Morgunblaðið - 19.06.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
33
Djassklúbb-
ur Egilsstaða
í tónleika-
för nyrðra
DJASSKLÚBBUR Egilsstaða
verður í snöggri tónleikaferð um
Norðausturland um helgina.
í kvöld, föstudagskvöldið 19. júní,
verða haldnir tónleikar á Hótel Húsa-
vík og hefjast þeir kl. 21, á morgun,
laugardag, verða tónleikar í Sælu-
húsinu á Dalvík kl. 16 og síðustu
tónleikamir verða á Hótel KEA á
Akureyri kl. 21 á laugardagskvöld.
Á tónleikunum koma fram Djass-
kórinn Amdís frá Egilsstöðum, Garð-
ar Harðarson blúsari og hljóðfæra-
leikararnir úr Djasssmiðju Austur-
lands. Gestir á tónleikunum verða
Viðar Alfreðsson, trompetleikari og
Jón Páll Bjarnason, gítarleikari.
Tónleikaferð Djassklúbbs Austur-
lands er farin til þess að hita upp
fyrir hina árlegu Djasshátíð á Egils-
stöðum og kynna hana. Hátíðin sem
hefst 25. júní næstkomandi er sú
fímmta í röðinni. Á henni koma fram
þeir listamenn sem eru með í tón-
leikaferðinni auk fjölda annarra.
(Fréttatilkynning)
----------------
Ráðstefna um at-
vinnusköpun kvenna:
Markaðstorg
o g umræður
RÁÐSTEFNA um atvinnusköpun
kvenna, undir yfirskriftinni „Að
taka málin i eigin hendur“ verður
sett í Alþýðuhúsinu á Akureyri í
dag, föstudag.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þing-
kona flytur erindi senT nefnist Tíma-
mót, ný byijun, á föstudagsmorgun,
en eftir hádegi verður unnið í hópum
þar sem fjallað verður um mismun-
andi leiðir kvenna til áhrifa.
Síðdegis verður haldið markaðs-
torg í Alþýðuhúsinu þar sem þátttak-
endur kynna vörur sínar, þjónustu
og aðgerðir, en um kvöldið verður
dagskrá í Kvennalundi í Naustaborg-
um þar sem m.a. verður plantað og
grillað.
Stefanía Traustadóttir félagsfræð-
ingur flytur erindi seinni ráðstefnu-
daginn, sem nefnist Samkeppn-
in/samstaðan, Konan, ísland og
umheimurinn. Síðan verður unnið í
hópum um leiðir til atvinnusköpunar.
Lynn Ludlam framkvæmdastjóri með
eigin atvinnurekstur í almanna-
tengslum og markaðssetningu í Los
Angeles í Bandaríkjunum flytur fyr-
irlestur kl. 13.30 á laugardag, en
síðdegis verður unnið í hópum undir
yfírskriftinni Að skipuleggja framtíð-
ina.
Að lokum verða pallborðsumræður
um framtíðarsýn um stöðu kynja,
atvinnusköpun og áhrif kvenna, en
ráðstefnunni lýkur kl. 18 á laugar-
dag.
------» » »-----
Píanótón-
leikar í
Safnahúsinu
TÉKKNESKI píanóleikarinn Pa-
vol Kovác heldur tónleika í Safna-
húsinu á Húsavík sunnudags-
kvöldið 21. júní kl. 20.30.
Á efnisskránni eru sónötur eftir
Mozait og Beethoven og polkar og
pólonesur eftir Chopin, Smetana og
Listz.
Pavol Kovác nam píanóleik í
heimalandi sínu, en er nú búsettur í
Þýskalandi. Hann hefur haldið tón-
leika í yfír 30 löndum og kemur til
íslands úr tónleikaferð um Bandarík-
in. Auk tónleikanna á Húsavík leikur
hann einnig í Listasafni Siguijóns
Ólafssonar næstkomandi þriðjudags-
kvöld.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Það er vandasamt verk að stilla um 130 manna hópi upp til myndatöku, en Páll Pálsson ljósmyndari bar sig fagmannlega að er hann
stillti nýstúdentum Menntaskólans á Akureyri upp í Stefánslundi á þjóðhátíðardaginn.
127 stúdentar brautskráðust frá Menntaskóianum á Akureyri:
Meðaleinkunn á stúdentsprófi
ekki verið hærri í marga áratugi
43% nýstúdenta með fyrstu einkunn
SKÓLAHÁTÍÐ Menntaskólans á
Akureyri var haldinn á þjóðhá-
tíðardaginn, 17. júní. Að þessu
sinni voru 127 stúdentar braut-
skráðir frá skólanum, en alls
hafa 4.779 stúdentar verið braut-
skráðir frá skólanum. Meðalein-
kunn á stúdentsprófi nú var 7,22
og hefur hún ekki verið svo há
í áratugi, að sögn Tryggva Gisla-
sonar skólameistara. Tæpur
helmingur nemenda, eða 43%
þeirra, náði fyrstu einkunn og
sagði Tryggvi að slíkt tækist
ekki nema með mikilli vinnu
bæði nemenda og kennara. Með-
aleinkunn á stúdentsprófi hefði
verið að hækka hægt og sígandi
undanfarin ár, en hefði ekki ver-
ið hærri en nú í áratugi. Hæstu
einkunn á stúdentsprófi hlaut
Finnur Friðriksson, 9,51.
