Morgunblaðið - 19.06.1992, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1992
51
©
VELVAKANDI
H.JOL
Dino barnahjól með hvítu og
bleiku skrauti var tekið við
Holtasel 9. maí sl. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 71812 eða síma 642815.
LÆÐA
Lítil svört læða með hvítar
loppur fannst við Stuðlasel.
Hún er mannelsk og hefur
greinilega búið í góðu yfirlæti.
Eigandi hennar er vinsamlega
beðinn að hringja í síma 76886.
ÚR
Uranus drengjastálúr með
brúnni leðuról tapaðist 14. júní
við Reykjanesbraut eða á leið-
inni þaðan að Básendum.
Finnandi er vinsamlegast beð-,
inn að hringja í síma 35796.
LEIKSKÓLA-
TASKA
Lítill drengur tapaði leik-
skólatöskunni sinni í strætis-
vagnabiðskýli við Fjallkonuveg
föstudaginn 16. júní. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hringja í síma 616126.
ÓVIÐEIGANDI
BRANDARAR
Guðmundur Jónsson:
Ég var að fá sendar bækur
fyrir dóttur mína frá Barna-
bókaklúbbi Máls og Menning-
ar, en ég er áskrifandi að þess-
um bókaflokki. Til þessa hef
ég ekkert haft við þessar bæk-
ur að athuga, en dóttir mín 7
ára fær sendar bækur úr flokki
fyrir 7-11 ára gömul börn. Með
síðustu bókasendingu kom sér-
stök brandarabók, þar sem
nokkur hundruð gátur eru
gefnar upp, með svörum á bak-
hlið. Flestar gáturnar eru létt-
ar, kannski vitlausar, en fyrir
unglinga er þetta þó það, sem
mál og menning þeirra snýst
um dags daglega.
En nú blöskrar mér alveg.
Innan um gáturnar voru nokkr-
ar spurningar, sem ég get eng-
an veginn sætt mig við að 7
ára dóttir mín sé að lesa, fyrir
utan hvað það tekur langan
tíma að útskýra öll atriði
spurninganna og svörin sömu-
leiðis. Hér eru nokkur sýnis-
horn:
Spurn.: Hvað heitir ánægjuleg-
asta hljómsveitin?
Svar: Sjálfsfróun.
Spurn.: Af hverju tekur amma
inn pilluna?
Svar: Af því að hún vill ekki
eignast fleiri barnabörn.
Spurn: Af hverju tekur Sigga
litla inn pilluna?
Svar: Af því að hún vill ekki
eignast fleiri dúkkur.
Það getur verið að einhveij-
um finnist þetta vera óþarfa
viðkvæmni en ég tel það þó
ekki vera. Fyrir 7 ára gömul
börn mætti velja aðeins betri
spurningar. Synir mínir 13 og
15 ára geta hlegið að þessum
brönduðum, því að þeir skilja
þá, en dóttir mín ekki. Hún er
aðeins búin að vera tvö ár í
skóla og orðaforðinn er ennþá
takmarkaður.
ÓSKAROG
VINUR HANS
Óskar og vinur hans, þið sem
voruð á heimsmeistaramóti
unglinga í skíðaíþróttum í Vu-
okatti í Finnlandi 18.-31, mars
1992. Munið þið eftir mér? Ég
er stelpan með brúna hárið og
gleraugun. Þið skrifuðuð nöfn
ykkar í heftið mitt og ég tók
mynd af ykkur. Óskar er rauð-
hærður og vinur hans var með
íslenska fánann á hatti sínum.
Báðir voru í bláum íþróttabux-
um og rauðum úlpum. Ég var
í brúnni úlpu og var með lítið
veski. Ég vil gjarnan heyra frá
ykkur og hef nokkuð þýðingar-
mikið að segja ykkur. Ég bið
Óskar eða vin hans að skrifa
til mín á sænsku eðá ensku.
Sari Karhu
Korpisalo
SF-88530 Paakki
Finland
Hefjum
hvalveiðar
áný
Frá Vilhjálmi Alfreðssyni:
Þær fréttir að samdráttur þorsk-
afla Íslendinga verði hugsanlega
fjörutíu prósent, samkvæmt skýrslu
Alþjóða hafrannsóknaráðsins,
hljóta að vekja ýmsar spurningar.
