtíðarstarfi á Reykjavíkursvæðinu. Góð starfsreynsla, ágæt málakunnátta, gott viðmót. Vinsamlega sendið tilboð til auglýsingadeildar Mbl. merkt: „Viðskipti - 9674“ fyrir 6. maí. Gæðastjórnun Nemi sem á eftir 1 ár í BS-próf í gæðastjórn- un óskar eftir sumarstarfi, t.d. hjá fyrirtæki sem er að taka upp altæka gæðastjórnun eða ÍSÓ 9000. Upplýsingar í síma 91-812439. Sölufulltrúi - tölvur Virt fyrirtæki á sviði tölvusölu óskar eftir sölufulltrúa. Starfið felst í markaðssetningu og sölu á þekktum vél- og hugbúnaði. Viðkomandi þarf að fullnægja eftirfarandi skilyrðum: • Hafa þekkingu á tölvum • Hafa reynslu af sölumennsku • Geta unnið sjálfstætt • Vera hugmyndaríkur og geta lagast að breyttum markaðsaðstæðum. • Vera vel skipulagður. Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast skilað á auglýsingadeild Morgunblaðsins merktar: „Sölufulltrúi - 13539" fyrir 4. maí nk. Aðstoðarmaður á rannsóknastofu Virt fyrirtæki í matvælaiðnaði óskar eftir að ráða aðstoðarmann á rannsóknastofu þess. Um er að ræða starf sem m.a. felur í sér efnagreiningar og örverugreiningar ásamt reglubundnum athugunum á framleiðslunni í vélasal. Sú menntun sem einna helst er höfð í huga er að viðkomandi hafi lokið námi sem meinatæknir, matvælafræðingur eða líffræðingur. Umsóknir ásamt hugmyndum um laun skilist inn til auglýsingadeildar Mbl. fyrir fimmtudaginn 30. apríl. merktar: „Rannsókn - 11263“. KENh HÁSKOLI ÍSLANDS Laus staða Við Kennaraháskóla íslands er laus til um- sóknar staða lektors í kristnum fræðum og trúarbragðasögu. Auk fullgilds háskólaprófs í grein sinni skal umsækjandi hafa próf í uppeldis- og kennslufræðum eða að öðru leyti talinn hafa nægilegan kennslufræðileg- an undirbúning. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og skólastarfi almennt. Umsókn fylgi ítarleg skýrsla um vísindastörf, ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar um námsferil og önnur störf. Þau verk sem umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um skulu einnig fylgja. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst 1992. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands v/Stakkahlíð, 105 Reykjavíkfyrir 18. miaí nk. Rektor. Sölustarf Sérhæft fyrirtæki í matvælaframleiðslu vant- ar dugmikinn og líflegan sölumann. Starfið krefst sjálfstæðrar hugsunar og skipulags- hæfileika og býður upp á góða tekjumögu- leika. Verður að hafa bíl til umráða. Vinsamlegast leggið inn skilaboð í síma 11103 eða 11666. Hótel Valhöll Þingvöllum óskar eftir starfsfólki til ýmissa hótelstarfa í sumar. Upplýsingar í síma 98-22686 og á staðnum dagana 27.-29. apríl. Verkstjóri Óskum eftir að ráða verkstjóra til starfa við malbikunarframkvæmdir. Reynsla í verk- stjórn æskileg. Upplýsingar gefur Sigurður í síma 91- 652030. Malbikunarstöðin Hlaðbær Colas hf. Fóstrur Fóstrur eða starfsmenn með aðra uppeldis- menntun óskast á Leikskólann Hvamm. Hvammur er þriggja deilda leikskóli með áhugasömu starfsfólki sem vinnur að því að þróa breytingar á starfseminni. Upplýsingar gefur leikskólastjóri í síma 650499. Ennfremur veitir leikskólafulltrúi upplýsingar um störfin í síma 53444. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. Frá Fræðsluskrifstofu Austurlands Lausar stöður við grunnskóla í Austurlandsumdæmi Umsóknarfrestur til 8. maí Stöður skólastjóra við Grunnskólann Borgar- firði eystra og Grunnskólann Beruneshreppi. Kennarastöður við eftirtalda grunnskóla: Seyðisfjarðarskóla: Almenn kennsla. Grunnskóla í Neskaupstað: Almenn kennsla. Grunnskóla Eskifjarðar: Meðal kennslu- greina, íþróttir. Grunnskólann á Bakkafirði: Almenn kennsla. Grunnskólann Borgarfirði: Almenn kennsla. Brúarásskóla: Almenn kennsla. Fellaskóla: Almenn kennsla. Grunnskólann Eiðum: Almenn kennsla og danska. Egilsstaðaskóla: Meðal kennslugreina, smíðar, tónmennt, stærðfræði, raungreinar, sérkennsla og íþróttir. Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar: Almenn kennsla. Grunnskólann Stöðvarfirði: Almenn kennsla. Grunnskólann Djúpavogi: Meðal kennslu- greina, íþróttir, myndmenntog raungreinar. Nesjaskóla: Kennsla yngri barna og sérkennsla. Grunnskóla á Höfn: Meðal kennslugreina, tónmennt og myndmennt. Grunnskólann Mýrahreppi: Almenn kennsla. Fræðslustjóri Austurlands. Fasteignasala óskar að ráða viðskiptafræðing eða lögfræð- ing til starfa strax. Þarf að geta unnið sjálf- stætt og vera skipulagður/skipulögð og geta unnið undir miklu álagi. Um er að ræða krefj- andi starf. Eignaraðild hugsanleg. Upplýsingar er greini frá nafni og starfsferli sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „X - 11270“ fyrir 1. maí. Hjúkrunarfræðingar óskast til sumarafleysinga á sjúkrahúsið Vog/SÁÁ, frá júní til september. Eingöngu morgun- og kvöldvaktir. Þeir hjúkrunarfræðingar, sem áhuga hafa á að kynna sér starfið og þau kjör sem í boði eru, vinsamlegast hafið samband við hjúkr- unarforstjóra í síma 681615. RIKISSPITALAR Reyklaus vinnustaður RANNSOKNASTOFA HASKOLANS í MEINAFRÆÐI LÍFFRÆÐINGUR- MEINATÆKNIR Líffræðingur eða meinatæknir óskast til starfa um óákveðinn tíma í rannsóknarverk- efni. Reynsla af sameindalíffræði æskileg. Viðfangsefni eru rannsóknir á krabbameini. Upplýsingar gefa Sigurður Ingvarjsson og Valgarður Egilsson, Rannsóknarstofu Há- skólans í meinafræði (frumulíffræði), sími 601903 og 601906. RÍKISSPÍT ALAR Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður á íslandi með starfsemi um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri meðferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstótta og fjölbreyttri rannsóknastarf- semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og meö, og leggjum megináherslu á þekkingu, kærleik og virðingu fyrir einstaklingn- um. Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi. Aðalbókari Óskum að ráða aðalbókara til starfa hjá traustu útflutningsfyrirtæki. Starfssvið: Yfirumsjón og stjórnun bókhalds- vinnslu. Afstemmingar, uppgjör, frágangur bókhalds til endurskoðunar. Vinnsla tölfræði- legra upplýsinga og skýrslugerð. Erlend sam- skipti. Aðalbókari er staðgengill fjármála- stjóra. Við leitum að manni sem hefur haldgóða þekkingu og reynslu af umfangsmiklu bók- haldi. Viðskipta/verslunarmenntun nauðsyn- leg. Góð enskukunnátta nauðsynleg. Laus strax eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar: „Aðalbókari 110". fyrir 1. maí nk. Hagva [ nsurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.