Fjölmenni var við skólahátíð
Menntaskólans á Akureyri, svo sem
venja er, en fulltrúar afmælisár-
ganga voru viðstaddir, þ.e. 50 ára,
40 ára, 30 ára, 25 ára, 20 ára, 15
Niðjamót í Grímsey:
íbúatalan tvöfaldaðist
Grímsey.
ÍBÚATALA Grímseyjar tvö-
faldaðist um helgina þegar þar
var haldið niðjamót afkomenda
lngu Jóhannesdóttur, en Inga
var tvígift, fyrri maður hennar
var Bjarni Gunnarsson, en
seinni maður hennar var Guð-
laugur Óli Hjálmarsson. Af-
komendurnir eru á fjórða
hundrað talsins, búsettir víðs
vegar um landið.
Inga Jóhannesdóttir var fædd
20. júní árið 1874, en hún lést
18. júní 1975. Hún giftist Bjarna
Gunnarssyni og bjuggu þau í
Fjörðum og síðar Steindyrum á
Látraströnd. Bjarni fórst í sjóslysi
er þau höfðu verið gift í 10 ár.
Seinni maður Ingu var Guðlaugur
Óli Hjálmarsson en þau fluttu til
Grímseyjar árið 1914. Þau bjuggu
að Básum um 15 ára skeið, en
fluttu þá til Húsavíkur, en aftur
komu þau til Grímseyjar árið 1935
og byggðu þá upp húsið að Garði
þar sem þau þjuggu alla sína
ævi. Guðlaugur Oli lést árið 1956,
en Inga sem fyrr sagði árið 1975.
Niðjamótið tókst i alla staði
vel, að sögn Huldu Reykjalín og
var glatt á hjalla um helgina.
Böm og fullorðnir. skemmtu sér
saman í félagsheimilinu Múla á
föstudagskvöld og á laugardag
var afhjúpaður minnisvarði um
Ingu og eiginmenn hennar, en það
er steinn tekin úr landi Bása með
áletraðri plötu.
Inga og Bjarni eignuðust þijú
börn, en með Guðlaugi Óla eign-
aðist hún eitt bam. Flestir Gríms-
eyingar geta rakið ættir sínar til
Ingu og einhvern tíma var haft á
orði, að hún væri amma allra
Grímseyinga.
„Það var mikil og góð samstaða
á niðjamótinu og við viljum senda
bestu þakkir til allra sem gerðu
þetta mögulegt,“ sagði Hulda.
- HSH
ára, 10 ára, 5 ára og 1 árs stúdenta.
Tryggvi gerði í ræðu sinni að
umtalsefni óvissu er ríkti í skóla-
og menntamálum. Sífellt væri verið
að leita nýrra leiða og margt hefði
gott verið gert frá því fræðslulög
vora sett 1946. „Ekki hefur þó á
þessum tíma tekist að fullgera neitt
og flestir skólar landsins meira og
minna hálfkaraðir og búa sumir við
þröngan kost, enda er það skoðun
mín að skóla- og menntastefnu
vanti — og hafi lengi vantað á ís-
landi. Misjafnt gengi nemenda staf-
ar meðal annars af því að stefnu í
skóla- og menntamálum vantar."
Umræða um skólamál hefði mót-
ast af tali um fjármál, en menntun
yrði ekki keypt fyrir peninga eins
og önnur vara. Sá sem öðlast vildi
menntun fengi hana aðeins með
eigin vinnu. Skólum landsins hefði
verið fengið það hlutverk sem heim-
ilin höfðu áður varðandi uppfræðslu
og uppeldi og ummönnum barna
og ungmenna. Þetta hefði dregið
dilk á eftir sér sem nú yrði að taka
afleiðingunum af.
Þá nefndi Tryggvi að allt stefndi
Sjávarútvegsdeildin á Dalvík - VMA
Framhaldsskólakennarar
Lausareru kennarastöður veturinn 1992-93.
Kennslugreinar: Enska, danska, raungreinar og
faggreinar stýrimanna- og fiskiðnaðarnáms.
Umsóknarfresturtil 25. júní.
Upplýsingar í símum 96-61380, 96-61381
og 96-61 162.
Skólasl|óri.
í að framhaldsskólar landsins yrðu
héraðsskólar og MA yrði héraðs-
menntaskóli Eyjafjarðar. Fram-
haldsskólar hefðu verið stofnaðir í
öllum kjördæmum og hefði slíkum
skólum fjölgað úr 5 í 26 á 20 árum.
Þessari þróun yrði ekki snúið við
og væri það styrkur hveiju sveitar-
félagi og hagur heimila að halda
ungu fólki í heimabyggð svo lengi
sem kostur væri. Á meðan þessi
nýja skólaskipan hefði ekki fest sig
í sessi væri hætta á ríg milii skóla
og héraða.
-------» ♦ ♦--------
■ HLJÓMS VEITIN Svartur
pipar leikur á tveimur dansleikjum
í 1929 á Akureyri föstudaginn 19.
og laugardaginn 20. júni. Hljóm-
sveitina skipa: Jón Borgar Lofts-
son, trommur, Hafsteinn Val-
garðsson, bassi, Veigar Margeirs-
son, hljómborð og trompet, Ari
Einarsson, gítar, Ari Daiiíelsson,
saxafónn og Hermann Ólafsson,
söngur. Hljómsveitin hefur nú feng-
ið til liðs við sig söngkonuna Mar-
gréti Eir.