Morgunblaðið - 20.06.1992, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1992
Edda Jóns-
dóttír sýn-
iríGall-
eríi Umbra
EDDA Jónsdóttir myndlistarmað-
ur sýnir um þessar myndir nokkr-
ar myndir í Galleríi Umbra, Torf-
unni, Amtmannsstíg 1.
Sýningin var opnuð í gær, 18. júní
og munu myndir Eddu verða til sýn-
is fram til 8. júlí næstkomandi. Gall-
eríið er opið þriðjudaga til laugar-
daga frá klukkan 12 til 18 og sunnu-
daga frá klukkan 14 til 18.
----» ------
Hækkun 4-9%
ekki 40%
í grein Magnúsar Oddssonar í
föstudagsblaðinu varð sú meinlega
prentvilla að sagt var að verð á Is-
landsferðum á markaði á meginlandi
Evrópu hefði hækkað um 40% 1991-
1992. Þetta er ekki rétt eins og kem-
ur að vísu fram skömmu síðar í grein-
inni, heldur var hækkunin á bilinu
4-9%.
Óiympíuskákmótið í Manila:
Heimabrugg Portíschs
dugði ekki gegn Helga
Skák
Bragi Kristjánsson
Lokasprettur ólympíuskákmóts-
ins í Manila stendur fyrir dyrum,
þegar þessar línur eru ritaðar. ís-
lenska sveitin hefur staðið sig frá-
bærlega vel til þessa, er í 4.-5.
sæti með Litháum. í elleftu umferð
á laugardaginn fær sveitin það erf-
iða verkefni að fást við rússnesku
sveitina, sem er langefst á mótinu.
íslendingar hafa teflt jafnt og
vel á mótinu, og sigrar á geysisterk-
um sveitum Englendinga og Hol-
lendinga í 9. og 10. umferð gefa
góðar vonir um síðustu umferðirn-
ar. Ekki má þó gleyma því, að enn
eru 16 skákir ótefldar og loka-
spretturinn skipti mestu máli um
endanlegan árangur í mótinu.
Tafla yfir árangur íslendinga
fylgir og á henni má sjá, hve jöfn
taflmennskan hefur verið. íslenska
sveitin hefur teflt við fímm sveitir,
sem teljast sterkari, og hefur unnið
tvær, en tapað naumlega fyrir
þrem, og vinningatalan er 10 v. af
20. Lakari sveitimar hafa hins veg-
ar unnist örugglega. Árangur
Hannesar Hlífars er frábær, og
gefur vonir um þriðja og síðasta
áfanga að stórmeistaratitli. Jóhann
og Helgi hafa einnig teflt af miklum
krafti, sem og aðrir liðsmenn.
Að lokum skulum við sjá tvær
skákir, mikla baráttuskák Helga
við Portishc og furðu auðveldan
sigur Margeirs á Sosonko.
8. umferð. 2. borð.
Hvítt: Helgi Ólafsson.
Svart: L. Portisch (Ungveijalandi).
Drottningarindversk-vörn.
1. d4 - Rf6, 2. Rf3 - e6, 3. c4
- b6, 4. g3 - Ba6, 5. b3 - Bb4+,
6. Bd2 - Be7, 7. Bg2 - c6, 8.
Bc3 - d5, 9. Re5 - Rfd7, 10.
Rxd7 - Rxd7, 11. Rd2 - 0-0, 12.
Rf6
(Fram tii þessa hefur skákin fylgt
margtroðnum leiðum skákfræðinn-
ar, en síðasti leikur er fremur sjald-
séður, en í uppáhaldi hjá Portisch.
Önnur leið er 12. — Hc8, t.d. 13.
e4 — c5, 14. exd5 — exd5, 15.
dxc5 — dxc4, 16. c6 — cxb3, 17,
Hel — Bb5, 18. axb3 — Bxc6, 19.
Bxc6, Hxc6, 20. Hxa7 — (Karpov-
Kortsnoj, Tilburg 1991) og svartur
hefði getað haidið jafnvægi með
20. - Bf6! (20. - Hxc3, 21. Rbl
- Hc7, 22. Hxc7, Dxc7, 23. Hxe7
- Hd8, 24. Dd5! og vinnur).)