Hvers vegna eru hvalveiðar
bannaðar? Hvers vegna eru selveið-
ar bannaðar? Þessar dýrategundir
eru einmitt að gereyðileggja ís-
landsmið. Erlendir aðilar hafa séð
til þess að þessar veiðar séu bannað-
ar. Og nú ætlast erlendir aðilar einu
sinni enn til þess að íslendingar
beygi sig. Ég segi nei! Tími er til
þess kominn að reka harðari þjóð-
ernisstefnu. Tími er til þess kominn
að íslensk yfirvöld átti sig á hvað
er að gerast.
VILHJÁLMUR ALFREÐSSON
Efstasundi 76, Reykjavík.
Pennavinir
Fimmtán ára bandarískur piltui
með margvísleg áhugamál:
Vincent Fagone,
715 Rocky Trail Road,
Ilenderson,
Nevada 89014,
U.S.A.
Sextán ára japönsk stúlka me-
áhuga átónlist, kvikmyndum o.fl.:
Hiromi Yano,
90 Saiwaicho Toyouracho,
Abutagun,
Hokkaido,
049-54 Japan.
Bandarískur karlmaður, 32 ára
með áhuga á mótorhjólum, dansi.
tónlist, ferðalögum, vill skrifast á
við 18-32 ára konur:
Matthew Bingenheimer,
P.OJBox 16,
Winnebago,
Wisconsin 54985,
U.S.A.
LEIÐRÉTTING
Eigandinn ekki
knapinn
Þau mistök urðu í frásögn frá hesta-
móti Geysis, að sagt var Erlendur
lngvarsson hafi orðið í fyrsta sæti
á Stjarna frá Skarði í unglinga-
flokki. Hið rétta er að knapi var
Þórhallur Hlynur Árnason, en Er-
lendur Ingvarsson á aftur á móti
Stjarna.
KÆRA JELENA
í kvöld kl. 20.30
Lou. 20. júní kl. 20.30.
Sun. 21. júní kl. 20.30.
Miðapantanir hjó Leikfélagi Akureyrar.
Egilsstaðir - Valaskjálf
Mén. 22. júní kl. 21.
Þri. 23. júní kl. 21.
Miðapantanir í Volaskjólf.
Neskaupstaður - Eoilsbúö
Mið. 24. júní kl. 21.
Miðapantanir í Egilsbúð, sími 71321.
Húsavík - Samkomuhúsið
Fim. 25. júni kl. 21.
í leikferð um Norður- og Austurland
Miðapantanir í Samkomuhúsinu fró 21.
júní, sími 41129.
ðlatsfjörður - Félagsbeimiiið Tjamarborg
Lau. 27. júní kl. 21.
Miðapantanir í Félagsheimilinu daglega
fró kl. 19-21, sími 62188.
Skagafjðrður - Miðgarðm
Sun. 28. júní kl. 21.
Miðasala samdægurs í félagsheimilinu.
Blðnduós - félagsheimilið
Mén. 29. júní kl. 21.
Miðasaln semdægurs í félagsheimilinu.
Or leikdómum um Kæru Jelenu:
„Það er hreinn unaður að sjð verk af þessu togi og enginn ætti að lóta það framhjð
sér fara.“ (Súsanna Svavarsdóttir, Mbl.)
„Þessi sýning er gimsteinn, vandlega slípaður af Þórhalli Sigurðssyni.“ (Silja Aðal-
steinsdóttir, Rés 1)
„Það hlýtur að gleðjo hjarta hvers leikhúsgests að verða vitni að jafn glæsilegri
frumraun nýrror kynslóðar leikara." (Ingólfur Margeirsson, Alþbl.)
GEYMIfl AU6LÝSIM6BMA
GLÆSILEG SUMARHUS
lili
Við erum að hefja smíði á
stórglæsilegum sumarhúsum í
landi Vaðness í Grímsnesi.
Húsin verða til afhendingar næsta vor.
Landið er kjarri vaxið eignarland
einn hektari fyrir hvert hús,
rafmagn, heitt og kalt vatn
verður til staðar.
Athugið að aðeins er um þrjú hús
að ræða á þessum eftirsótta stað
nánari uppl. veitir Ólafur á skrifstofu
okkar að Hjallahrauni 10 Hafnarfirði.
STOFKIB 1975
HJALLAHRAUNI 10-220 HAFNARFIRÐI - SÍMI 51070 - FAX 654980
ÁRATUGA REYNSLA TRYG6IR GÆOIN