13. e4 - b5, 14. Dc2 -
(í skákinni Karpov-Portisch, heims-
bikarmóti í Rotterdam 1989, varð
framhaldið 14. Hel — dxe4, 15.
Hcl - Hc8, 16. c5! - Rd5, 17.
Hxe4 - Rxc3, 18. Hxc3 - f5, 19.
Hxe6 — Dxd4, 20. Hcl — Bxc5,
21. De2 og í þessari stöðu hefði
21. - Ba3!, 22. Rf3 - Db2 gefið
jafnt tafl.)
14. - dxe4, 15. Hfel - Hc8, 16.
Hadl -
16. - Rd5!?
(Portisch hefur alla tíð lagt mikla
vinnu í skákrannsóknir og sagt er,
að á yngri árum hafi hann setið
minnst átta tíma á dag „við eldhús-
borðið“ heima hjá sér í Búdapest!
Þessi leikur sýnir, að borðið fræga
er enn í notkun. í skákinni
Beljavskíj-Chandler, Moskvu 1990,
fékk hvítur mun betra tafl eftir 16.
- h6, 17. Bfl! - Dd7, 18. Rxe4 -
Rxe4, 19. Dxe4 — bxc4, 20. bxc4
- Bf6, 21. Bb4 - Hfd8, 22. Bc5!
o.s.frv.)
17. Bxe4 —
(Helgi treystir því að heimavinna
Portisch standist, enda fær svartur
þijú peð og sterka stöðu fyrir mann-
inn eftir t.d. 17. cxd5 — cxd5, 18.
b4 (hvað annað við hótuninni 18. —
b4?) Bxb4 19. He3 - Bd6, 20. Dbl
- De7 með ýmsum hótunum: —
b4 ásamt — Bd3, tvöföldun hróka
á c-línunni og f7-f5-f4 o.s.frv.) 17.
- Rxc3, 18. Dxc3 - Bf6, 19. Dc2
(Eftir 19. Rf3 - c5, jafnar svartur
taflið án teljandi erfíðleika.)
19. - bxc4, 20. Bxh7+! - Kh8,
21. Re4 — cxb3, 22. axb3 — g6
(Auðvitað ekki 22. — Kxh7??, 23.
Rxf6++ - Kh6, 24. Dh7+ - Kg5,
25. Re4+ - Kg4, 26. Dh3+ -
Kxh3, 27. f3 ásamtRe4-f2+ mát!)
23. Bxg6 - fxg6, 24. Rc5 - Bxd4,
25. Rxe6 - Bxf2+!, 26. Dxf2 -
Hxf2, 27. Rxd8 - He2, 28. Hxe2
- Bxe2, 29. Hd7 - Bg4, 30. Hd6
- Bf3
(Eftir flækjur undanfarandi leikja,
sem voru meira og minna þvingað-
ir, er komið upp einfalt endatafl.
Helgi stendur betur, en það dugir
ekki til vinnings.)
31. Kf2 - Bd5, 32. b4 - a6, 33.
Ke3 - Kg7, 34. Kd4 - Hb8!, 35.
Hd7+ - Kf6, 36. Rb7 - g5, 37.
h4 — gxh4, 38. gxh4 — Hh8, 39.
Kc5 - Hxh4, 40. Ra5 - Ke6, 41.
Hd6+ - Ke7, 42. Rxc6+ - Bxc6,
43. Hxc6 - Hh5+, 44. Kc4 - a5,
45. b5 - Kd7, 46. Ha6 - Kc7,
47. Hxa5 - Hh4+
og jafntefli var samið, því staðan
er steindautt jafntefli, t.d. 48. Kd5
- Hh5+, 49. Ke4 — (annars skák-
ar svartur endalaust á h-linunni.)
49. — Hh4+, 50. Kf5 — Kb6 ásamt
51. - Kxb5.
10. umferð. 2. borð.
Hvítt: G. Sosonko (Hollandi).
Svart: Margeir Pétursson
Siavnesk vöm
1. d4 - d5, 2. Rf3 - Rf6, 3. c4 -
c6, 4. Rc3 — dxc4, 5. a4 — Bf5,
6. Re5 - e6, 7. Bg5 - Bb4, 8. f3
- c5.
(Skákfræðin mælir með að leika
fyrst 8. - h6, 9. Bh4 - c5, 10.
dxc5 - Dxdl+, 11. Kxdl - Rbd7,
12. Rxd7, 0-0-0, 13. e4 - Hxd7+,
14. Kc2 - Bh7, 15. c6 - bxc6, 16.
Bxc4 - Bd6, 17. Bd3 - Rh5, 18.
Re2 — g5, 19. Bf2 — f5 með nokk-
uð jöfnu tafli.)
9. dxc5 — Dxdl!, 10. Kxdl —
Rbd7, 11. Rxd7 - 0-0-0, 12. e4 -
Hxd7+, 13. Kc2 - Bg6, 14. c6 -
bxc6, 15. Bxc4 - Hhd8, 16. Ba6+
- Kc7, 17. a5 -
(I næstu leikjum missir Sosonko
algjörlega þráðinn og missir mun
betri stöðu niður í tap. Þetta er
sérstaklega athyglisvert, þegar haft
er í huga, að hann er þrautreyndur
stórmeistari, sem þykir mjög vel
að sér í fræðunum.)
17. - Be7, 18. Be3 - Kb8, 19.
Kb3 - Re8, 20. Hhcl?! - f5, 21.
exf5?! - exf5, 22. Hdl?! - Bf7+
(Hollendingurinn er kominn í mikii
vandræði. Hann hefur leyft svarti
að opna línur á miðborðinu fyrir
biskupana, þarf að beijast við
svörtu hrókana á d-línunni og loks
verður peðið á a5 veikt, ef til hróka-
kaupa kemur.)
23. Ka4 -
(Auðvitað ekki 23. Bc4? - Hb7+
og hvíti biskupinn fellur. Eftir 23.
Kc2 - Hxdl, 24. Hxdl- - Hxdl,
25. Rxdl - Bd6, 26. h3 - Rc7,
27. Bd3 - Rd5, 28. Bd2 - g6,
stendur svartur betur, en þessi leið
hefði verið skárri fyrir hvítan held-
ur en framhaldið í skákinni.)
23. - Rc7,24. Be2 - f4!, 25. Bf2 -
(Ekki 25. Bxf4? — Hd4+ o.s.frv.)
25. - Hd2, 26. a6 - Rb5!
(Svartur tapar minnst manni í þess-
ari stöðu.)
27. Habl — Rxc3+, 28. bxc3+ —
Kc8
og Sosonko gafst upp, því auk hót-
unarinnar 28. — Hxe2 er önnur
verri, 29. — Ha2+ mát!
Ólympíuskákmótið í Manila 1992
Jóhann - Vl 1 0 - >/2 1 >/2 >/2 1
Margeir ‘/2 - ‘/2 1 - 0 >/2 - Vl 1
Helgi - 1 1 0 1 - >/2 >/2 - >/2
Jón L. 1 - >/2 >/2 >/2 >/2 - 0 1 -
Hannes Hlífar 1 1 - - 1 >/2 */2 - 1 -
Þröstur 1 V2 - - >/2 - - >/2 - 0
3Vi 3 3 V/2 3 V/2 2>/2 V/2 3 2'/2
Mokveiði í Norðurá
ÞAÐ hefur verið mokveiði í
Norðurá í Borgarfirði síðustu
daganna og holl sem lauk veið-
um á hádegi fimmtudagsins
veiddi eigi færri en 75 laxa og
var þó aðeins veitt á níu stangir
af tólf leyfilegum og áin auk
þess erfið til veiða um tima
vegna vatnavaxta. Veiðimenn
sáu mikinn lax víða um ána og
hefur töluvert af smálaxi gengið
á svæðið. Slíkt er óveiyulegt svo
snemma sumars, en gerist helst
er von er á stórum smálaxa-
göngum. Slíkt gerðist m.a. sum-
arið 1988 er smálaxagöngur
voru griðarlegar og flestar ár
fullar af laxi.
Jón Gunnar Borgþórsson fram-
kvæmdastjóri SVFR sem hefur ána
á leigu sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að það væru greinilega
svona fréttir sem menn hefðu beð-
ið eftir, því talsverð hreyfíng væri
þegar komin á sölu óseldra leyfa í
ána og kæmi það ekki á óvart þar
eð betra væri að vita af ánni fullri
af fiski. Það fylgir þessari sögu að
lítið lát væri á veiðinni, hópurinn
sem tók við af „stóra hollinu“ hafði
fengið 25 laxa eftir einn veiðidag
og var áin þó nærfelit óveiðandi
helminginn af tímanum vegna
gruggs og vatnavaxta.
Hér og þar....
„Þetta er að koma svona hægt og
rólega, í gær urðu rnenn varir við
mikið af laxi í Höklunum og Sjáv-
arfossi, en hvassviðrið gerði mönn-
um erfitt fyrir. Það eru komnir
svona 70 laxar á land og enn er
þetta allt fyrir neðan Laxfoss. Það
er töluvert af fiski á svæðinu, en
hefur tekið frekar illa, þar til allra
síðustu daga, að það hefur aðeins
glæðst, enda gengið inn nýr fisk-
ur,“ sagði Ólafur Helgi veiðivörður
við Laxá í Kjós í gærdag. Ólafur
sgaði okkur frá því að auki, að
stærsti laxinn hefði vegið 20,5
pund og hefði hann veiðst í Lax-
fossi að sunnan á maðk. Sá lax var
með öngul í sér og nokkrar sökkur
með. Þann 12. þessa mánaðar
glímdi veiðimaður einn við stórlax
á þessum sama stað í tæpar 40
mínútur og var íaxinn nánast kom-
inn í háfinn hjá aðstoðarmanninum
er línan gaf sig og slitnaði þótt
sver væri. Laxinn var áætlaður um
20 pund og virðist nánast borðliggj-
andi að hér sé á ferðinni sami lax-
inn.
Það hífa veiðst 15 laxar í Vatns-
dalsá síðan í opnun á mánudaginn
að sögn Bjargar Erlingsdóttur í
veiðihúsinu Flóðvangi í Vatnsdal.
Hún sagði menn ánægða með það
og bjartsýna, því þetta teldist gott
miðað við hve erfitt hefur verið að
gera út á Vatnsdalsá sökum hvass-
viðris síðustu daga.
Góðtemplarar þinga
HALDIN voru'á Akranesi 53.
Unglingaregluþing og 77. Stór-
stúkuþing IOGT dagana 3. til
5. júní. Er það fyrsta sinni, sem
Unglingaregluþing hefur verið
haldið þar, en Stórstúkuþing
var haldið á Akranesi fyrir 50
árum.
Á Stórstúkuþingi voru eftirtald-
ir menn heiðraðir fyrir margs kon-
ar stuðning að bindindismálum:
Bragi Bergmann ritstjóri Akur-
eyri, Ellert Schram ritstjóri
Reykjavík, Haukur Morthens
söngvari og hljómlistamaður í
Reykjavík, Heimir Steinsson út-
varpsstjóri í Reykjavík, Ingvar
Gíslason fyrrverandi menntamála-
ráðherra og ritstjóri í Reykjavík
og Ríkharður Jónsson málara-
meistari, fyrrverandi knattspymu-
kappi og æskulýðsleiðtogi-á Akra-
nesi.
Á þinginu voru mörg mál rædd
og ýmsar ályktanir gerðar. Lögð
var áhersla á stóraukna útbreiðslu
og fræðslu einkum meðal ungu
kynslóðarinnar.
Þingið varaði við hugsanlegum
vínveitingum í skipum, flugvélum
og áætlunarbifreiðum og skoraði
á ríkisstjómina að veita ekki slík
leyfi. Ennfremur varaði þingið við
öllum hugmyndum um eiknavæð-
ingu ÁTVR.
Þá skoraði þingið á ríkisstjórn
að sporna við frekari fjölgun á
vínveitingastöðum.
Stórtemplar var endurkjörinn
séra Björn Jónsson á Akranesi.
Nýr stórgæslumaður unglinga-
starfs var kjörinn Jón K. Guð-
bergsson fulltrúi í Reykjavík.
Stórtemplar ásamt þeim mönnum, sem Stórstúkan heiðraði. Frá
vinstri Bragi Bergmann, ritstjóri Akureyri, Haukur Morthens
hljómlistamaður Reykjavík, Ingvar Gísiason fyrrum menntamála-
ráðherra Reykjavík, Ríkharður Jónsson málarameistari Akranesi
og séra Björn Jónsson stórtemplar.